Morgunblaðið - 30.04.1966, Side 23
/
. Laugardagur 30. aprfl 1966
t*pRGUNBLADID
23 i
Hlíf segir upp
sumningum
VERKAMANNAFÉLAGH) Hlíf
íHafnarfirði efndi til fundar sl.
fimmtudag. Var hann haldinn í
Góðtemlarahúsinu, og var húsið
þéttsetið: Fundurinn samþykkti
einróma að segja upp samning-
um við atvinnurekendur og
ganga þeir úr gildi 1. júní n.k.
Nokkrar tillögur voru sam-
þykktar á fundinum, m.a. mót-
xnælti hann þeim ráðstöfunum
ríkisstjórnarinnar að afnema
niðurgreiðslur á fiski og smjör-
líki, svo og afnámi verðlags-
ákvæða á fjölda vöruflokka og
hækkuðu álagi á vörur. For-
dæmdi fundurinn þá efnahags-
þróun er nú ætti sér stað, og
þrengi sífellt kjör aiþýðunnar.
Fundurinn fagnaði því að 1.
maí skuli hafa verið lögfestur
sem almennur frídagur, og þakk
aði þeim, sem höfðu um það
forgöngu.
I»á mótmælti fundurinn hinni
skefjalausu hækkun á lyfjum og
allri þjónustu lyfjabúða við al-
menning. Loks taldi fundurinn
það óviðunandi ástand að Hafn-
firðingar skuli þurfa að greiða
hærra verð fyrir rafmagn, sem
þeir kaupa, en aðrir 1 kaupstöð-
um á orkusvæði Sogsvirkjunar-
innar.
Morag og Malcolm Frager.
Bretar veita Indónesíu
milljón punda aðstoð
Djakarta, 29. apríl — AP —
BRETAR hafa veitt Indónesíu
einnar milljón punda fjárhags-
aðstoð, sem að ósk Breta á að
nota i baráttu gegn sjúkdómum
og til að efla félags og fræðslu-
mál landsins. Sukarno forseti,
tilkynnti um aðstoð þessa á
föstudag og kvaðst fagna henni.
Ráðherrar í Indónesíu hafa sagt
að aðstoð þessi muni á engan
hátt hafa áhrif á núverandi ut-
anríkisstefnu landsins.
Meira en 50 manns hefur far-
Malcolm Frager
leikur hér 9. maí
INNAN skamms er væntanlegur
hingað til lands bandaríski píanó
leikarinn Malcolm Frager og
kemur hann hingað á vegum
Péturs Péturssonar. Frager kom
hingað fyrir tveimur árum og
hélt hann þá einleikstónleika og
lék einnig með Vladimir Ashken
azy. Að þessu sinni mun Frag-
er halda hér eina tónleika og
verða þeir í Þjóðleikhúsinu
Málverkasýning í
Bogasalnum í dag
I DAG kl. 4 hefst sýning á mál-
verkum Kristjáns Davíðsson-
Kjorvalssýn-
ingunnilýkur
ú sunnudug
Á unnudagskvöld 1. maí lýk-
ur Kjarvalssýningu þeirri, sem
staðið hefur yfir undanfarnar
vikur í Listasafni íslands. At-
hygli skal vakin á því, að þar
er nú í fyrsta sinn til sýnis mál-
verkið Svanasöngur, sem Kjarv-
al gaf Listasafninu fyrir
skemmstu. Laugardaginn 30.
apríl og sunnudaginn 1. maí
verður sýningin opin frá kl.
13.30-22. Fólki er bent á að
nota þetta einstaka tækifæri til
að kynnast listaverkum Jóhann-
esar S. Kjarvals í eigu Lista-
safns íslands.
(Frá Listasafni Islands).
ar í Bogasal Þjóðminjasafnsins.
Standa þá yfir tvær sýningar í
borginni á verkum Kristjáns.
Á sýningunni, sem opnuð
verður í dag eru 19 málverk
eftir Kristján Davíðsson. Hefur
hann tekið upp þá nýlundu að
nafngreina ekki hvert málverk
út af fyrir sig, eins og venja
hefur verið á listaverkasýning-
um, heldur skipa þeim saman í
flokk, sem hann nefnir „Birtan
í fjörunni“. Kvað Kristján i sam-
tali við fréttamann blaðsins 17
þessara málverka eiga heima í
þessum flokk, en tvö þeirra
stæðu ef til vill utan við hann.
Sagði Kristján, að eins og nafn-
giftin bæri með sér væru við-
fangsefnin tekin úr sjávarmál-
inu og bæru litir og hreyfingar
í listaverkunum þess gleggstan
vott. Sýning þessi verður opin
í 10 daga, frá kl. 3—22 daglega,
en sýningtími mun samt ekki
ákveðinn endanlega.
Eins og fyrr greinir stendur
yfir önnur sýning á málverkum
Kristjáns Davíðssonar hér í borg
inni. Er hún í Unuhúsi, og var
opnuð 1. apríl.
Björgunardeildin Ingólf-
ur fær nýja sjúkrabifreið
BJÖRGUNARDEILDIN Ingólfur
í Reykjavik hefur nýlega eign-
ast geysistóra og háa sjúkrabif-
reið, sem á að geta tekið níu
sjúkrarúm. Er bifreiðin af gerð-
inni Unimoc S, og hefur björg-
unarsveitin látið byggja yfir
hann, en félagar úr sveitinni
hafa sjálfir innrétt bifreiðina
mjög skemmtilega í fristundum
á kvöldin og um helgar. Bif-
reiðin hefur drif á öllum hjól-
um og er með læstum hjólum,
og á hún að geta komið að sér-
stökum notum í ófærð. I bifreið-
inni er rúm fyrir lækni og hjúkr
unarkonu. Ekki hefur verið
gengið frá bifreiðinni að fullu,
en hún mun verða til sýnis al-
innar, Baldri Jónssyni, formanni
björgunarsveitarinnar Ingólfs,
50 þús. kr. að gjöf. og skal pen-
ingunum varið til þess að festa
kaup á sjúkragögnum.
mánudaginn 9. maí kl. 20:30. Á
efnisskránni verða þrjú verk:
sónata í D-dúr K 311 eftir W.A.
Mozart, sónata í h-moll eftir
Chopin og „Myndir á sýningu"
eftir Moussorgsky. Aðgöngumið-
ar að tónleikunum verða seldir
í Þjóðleikhúsinu og hefst sala
þriðjudaginn 3. maí.
Frager mun leika á ísafirði
þriðjudaginn 10. maí.
Skagfirzkar
konur halda
bazar
KVENNADELID Skagfirðinga
félagsins í Reykjavík heldur
sinn árlega bazar og kaffisölu
í Breiðfirðingabúð sunnudaginn
1. maí kl. 2 e.h. til ágóða fyrir
starfsemi sína og væntir þess
að það verði fjölsótt að vanda.
Kvennadeildin hefir starfað af
miklum krafti sl. 3 ár, haldið
fræðslu- og skemmtifundi og sl.
frk. Jónínu Guðmundsdóttur,
vetur var föndurnáskeið á veg-
um deildarinnar undir leiðsögn
handavinnukennara. Árlega hef
ir deildin gengist fyrir 1 dags
skemmtiferð fyrir alla Skagfirð-
inga í Reykjavík, sem þess óska.
Fyrirhugað er að farin verði
slík ferð 26. júní n.k. og að
þessu sinni verða skoðaðir sögu
staðir Njálu.
Stiórn Kvennadeildarinnar
skipa
Guðrún Þoivaldsdóttir for-
rnaður, Jóhanna Þorsteinsdóttir,
ritar, Margrét Eggertsdóttir,
gjaldkeri.
Meðstjórnendur
Stefania Guðmundsdóttir og
Margrét Margeirsdóttir.
Leiðrétting
I minningargrein Péturs Ott-
esen um séra Sveinbjörn Högna
son hafa orðið nokkur mistök
í prentun t.d. „lögfræðingaset-
ur“ í stað „höfðingjasetur“ og
auk þess nokkrar orðalagsbreyt
ingar, sem spilla réttu málíari
og breyta jafnvel meiningu.
Dómur fallinn í
Kristmanns cg Thors
DÓMUR í máli Kristmanns
Guðmundssonar og Thors Vil-
hjálmssonar féll í Bæjarþingi
Reykjavikur þann 26. apríl sl.
Kristmann stefndi Thor fyrir
menningi í byrjun næsta mán- ummæli hans, er birtust í fyrsta
aðar.
Þess má geta, að á afmælis-
degi kvenadeildar Slysavarnafé-
lagsins í fyrrakvöld, hélt kvenna
deildin hóf fyrir fulltrúa á lands
þinginu. Þar afhenti Gróa Péturs
dóttir, formaður kvennadeildar-
tölublaði timaritsins Birtings
1963, og fór Kristmann fram á
200 þúsund kr. miskabætur.
Dómsorð féll á þá lund, að
ummæli stefnda, Thors Vilhjálms
sonar, voru dæmd ómerk, og
honum gert að greiða 200 kr.
sekt í ríkissjóð, en sex daga
varðhald komi í stað sektar-
innar, verði hún eigi greidd
innan fjagra vikna frá birtingu
dóms þessa.
Stefndi greiði stefnanda fé-
bætur að fjárhæða kr. 500,
birtingarkostnað að fjárhæð
2000 kr. og kr. 2500 í málskostn-
að innan 15 daga frá birtingu
dóms þessa að viðlagri aðför
að lögum.
izt vegna eldgossins á austur-
Jövu sem hófst fyrir nokkrum
dögum. 100 manns er saknað og
búizt við að tala látinna eigi
eftir að stíga nokkuð.
Sukarno forsti Indónesíu, til-
kynnti á föstudag, að Bretar
hefðu nýlega veitt landinu fjár-
hagsaðstoð, sem næmi einni
milljón punda • (120 millj. ísl.
kr.). Sukarno kvaðst hafa þegið
þessa aðstoð með þökkum og
bætti því við, að sér stæði á
sama hvort fé þetta væri frá
Bretum eða væri af himnum
sent. Sukarno var staddur í
japanska sendiráðinu í Djakarta
er han tilkynnti fréttamönnum
um aðstoð þessa. Hann kvaðst
ekki vilja ræða málið nánar
að sinni, enda væri sendiráðið
ekki rétti staðurinn til þess.
Með Sukarno í sendiráðinu
voru margir af ráðherrum hans
Norrænu íélugið
í Kópuvogi
NORRÆNA félagið í Kópavogi
heldur aðalfund sinn klukkan 3
síðdegis á laugardag, 30. apríl.
Fara þar fram venjuleg aðal-
fundarstörf, en einnig mun Magn
ús Gxslason ræða startf norrænu
félaganna á fundinum. Tvötfald-
ur kvartett Kópavog9Í>úa syng-
ur. Auður Guðmundsdóttir segir
frá vinabæjaferð til Norður-
landa. Fundurinn verður hald
inn í Félagsheimili Kópavogs.
Skurðsvík
1140 tonn
Heilissandi, 29. apríl
AFLI hefur verið sæmilegur
hjá Hellissandsbátum að und-
anförnu, og er Skarðsvík kom-
in með 1140 tonn. Er það lang-
hæsti báturinn hér og senni-
lega hér á landi.
Helgisýning
I Langholtssókn
VETRARSTÖRFUM safnaðar-
félaganna í Langholtssókn er nú
að ljúka og hafa þau verið fjöl-
breytt og blómleg. En þar starfa
mörg fél. að uppbyggingu kristi
legrar og kirkjulegrar safnaðar
vitundar.
Að kvöldi 1. maí næstkomandi
verður nokkurs konar lokaþáttur
vetrarstarfseminnar með fjöl
breyttri helgisamkomu á vegum
Bræðrafélags satfnaðarins, en
öll félögin leggja þó fram efni
til samkomunnar.
Aðalþáttur dagskrárinnar verð
ur Helgisýning, sem netfnist
Fjársjóður á himni, eða Himna-
höllin, þýdd eftir sr. Sig. Hauk,
en bræðurnir leika sjálÆir undir
leiðsögn Theodórs Halidórsson
ar leikstjóra o.fl. Þetta ei: meðal
allra fyrstu helgisýninga, sem
hafa verið settar á svið hér á
landi, minnsta kosti utan hátíða
t.d. um jólin, en þá hefur unga
fólkið sýnt jólasýningar. Helgi
leikur þessi er saminn á ensku
og er um konu Tómasar postula
til Indlands.
Þá mun Æskulýðsfélagið flytja
skemmtiefni, konur úr Kven-
félaginu syngja undir stjórn
Helga Þoriákssonar, skólastjóra,
og kirkjukórinn flytja kirkju-
tónlist sem Jón Stetfánsson org-
anleikari hefur æít og stjórnar.
Prestar safnaðarins sr. Sig.
Haukur Guðjónsson og sr. Áre-
líus Níelsson flytja stutt ávarp.
Væntanlega fjölmennir fólk á
þessa vönduðu helgisamkomu,
sem hefst kl. 20.30.
og lýstu þeir allir yfir ánægju
sinni yfir þessari brezku aðstoð.
Suharto hershöfðingi, var að því
spurður hvort þessi fjárhagsað-
stoð gæti leitt til bætrar sam-
búðar milli Indónesíu og Malay
síu. Hann svaraði ekki með ber-
um orðum, en kinnkaði aðeins
kolli. Aðrir ráðherrar töldu, að
hin brezka aðstoð myndi á eng-
an hátt hafa áhrif á núverandi
utanríkisstefnu Indónesíu.
Brezka stjórnin hefur lýst því
yfir, að fjárhagsaðstoð þessi hafi
verið veitt til að hjálpa Indó-
nesíu í baráttunni gegn sjúk-
dómum og til að efla félags- og
fræðslumál landsins.
Um hálf milljón manna býr
á svæði því á austur-Jövu, þar
sem eldgosið hefur valdið miki-
um skemmdum. Talið er að
meira en 50 manns hafi þegar
látizt af völdum eldgossins og
um 100 manns er enn saknað.
Búizt er við að tala Látinna
eigi enn eftir að hækka.
BRIDGE
LOKIÐ er 20 spilum í öllum
leikjum í heimsmeistarakeppn-
inni í bridge fyrir sveitir, sem
fram fer þessa dagana í borg-
inni St. Vincent á Ítalíu. Staðan
er þá þessi:
Ítalía — Holland 72:25
Ítalía — Thailand 69:14
Ítalía — Venezuela 63—26
Ítalía — Bandaríkin 41:17
Holland — Bandaríkin 53:45
Holland — Vénezuela 46:25
Holland — Thailand 62: 2
Bandaríkin — Thailand 52:31
Bandaríkin — Venezuela 44:29
Venezuela — Thailand 43:33
Alls eru spiluð 140 spil milli
sveita og er þeim skipt í sjö 20
spila lotur. Keppninni lýkur 8.
maí n.k.
ítölsku heimsmeistararnir hafa
þegar náð góðu forskoti í öllum
leikjunum og háfa sýnt framúr-
skorandi góða spilamennsku. —
Beðið var með mikilli eftirvænt-
ingu eftir fyrstu 20 spilunum i
leiknum milli Ítalíu og Banda-
ríkjanna. Fyrir Ítalíu spiluðu
Belladonna, Avarelli, Forquet og
Garozzo, en fyrir Bandaríkin
Murray, Kehela, Mathe og
Hamman. ítalska sveitin tók for-
ystu í fyrsta spili, bætti síðan
jafnt og þétt við og lauk lotunni
með 24 stiga sigri heimsmeistar-
anna. Bandarísku spilararnir
Mathe og Hamman þóttu djarfir
í sögnum og sögðu nokkrar vafa-
samar gamesagnir, sem þeir töp-
uðu á. ítölsku spilararnir sýndu
sama öryggið í sögnum og úr-
spili og áður og þótt of snemmt
sé að segja til um úrslit keppn-
innar, þá bendir allt til að
ítalska sveitin hljóti heimsmeist-
aratitilinn í áttunda sinn í röð.
Hollenzka sveitin hefur átt
nokkra góða leiki, en gegn
ítölsku sveitinni gekk ekki vel
og náðu heimsmeistararnir 47
stiga forskoti, sem erfitt verður
að vinna upp. Sveitirnar frá
Venezuela og Thailandi eru
svipaðar að styrkleika og reikn-
að var með og er hæpið að þær
hafi nokkurt erindi í keppni eins
og þessa, þegar vitað er um
margar sterkari sveitir í Evrópu.
SÍÐUSTU FRÉTTIR
f gærkvöldi mættust sveitir
Ítalíu og Bandaríkjanna og voru
spiluð spil nr. 21—40. ítalska
sveitin sætti 24 stigum við for-
skotið eftir fyrstu 20 spilin og
vann lotuna með 69 stigum gegn
45. Staðan í leik Ítalíu og Banda-
ríkjanna er þá að 40 spilum lokn
um 110:62.
I annari lotu í leiknum milii
Thailands og Hollands skildu
sveitirnar jafnar: 22 stig gegn
22, og er staðan milli sveitanna
að 40 spilum loknum 84:24 fyrir
Holland.