Morgunblaðið - 30.04.1966, Blaðsíða 31
Laugarðagur 30. apríl 1966
MORCU NBLAÐIÐ
31
Stjórn SVFÍ vill aðild
að umferðarsamtökum
SLYSAVARNAÞING hélt áfram
í gær. Fyrir hádegi voru flutt
3 erindi. Henry Hálfdánarson
talaði um björgunarsveitir og
björgunarskýli og Sigurður
Ágústsson fulltrúi um umferðar
mál.
Að hádegishléi ioknu flutti
Pétur Sigurðsson, forstjóri land-
’helgisgæzlunnar erindi og sagði
m.a. frá hinu nýja varðskipi,
sein áformað er að byggja, og
ræddi þýðingu þess fyrir slysa-
varnir, en verið er að ganga frá
útboðslýsingu á því.
Lagðar voru fram ýmsar til-
lögur fulltrúa og tillögur félags
stjórnar varðandi aðild að banda
lagi landssamtaka til varnar um
ferðaslysum og eflingar umferða
Matthías Á. Mathiesen
Vormót FUS
í Kjós
VORMÓT Fél. ungra Sjálfstæð-
manna í Kjósarsýslu verður
haldið í Félagsgarði í Kjós í dag
laugardag og hefst kl. 9 e.h. —
Ávörp flytja Matthías A. Mathie-
sen alþingismaður, og Jón Ólafs-
son, bóndi Brautarholti. Ríó-
tríóið skemmtir. Happdrætti
verður og hljómsveit Bjarna
Sigurðssonar leikur fyrir dans-
inum. Alit Sjálfstæðisfólk er
hvatt til þess að mæta.
menningu í landinu. Lagði
stjórnin til að Slysavarnafélag-
ið gerðist aðili að þessum sam-
tökum. Var þeirri tillögu yísað
til umferðamálanefndar þings-
ins. '
Um miðjan daginn sátu fulltrú
ar kaffiboð Eggerts horsteins-
sonar, ráðherra. Síðan var fund
um haldið áfram fram til kl. 7
og lagðar fram tillögur slysa-
varnadeilda.
Fundir hefjast aftur kl. 10
f.h. í dag og lagðar 'fram fyrir-
spurnir frá deildum til hádegis.
Eftir hádegi talar Björn Pálsson
um sjúkraflugið og Þórður Jóns-
son frá Látrum um þýðingu
sjúkraflugþjónustu fyrir lands-
'byggðina, og sr. Stefán Eggerts-
son á Þingeyri talar um tal-
stöðvárþjónustu. Eftir kaffihlé
verður fjallað um nefndarálit og
kl. 17 býður landheigisgæzlan
fulltrúum að skoða þyrilvængj-
una og fleiri björgunartæki á
Rey kj a víkurflugvelli.
— Ferming
Framhald af bls. 25
Guðný Björg Þorgeirsdóttir,
Varmadal.
Helga Jörundsdóttir, Litlalandi.
Jóhanna Sigríður Hermannsdóttir,
Helgastöðum.
Lára Hrafnsdóttir, Hlíðartúni 7.
Þórunn Símonardóttir, Selásbletti
13 A.
Börn fermd í Ólafsfjarðarkirkju
sunnudaginn 24. apríl. Prestur séra
Ingþór Indriðason.
STÚLKUR:
Bryndís Sigursteinsdóttir,
Brymnesi.
Róslaug Gunnlaugsdóttir, Horn-
brekkuvegi 12.
Þorbjörg Halldórsdóttir, Strand-
götu 7.
DRENGIR:
Ásgrímur Guðmundur Konráðsson,
Vesturgötu 11.
Barði Jakobsson, Ólafsvegi 8.
Gunnlaugur Jón Magnússon,
Kirkjuvegi 2.
Guðmundur Ólafsson, Kirkju-
vegi 5.
Magnús Símon Reykjalín Jónsson,
Brimnesveg.
Matthías Sæmundsson, Kirkju-
veg 6.
Sigurður Sigurðsson, Brekku-
götu 21.
Steinþór Sigurjónsson, Brimnes-
vegi 2.
— Aðalskipulag
Framhald af bls. 3.
hina ákjósanlegustu útivistar-
möguleika.
Lokaorð
Með aðalskipulagi þessu er á-
setlunin að skapa heildarmy.nd
af byggð á Seljarnarnesi full-
byggðu.
Á grundvelli aðalskipulags
verður síðan unnið að deiliskipu-
lagi einstakra byggingasvæða
eftir því sem þörf krefur, og
verður þar gerð grein fyrir ein-
stökum atriðum, svo sem gerð
staðsetningu húsa, nýtingar-
hlutfalli og fleiru“.
★
í stuttu viðtali við Morgun-
blaðið í gær sagði Sigurgeir
Sigurðsson, sveitarstjóri:
— Tillaga sú að aðalskipulagi,
sem nú hefur verið lögð fram,
er að mínum dómi einhver sá
merkasti áfangi, sem núverandi
hreppsnefnd skilar af sér.
— Eins og fram kemur í grein
ergerð skipulagsstjóra hefur ver
ið unnið að þessari tillögu frá
því snemma árs 1963 og hefur
skipulag ríkisins og þá sérstak-
lega Ólafur Ásgeirsson, verkfræð
Ingur, haft mestan veg og vanda
af því. Skipulagsstjórn ríkisins
hefur einnig látið sig þetta mál
miklu varða.
—- Einar B. Pálsson, verkfræð-
ingur, hefur og komið við sögu
og hefur samið mjög ítarlega og
gagnlega greinargerð um gatna-
kerfið og framtíðarlausn þess,
sem fylgir tillögunni sem fylgi-
skjai.
— Það sem gerir skipulagstil-
lögu sérstaklega athyglisverða
er, að hér er um skipulag á
heilu sveitarfélagi að ræða, sem
tekur yfir allt land þess, þannig
að við getum í dag gert okkur
fulla grein fyrir, hvernig Nesið
verður fullbyggt.
— Seltjarnarneshreppur er
eitt þeirra fjölmörgu sveitarfé-
laga, sem hefur fengið að súpa
seyðið af skipulagsleysi og er
hverfið vestan Valhúsahæðar
okkur stöðug áminning þess.
Með þessu er ég þó ekki að
segja, að þar séu ljótar bygg-
ingar, nema síður sé, heldur er
niðurröðun þeirra afleit og þar
af leiðandi skapast vandræði við
þær, íbúðargötur er standa við.
Slík mistök eiga ekki að geta
átt sér stað eftir samþykkt aðal-
skipulags.
— Að lokum vil ég segja, að
þótt aðalskipulag verði samþykkt
og þótt fyrir liggi ákveðnar
hugmyndir um gatnakerfi, er
enn eftir að ganga frá deiliskipu-
lagi fyrir hin einstöku hverfi og
ákveða hámarks og lágmarks nýt
ingu þeirra.
— Von okkar er sú, að sem
flestir Seltirningar kynni sér
þessa tillögu að aðalskipulagi og
myndi sér ákveðnar skoðanir um
það.
— /jbró///r
Framhald af bls. 30
Nú sýndi liðið mikinn hraða og
hinn hnitmiðaði og skipulagði
sóknarleikur kom Fram í opna
skjöldu. Liðið var mjög jafnt en
Auðunn og Jón Gestur hurfu þó
verulega. Hjalti í markinu átti
ekki minnstan þátt í sigrinum.
Hann varði stórkostlega vel og
stóð í markinu allan tímann.
Gunnlaugur var að vísu bezti
maður Fram en náði aldrei slík-
um -stjörnuleik sem hann er
vanur. Nú var mótstaðan mikil.
Hans var vel gætt þó aldrei
væri hann eltur. En sendingar
hans inn á línu velgdu þó FH-
vörninni undir uggum.
Dómari var Reynir Ólafsson og
var ákveðinn — og stundum um
of. A. St.
— Framleiðslan
Framhald af bls 1
tillögurétt um það hvernig við-
komandi verk verði bezt unnin.
Stafar þetta af því að verk-
smiðjustjórar eru því vanastir að
fá nákvæmar fyrirskipanir frá
hærri stöðum. Hagfræðingar
Leontiev og Yevsei Liberman,
sem af kappi hafa unnið að
breytingum á hagkerfi Sovétríkj
anna hin síðari ár, hafa lagt
áherzlu á nauðsyn þess að taka
upp í sovézka kerfið ýmis at-
riði, sem Sovétmenn hafa til
þessa skoiðað sem kapitalisma.
Er hér einkum um að ræða
„bónus“ kerfið svonefnda, sem
felur í sér að verkamenn fá
umframgreiðslur í samræmi við
afköst þeirra.
í grein sinni sagði Leontiev að
nauðsyn væri á róttækum hug-
arfarsbreytingum í sambandi
við framleiðslustörfin. „Starfs-
menn verða að leggja niður þann
| leiða vana, að bíða stöðugt eft-
ir fyrirskipunum yfirmanna.
Stjórnendur verða sömuleiðis að
geti ekkert áunnist", sagði Le-
láta af þeirri hjátrú, að án þeirra
geti ekkert áunnizt", sagði Le-
ontiev.
— Skipalyfta
Framhald af bls. 31
var keypt til Akraness og er
verið að setja hana þar niður.
Bandaríska fyirtækið Syncrolift
selur Hafnfirðingum lyftuna
sjáMa með stjórntækjum og öðru
sem fylgir. En þar sem það er
ódýrara, verður lyftupallurinn
smíðaður samkvæmt amerí«kum
teikningum í Póllandi og verður
samvinna milli bandaríska fyrir-
tækisins og pólska fyrirtækisins
Cekop, sem selur lyftupallinn,
alla vagnana og teina og vindur,
sem þarf til að drífa þá.
Um kostnað sagði Gunnar, að
hægt væri að velja um fjölda
ýmis«a tækja í þessu sambandi,
en fyrsti hluti dráttarbrautarinn-
ar er áætlaður að kosta rúmar
30 miiljónir kr.
Að dráttarbrautinni verður mik
il framför, sagði Gunnar. Fyrstu
árin verða erfið vegna kostnað-
ar, en framför mikil er að þessu
fyrir kaupstaðinn og fyrir skipa
iðnaðinn, sem segja má að hefði
mikla hefð hér í Hafnarfirði allt
frá bíð Bjarna Sivertsen, sem
byggði skipið Havnefjordspröv-
en, er varð mikið happaskip.
Umræða um kaup á dráttar-
braut hafa staðið yfir meira og
minna í tvö ár. Á þriðjudag
var skrifað undir kaupsamninga
við Bandaríkjamenn og á mið-
vikudag við Pólverja. Pétur Pét
ursson, forstjóri Innkaupastofn-
unarinnar, sá um samningana og
skrifaði undir þá, ásamt vita-
málastjóra og hafnarstjóra i
Hafnarfirði. sem fyrr er sagt.
Hurð skall j
nærri hælum
MYNDIRNAR hér eru frá
árekstri þeim er varð við
grjótnáim borgarinnar við
Vatnsveituveg, er tveir pilt-
ar óku jeppabifreið á keðju,
sem strengd hafði verið þar
fyrir hlið. Sópaðist húsið af
jeppanum, en piltamir sluppu l
lítt meiddir. Sýna myndiruar
því Ijóslega hve piltamir
tveir hafa verið hólpnir að
hljóta ekki stqrmeiðsli af, er
þakið sviptist af jeppanum.
Á stærri myndinni er jeppa-
bifreiðin eftir áreksturinn,
og sézt hvernig keðja hefur
beygt stýrishjól bifreiðarinn-
ar. Á minni myndinni séíit
þakið af jeppanum við keðj-
una. (Ljósm. Mbl. Sv. Þorm).
- Ráðagerðir
Framhald af bls. 32
málaráðherra vitnaði siðan »
ræðu próf. Ólafs Jóhannes-
sonar sjálfs þar sem hann
m. a. í eigin þýðingu las 3. gr.
fyrrnefnds samningsUppkasts,
en þar segir: „Verði uppkast
Alþjóðabankans að alþjóða-
samningi um lausn fjárfest-
ingardeilna fullgilt af nægi-
lega mörgum rikjum og af
Alþingi og réttum svissnesk-
um stjórnarvöldum er ríkis-
stjórnin reiðubúin að ræða
þann möguleika við Alusuisse
að nota þá aðferð til sátta og
gerðar, sem þar er gert ráð
fyrir, enda sé um meiriháttar
deilumál að ræða.
Síðan sagði Jóhann Haf-
stein: „Stendur ekki þarna í
fyrstu frumdrögum — að rík-
isstjórnin sé reiðubúin að
ræða þann möguleika. að
skjóta málinu í alþjóðlega
gerð? Menn vissu ekki á
þessu stigi, hvernig hún mundi
verða en alla vega átti það
að verða erlendur gerðardóm-
stóll, sem fjallaði um deilu
ríkis og einkaaðila. Hefði
þetta ekki átt að vera prófess-
ornum viðvörunarefni? Sætir
það ekki undrun, að prófessor
við Háskóla íslands, sem tel-
telur slíkt sambærilegt við að
vera mútað til að skriða á
fjórum fótum á Lækjartorgi
í augsýn samborgaranna, skuli
enga hvöt hafa fundið hjá
sér til þess að vara dómsmála-
ráðherra landsins við - að
leggja útí slíkt niðurlægjandi
ævintýri fyrir þjóðina og
jafnvel ekki heldur eftir að
þingflokki, sem hann á sæti
í, er gefinn kostur á að taka
þátt í undirbúningi málsins
fyrir Alþingi.
Stóryrðum og staðlausum
stöfum Ólafs Jóhannessonar
og Timans vísa ég heim til
föðurhúsanna", sagði iðnaðar-
málaráðherra. Ræðu iðnaðar-
málaráðherra verður gerð
frekari skil hér í blaðinu á
morgun.