Morgunblaðið - 30.04.1966, Blaðsíða 13
'Laugardagur 30. apríl 1966
MORCUNBLAÐIÐ
13
Þorvaldur Skúlason list-
málari, sextugur
KÆRI ÞORVALDUR.
Mig langar til að senda þér
línu í tilefni þess, a'ð þú ert sex
tugur í dag, en ég skal lofa því
þegar í upphafi að vera ekki
langorður. Ég held, að ég þekki
þig nógu vel t’l að vita, að þér
er ekki mikil þægð í að fá ianga
rollu í afmælisgjóf. Þar að auki
lief ég margr um þig ritað, allt
frá því er ég tók upp á þeim
fjára að skrifa hér i Morgun-
blaðið, en það er nú orðið, eins
og þú veizt, nokkuð síðan. Þegar
þú varðst fimmtugur fyrir rétt-
um tíu árum, skrifaði ég mjög
rómantíska grein til þín hér í
blaðið. En tiu ár eru nokkuð
lengi að líða og ég held, að ég
se orðinn einhvern veginn af-
rómaittiskur með sjálfum mér á
þessum tíma. Réttara væri ef til
vitl að segja, að rómantíkin hafi
brotizt út á annan hátt nú sein-
ustu árin. En hvað um það, þá
langar mig samt sem áður að
brydda hér upp á smávegis, sem
ég held, að ég hafi ekki látið frá
mér fara á prenti áður, og sem
mér þykir tilvalið að minnast á
i sambandi við þig sextugan.
Eitt sinn, ekki fyrir löngu,
var ég á ferð í Hollandi og hitti
þar ágætan vin minn, málara,
sem þú kannast við, og hann
íýndi mér nokkrar höggmyndir
eftir Japana, sem við könnumst
líka báðir við. Hollendingurinn
lét í ljós mikla ánægju yfir því.
að þessi verk Japanans væru
unnin í Hollandi og sagði mér i
óspurðum fréttum, að Japanan-
um væri mikið hampað þar {
landi, enda stæðu Hollendingar
f ævarandi þakkarskuld við þenn
an útlending fyrir að hafa flutt
með sér nýja strauma og endur-
lifgað myndhöggið þar í landi.
Ég get ekki neitað því, að mér
þótti dálítið skrítið, hvað Hollend
ingurinn var hrifinn af verkum
þessa myndhöggvara, þar sem
bann er vægast sagt, ekki í hópi
•tórsnillinga á heimsmælikvarða,
®g ég gat því ekki á mér setið,
en spurði hreint út, hvers vegna
þeir þarna í Hollandi hefðu tekið
hann svo upp á sína arma? Ég
fékk það svar, að sá japanski
hefði gert meira fyrir Holland
með því að koma nýju lífi í högg
myndalist þar í landi en margir
ágætir listamenn, sem þar væru
starfandi, en ekki hefðu orsakað
algera endurnýjun í þeirri list-
grein, og svo bætti Hollending-
urinn við, að það væri aldrei
hægt að ofþakka þeim listamönn
um, sem væru það andlega sterk-
ir, að geta orsakað endurnýjun í
listum.
Þessi frásögn er ekki lengri,
en ég held, að hún sé nokkuð
lærdómsrík fyrir okkur fslend-
inga. Ég held, Þorvaldur minn,
að þetta eigi vel við í pistli dags-
ins, og ég veit að þú skilur, hvað
ég er að fara. Mannstu eftir því
merkilega tímabili fyrir nærri
tuttugu árum? Við hér á íslandi
erum nokkuð bubbnir með okkur
svona við og við, og okkur er
gjarnt á að gleyma ýmsum stað-
reyndum, en samt er það nú svo,
að þegar tímar líða, þá kemur
alltaf í ljós, hvað er hvað, og
hver hefur gert hvað. Listin er
nú einu sinni þannig, að hún er
miskunarlausasti dómari, sem um
getur í mannlífinu, hún gefur
engin grið, og það léttmeti, sem
stundum blekkir auga og skiln-
ingarvit, er horfið, áður en nokk
urn varir, en það sem hefur hinn
eina rétta tón, hefur enga mögu-
leika á því að tortímast nema
með heimsendi, og þá hefur eng
in hlutur gildi. Þú getur verið ró
legur Þorvaldur. Jæja, þarna örl
aði á svartsýni í þessum fáu lín-
um til þín, en hún á vissulega
ekki heima hér. Sannleikurinn
er nefniiega sá, að bjartsýni á
frekar við um þig og þín verk,
og ég er hræddur um að þér
hefði ekki orðið eins mikið úr
þeim árum, sem þegar eru liðin,
hefðir þú ekki verið sívinnandi
og sett þér það takmark að verða
að góðu liði í íslenzkri myndlist.
Það hefur líka sannarlega tekizt,
Þorvaldur, og þú ert ungur enn,
og nú gildir að vera bjartsýnn,
eins og endranær.
Ég lofaði að verða ekki lang-
orður, svo að ég er að hugsa um
að hlífa þér við væmnu lofi og
hástigi lýsingarorða að sinni, en
þegar ég les þessar línur yfir,
þá sé ég mér til undrunar, að lík
legast hafi ég aldrei sagt eins
mikið um þig á prenti áður, og
það verður þú að sætta þig við.
Það er ýmislegt, sem maður verð
ur að þola, þegar merkisdagar
dynja yfir. Væri ekki tilvalið að
fá að sjá yfirlit verka þinna í til
efni þessara tímamóta? Til ham-
ingju með það, sem þú hefur
afrekað og framtíðin verður þér
áreiðanlega eins hliðholl og það,
sem liðið er.
Þinn,
Valtýr Pétursson.
Eyjólfur K. Sigui jónsson
löggiltur endurskoðandi
Flókagötu 65. — Sími 17903.
Nýkomið:
Dekk og siöngur á reiðhjól
og hjálparmótorhjól, flestar
stærðir.
Leitnir sf.
Simi 35512.
Fjölvirkar skurðgröfur
I
AVALT TIL REIðU.
Simi: 4D45G
Bifreið til sölu
Viljum selja Hencel vörubifreið með dieselvél. —
Hlassþungi 6 tonn, smíðaár 1955, með 6 farþega
húsi. — Bifreiðin er í mjög góðu ástandi. — Mikið
af varahlutum getur fylgt. — Upplýsingar gefur
Ólafur Ólafsson, kaupfélagsstjóri, Hvolsvelli.
Kaupfélag Rangæinga
Bændur
Vetrarklippt ull flokkast að öðru jöfnu
mun betur en af sumarrúnu fé og gefur
því meir í aðra hönd. — Vinsamlegast
sendið alla ull hið fyrsta til kaupfélags
yðar, því að löng geymsla getur orsakað
skemmdir, sem rýra verðgildi hennar.
Búvörudeild SÍS
m ■ ■■■.......
H*Rt þér reynl ■ýja sjóslakkiM bí mt-
—------! u:,i r-i.:jí--« x- « - -
SMIopHM ¥ wf, .naimOMHr BW IN Mi NM
\ fg inmis faltn rfmiw. Itywl pýji sféttðkk*
ÍMÍríVÖL
VEMSMMUfÍK
Gott starf
Viljum ráða gjaldkera til starfa að Hvolsvelli. —
Umsóknir þurfa að berast til Ólafs Ólafssonar,
kaupfélagsstjóra fyrir 10. maí nk. og gefur hann
upplýsingar varðandi ráðninguna.
Kaupfélag Rangæinga
Vantar
jafnstraumsrafal
110 volta 12—16 kílóvött. — Upplýsingar
í síma 41437.
Tilkynning um
atvinnuleysisskráningn
Atvinnuleysisskráning samkvæmt ákvörðun laga nr.
52 frá 9. apríl 1956, fer fram í Ráðninarstofu
Reykjavíkurborgar, Hafnarbúðum við Tryggvagötu,
dagana 2., 3. og 4. maí þ.á., og eiga hlutaðeigend-
ur, er óska að skrá sig samkvæmt lögunum, að gefa
sig fram kl. 10—12 f.h. og kl. 1—5 e.h., hina tib-
teknu daga. — Óskað er eftir að þeir, sem skrá sig
séu viðbúnir að svara meðal annars spurningunum:
1. Um atvinnudaga og tekjur síðustu þrjá mánuði.
2. Um eignir og skuldir.
Borgarsljórinn í Reykjavík.
Óskum eftir
að ráða mann
til almennra skrifstofustarfa, einkum þó til að vinna
við erlendar bréfaskriftir. — Viljum líka ráða
röskan sölumann. — Upplýsingar á skrifstofunni,
Grettisgötu 2A.
'Ásbjörn Ólafsson heildverzlun
SINUS- talkerfi heimsþekkt fyrir gæði.
Árs óbyrgð. ‘Orugg þjónusta.
Margra óra reynsla hérlendis.
Leitið tæknilegra upplýsinga hjó sérfræðingum okkar
VELAR a. VIOT,
LAUGAVEGI 92 REYKJAVlK SlMI 22600
PÓSTHÓLF 1212