Morgunblaðið - 30.04.1966, Síða 22
22
MORCUNBLAÐIÐ
Laugardagur 30. apríl 1966 í
Kosningaskrifstofur
Sjálfstæðisflokksins
SJÁLFSTÆÐISFXOKKURINN hefur kosningaskrifstofur
utan Reykjavíkur á eftirtöldum stöðum:
AKRANESI
Vesturgötu 47, simi: 2240
opin kl. 10—12 o{ 14—22.
ÍSAVIRÐI
Sjálfstæðishúsinu II. haeff, sími: 507 og 232
opin kl. 10—19.
SAUÐÁRKRÓKI
Aðalgötu 5, sími 23 — opin kl. 10—18.
SIGLUFIRÐI
Sjálfstæðishúsinu, sími 71154
opin kl. 13—19.
AKUREYRI
Hafnarstræti 101, sími 11578
opin kl. 10—12, 14—18 og 20—22.
VESTMANNAEYJUM
Samkomuhúsinu, Vestmannabrant 19, stmi 2233
opin kl. 10—22.
SELFOSSI
Hafnartúni, sími 291
opin kl. 9—17 og 19,30—21.
KEFLAVIK
Sjálfstæðishúsinu, sími 2021
opin kl. 10—19.
HAFNARFIRÐI
Sjálfstæðishúsinu, sími 50228
opin kl. 9—22.
GARÐAHREPPI
Lyngási 8, sími: 51690 — 52340 — 52341
opin kL 15—18 og 20—22,
laugardaga og sunnudaga kl. 14—18.
KÓPAVOGI
Sjálfstæðishúsinu, sími: 40708
opin kl. 9—22.
— Loftleiðir
, Framhald af bls. 14
hið fullkomnasta sinnar teg-
undar í Norðurálfu. Þar er
einnig mjög fullkomið baka-
ri. Tilheyrandi eldhúsinu eru
ýmis konar matvælageymsl-
tir og forvinnsluherbergi fyr-
ir matvæli, frysti- og kæli-
geymslur, vínkjallari o.fl.
Úr aðalanddyri hótelsins
er gengið niður í sunddeild-
ina, sem einnig er í kjallar-
! anum. í forstofu sundlaugar-
j deildar eru hárgreiðslustofa
i og fótasnyrtistofa. Gestalyft-
ur ganga niður í þessa for-
stofu. Þar inn af taka við
búningsklefar, baðklefar,
íinnskar gufubaðstofur og
í hvíldarherbergi. Þama er
einnig nuddstofa og aðstaða
til Ijósbaða. Sjálf sundlaugin
er inn af baðdeildunum í fag-
urlega flísalögðum sal. Við
enda laugarinnar er dálítil
kerlaug, til heitari baða. í
laugunum er hveravatn, sem
fer stöðugt í gegn um full-
komin hreinsitæki.
Á 1. hæð er aðalanddyri
hótelsins með gestamóttöku
og skrifstofum. Þar er einn-
ig sölubúð, tvö ftxndarher-
bergi og fatageymsla. Úr and-
dyri er gengið inn í aðalborð-
*al hótelsins og vínstúku
hótelgesta. Borðsalur þessi er
fagurlega skreyttur blómum
og rúmar um 100 manns í
sæti. Þar er hljómsveitar-
pallur og dansgólf. Hóteland-
dyrið og borðsalurinn er lagt
með ljósum marmara,
„tavertin oriental". Veggir eru
klæddir með vengivið, japan-
vef og íslenzku bergi. Vín-
stúka hótelgesta rúmar 50
manns í þægileg sæti. Þar
verða borð öll úr hvítum
marmara, en bardiskur í
dökkum grásteini og vengi-
við.
Þá er á 1. hæð veitingasal-
ur fyrir um 160 manns, með
sér inngangi að utan, rúm-
góðu anddyri aðalskrifstofu
veitingastjóra og fatageymslu.
Við þennan veitingasal er vín
stúka, er riimar 70 manns í
sæti, og fundarsalur. Þarna
er einnig veitingasala með
sjálfsafgreiðslu, og rúmar
hún um 60 manns í sæti.
Þessi salarkynni eru beeði
ætluð hótel- og aðkomugest-
um. f aðalsal er hljómsveit-
arpallur og dansgólf úr marm
ara. Fyrir veitingasalina eru
einnig á 1. hæð eldhúsdeild
fyrir uppþvott, framleiðslu í
veitingasali og morgunverð-
areldhús.
Gestaherbergin
Á þrem efri hæðum húss-
ins eru 108 hótelherbergi,
með 216 rúmum. Af þeim eru
100 eins eða tveggja manna
en 8 stærri og íburðarmeiri.
Minni herbergin eru öll með
baðherbergjum og forstofu.
Baðherbergin eru búin full-
komnum steypibaðklefa, auk
salernis og handlaugar.
Stærri herbergin eru ým-
ist gerð, sem hótelólbúðir með
aðgang að sér svefnherbergi
eða sem meiriháttar gestaher
bergi. Með þessum herbergj-
um fylgja stór baðherbergi
með kerlaugum, tveimur
handlaugum og steypibaði. í
forstofum þessara gestaher-
bergja eru tveir fataskápar
og töskúbekkur.
Starfslið
Fcist starfslið hótelsins er
Um 100 manns. Eins og fyrr
segir er Þorvaldur Guðmunds
son hótelstjóri, veitingastjóri
er Friðrik Gíslason, skrifstofu
etjóri Sveinn Guðlaugsson,
sölustjóri Friðrik Theódórs-
son, móttökustjórar Geirlaug
Þorvaldsdóttir og Emil Guð-
mundsson, aðstoðarmaður
hótelstjóra Robert Goethe,
yfirmatsveinn Karl Finnboga
son, gjaldkeri Bertha Johann
essen, yfirþjónn Bjarni Guð-
jónsson og yfirþerna Fríður
Bjamadóttir.
Hljómsveit Karls Lillien-
dahls leikur fyrir dansi, í
stóra veitingasalnum, sem op-
inn mun almenningi allar
helgar og önnur þau kvöld
sem hann verður ekki leigð-
ur til fjölmennra veizluhalda.
Komið verður upp föstum
ferðum milli hótels og mið-
borgar.
Fram tíff arvonir
Þrátt fyrir sívaxandi dýrtíð
hefir verið ákveðið að stilla
verði mjög við hóf, og má
t.d. geta þess, að með öllum
gjöldum inniföldum kostar
eins manns herbergi ekki
nema 344 krónur, morgun-
verður kr. 62.50, hádegisverð
ur kr. 156.25 og kvöldverður
kr. 250.00, enda er hótelið
fyrst og fremst byggt til
þess að það verði bæði þægi-
legt og ódýrt þeim útlend-
ingum sem hingað vilja koma
og islenzkum utanbæjar-
mönnum, sem dvelja þurfa f
höfuðborginni.
Þær beiðnir, sem nú hafa
borizt um fyrirgreiðslu 1
nýja hótelinu á næstunni gefa
vísbendingu um, að sú ákvörð
un hafi verið hyggileg er
horfið var til þess ráðs að
reisa hótol á þeim grunni,
sem upphaflega var til ann-
ars gerður, og ef samvinna
þeirra, sem nú hafa byrjað
störf í hinu nýja hóteli, verð-
ur eigi síðri þeirri, sem ein-
kenndi þá, er það byggðu,
þá standa nú vonir til að hið
nýja Hótel Loftleiðir verði
það, sem því var upphaflega
ætlað, ein af þeim styrku
stoðum, sem reisa þarf til
þess að móttaka erlendra
ferðamanna verði árviss og
arðbær atvinnugrein á ís-
landi.
HAKÞUKRKAN
-Xfallegri ^fljótari
Tilvalin fermingargjöf!
= FÚNIX
Sími 2-44-20 — Suðurgötu 10.
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar og tengda-
faðir,
SIGURÐUR STEINÞÓRSSON
fulltrúi,
andaðist að morgni 29. apríl.
Eiginkona, börn,
tengdabörn og fósturdætur.
Útför drengsins okkar,
JÓNS GRÉTARS -
Lyngbrekku 24, Kópavogi,
fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 2. maí kl. 13,30.
Svava Svavarsdóttir,
Halldór Jónsson.
Jarðarför móður minnar,
SVANHILDA R INGIMUNDARDÓTTUR
íer fram frá Langholtskirkju laugardaginn 30. apríl
kL 10,30 f.h. — Jarðsett verður í gamla kirkjugarðinum.
Jónína Eyvindsdóttir.
Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
GUÐJÓNS GÍSLASONAR
Faxabraut 33, Keflavík.
Viktoría Sigurjónsdóttir,
börn og fósturbörn.
Þökkum innilega vináttu og samúð við andlát og
jarðarför,
HELGU NIKULÁSDÓTTUR
Iirafnistu.
Ólafur M. Ólafsson,
Anna Garðarsdóttir.
Þökkum hjartanlega samúð við andlát og jarðarför,
HARALDAR GUÐMUNDSSONAR
forstöðumanns tæknideildar ríkisútvarpsins.
Sérstakar þakkir til starfsfólks ríkisútvarpsins.
Sigríður Haraldsdóttir og aðstandendur.
Hjartanlegar þakkir færi ég öllum þeim er sýndu mér
samúð og vinarhug við andlát og útför,
ÓLAFAR JÓNSDÓTTUR
Efstasundi 87, Reykjavík.
Baldvin Jónsson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og jarðarför föður, tengdaföður og afa,
JÓNS BJARNASONAR
Hofi í Öræfum.
Sigrún Jónsdóttir,
Gunnar Þorsteinsson og börn.
Aðalfundur
Hiísmæðrafélags
Reykjavíkur
verður haldinn miðvikudaginn 4. maí kl. 8 e.h. í
Breiðfírðingabúð.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kvikmyndasýning um framleiðslu á dönsku
postulíni frá Bing & Gröndal.
Nýjar gerðir af mjólkurumbúðum til sýnis
og umræðu.
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórnin.
Illlarvinna
Viljum ráða laghenta konu til vinnu við spuna-
vélar í verksmiðju okkar. — Vaktavinna.
Nánari upplýsingar hjá verkstjóra.
Ullarverksmiðjan Framtíðin
Frakkastíg 8.