Morgunblaðið - 30.04.1966, Qupperneq 10
MORCUNB LAÐID
Laugardagur 30. apríl 1966
'1
JC.
— Fundur
— borgarstjóra
Framhald af bls. 1
hvað úr þeim óþægindum, sem
þessu valda?
í öðru lagi: Hvaða möguleikar
eru fyrir Reykjavíkurborg að
eignast Viðey og gera þar þær
viðhlítandi ráðstafanir, að Viðey
verði í framtíðinni Reykjavíkur-
borg og landi til sóma?
I þriðja lagi: Er í væntanlegri
Sundahöfn gert ráð fyrir að smá-
bátaeigendur fái öruggt athvarf.
Borgarstjörl:
1. Varðandi Sorpeyðingarstöð-
ina og þá ólykt, sem af henni
leiðir, skal það sagt, að Sorp-
eyðingarstöðin hefur ekki nægi-
leg afköst til þess að anna sorp
hreinsun á öllum þeim úrgangi,
sem til fellur í borginni, og þess
vegna hefur verið leitað annarra
úrræða til þess að sjá fyrir úr-
gangsefnum. í sambandi og í
samvinnu við nágrannasveitar-
félögin hafa erlendir sérfræð-
ingar sagt álit sitt á þessum mál
um, og þeir leggja til, að við
höfum sameiginlega sorphauga
nokkuð langt frá byggðinni,
gæta þess vel að þekja þá alltaf
jafnóðum með möl og sandi, og
á; þann hátt telja þeir að það
hverfi smátt og smátt, og unnt
að nýta uppfyllingarefnið, sem
þannig kemur til, á hagkvæman
hátt. Það er óhætt að segja, að
eldurinn sem logar fyrir neðan
Sorpeyðingarstöðina mun vera
slökktur nú í sumar, og sá úr-
gangur, sem Sorpeyðingarstöðin
sjálf getur ekki afkastað, verður
flutt á brott. Hinsvegar er það
svo, að Sorpeyðingarstöðin sjálf
mun halda áfram starfræksiu
sinni á sama stað um hríð.
2. Reykjavíkurborg hefur
mjög oft og hart leitað eftir kaup
um á Viðey, en því miður hefur
ekki gengið saman um kaup.
Samningar hafa ekki tekizt við
eiganda, og aðalástæðan er sú,
að eigandinn hefur ekki viljað
selja eyna alla. í þessu
sambandi skal upplýsa að Viðey
er ekki innan marka Reykja-
víkurborgar, hún tilheyrir Sel-
tjarnarneshreppi. Það kann að
vera ástæða fyrir Reykjavíkur-
borg í náinpi framtið, að athuga
möguleikana á því að taka Viðey
eignarnámi, einkum og sér í lagi,
ef það þætti þurfa í sambandi
við hafnargerð í Sundum.
3. Á fyrsta stigi verður ekki
um slíkt athvarf að ræða í
Sundahöfn, enda mun það vera
svo, að þeim sem stunda fiski-
róðra á þessum bátum, mun
þykja of langt á miðin héðan
innan úr sundinu, og kjósa held-
ur staðsetningu í gömlu höfn-
inni eða vestar. Athvarf er ekki
mögulegt að búa þessum bátum
í gömlu höfninni og þess vegna
hefur komið til tals að búa
Geir Hallgrímsson borgarstjó ri svarar fyrirspurnum fundarmanna á fundinum í Laugarásbíói
í gærkvöldi. Frá v. Þórir Kr. Þórðarson, prófessor, Ágúst Geirsson, fundarstjóri, frú Hulda
Valtýsdóttir og Jón Árnason, fundarritarar.
þeim nokkurt athvarf í Skerja-
firðinum, en málið er komið
skammt áleiðis. Geta má þess
þó, að í Skerjafirðinum eða Foss-
voginum er gert ráð fyrir lysti-
bátahöfn í framtíðinni, í tengsl-
um við sjóbaðstaðinn í Nauthóls-
vík.
Jóhannes Proppé:
Er hægt að auka umferðar-
stjórn og eftirlit á Langholts-
veginum.
2. Hve lengi á gamli íþrótta-
leikvangurinn á Hálogalandi
eftir að verða í notkun sem leik-
fimihús við Vogaskóla?
Borgarstjóri:
Varðandi Langholtsveginn skal
það tekið fram, að gangstétt
verður lögð beggja vegna Lang-
holtvegar nú í sumar, og um
leið verður Langholtsvegur end-
urbættur. í sambandi við leik-
fimihúsið að Hálogalandi og
hve lengi það verður notað fyrir
Vögaskóla, skal tekið fram, að
verið er að ganga frá teikningu
að síðasta áfanga Vogaskóla.
Sú teikning hefur verið mjög
lengi í smíðum, og mun lengur
heldur en við höfðum kosið, en
um erfitt verkefni var að ræða,
þar sem í sömu byggingu þarf
að koma fyrir leikfimihúsi og
samkomusal, ýmsum sérkennslu-
stofum, og húsrými fyrir skóla-
stjórn. Þegar teikningar eru til-
búnar, mun húsið og verkið vera
boðin út og lögð mikil áherzla
á að flýta framkvæmdum öllum.
En þar til salurinn er upprisin
og kominn í nothæft ástand í
nýja húsinu verðum við að nýta
íþróttahúsið að Hálogalandi eins
og við ebzt getum, það er neyð-
arrúræði vegna þess að húsið er
lélegt og erfitt er um vik, kuldi
að vetrum, og einkum þarf sér-
staklega að huga að endurbót-
um í búningsklefum. Og það
mun verða gert eftir því, sem
talið er hagkvæmt um viðgerðir
á svo gömlum húsum.
Gísli Gislason:
1. Hefur borgartjórn stutt
íþróttafélögin til þess að koma
upp leikvangi eða knattspyrnu-
völlum, og ef svo er hver þá og
má Knattspyrnufélagið Þróttur
vænta slíks hins sama.
2. Allir sem eru hér kunnugir,
vita að hér er eitt þróttmesta
safnaðarfélag borgarinnar hér i
Langholtssöfnuði. Við höfum
komið okkur upp nefnd txl að
koma af stað sumarbúðum. Nú
höfum við komið auga á svæði
fyrir sumarbúðir en það er Salt-
vík. Nú er spurningin: Hvað
hefur borgarstjórnin hugsað sér
að gera með Saltvíkina, og er
möguleiki á því að koma á þessu
svæði upp sumarbúðum, sem
þessi söfnuður hefur mjög mxk-
inn áhuga á. Takk fyrir. t:
Borgarstjóri: 1
1. Reykjavíkurborg hefur ætl-
að íþróttafélögunum í borginni
svæði í hinum ýmsu hverfum og
meðal annars ætlað Þrótti svæði
við Sæviðarsund, all rúmgott
svæði. Borgin mun einnig styrkja
framkvæmdir þær sem nemur
30% kostnaðar við gerð íþrótta-
mannvirkja, og ég hygg að voti
sé til þess, þótt reyndar íþrótta
sjóði ríkisins sé fjárvant, að hann
kosti þau mannvirki — 40% af
kostnaði. Ég mun einnig álíta að
Reykjavíkurborg mundi gera sitt
ítrasta til þess að flýta því að
slíkt svæði kæmizt upp. Víða hef
ur tekizt samvinna milli íþrótta-
félaga og skóla og skólarnir
þannig nýtt mannvirki íþrótta-
félaganna, og íþróttafélögin mann
virki skólanna. Þótt íþróttasvæði
sé ekki mesta mannvirki við
skóla, tel ég þarna einnig geta
komið til greina samvinnu milli
uppeldisstofnananna í hverfinu
og íþróttafélagsins.
2. Um sumarbúðir, sem safnað-
arfélag Langholtssafnaðar hefur
í huga að reisa, get ég vel hugs-
að mér að unnt væri að greiða
að einhverju leyti fyrir þeirri
hugmynd, t.d. í Saltvík, en ekki
er enn afráðið hvernig jörðin
verður nýtt eða mannvirki á
henni.
Aðrar fyrirspurnir, sem voru
fjölmargar, og svör borgarstjóra
við þeim, verða birtar í Mbl. á
morgun.
Fyrirspurnir á fundi íbúa Laugarnes-
og Laugaráshverfis
HÉR fara á eftir fyrirspurnir, Mig langar til að vita um i borgarstjórnina nær fólkinu, og
sem fram voru bornar á fundi gömlu Sundlaugarnar? Hvað er ekki síður að borgarstjórinn
borgarstjóra i Laugarásbíói s. L
fimmtudag og svör borgarstjóra
viff þeim.
Ragnar Halldórsson:
Herra borgarstjóri, góðir sam-
borgarar.
Gisli Gíslason ber fram fyrirspurn til borgarstjóra. Viff hliff
hans stendur Sigurður Ágúst Jensson, sem annaðist hljóðnema
þjónustu á fundunum.
sjálfur skuli ævinlega vera þar í
fremstu víglínu. Og vík ég þá
að spurningunum.
1. Hver eru áform borgarstjórn
ar varðandi tómstundastaði ungl-
inga 12—15 ára og 16—18 ára?
2. Hvað líður byggingarfram-
kvæmdum norðan við Laugar-
lækjarskóla með tilliti til snyrt-
ingar svæðisins?
3. Hvað hefur borgarstjórnin
gert til þess að útiloka óþef frá
hráefnishaugunum að Kletti?
Borgarstjóri:
1. Varðandi tómstundastarf-
semi unglinga, þá hefur það mál
verið töluvert á dagskrá. Eins
og ég gat um í minni fyrri ræðu,
þá er það markmið borgarstjórn-
ar, fræðsluyfirvalöa og Æsku-
lýðsráðs að koma því svo fyrir,
að unglingar á skyldunámsstigi
eða allt að 16 ára, séu sem mest
innan hvers hverfis fyrir sig, og
þar sé aðstaða til leikja og náms
og samkomuhalds. Þar byggjum
við á samstarfi skólanna og í-
þróttafélaganna á samstarfi safn
aða og áhugamannafélaga í ein-
stökum hverfum. Aftur á móti
er eðlilegt að tómstundastarfi
eldri unglinga sé á þann veg hátt
að, að þeir vilji fara víðar um,
og er naúðsynlegt að koma upp
samkomustöðum fyrir þennan
aldursflokk, m.a. hafa Góðtempl-
arar í undirbúningi byggingu,
sem sérstaklega er ætluð þess-
um aldursflokki, að því er mér
er tjáð.
2. 1 sambandi við fegrun lóðar
um á, sem tvímælalaust færa | Laugalækjarskóla, þá verður
áætlað að gera við þær? Verða
þær rifnar, og hvenær verður
það þá gert?
Borgarstjóri:
Ætlunin er að rifa gömlu
Sundlaugarnar. Það verður gert,
þegar þær nýju verða teknar í
notkun, en búist er við, að það
verði núna í sumar. Við ger-
um okkur jafnvel von um að
hægt verði að hleypa vatni í
nýju sundlaugarnar nú í vor til
þess að nýta þær fyrir úrtöku-
mót fyrir Norðurlandsmeistara-
mót í sundi, en fyrir almenning
verða nýju sundlaugarnar opnað
ar um mitt sumar, eða rétt eftir
mitt sumar. Það er áreiðanlega
mörgum söknuður af gömlu
sundlaugunum, og ég hef heyrt
sagt, að fastagestir hafi heitið
því að hreyfa sig hvergi og sitja
í gömlu sundlaugunum, og jafn-
vel að bjóðast til þess að kaupa
þær eða stofna hlutafélag um
rekstur þeirra. Aðrir vilja gjarn-
an flytja þær upp í Árbæ, sem
minnismerki um gamla tímann,
en ég hygg því miður, að hvor-
ugt sé framkvæmanlegt, og því
hverfi þetta merka mannvirki
úr borgarmyndinni.
Árni Brynjólfsson:
Ég ætla að bera fram þrjár
fyrirspurnir, en áður en ég geri
það þá vildi ég þakka frummæl-
endum fyrir afburða snjallar
ræður, og einkum þó og sérstak-
lega borgarstjóra fyrir að hafa
sýnt þann stórhug og dugnað að
hafa komið þessum hverfafund
að henni unnið. Nú er verið að
ganga frá lóðum dagheimilisins
og vistheimilisins. Þar verður
einnig gerður leikvöllur fyrir
hverfið, og Laugalækjarskóla-
lóðin verður fríkkuð eftir megni,
að svo miklu leyti sem unnt er,
en þar eiga eftir að fara fram
nokkrar byggingarframkvæmdir,
þegar byggður verður íþróttasal-
ur við skólann og tengiálma á
milli þeirra tveggja bygginga,
sem þegar eru upp komnar.
3. Eg minnist annars fundar,
sem haldinn var í Laugarárbíói
fyrir nokkuð mörgum árum, þá
var Laugarásbíó þar sem mat-
salur Hrafnistu er nú, og þá var
hverfisfundur, einmitt um lykt-
ina af síldarmjölsverksmiðjunni
að Kletti. Síðan hafa verið gerð-
ar ýmsar þær ráðstafanir, sem
gera reksturinn mjög miklu létt-
bærari fyrir þetta hverfi en áð-
ur var, m.a. stór reykháfur reist-
ur. Sumir segja reyndar, að hann
lyfti aðeins ólyktinni frá þessu
næsta nágrenni og yfir til ann-
arra hluta borgarinnar. Ég held
að það sé nú engum vafa undir-
orpið, að hann hefur gert gagn,
ásamt ýmsum öðrum aðgerðum,
sem verksmiðjan hefur staðið að
og eytt miklu fjármagni í sam-
kvæmt kröfu og eftirliti borgar-
yfirvalda og heilbrigðisyfirvalda
borgarinnar. Hitt er svo rétt, að
frekari úrbóta er þörf og eink-
um og sér í lagi að byggja yfir
hráefnið, svo að ólykt berist
ekki af því, og að það geymist
betur og verði I vinnslu minni
lykt af reyknum.
Lilja Björnsdóttir:
Mig langar til að -spyrja hátt-
virtan borgarstjóra hvort hann
geti ekki hlutast til um það að
við fáum fleiri og hagkvæmari
strætisvagnaferðir frá Hrafnistu.
Við getum ekki hlaupið á milli,
og mér hefur svo oft orðið kalt
á biðstöðinni og ég vil ekki una