Morgunblaðið - 21.05.1966, Side 13
Laugardagur 21. maf 1966
MORCUNBLAÐIÐ
13
Siníóníuhljómsveit íslands og söngsveitin Filharmonia við flutning á níundu sinfóníu Beethovens á liðnum vetri
BORGIMIMI
mmm
BORGIMIMI
BORGIMMI
STNT'ÓNÍUHTvJ ÓMS VEIT ís-
lands verður að teljast sú stofn-
un, sem einna helzt, að öðrum
ólöstuðum, hefur varpað Ijóma á
menningarlíf borgarbúa á síð-
ustu árum. Auk fastra tónleika
á því 10 mánaða tímafoili, sem
ihún venjulega starfar á ári
hverju, hefur hljómsveitin átt
aðild að mörg hundruð sýning-
um í Þjóðleikhúsinu. Hefur þar
verið um að ræða óperur, söng-
leiki og ýmis leikrit sem þörfn-
uðust tónlistar.
Leikur hljómsveitarinnar hef-
ur náð til eyrna allra lands-
manna, þar sem föstum tónleik-
um hennar hefur ávallt verið út-
varpað. Hljómsveitin hefur
einnig ferðast til ýmissa staða á
landinu og haldið hljómleika.
Haustið 1961 tók Ríkisútvarp-
ið að sér rekstur hljómsveitar-
innar og hefur starfsemi hennax
vaxið mjög frá þeim tíma. Fram-
kvæmdastjóri hljómsveitarinn-
ar er Gunnar Guðmundsson og
hefur hann góðfúslega veitt
Mbl. þær upplýsingar um rekst-
ur fyrirtækisins sem hér verða
birtar.
Eins og nafn hljómsveltarinn-
®r ber með sér, er hún eign allra
íslendinga. Fjórir aðilar standa
straum að kostnaði við fyrir-
tækið. Hlutfallslegt framlag
þeirra er sem hér segir:
Ríkissjóður 36.52%
Ríkisútvarpið 28.05%
Reykjavíkurborg 21.40%
Þjóðleikhúsið 14.03%
Á starfsári hljómsveitarinnar
1964—65 voru haldnir 35 tón-
leikar, þar af þrennir tónleikar
utan Reykjavíkur, Sjö hljóm-
sveitarstjórar stjórnuðu hljóm-
sveitinni á starfsárinu, en aðal-
stjórnandi var Igor Buketoff frá
Bandaríkjunum. Þrjátiu ein-
etaklingar og söngsveitir léku
eða sungu með hljómsveitinni á
Starfsári þessu.
Fastráðnir hljóðfæraleikarar
í hljómsveitinni hin síðustu ár
hafa verið um 45 talsins, þar af
36 íslendingar og 9 útlendingar.
Þess ber þó að geta að margir
hljóðfæraleikaranna eru af er-
lendum uppruna, en eru fyrir
löngu búnir að fá íslenzkan ríkis
borgararétt. Skipting hljóm-
sveitarinnar er þannig, að
strengjasveitin telur 27 manns,
tréblásturssveitin 8 manns og
málmblásturssveitin 8 manns.
Á starfsárinu 1964—65 voru
ráðnir 36 aukahljóðfæaraleikar-
ar, sem léku á 28 tóníeikum og
hafa því á starfsárínu leikið í
hljómsveitinni 81 hljóðfæraleik-
ari. Flestir aukahljóðfæraleikar-
ar, eða 18 voru á tónleikum 19.
nóv. 1964, þegar flutt vár ís-
lenzk Rapsódía eftir Dr Hall-
grím Helgason.
Á starfsárinu voru flutt 97
tónverk eftir 55 erlend tón-
skáld og 17 tónverk eftir inn-'
lend eða samtals 113 tónverk
eftir 67 tónskáld Af erlendum
tónverkum voru 42 flutt í fyrsta
sinn hérlendis. Meistararnir
Mozart og Beethoven skipuðu
tvö efstu sætin á tónleikum
hljómsveitarinnar; Mozart með
9 tónverk og Beethoven með 8.
Þrjú íslenzk tónverk voru frum-
flutt á árinu: Islenzk Rapsódía
eftir Dr. Hallgrím Helgason.
Úr „Ömmusögum" eftir Sigurð
Igor Buketoff
Þórðarson og Epitaph eftir Leif
Þórarinsson.
Eins og áður er vikið að, átti
Sinfóníuhljómsveitin stóran hlut
í starfsemi Þjóðleikhússins á
árinu. Óvenjumikil tónlist var í
leikhúsinu á árinu og lék hljóm-
sveitin í 114 sýningum í eftir-
töldum verkum: Sardasfursta-
frúin, Mjallhvít, Stöðvið heim-
inn, Kardimommubærinn, Járn-
hausinn og Madame Butterfly.
Hljómsveitin gerði hljóðritan-
ir fyrir Ríkisútvarpið á 57 tón-
verkum á starfsárinu Veiga-
mesta verkið.var óperan ,,Orfeo“
eftir Gluck, sem flutt var á jól-
um 1964. Flestar hljóðritanirnar
fóru fram í Háskólabíói. Tón-
nágrannaþjóðunum, þá voru
vinnuafköst . hljómsveitarinnar
mjög mikil. Samtals voru á ár-
inu unnar 41.043 klsit. þar af nam
leikhúsvinna 10.262 klst. Æfing-
ar voru samtals 220 á árinu.
Eins og áður segir hélt hljóm-
sveitin 35 tónleika á árinu og
sóttu þá 23.946 manns.
Starfsárið 1965—66.
Yfirstandandi starfsár hófst
með tónleikum í Vestmannaeyj-
um í september sl. Starfsárinu
fer senn að ljúka og munu tón-
leikarnir verða samtaLs 30 tals-
ins þar af 6 skóla- og barnatón-
leikar, sem gefið hafa mjög góða
raun. Hljómsveitin hyggst auka
mjög við þennan þátt starf-
seminnar á næsta ári og verð-
ur vikið nánar að því síðar Til
þessa dags hefur hljómsveitin
leikið við 82 sýningar í Þjóðleik-
húsinu en áætlað er að þær verði
um 100, því innan skamms munu
hefjast sýnirtgar á nýjum söng-
leik sem nú er verið að æfa.
Það bar helzt til tíðinda á
yfirstandandi stafsári, að ní-
unda Sinfónía Beethovens var
hér flutt í fyrsta skiptið, undir
stjórn Dr. Róberts A. Ottósson-
ar. Þessa merka viðburðar voru
fslendingar búnir að bíða eftir
í áratugi og var aðsóknin að tón-
leikunum meiri en nokkur hafði
þorað að vona. Þetta meistara-
verk var flutt fimm sinnum fyr-
ir fullu húsi.
Píanósnillingurinn Wilhelm Kempff.
71 árs gamla snilling Wilhelm
Kempff, sem koma mun fram á
tvennum tónleikúm með hljóm-
sveitinni í næsitu viku. Fyrri
tónleikarnir verða fimmtudajg-
inn 26. maí og mun hann þá
ieika a-moll konsertinn eftir
Sdhumann. 27. maí mun hann
leika fjórða píanókonsert Beet-
hovens. Laugardaginn 28. maí
mun Kempff síðan halda sjálf-
stæða tónleika í Háskólabíó á
vegum Sinfóníuhljómsveitarinn
ar.
Barnatónleikar Sinfóniunnar.
Á síðasta starfsári og einnig í
ár hefur bandaríski hljómsveit-
arstjórinn Igor Buketoff stjórn-
að allmörgum skóla- og bgrna-
tónleikum á vegum hljómsveit-
arinnar og hafa þeir gefið mjög
góða raun. Forráðamenn hljóm-
sveitarinnar hafa mikinn hug á
að færa út kvíarnar á þessu
sviði og mælist það vel fyrir.
Börnin eru tónleikagestir fram-
tíðarinnar og verður aldrei of
snemma byrjað á því að venja
þau við góða tónlist. Igor Buke-
toff hefur mikla reynslu í barna
tónleikahaldi og hefur hann
sannfært okkur um að hægt er
að gera slíka tónleika í senn
skemmtilega og fróðlega. í ráði
Framhald á bls. 22.
Á árinu hafa leikið með hljóm
áveitinni margir heimsþekktir
lístamenn og er þar helzt að
nefna Vladimir Ashkenasy, Er-
ling Blöndal Bengtsson og
Geoffrey Gilbert, einn fremsta
flautuleikara heims í dag Verk-
efnaval hljómsveitarinnar hefur
yfirleibt þótt mjög gott, þá ekki
sízt vegna þess, að tæplega 50%
verkanna sem flutt voru, voru
flubt í fyrsta skiptið á íslandi á
þessum vetri. Aðalhljómsveitar-
stjóri í vetur var pólski stjórn-
andinn Bohdan Wodiczko. Það
hefur vakið almenna ánægju
tónleikagesta að Wodiczko hef-
ur verið ráðin aðalstjórnandi
fyrir næsta starfsár, mun "hann
þá stjórna a.m.k. 10 tónleikum.
Þessu starfsári, sem verið hef-
ur einkar glæsilegt, mun Ijúka
með stórviðburði; með heimsókn
eins þekktasta píanóleikara
heims Hér er um að ræða hinn
meistari í flestum tilvikum var
Máni Sigurjónsson, orgelleikari,
én til vara yar Egill Jónsson.
Miðað við það sem gerist hjá
Bohdan Wodiczko
Sinfóníuhljómsveit Islands — þunga
miðja tónmenningar borgarinnar
IJR
BORGIIMMI
GIMMI