Morgunblaðið - 30.04.1966, Blaðsíða 11
f Laugaríagur 30. apríl 1966
MORGUNBLAÐIÐ
n
við það. Ég þarf að komast í
sundlaugarnar, það er langt í
þær, og okkur langar til að
hreyfa okkur, og það er eitt af
lífsskilyrðunum fyrir okkur
eldra fólkið að hreyfa okkur,
og ég vil endilega fá betri og
fleiri strætisvagnaferðir. Mig
langar til að vita, hvort það er
ekki möguleiki til þess, því að
þetta heimili er svo stórt, að
það er orðið eins og heilt sveita-
þorp eða kaupstaðirnir áður, og
| við þurfum oft að bregða okkur
I í bæinn til gagns og gamans.
Þess vegna óskum við eftir betri
eamgöngum við miðborgina.
L Borgarstjóri:
* 1 Ég skal með ánægju kanna
möguleikana á því hvort unnt sé
að fjölga strætisvagnaferðum.
Það er í því sambandi rétt að
| geta þess, að leiðakerfi strætis-
j vagnanna er í endurskoðun ein-
mitt eftir gerð aðalskipulags og
eamþykkt gatnakerfis, og þá hlýt
ur það að vera ein meginvið-
miðunin hve strætisvagnaleiðirn
ar geta þjónað mörgu fólki, og
það er rétt sem Lilja Björns-
I dóttir sagði, að vistmönnum á
!' Hrafnistu fer fjölgandi, ibúum
liér á Laugarási fer fjölgandi
með tilkomu þriðja há'hýsins og
ennfremur með tilkomu ibúðar-
hverfisins við Norðurbrún, þann
I ig að ég vonast til að hægt sé,
eð ein'hverju leyti, að koma til
móts við óskir Lilju Björnsdótt-
ur.
( Guðmundur Jónsson:
1. Svæði það, er autt er á
milli Laugarnesvegar og Rauða-
lækjar, var eitt sinn ákveðið
sem bílskúrslóðir fyrir sambýl-
ishús við Laugarnesveg. Hve
marga bílskúra má byggja á
því svæði, og hvaða sambýlis-
hús hafa rétt til þeirra?
2. Á heildarskipulagi Reykja-
víkur 1963 til 1982 er mestur
hluti Laugarnestanga ákveðinn
eem iðnaðar- og vörulagersvæði
fyrir væntanlega Sundahöfn, en
eðeins örlítið útiveðursvæði. Ber
ég því fram tillögu þess efnis,
eð iðnaðarsvæði það er ráðgert
er vestan Laugarnesvegar, verði
eutt svæði eða leiksvæði ungl-
inga sem annarra.
Borgarstjóri:
Varðandi svæðið á milli Laug-
ernesvegar og Rauðalækjar, sem
ætlað var fyrir bílskúra fyrir fjöl
býlishúsin aðallega við Klepps-
veg og Laugarásveg, þá er rétt
eð geta um það, að þær fyrir-
ætlanir hafa töluvert breytzt.
J>ótt hér sé um tiltölulega ungt
hverfi að ræða, eða um 9 ára
gamalt eða rúmlega það, þá hef-
«r bílafjölgunin verið svo geysi-
leg, að áður var áætlað að e.t.v.
væri einn bíll tilheyrandi ann-
arri hvorri íbúð, en nú e.t.v.
tveir til'heyrandi einni og sömu
íbúðinni. Þetta gerir það að
verkum, að skipulagsnefnd telur
ekki rétt að leyfa bílskúrsbygg-
ingar á þessu svæði, vegna þess
að hver bilskúr tekur yfir tvö
venjuleg bifreiðastæði. Helzt
kemur til greina að leyfa bygg-
ingu bílskýla, en svæðið verður
þarna hér um bil allt notað
fyrir bílastæði tilheyrandi íbúð-
um. Einn þáttur þessara breyt-
inga er sá, að erfitt er að gera
upp á milli húsanna og íbúð-
anna, hver eigi að fá bílskúrsrétt
indin. Bílageymsluþörfin er svo
mikil, að nýta verður svæðið
sem mest, og það verður ekki
gert ef bílskúrar eru byggðir..
Einnig verður þarna í hverfinu
byggður leikvöllur barna.
2. Það er gerð tillaga um, að
iðnaðarsvæði það, er ráðgert
hefur verið vestan Laugarnes-
vegar, verði autt svæði eða leik-
svæði unglinga sem annarra. Ég
tek það fram, að svæðið er ætl-
að fyrir kjötvinnslustöð, þar
sem hiri ýmsu kjötvinnslufyrir-
fæki fái aðsetur, og mun það
ná allt frá Laugalæk og að
Kleppsveg, en verður dregið frá
Laugarnesveginum, þannig að
einhver aðskilnaðúr myndist við
íbúðarhverfið austan Laugarnes-
vegar.
Víðir Finnbogason:
Hvenær er fyrirhugað að ljúka
framkvæmdum við íþróttaleik-
vanginn í Laugardal?
Borgarstjóri:
f Það er erfitt að segja til
það, vegna þess að þar
ar og margvíslegar framkvæmdir
fyrirhugaðar, en ef átt er við
fullnaðarbyggingu áhorfenda-
stúku, þá er ætlunin að hefja
þær framkvæmdir á næsta ári,
og þær taka væntanlega tvö ár.
Hins vegar eru fyririhugaðar
miklar framkvæmdir, bæði við
leikvanginn sjálfan og einnig
við gerð annarra leikvalla, t.d.
á að gera þar malarvöll til af-
nota vor og haust, og til þess að
leysa af hólmi gamla malarvöll-
inn vestur í bæ. Alls verða þama
6 eða 7 fþróttaleikvellir ásamt
grasflötum og opnum svæðum.
Ætlunin er að stækka að mun
skrúðgarðinn í Laugardal og
auka við grasgarðinn, en þar eru
nú 3000 plöntur mismunandi til
sýnis fyrir þá sem hafa áhuga
á garðrækt. Laugardalur verður
fegursti staðurinn í Reykjavík
þegar fram líða stundir, en ég
býst ekki við, að framkvæmdir
þar verði á enda á næsta ári eða
næstu árum. Það mun taka lang-
an tíma að rækta Laugardalinn
upp, eins og okkur langar til að
hafa hann í framtíðinni.
Svava Kristjánsdóttir:
Virðulegi borgarstjóri. Hvenær
má búast við að framkvæmdir
við gangstéttir í Höfðahverfi
hefjist, og mun þá verða lögð
gangstétt við Samtún?
Borgarstjóri:
Gangstéttaframkvæmd í Höfða
hverfi mun hefjast núna í vor, og
þar með gangstéttagerð við Sam-
tún.
Ingþór Sigurbjörnsson:
1. Hve lengi er ákvarðað að
sand- og malargeymsla í Vatna-
görðum verði þar?
2. Hefur aldrei verið reiknað
með nýtingu þessa sérstaka stað-
ar sem lystigarðs, eða jafnvel
sem bátahafnar, og þá ekki sízt
með tilliti staðarins við Dvalar-
heimili aldraðra sjómanna. Með
ágætri þökk fyrir ágætar upplýs-
ingar.
Borgarstjóri:
Ég þakka fyrirspyrjenda fyrir
það traust, að þakka ágætar upp
lýsingar fyrirfram, og vona að
ég valdi honum ekki vonbrigðum
En varðandi fyrri liðinn er það
svo, að þessi sand- og mal'ar-
geymsla í Vatnagörðum hlýtur
að hætta, þegar framkvæmdir
við nýju Sundahöfnina hefjast.
Eins og sýnt var hér á kortinu
í upphafi fundar, þá er fyrsti
áfangi í raun og veru þar sem
Vatnagarðar eru nú. Þess vegna
er ekki unnt að gera þar sér-
staka lystibátahöfn. Það má taka
fram, að búist er við, að fram-
kvæmdir hefjist þar í sumar.
Hins vegar mun verða opið svæði
þar sem Kleppsspítalinn er núna
og beggja vegna við hann. Hvað
unnt er að gera þar varðandi
lystibátahöfn, skal ég ekki segja,
en til meðferðar í hafnarstjóm
að undanförnu hefur verið vanda
mál trillubátaútgerðar eða smá-
bátaútgerðar frá Reykjavík og
lystibátahafnar, og í því efni er
talið, að rétt sé að koma lysti-
bátum fyrir í Fossvoginum eða
Skerjafirðingum og að sumu leyti
heppilegra að lystibátar hafi þar
aðsetur og raunar líka fiskibát-
ar, þar sem styttra er þaðan á
miðin.
Guðmundur Kristjáasson:
Mig minnir, að Laugavegurinn
eigi að breikka til norðurs frá
Höfðatúni og austur úr. Hvernig
væri að nota veginn sem þak yfir
bílastæði. þar sem Láugavegur-
inn er nægilega mikið hærri en
lóðir t.d. við Höfðatún? Kannski
mætti líka nota breikkunina sem
neðanjarðarbílabraut. Þetta gæti
orðið mikil prýði og kæmi að
notum.
Borgarstjóri:
Ég þakka fyrir þessa ábend-
ingu, og það er velkomið að
kanna hana, en sannleikurinn er
sá, að aðkoman að háhýsunum
við Hátún og frá Hátúni, og ef
bílageymsla ætti að vera Lauga-
vegsmegin, þá er ég anzi hrædd-
ur um. að það nmndi rýra lóðir
húsanna of mikið.
Björg ólafsdóttir:
Herra borgarstjóri.
Fyrirspurn um leikvelli hér í
hverfinu. Ég er hér með upp-
drátt frá 1954. Á honum er sýnd
ár, en engar framkvæmdir orðið.
En á þessum uppdrætti er engin
brennivínsbúð sýnd, en hana höf
um við fengið. Og með henni hef
ur umferðarhættan orðið svo gíf-
urleg, að gæzluvellir þola enga
bið.
Borgarstjóri:
Að þessu leyti hafa teikningar
ekki breytzt frá 1954, og ætlun-
in er einmitt að byggja leikvölí
við Jaðar eða Brúnaveg Og Dal-
braut, og þar mun einnig koma
leikskóli. Hins vegar hefur óvissa
um legu Dalbrautar og gerð henn
ar valdið því, að ekki hefur ver-
ið farið út í framkvæmdir á
iþessu svæði. Og fyrir það er held
ur ekki að synja, að framlrvæmd
ir á þessu sviði hafa mjög síð-
ustu árm beinzt að byggingu vist
heimilis og uppeldisheimilis við
Dalbraut en í það hefur mikið
fjármagn farið, en það á líka að
vera miðstöð fyrir uppeldis-
vandamál munaðarlausra og
heimilislausra barna. En ég
vona að það. verði ekki löng bið
á því að byggður verði leikvöil-
ur á þessu svæði, og síðan leik-
skóli.
Albert Guðmundsson:
Ég álít að það þurfi kjark
borgarstjóra og borgarstjórnenda
til að boða til svona fundar,
leggja fram fyrir kjósendur verk
in og láta dæma sig. Ég tók eftir
iþvi áðan, þegar talað var um
íþróttavöllinn í Laugardalnum,
að það stendur til að flytja mal-
arvöllinn frá Melunum vestur úr
bæ til Laugardalsins. Er það rétt
skilið, að það sé keppnisvöllur
sem komi í staðinn fyrir Mela-
völlinn?
Borgarstjóri:
Melavöllurinn á að hverfa sam
kvæmt skipulagi, og þarna verð-
ur því að koma keppnisvöllur
líka, malarvöllur, sem hægt er
að nota vor og haust, eftir því
sem mér skilst.
Kristinn Jónsson:
1. Hvað tefur úthlutun á iibúð
arlóðum i Fossvogi?
2. Er ekki hægt að flytja hrá-
efni til verksmiðjunnar að Kletti
á annan hátt en gert er?
Borgarstjóri:
1. Til skýringar á úthlutun
ibúðarlóða í Fossvogi, þá skal
þess getið, að umsóknir voru það
margar, að langan tíma tekur að
fára yfir þær og flokka þær.
Ég býst við því að úthlutunin
fari fram í júnímánuði.
2. Ég er því miður ekki nægi-
lega kunnugur þeim málurn til
þess að geta svarað því, en ég
geri ráð fyrir að fyrirspyrjandi
eigi við, hvort hægt sé að flytja
það í lokuðum bílum, og gæta
þess að ekki slettist á götumar
við flutninginn, en því miður get
eg ekki svarað þeirri spumingu
svo að nokkuð lag eða vit sé L
Guðmundur Magnússon:
Herra borgarstjóri.
Mig langar til að þakka fyrir
þennan fund, og ég tók eftir því
í framsöguræðu Styrmis, og
reyndar fundarstjóra líka’, að
þeir álíta að slíkur fundur sem
þessi marki tunamót í íslenzkum
stjórnmálum. Það má vel vera.
En ég varpa fram þeirri hug-
mynd til borgarstjóra núverandi,
ef hann verður borgarstjóri
áfram eftir kosningar, hvort ekki
væri rétt til að koma í veg fyrir
óæskilega þróun, sbr. t.d. Banda
ríkin, að einhverjir fundir sem
Þessir væru líka haldnir einu
sinni, t.d. á miðju kjörtímabili?
Eg varpa þeirri hugmynd aðeins
fram.
2. Það ganga illar sögusagnir
um það, að þessir fundir séu kost
aðir af borgarsjóði. Það dettur
mér ekki í hug að veita því að
Geir borgarstjóra að slíkt sé
rétt. En það væri gaman að fá
yfirlýsingu hans sjálfs, að allar
siíkar sögusagnir séu úr lausu
lofti gripnar, og þar með sé rétt
sem stendur í Staksteinum Mbl.
i dag.
3. Mig langar til að spyrja
borgarstjóra að því, hvort ekki
megi vænta þess að sú stefna,
sem upp var tekin í lóðamálum
skólanna samanber Álftamýrar-
skólann, verði framvegis fram-
kvæmd, þ.e.a.s. að lóðir skól-
anna verði boðnir út um leið og
skólaibyggingin sjálf. Það er til
Stórra bóta, en því miður hefur
verið brestur á því undanfarin
ár, ég vil segja áratugi, að lóðir
skólanna væru í því ástandi sem
viðunandi er Það er t.d. rétt og
satt að lóð Vogaskólans verður
alltof lítil og ég bý við þau
skilyrði, að vera skólastjóri
skóla við eina hættulegustu
umferðaxgötu bæjarins án þess
að nokkuð hafi verið gert til þess
að koma í veg fyrir slys með
eðlilegum framkvæmdum. Ég
veit það og fagna þvd, og það,
er vissulega rétt og skylt
að þakka það sem hefur verið
gert, og mér er kunnugt um það
núna, áð það verður eitthvað gert
í málefnum Laugarlækjarskólans
og ég hlakka til þess, en þetta
hefur dregizt alltof lengi.
4. Mig langar að beina þeirri
fyrirspurn til borgarstjóra, hvort
ekki væri timabært í samlbandi
við skemmtana og félagsmálin,
að ráða einhverja sérstaka menn
á vegum borgarinnar og kannske
með þátttöku ríkisins líka, til að
annast þessi mál. Við fáum að
vísu fjárveitingu nokkra, en
þurfum að biðja kennara, sem
eru störfum hlaðnir að annast
þessi mál, og þetta verður ekki
í góðu lagi, fyrr en sérstakir
menn, sem eru menntaðir til þess
og hafa þekkingu í uppeldisfræði
líka, eru ráðnir til slikra starfa.
Þessum fyrirspurnum langar
mig til að beina til borgarstjóra,
um leið og ég sem almennur borg
ari þakka fyrir 'þennan fund, og
vona að þeir verði áfram í því
formi, sem ég minntist á í upp-
hafi máls míns.
Borgarstjóri:
Ég þakka Guðmundi Magnús-
syni þessar fyrirspurnir, og sann
leikurinn er sá, að ég hef mikinn
áhuga á því, ef ég verð endur-
kjörinn borgarstjóri, að halda
slíkum fundum áfram til að
mynda annað hvert ár eða svo,
eða jafnvel hvert ár eftir undir-
tektum. En hins vegar dettur
mér í hug að einhvers staðar sá
ég gagnrýni á því af hverju þetta
nýmæli, sem út af fyrir sig væri
ágætt, hefði ekki verið fyrr upp
tekið, og verð ég bara að játa
það, að hvorki mér né öðrum
datt það í hug. En eftir þeim
undirtektum, sem þessir fundir
hafa fengið. er sjálfsagt að við-
halda þeim tengslum sem tekizt
hafa á þennan hátt í framtíð-
inni.
2. Ég skal skýrt og skorinort
lýsa því yfir að borgarsjóður kost
ar alls ekki þessa fundi, og kostn
aður af þeim greiðist af stuðn-
ingsmönnum mínum og félaga
minna í borgarstjórn.
3. I þessu sambandi skal það
fram tekið, að nú eru byggingar
borgarinnar yfirhöfuð boðnar út
á þann veg að allar framkvæmd-
ir í sambandi við bygginguna
sjálfa eru innifaldar í hreinu út-
boði, og þar á meðal lóðalögun.
Þetta er töluvert mikið framfara
spor að samræma þannig allar
framkvæmdir á einum bygging-
arstað á einni hendi undir sömu
ábyrgu stjórn. Þetta hefur gefizt
mjög vel. Laugalækjarskólinn
var á hinn bóginn byggður áður
en þessi nýjung var upp tekin,
og að vissu marki nær hún ekki
alveg tilgangi sínum hvað lóðar
lögun snertir, þar sem skólar eru
byggðir í áföngum og eitthvert
rask hlýtur að eiga sér stað á
lóðum, þegar nýr áfangi er tek-
inn undir.
4. Ég tek því fram, að borgar-
sjóður hefur greitt aukalega
ýmsum kennurum og ráðið sér-
staklega kennara í ýmsa skóla
til þess að vinna að félags- og
tómstunda störfum, í þeirri trú
líka að þetta þætti eðlilegur lið-
ur í kostnaði við skólahald, en
nokkur skoðanamunur virðist
vera á milli borgarsjóðs og
menntamálaráðuneytisins í þeim
efnum, en ég vona að sá skoðana
munur leysist á þann veg, að
báðir aðilar fallizt á sjónarmið
borgarinnar. að þetta félags- og
tómstundastarf unglinga og starf
kennara að því sé sjálfsagður
liður í skólahaldinu.
Borgarstjóri þakkaði að lokum
fundarmönnum komuna og fund-
arstjóri sleit siðan fundi með
nokkrum orðum.
★ ★
ÞESSAR fyrirspumir komu fram
á fundi borgarstjóra í Lídó, ea
hafa ekki áður verið birtar:
Tryggvi Ólafsson:
1. Hvað er ætlunin að gera
við holtið vestan og norðan Sjó-
mannaskólans.
Svar borgarstjóra:
Á þessum slóðum hefur
Sjómannaskólanum verið ætluð
lóð og ég held ég megi segja
að burt séð frá þeirri byggingu,
sem komin er, ráði Sjómanna-.
skólinn yfir þessu svæði sam-
kvæmt samþykkt borgarráðs og
borgarstjórnar, að þvi þó frá-
teknu, að Háteigskirkja hefur
sæmilega rúmt um sig á homi
Háteigsvegar og Lönguhlíðar.
Tryggvi Ólafsson:
2. Hefur borgarstjóm gert
nokkrar ráðstafanir til flutnings
á veitingahúsunum Röðli og Þórs
kaffi. Frá þeim stafa oft mikil
ólæti, köll og bílaflaut, langt
fram eftir nóttu, fbúum hverfis-
ins til mikilia óþæginda.
Svar borgarstjöra:
í þessum efnum er ekki hægt
að segja, að borgarstjóm hafi
gert nokkrar ráðstafanir til flutn
ings á þessum húsum, en hins
vegar hefur verið lögð áherzla'
á, í samráði við löggæzluna, að
herða eftirlitið með umgengni
manna um þessar slóðir þegar
veitingahúsum þessum er lokað
vegna þess að það. er rétt, sem
segir í fyrirspurninni, að mikil
óþægindi eru af rekstri þessara
veitingahúsa fyrir nágrennið og
er það skylda börgaryfirvalda að
friður og ró haldizt þegar svefn-
tími er komin í íbúðarhverfum.
Valgarð Kristjánsson:
Hvenaer má vænta úthlutunar
á byggingarlóðum þeim sem þér
sögðuð að úthlutað yrði á þessu
sumri.
Svar borgarstjóra:
Svarið er að þeim verður út-
hlutað á þessu sumri. Það var
svo, að þær voru auglýstar laus-
ar til umsóknar, margiar umsókn
ir bárust og raunar fleiri en Ióð-
imar voru og sérstaklega voru
fleiri umsóknir um sérstakar lóð
ir_ Þar sem reisa mátti sérstakar
húsagerðir og á sérstökum svæð-:
um í borginni. Fjöldi umsókn-
anna gerði það að verkum, að við
þurfum að setja sérstakar reglur
um úthlutunin* meðal annars er
sett það skilyrði, að sá sem lóð
fær, hafi ekki fengið lóð síðustu
tíu árin, ef um tvibýlishúsalóð,
einbýlishúsalóð eða raðhúsalóð
er að ræða og ekki aðild að
f jölbýlishúsalóð síðustu fimm ár-
in; að hann sé í skilum við borg-
arsjóð og borgarstofnanir og ann
að þvíumlíkt.
Eftir flokkun samkv. þeim regl
um, þarf að kanna fjölskyldu"
stærð og upplýsingar umsækj-
anda af Manntalsskrifstofimni, en
Manntalsskrifstofan er nú bund-
in við gerð kjörskrár svo að bið
verður a því að hún geti snúið*
sér að þessu verkefni, en það
mun verða um mánaðarmótin
™aí—júni- Fer þá úthlutun fram
í kjölfar þeirrar athugunar.
CIA og sykurinn
írn Kúbn
New York, 28. apríl. — NTb.
„NEW YORK TIMES" birtir i
dag enn eina grein um banda-
rísku leyniþjónustuna (CIA) og
starfsemi hennar, og segir þar að ♦
leyniþjónustan hafi árið 1962 ]át
ið eyðileggja sykurfarm er var
á leið frá Kúbu til Sovétríkjanna
og hafi tilgangurinn verið að
spilla um fyrir utanríkisviðskipt
um Kúíbumanna. Segir blaðið að
er Kennedy forseti hafl frétt
þetta hafi hann orðið ofsareiður
og fyrirskipað að þegar í stað
yrðu gerðar ráðstafanir til þess
að bæta tjónið að fullu.
ur ieiKSKon og gæzmvoiiur,
um er leikskólinn staðsettur á h
eru iriare- inu hjá mér. Nú eru liðin