Morgunblaðið - 21.05.1966, Qupperneq 4
4
MORGU NBLADID
Laugardagur 21. maí 1966
ALLT MEÐ
EIMSKIP
A NÆSTUNNI ferma skip vor
tál íslands, sem hér segir:
Brottfarardagar:
ANTWERPEN:
Tungufoss 23. maí*
Bakkafoss 8. júní
Askja 15. júní*'
Tungufoss 17. júní
HAMBORG:
Reykjafoss 21. maí
Gol 24. maí
Askja 27. maí *'
Skip 3. júní
Brúarfoss 14. júní
Askja 17. júní
ROT’ÍERDAM:
Askja 24. maí *'
Skip * 31. maí
Brúarfoss 10. júní
Askja 14. júní*
LEITH:
Gullfoss 20. maí
Guilfoss 13. júní
LONDON:
Tungufoss 26. maí
Bakkafoss 10. júní
Tungufoss 20. júní
HIILL:
Tungufoss 31. maí *
Bakkafoss 14. júní
Askja 20. júní*
Tungufoss 23. júní
GAUTABORG:
Reykjafoss 25. maí
Fjallfoss um 11. júní
Mánafoss 28. júní*
KAUPMANNAHÖFN:
Felto 31. maí *
Gullfoss 11. júní
Gullfoss 25. júní
Mánafoss 27. júní*
NEW YORK:
Dettifoss 27. maí
Goðafoss 2. júní
Selfoss 21. júni
OSLO:
Fjallfoss 14. júní
KRISTIANS AND:
Mánafoss 5. júní
Mánafoss 30. júní*
KOTKA:
Rannö 6. júní
VENTSPILS:
Skógafoss 14. júní
GDYNIA:
Felto um 27. maí
Skógafoss 11. júní
* Skipin losa á öllum aðal-
höfnum, Reykjavík, ísa-
firði, Akureyri og Reyðar-
firði.
** Skipin losa á öllum aðal-
höfnum og auk þess í Vest-
mannaeyjum, Siglufirði, —
Húsavík, Seyðisfirði og
Norðfirði.
Skip, sem ekki eru merkt með
stjörnu losa í Reykjavik.
Vinsamlegast athugið að vér
áskiljum oss rétt til breytinga
á áætlun þessari, ef nauðsyn
krefur.
HE EIMSKIPAFÉLAG
ÍSLANDS
BOSCH
Flautur
6 volt, 12 volt, 24 volt.
Brœðurnir Ormsson
Lágmúla 9. — Sími 38820.
Við Tjörnina
Fyrir austan urðu þeir að
fá þyrlu til þess að flytja fólk
yfir heiðar og fyrir vestan eru
heiðarnar Ííka ófærar Á ísa-
firði fennti í fjöll og þar hef-
ur vetur ekki verið snjóþyngri
síðan 1949. Hér syðra höfum
við aðra sögu að segja, hér er
komið vor.
Margir notuðu góðviðrið á
fimmtudaginn til þess að fara
í gönguiferð um miðborgina, en
fleiri hafa e.t.v. farið i öku-
ferð. >að var ánægjulegt að
ganga meðfram Tjörninni í
blíðunni og sjá hvernig vorið
hefur breytt öllu á skömmum
tíma. Tigulegar álftir og mak-
indalegar æðarkollur, spari-
klædd börn og hátíðlegir for-
eldrar. Aliir nutu góða veðurs-
ins í hjarta borgárinnar. Tjörn
in var hin sama og áður — eins
og hún á að vera, því þannig
kunnum við bezt við hana. En
sjálfsagt hafa fuglarnir samt
tekið eftir því, að sjúkrabílarn
ir og slökkviliðsbílarnir eru
horfnir úr Tjarnargötunni.
Slökkviliðið byrjaði að yfir-
gefa Tjörnina, þegar Kjartan
brunavörður hætti í fyrra —
og nú er það allt farið í ný og
glæsileg húsakynni á Öskju-
hlíð. Ég er viss um að þeir í
slökkviliðinu sakna Tjarnarinn
ar, en hvað er það, sem ekki
breytist? Ákaflega fátt í henni
Reykjavík — og eftirfarandi
bréf ber þess m.a glöggt vitni.
Glöggt er gests
augað
Hafnfirðingur skrifar:
„Ég er ekki vanur að skrifa
í blöðin~ög veit því ekki hvort
þú birtir þessar línur. En nú
á dögum tala menn svo mikið
um framkvæmdir og framfarir
að mig langar Jika til þess að
leggja orð í belg.
Inn í Reykjavík fer ég nokkr
um sinnum á ári, þegar ég á
þangað erindi, en ég hef ekki
farið í bílferð um borgina síð-
an í fyrravor. Látið mér nægja
að koma í Lækjargötu og Aust-
urstræti.
Á sunnudaginn tók vinur
minn mig með sér í bílferð og
skoðuðum við Reykjavík hátt
og lágt — ég held betur en ég
hef nokkru sinni gert. Við ætl-
uðum ekki í nákvæma skoðun-
arferð, en það var svo margt
skemmtilegt, sem fyrir augun
bar — og Reykjavík er orðin
svo falleg, að ferðin entist okk
ur í marga klukkutíma — og
við nutum hennar í ríkum
mæli.
Satt að segja skil ég ekki um
hvað þið eruð alltaf að rífast
þarna í Reykjavík. Sjálf-
um finnst mér öllu iiafa miðað
betur áfram en hægt hefði ver
ið að ætlast til með góðu móti.
Eftirtektarverðastar finnst mér
göturnar, enda eru Reykvíking
ar ánægðir með þær stóru
framfarir — og mega líka vera
það. En allur þessi fjöldi stórra
og smárra bygginga, sem borg-
aryfirvöldin hafa látið reisa
yfir alls konar starfsemi er
engu síður eftirtektarverður.
Hér í Firðinum les ég Morg-
unblaðið og Alþýðublaðið svo
til daglega, en Tímann sé ég
sjaldan þar til nú undanfarnar
vikúr að hann er borinn ókeyp
is til mín. Þjóðviljann sé ég
stundum á vinnustað mínum —
og líka Tímann, því bæði hiöð
in eru borin þangað ókeýpis
— og Tíminn í þvílíkum bunk-
um, að það liggur við að manni
blöskri þessi pappírssóun.
Þess vegna hef ég haft tæki-
færi til þess að fylgjast með
blaðadeilum fyrir kosningarn-
ar — frá öllum hliðum — og
þær hafði ég einmitt í huga,
þegar ég keyrði um Reykjavík.
Ég er ekkert hissa á því þótt
þeir séu í vandræðum með að
finna efni í ófagrar Ijósmyndir
eins og hér um árið, þegar kosn
ingabarátta andstæðinga borg-
arstjórnarmeirihlutans gekk
aðallega út á það að birta
myndir af bröggum og ljótum
götum.
>að hefur vakið athygli
mína — og sjálfsagt fleiri, sem
ekki búa í Reykjavík, en lesa
Reykjavíkurblöðin, að and-
stöðuflokkarnir eiga erfitt með
að finna höggstað á borgar-
stjóranum, en reyna miklu
fremur að ná sér á strik í
landspólitík. Verðbólgu-umræð
ur eru t.d. mjög háværar, en
margt mundi talið skyldara
framkvæmd borgarmála í
Reykjavík en verðbólgan. >ar
að auki held ég að stórir sem
smáir búi í glerhúsi, þegar þau
mál ber á góma.
Ég skrifa þessar línur vegna
þess að mig langar til að óska
Reykvíkingum til hamingju
með fallegu borgina — og von-
andi fá sem flestir bæir á land
inu okkar jafnágætt forystu-
lið og Reykvíkingar hafa haft
undanfarin ár
Hér í Firðinum hefur mikið
verið unnið og vonandi er enn
meira framundan. — >akka þér
s.vo fyrir margar ágætar hug-
leiðingar Velvakandi. Vonandi
er bréfið mitt ekki of langt
fyrir þig. >ú ættir að koma oft
ar hingað suður eftir og skrifa
meira um Hafnarfjörð.
— Hafnfirðingur.“
Óttast hossa-
kaupín
Aðfluttur maður skrifar:
„Velvakandi góður, mig lang
ar til að skrifa þér bréf, þótt
ég hafi til þessa lítið gert að
því að stinga niður penna. Ég
er tiltölulega nýfluttur til
Reykjavíkur með fjölskyldu
mína og núna á sunnudaginn
geng ég í fyrsta skipti inn í
kjörklefa hér í borg Pólitísk-
ur hef ég ekki verið um æv-
ina, fylgdi þó alltaf „mínum'*
flokki, enda hafði hann að
mínu viti góðum mönnum á að
skipa í kauptúninu heima.
Ég reiknaði því alltaf með
því — það litla, sem ég hugs-
aði um þá hluti — að ég kysi
fulltrúa hans áfram, einnig hér
í Reykjavík. En svo datt mer
í hug, að bezt væri nú að fylgj
ast með kosningabaráttunni
hér í Reykjavík. Ég byrjaði
með því að fara á einn fund
borgarstjóra og síðan hef ég
farið á framboðsfundi flokk-
anna, eftir því sem ég hef get-
að, lesið blöðin og að sjálf-
sögðu hlustaði ég á útvarpsum-
raeðurnar.
Ég verð að segja það eins og
er, ég varð fyrir miklum von-
brigðum með „ minn“ flokk.
Málflutningur ræðumanna
hans var allur svo neikvæður.
Að vísu er það rétt að hér er
margt ógert og annað má vera
fullkomnara, en það er bara
ekki hægt að gera allt í einm
Framkvæmdirnar hérna í bæn
um eru svo gífurlega mkilar,
að ég satt að segja hefði ekki
trúað því, ef ég hefði ekki sé.3
það sjálfúr.
Ég fór því að spyrja sjálfan.
mig: Getur það verið að þess-
ari borg sé illa stjórnað? Nei,
enginn getur með sanngirni
haldið því fram. Og þegar lit-
ið er á, hve árásarefnin á borg-
aryfirvöldin eru yfirleitt lítil-
væg, hlýtur það að styrkja þá
skoðun. Mér þykir það að
sumu leyti leiðinlegt að geta
ekki kosið flokkinn „minn“
áfram, en nú þegar ég er orð-
inn Reykvíkingur finnst mér
ég ekki geta átt það á hættu,
að með minni aðstoð verði
sjórn borgarinnar háð hrossa-
kaupum margra flokka.
1 gærkveldi tilkynnti ég svo
fjölskyldu minni ákvörðun
mína, og viðtökurnar, sem ég
fékk eru sennilega tilefni þess
að ég skrifa þetta bréf. „Góði
pabbi,“ sagði dóttir mín, „vertu
ekki með þennan afsökunar-
tón í röddinni. >að verður þá
til þess að við kjósum öll eins,
meira að segja mamma líka.‘*
>au höfðu verið fljótari að átta
sig á hlutunum en ég.
— Einn aðfluttur.**
S«S "P- ' r.
VAUXHALL
VICTOR
mti
ódýrasti og f ullkomnasti 4 - dyra
bíllinn • sterkur og traustur - S
manna bíll með rúmi fyrir 6. Hlaut
verðlaun á bílasýningu í London.