Morgunblaðið - 21.05.1966, Side 2
*
2
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 21. maí 1966
„Sálin hans Sigurjðns míns"
„Sálin hans Sigurjóns
míns“
„Skjóðan hún var margfalt,
margfalt nieira virði en hann“
Þessi orð hefur Davíð
Stefánsson eftir Kerlingunni
um Sálina hans Jóns míns í
samnefndu ljóði. Þau koma
ósjálfrátt í hugann, þegar
hugsað er um ýmislegt af þvi
sem sálfraeðingurinn í öðru
sæti á kommúnistalistanum
hefur borið á borð fyrir
Reykvíkinga nú fyrir kosning
arnar. Hann og kvenspeking-
urinn í fimmta sætinu, sem
mjög flaggar með því að hún
sé „ritari rektors Mennta-
skólans“ hafa gert sig sek um
óvenjulegt yfirlæti í sam-
bandi við menntun sína, svo
ekki sé meira sagt. Hafa þau
talað um kennarapróf með
mikiili fyrirlitningu og sagt
m.a. um Reykvíkinga að þeir
væru „smáborgarar'* með
tilheyrandi lýsingum á þeirri
voðalegu manntegund.
Slikum menntahroka, sem
íslendingar eru frábitnir,
hefur hvað eftir annað skot-
ið upp í ræðum þessara upp-
dubbuðu frambjóðenda aft-
urhaldsins í Alþýðubandalag-
inu — og þykir slíkt tiðindum
sæta, því hér hefur aldr.ei ríkt
neinn stéttamunur, þar sem
fólki er skipt i menntað fólk
og ómenntað, hafra og sauði.
En þessi ungæðislega af-
staða er kannski ekki undar-
leg, þegar tekið er tillit til
þess að „ritari rektors Mennta
skólans“ sagði í blaðagrein
ekki alls fyrir löngu, að æran
hefði dáið um það leyti, sem
hún fæddist — og öllum er í
fersku minni þegar sálfræðing
urinn lýsti því yfir í útvarps-
viðræðum, að hann efaðist um
að sál væri til í þeirri merk-
ingu sem kristin trú legði í,
þannig að hann hefur embætt
ispróf í því sem ekki er til.
íslendingar eru þó þeirrar
skoðunar, flestir a.m.k. að
sálin sé annað og meira en
sálfræðingurinn vill vera láta
a.m.k. þangað til hann hefur
sannað annað, og þó eru þeir
sérstaklega sannfærðir um, að
æran hafi ekki dáið hér á
landi, þegar undrabarnið,
„ritari rektors" sá dagsins ljós
og hóf að skipuleggja alheims
menninguna.
Allir vita að menntun er
meiri og alrnennari á íslandi
en í velflestum löndum. Það
hefur verið keppikefli Islend-
inga að mennta sig sem bezt,
hver í sinni grein. En ekki ber
það vott um viðsýni eða sér-
lega haldgóða menntun að líta
niður á þá, sem hafa hlotið
annars konar menntun en
maður sjálfur. Má ætla að
þeir verkamenn, iðnaðar-
menn, sjómenn, kennarar,
opinberir starfsmenn, verzl-
unarfólk o g aðrir Reyk-
víkingar, sem hingað tij
hafa stutt Alþýðubandalagið,
hugsi sig um tvisvar, áður en
þeir kjósa yfir sig ungæðinga
sem svo gömlum og íhaldssöm
um augum líta á nýjan tima.
Þeir, sem að sönnu eru
menntaðir, flíka ekki mennt-
un sinni, því síður að þeir
hafi „menntunarleysi" ann-
arra í flimtingum. Hér kveð-
ur við nýjan tón fólks, sem
telur sig einskonar andlega
yfirstétt: hróp fólks sem hef-
ur farizt á mis við samtíð
sína og einkanlega þá hátt-
vísi sem krafizt er í samskipt
um siðaðra manna á miðri
20. öld: hjáróma dægurskvald
ur fólks, sem telur að allir
aðrir séu „hégómlegt, einfalt
millistéttarfólk, menningar-
snauðir smáborgarar“ eins og
hinn stórvitri „ritari rektors“
hefur komizt svo snilldarlega
að orði í „boðskap“ sínum.
Aumingja rektor-
jtlakið af áburðarflugvélinni fyrir austan. Myndina tók Skúli Jón Sigurðsson.
Áburðarflugvélinni hlekkist á
Gereyðilagðist í lendingu
Áburðarflugvélinni hlekktist
á síðdegis í gaer austur á Rang-
árvöllum, þar sem verið var að
vinna að áburðardreifingu. Er
flugvélin alveg ónýt, en flug-
maðurinn, Sigurjón Sverrisson,
var fluttur í sjúkraflugvél til
Reykjavíkur, eftir að læknirinn
á Hellu hafði rannsakað hann.
Hafði hann fengið höfuðhögg og
skorizt eitthvað, en var ekki
talinn mikið slasaður.
Ohappið varð um 5 leytið síð-
degis. Var þá verið að bera á
i landi Ketlu, rétt neðan við
Gunnarsholt. Var Sigurjón að
koma inn til lendingar á flug-
vélinni, sem er af gerðinni Pip-
er Super Cub. Er talið að hann
hafi komið undan vindi, ætlað
að beygja inn til lendingar, en
flugvélin ofreist sig. Var hún
mjög lágt og skall niður, snerti
fyrst jörð með vinstri væng og
fór síðan á nefið og er mölbrot-
in. Var hún með nær tóman
tankinn.
Fólk var þarna á staðnum,
m.a. Páll sandgræðslustjóri í
Gunnarsholti. Fékk Sigurjón því
strax hjálp. Ólafur héraðslækn-
ir á Hellu rannsakaði hann
fyrst, og áður en klukkustund
var liðin var komin sjúkraflug-
vél eftir honum. Þótti þeim sem
sáu flugvélaflakið maðurinn
hafa sloppið fádæma vel.
Byrjað var að vinna með á-
burðarflugvélinni fyrir austan í
s.l. viku. Veður hefur verið ó-
hagstætt, en í gær var logn og
bezta veður.
— Samtal við
Geir
Framhald af bls. 1
þið eigið við. í>á voru túnin þar
öll óbyggð. Við strákarnir byggð-
um okkur borg í Vatnsmýrinni,
] ar sem við skipuðum í allar
trúnaðarstöður þjó'ðfélagsins, en
við vorum ekki fleiri en svo, að
stöður voru fyrir alla og engin
kosningabarátta“.
„Nú, svo þetta hefur þá verið
eins og í Rússlandi?"
„Nei, ekki er hægt að segja að
við höfum haft hugmyndina það-
an. Við hefðum vafalaust látfð
fara fram kosningar samkvæmt
lýðræðislegum venjum, ef við
hefðum verið of margir í þær
stöður sem fyrir voru“.
„Við minntumst á kosningar.
Ertu ekki orðinn langþreyttur á
koðningabaráttunni?"
„Nei, það get ég ekki sagt. Ég
hef ekki tekið hana á neinn hátt
nærri mér. Og fundirnir sem ég
hef átt me'ð borgarbúum hafa i
senn verið örvandi og skemmti-
legir og veitt mér margar á-
nægjustundir. Sannleikurinn er
sá, að eitt af því sem mér þykir
skemmtilegast við að vera borg-
arstjóri eru þau tækifæri, sem
ég hef til að hitta fólk og tala
við það. Ég er alinn upp á heim-
ili, þar sem margir komu, og þar
vandist maður því strax að hafa
áhuga á og gaman af að hitta
fólk og heyra skoðanir þess“.
„En hvað viltu segja um það
sem minnihlutablööin fullyrða —
að við stuðningsmenn þínir höf-
um haldið uppi persónudýrkun í
þessum kosningum?"
„Þegar talað er um persónu-
legan áróður fyrir mig í þessari
kosningabaráttu, langar mig að
segja þetta: Fyrst var minnzt á
persónudýrkun af hálfu andstæð
inganna í sambandi við fundina
sem ég efndi til um borgina, en
ég hef ekki skilið, að um persónu
dýrkun geti verið að ræða, þó
borgarstjóri haldi fundi með
borgarbúum, til þess að heyra
álit þeirra og svara margvísleg-
um fyrirspurnum. Geri ég ekki
heldur ráð fyrir, að neinn þeirra
sem fundi þessa sóttu, hafi litið
svo á að hann væri að koma á
fundina til þess að iðka persónu-
dýrkun, heldur í því skyni að
miðla öðrum af skoðunum sínum
og hlusta á skoðanir annarra.
Annars verð ég að segja að ég
hef ekki orðið var við þessa per-
sónudýrkun hjá fylgismönnurp.
mínum, en hitt er augljóst að
andstæðingarnir hafa óneitan-
lega haft mig á oddinum, birt a£
mér myndir á forsíðum og bak-
síðum dag eftir dag, og gert alifc
til að auglýsa mig, eins og sagfc
er -— og hef ég aúðvitað enga á-
stæðu til að fetta fingur út I
það. En ef um persónudýrkun er
að ræða, þá er hún fyrst og
fremst komin frá andstæðinga-
blöðunum.
Annars eru það mér mikil von
brigði að kosningabaráttan hefur
ekki, af hálfu andstæðinganna,
snúizt um málefni borgarinnar,
vandamál hennar og framtíðar-
horfur. f borgarráði getum vi'ð
rætt rólega og æsingalaust xim.
þessi efni, þótt við séum á önd-
verðum meiði að ýmsu leyti. En
svo þegar að kosningum kemur,
hafa þeir allt á hornum sér,
flestu er snúið við og rangar
myndir dregnar upp af því, sem
gert hefur verið og gera þarf.
Þegar nær dregur kosningum,
er eins og andstæðingarnir séu
slegnir pólitískri blindu, og þá
sjá þeir ekki nýju fötin sem borg
in er að klæðast — og samt er
hitt hálfu verra að þeir eiga
ekki heldur sakleysi barnsins
sem gle'ðst yfir öllu því, sem er
fallegt. Annars er það skemmti-
legt að minna fólk á ævintýri I
þessari kosningabaráttu, því upp
bygging Reykjavíkur síðasta ára
tuginn er ævintýri líkust, og við
vonumst til þess að þeir, sem á
'tímabili hafa aðhyllzt eða að-
hyllast einræðisstefnu og annar-
leg sjónarmið, megi eins og ljóti
andarunginn finna sitt rétta eðli
og sameinast öðrum Reykvíking-
um um uppbyggingu í borginni
— og sníða henni falleg klæði“.
Við spurðum nú Geir Hall-
grímsson, borgarstjóra, að því,
hvers vegna hann hefði orðið
Sjálfstæðismaður. Og hann svar-
aði:
„Frá blautu barnsbeini varð ég
auðvitað fyrir áhrifum Sjálf-
stæ'ðisstefnunnar í heimahúsum,
en þegar ég kom í skóla, og við
félagarnir fórum að ræða um
stjórnmál, sá ég mér til mikilla
vonbrigða, að ég hafði ekki svar
við öllum þeim spurningum, sem
fram komu. Þá tók ég að kynna
mér stjórnmál og stefnur, ásamt
öðrum skólabræðrum mínum, og
ég verð að viðurkenna, að á
Fundur Fulltrúa-
ráös Sjálfstæois-
félaganna í dag
SÍÐASTI fundur Fulltrúa-irbúningur og starfið á kjör-
ráðs Sjálfstæðisfélaganna ídag. Áriðandi að sem flcstir
Reykjavík verður haldinn iinæti.
Sjálfstæðishúsinu í dag kl. 4. Stjórn Fulltrúaráðsins.
Fundarefni: Kosningaund-
Malbikun hafin
í Kópavogi
* í GÆR var byrjað að malbika
Kársnesbrautina, en það er aðal
umferðaræðin í Vesturbæinn í
Kópavogi.
Mbl. leitaði upplýsinga hjá
Hjálmari Ólafssyni, bæjarstjóra,
sem sagði að staðið hefði til að
byrja í nóvember í haust, en þá
hefðu komið frost og það ekki
verið timabært aftur fyrr en nú.
Á nú að malbika Kársnesbraut-
ina milli Ásbrautar og Hábraut-
ar, og síðan ætlunin að halda
áfram að malbika þessa götu.
Annars er ætlunin að leggja oiiu
möl á flestar götur í Kópavogi.
Vaf lögð olíumöl á 3 gótur í
fyrra og hefur gefizt vel.
Reykjavíkurborg annars mal-
bikunina fyrir Kópavog, leigir
vélar og selur malbikið, sem
notað er.
Horfur góðar í
læknadeilunni
FUNDIR í læknadeilunni
standa yfir og hefur blaðið
fregnað að horfur á lausn séu
góðar.
AFRAM
Bílar á kjördegi
ÞEIR stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins, sem lána vilja
flokknum bifreiðar sínar á kjördegi 22. maí
eru eindregið hvattir til þess að
láta skrá bifreiðar sínar nú þegar
Skrifstofan er opin daglega frá kl. 13—22 alia virka :
daga. Símar 15411 og 17103. á;
Stjórn bílanefndar Sjálfstæðisflokksins. jj'
•a