Morgunblaðið - 21.05.1966, Qupperneq 15
15
MORCUNBLADIÐ
Jórunn
Kjartcm
Valdimar
Björn
STEFNT AÐ BLOMLEGRI
BYGGÐ í BORGARNESI
Samtöl við frambjóðendtir á lista Sjálf-
stæðismanna þar — ÍMistaniim
Jórnnn Bachmann, húsfreyja:
Fyrsta sætið á lista Sjálístæðis
manna í Borgarnesi skipar kona.
Er það frú Jórunn Bachmann,
húsfreyja, og kaupmaður. Frú
Jórunn er gifit Geir Bachmann,
bifreiðaeftirlitsmanni, en foreldr
ar hennar voru þau Guðmundur
Björnsson, sýs'lumaður Borgfirð-
inga og kona hans Þóra Júlíus-
dóttir Björnsson. Hún hefur síð-
astliðið kjörtímabil tekið taisverð
an þátt í sveitarstjórnarmálum
i Borgarnesi.
Frú Jórunn hefur allt frá æsku
árum kynnzt vel hreppsmálum
í Borgamesi og má’lefnum Borg-
arfjairðarhéraðs, enda starfaði
!hún á sýsluskrifstofunni um
skeið.
Tíðindamaður blaðsins átti tal
við frú Jórunni fyrir nokkrum
dögum og innti hana eftir við-
horfi hennar til mála, er varða
Borgarneskauptún með tilliti til
kosninganna á sunnudaginn.
Nauðsynlegt aS siónarmiff
kvenna móti sveitastjórnarmálin.
Frú Jórunn sagði að stöðugt
væri aukinn skiiningur á því að
brýna nauðsyn bæri til "þess að
viðhorf konunnar mótuðu mál-
efni sveitarfélaganna. Það hefði
sýnt sig þar sem konur hefðu ver
ið kjörnar í sveitarstjómir, hefðu
þær þráfaldlega tekið upp bar-
áttu fyrir málefnum, sem nú á
dögum væru af flestum talin ein
hver þýðingarmestu málefni
byggðarlaganna. Ef til vill væri
elíkt þó hvergi nauðsynlegra en
í bæjum og kauptúnum, þar sem
málefni æskunnar, gamla fólks-
ins og sjúkra, svo dæmi væru
nefnd væru aðkailandi. „í raun-
i-nni“, segir frú Jórunn Bach-
mann „eigum við foreldrarnir
enga dýrmætari eign en börnin
©kkar og við berum enga ábyrgð
þyngri en þá að sjá þeim fyrir
menntun, barnavernd, æskulýðs-
starfsemi og hollu viðfangsefni,
þar á meðal sumaratvinnu.
Ég skal til dæmis nefna eitt
etriði. sem er í sorglegu ástandi
hjá okkur i Borgarnesi, og sem
meirihlutinn hefur sára'lítið skipt
sér af. Það er viðeigandi sumar-
og vorvinna fyrir unglinga. Úr
þvi mætti þó talsvert bæta, án
þess að miklu þyrfti til að kosta.
Ég tel t.d. alls ekki viðunandi
eð unglingum sé boðið upp á
gatnahreinsun. Það þarf að skapa
handa þeim uppbyggi'leg störf,
t.d. vinnu við skólagarða, íþrótta
evæði og einnig væri athugandi
hvort ekki væri unnt að ná sam-
komulagi við skógrækt ríkisins
eða aðra aðila, um að hún tæki
enn fieiri unglinga héðan úr
Borgarnesi í vi-nnu, því þar er
unnið að þjóðþrifastörfum undir
ströngu eftirliti vandaðra manna.
Margt fleira mætti gera, ef
vilji er fyrir hendi.
Menntun æskunnar og
amkin atvinna.
„Ekki verður farið út í lífið
með betra vegamesti" segir Jór-
unn Bachmann, „en góða mennt-
un á ýmsum sviðúm“. Nauðsyn-
legt er að gera nú ráðstafanir til
þess að sú skólaaðstaða, sem hér
hefur þó fengizt, verði sem allra
bezt hagnýtt og fái að dafna. Þá
þarf að glæða félagslíf nemenda.
Hugsanlegt væri einnig; að gefa
unglingum kost á því að nota
lesstofu, sem unnt væri að út-
búa við bókasafnið.
Svo er mál sem verður að
sinna sem fyrst. Það er tóm-
stundaheimili fyrir unglinga.
Haganlegt væri að leigja hús-
næði og innré-tta. Líka gæti kom-
ið til greina að styrkja t.d. skáta
eða aðra til þess að ieysa þetta.
Að síðustu segir frú Jórunn
Bachmann, vil ég endurtaka það,
að nauðsynfegt er að reyna að
auka hér atvinnu á ölium svið-
um, bæði fyrir ungJinga, konur
og karia. Það er sú undirstaða,
sem svo miklu veldur. Ég hef i
huga tiltekin atriði, sem ef til
vili væri unnt að beita sér fyrir.
En það bíður starfsins.
Ég vona að ég megi ejga örugg-
an stuðning kvenna og annara
kjósenda við málstað okkar á
kosningadaginn, og stuðning
þeirra og allra annarra góðra
borgara við að framkvæma far-
sæla stefnu fyrir Borgames. —
Listi okkar Sjálfstæðismanna er
D-listinn.
Kjartan Gunnarsson, apótekari:
Þá ræddi blaðið við Kjartan
Gunnarsson apótekara í Borgar-
nesi, sem skipar annað sætið á
lista Sjálfstæðismanna í Borgar-
nesi.
Hann hefur dvalizt í Borgar-
nesi um 2 ára skeið og rekið þar
nýtt apótek. sem hann stofnaði
þar. Hann hefur nú stórhýsi í
smíðum, þar sem rekið verður
apótek fyrir héraðið, svo verður
þar einnig íbúð fyrir apótekar-
ann og fjölskyldu hans, en Kjart-
an er kvæntur Dórótheu Jóhs-
dóttur úr Reykjavík og eiga þau
fjögur börn.
Vífftæk viðfangsefni
— Margt ógert.
Við spyrjum Kjartan um við-
horf hans til kosninganna. Kjart-
an segir að hann sé glaður yfir
því að fá tækifæri til þess að
vinna fyrir Borgarnes. Hann
kveðst kunna vel við sig í Borg-
arnesi. Þar búi ágætt fólk, sem
gott verði að vinna með og vinna
fyrir. Það er sjálfsagt eins með
mig og aðra unga menn, að ég
vil gera mikið fyrir þennan bæ,
en efni og ástæður ráða þó
mestu, ef sannleikurinn er sagður
skrumlaust.
Ég ráðgeri að athuga heil-
brigðismálin og hvað sveitarfé-
lagið getur í iþeim efnum gert.
Stefnt er að því af hálfu sveitar-
félaganna og sýs'lufélaganna í
Borgarfirði að koma hér upp
dvalarheimili fyrir aldrað fólk.
Sérstök nefnd, kosin á sýslufund
um, starfar að því máli. Sam-
kvæmt upplýsinguim sýslumanns
okkar er enniþá takmarkað fé
fyrir hendi og enn hafa mörg
sveitarfélög ekki tekið endanlega
afstöðu til þess hvort þau verða
með. En hins vegar hafa sýslum-
ar lofað fé og ábyrgðum og Borg
arneshreppur sömuleiðis. Ég tel
að málið eigi skilyrðislaust að
halda áfram þótt ekki verði allir
hrepparnir í héraðinu með. Borg
arnes og sýslurnar ættu þá að
koma þessu upp.
Rétt þykir mér að benda á að
nauðsynlegt er að hér í Borgar-
nesi komist upp slysastofa búin
góðum tækjum. Gæti það verið lnn'
annaðhvort hjá héraðsJækni eða
þá -4 nýja dvalarheimilinu. Hin
tíðu slys sýna nauðsyn þessa.
Mikilsvert er að Tryggingar-
stofnun rikisins leggur fram
mjög ríflegan fjárhagsstuðning
við fnálið.
Að þessu máli er ég reiðubú-
inn til þess að vinna að megni
og .vona að fyrrj starfsreynsla
mín komi þar að haldi.
Ég hefði viljað ræða frekar
um heilbrigðismálin. En mér
skilst að þess sé ekki kostur í
þessu stutta viðtali. En ég hefði
gjarnan viljað minnast á nokkur
önnur atriði.
engin útgerð veldur þvi að at-
vinnulíf staðarins er ekki sam-
'bærilegt við flesta aðra bæi
landsins, utan Suðuríandsundir-
Jendisins, að vissu leyti, Það er
augljóst að í flestum bæjum
grundvallast atvinnan á sjó-
mennsku, útgerð, fryetihúsum
o.þ.h., sem allt byggist á sjófangL
Það 'þarf því alveg tvímæla-
laust að endurskoða fjáxhagsmál
og atvinnumál Borgarnese. Ég er
sizt á móti stóriðju. En sem
stendur, þar sem takmarkað
fjármagn er fyrir hendi, er að
líkindum bezt að byggja upp
lítil fyrirtœki, en mörg. Dæmi
um þetía er t.d. niðursuðuverk-
smiðjan, sem hér var stofnuð
fyrir tveim árum, sem hluta-
félag. Hún veitir atvinnu og hag
nýtir afurðir héraðsins. Það er
ekki vafa undirorpið að vituX'
legast er að byggja iðnað á þeim
hráefnum, sem falla til í hérað-
inu. Kjötið, laxinn, hið mikla
magn garðávaxta, tómatar, svepp
ir, agúrkur o.s.frv. er ágætt hrá-
efni í niðursuðu eða frystingu.
Allt þetta þarf að rannsaka. Það
á að gera í samráði við sérfræð-
inga og í samráði við ríkisstjórn
ina, sem nú berst fyrir því
jafna atvinnuna um landið. Ég
er viss um það að ríkisstjómin
skilur sérstöðu Borgarness, að
hafa enga útgerð og engan sjávar
afla. Við Sjálfstæðismenn
hreppsnefnd Borgarness munum
óska eftir samvinnu við Sjálf-
stæðismenn í ríkisstjóminni um
þessi mál.
Ég er ekki lengi búinn að vera
hér og er ekki öllum hnútum
kunnugur, en ég vil vinna að
velfarnaði Borgarness og því
held ég að Borgnesingar muni
styðja lista okkar á sunnudag
Valdimar Ásmundsson,
bifreiffaeftirlitsmaffur:
Íþróttamál, félagsmál æskunnar,
menningarmál.
Hér í Boragrnesi er stór hópur
ungra manna og kvenna, sem hef
ur mikinn áhuga á íþróttum. Þarf
að bæta íþróttavöllinn og jafn-
frarnt að skapa betri aðstöðu til
sumdiðkunar. í sambandi við
byggingu félagsheimilis þarf líka
að kanna með hvaða hætti væri
Unnt að greiða fyrir íþróttamál-
um.
Um félagsmálin er það að
segja að það verður að drífa upp
hús hér á staðnum, til þess að
skapa aðstöðu til félagsstarfsemi
og skemmtana. Er ekki nóg að
skapa kvikmynda- og skemmti-
aðstöðu. Heldur þarf líka að vera
aðstaða til menningarstarfsemi,
svo sem hljómleika og leiklistar.
Það tíðkast nú stöðugt meira að
leikflokkar fari út á land m.a.
frá Þjóðleikhúsinu. Einnig hljóm
leikaflokkar. Það er öruggt að
fólk hér hefur mikinn hug á að
geta notið slíks hér og verður því
að bœta úr í þessum efnum! En
meirihlutinn hér hefur ekki sinnt
þessu nægilega. Það er ekki nóg
að tala um þetta fyrir kosningar.
Við ættum öll að sjá sóma okk-
ar í því að lagfæra þetta. Að því
mun ég vinna í hreppsnefndinni.
Atvinnumálin.
„En undirstaða menningarmál-
anna er atvinnulífið“ segir Kjart
an Gunnarsson. „Menningar- og
félagsmálin kosta fé og þess verð
ur ekki aflað, nema með atvinnu.
Og því betur sem atvinnurekstur
inn gengur, þeim mun meiru er
unnt að verja til menningar-
mála, skólamála og slíks.
Ég held að Þeir séu ekki svo
fáir, sem gera sér ekki alveg
nægilega Ijósa sérstöðu Borgar-
ness í þessu þýðingarmikla efni.
Sú staðreynd að í Borgarnesi er
Þá ræddi blaðið við Valdimar
Ásmundsson, • sem skipar þriðja
sætið á lista Sjálfstæðisflokksins
í Borgarnesi. Valdemar er einn
ig ungur maður, fæddur og upp
alinn í Borgarnesi, einungis 31
árs að aldri. Hann er nú bifreiða
eftirlitsmaður í Borgarnesi. Hann
var stofnandi fyrirtækisins Sæm
undur & Valdemar, ásamt Sæm
undi Sigmundssyni, sem rekur
áætlunarferðirnar milli Borgar-
ness og Reykjavíkur með mikl
um byndarbrag. Valdemar hefur
tekið mikinn þátt í iþróttum og
fjallaferðum og félagslifi, og
nýtur mikils trausts meðal unga
fólksins.
Fram-tíff Borgarness vegna
hugsanlegra breytinga
á samgöngum:
„Eitt af því sem talsvert hefur
verið rætt undanfarin ár“ segir
Valdemar, „eru samgöngurnar
við Borgames og Vesturland
heild. Langt er síðan ég heyrði
rætt um það að Hvítá yrði brúuð
neðar en nú er. En það hefur
ekkert gagnlegt gerzt í því mál
Vinstri stjórnin sýndi fullkomið
skeytingarleysi um málið þegar
minnzt var á það á þingi. Ljóst
er að afstaða Borgarness mundi
gjörbreytast ef brú kæmi yfir
Hvítá hér skammt fyrir ofan
bæinn. Vegalengdin til Akraness
myndi styttast um tæpan helm-
iug og munar það ekki litlu. Hafa
menn hugsað út í það að aka
verður með sjúka og sængur-
konur 64 km. út á Akranes, en
þar er nú sjúkrahús okkar. Sú
leiúð myndi styttast svo að ekki
væri neitt hættuspil að flytja
fólk þessa leið.
En svo má nærri geta hverja
þýðingu það hefði að fá beinan
aðgang að daglegum vinnumark
aði á Akranesi, og gagnkvæmt
fyrir Akurnesinga. Eða fisksölu-
málin? Hér eru alltaf erfiðleikar
í þeim efnum og þarf hvað sem
öðru líður ,að taka þau upp í
næstu hreppsnefnd. Það rikir ó-
verjandi sleifarlag í þeim.
„En eins og ég sagði“ segir
Valdemar Ásmundsson, „er sam-
göngu'bót yfir Hvítá eða ósa henn
ar hrein bylting fyrir okkur öl'l.
Það sér enginn til fulls hverja
blessun slik brú gæti yfir okkur
leitt. Hins vegar þýðir ekkert að
tala um þetta, en reyna ekkert
að fá um þoikað í verki. Við fram
bjóðendur Sjálfstæðisflokksins,
allir 14, í Borgarnesi höfum því
ritað samgöngumálaráðherra
bréf og skorað á hann að láta
nú þegar, eða eins fljótt og nokk
ur kostur er á, rannsaka rbúar-
stæði hér fyrir ofan Borgarnes.
Þar væri þó fengið upphafið, því
slík rannsókn' er auðvitað for-
senda framkvæmda.
En í framhaldi af þessu mun
ég í hreppsnefndinni bera fram
tillögu þess efnis að eins verði
farið að um þetta má'l og þeir
gerðu í Andakilsárvirkjun og
sýslunum um raforkumálin í héf-
aðinu. Þeir beittu sér fyrir því
að lána raforkumálastjórninni,
héðan úr héraðinu 4 millj. kr.
til þess að greiða fyrir raflínu-
lögnum. Nú er byrjað á því
verki. Því skyldum við ekki
leggja fram fé af mörkum til
þess að greiða fyrir þessu brúar-
máli? Væri ekki hægt að Borgar-
neshreppur, Akranes. sýslurnar
og lánastofnun héraðsins leggð-
ust allir á eitt. Og því ekki að
leita samvinnu við kauptúnin
Snæfellsnesi og sýslufélagið
þar, Dalamenn og aðrir sem
njóta myndu góðs af slíku verki?
Þetta er stórt mál, en við mun-
um geta leyst það ef fast er unn-
ið að því, skipulega og raunsætt.
Þá væri og eðlilegt að tekið ýrði
sérstakt erlent lán í svona þjóð-
þrifaframkvæmd. Ég sé enga á-
stæðu til þess að einhverjir aðrir
landshlutar eða önnur nytjamál
eigi að sitja í einhverju fyrirrúmi
í þeim efnum. Við ættum lika að
geta fengið slikt leyfi.
Byggingamálin.
Fleira er það, sem hrista þarf
upp í og varðar málefni okkar
Borgnesinga. Byggingamálum og
lóðamálum hefur verið stjórnað
af fremur lítilli fyrirhyggju.
Hætt er við að ekki sjáist enn
allar a^Ieiðingar þess.
Ekki verður hjá því komizt að
undirstrika úrræðaleysi Fram-
sóknarmanna í sambandi við
byggingamálin. Hér í Borgarnesi
er margt fólk, bæði ungt og full-
orðið, sem gjarna hefur vitjað
eignast hóflega íbúð, t.d. þriggja
eða fjögurra herbergja íbúð. En
slíks hefur enginn kostur verið.
Hreppsfélagið hefur alls ekkert
gert til þess að greiða fyrir slíku.
Annað hvort hefur fólk orðið að
ráðast í dý)- einbýlishús, eða fá
ekkert húsnæði.
Vissulega getur það verið við
hæfi sumra að byggja sér ein-
býlishús og hafa margir gert
myndarlegt átak í þeim efnum.
En það hæfir þó ekki öllum. Verð
ur að segja að ekki hefði nú
þurft mikið átak til þess að t.d.
hreppurinn hefði byggt eina
stóra sambyggingu og selt fólki
fokheldar íbúðir, sem það hefði
sjálft getað innréttað og þannig
sparað stórfé. Þá hefði lí'ka spar-
azt mikið fé í holræsagerð, vatns
veitulagnir og allar þær leiðslur,
sem leggja Verður að hverju ein-
asta húsi.
Sjálístæðismenn vilja bæta úr'
i þessu efni með því að á næsta
kjörtimabili verði byggð sam-
bygging af hæfilegri stærð, með
tveggja, þriggja og fjögurra her-
berbergja íbúðum, sem seldar
verði fokheldar.
Atvinnumálin.
Borgarnes er frá náttúrunnar
hendi fagur staður. og fólkið
fegrar bæinn stöðugt með rækt-
un trjálunda og garða. Það er
því eðlilegt að það vilji dvelja
hér og skapa þær aðstæður að
börn þess þurfi ekki að1 flytja
á brott strax og þau geta starf-
að, eins og oft á sér stað. Nokkuð
hefur þó úr þessu raknað að
undanförnu. Einkum hafa iðnað-
armenn haft vaxandi vinnu. bæði
í Borgarnesi og svo hér í byggð-
um Borgarfjarðar. Með batnandi
hag landbúnaðarins og stórfeldd-
ari aukningu hans í héraðinu hef
ur ýms þjónusta hér í Borgarnesi
vaxið sem stafar af verkaskipt-
ingu milli þéttbýlis og dreifbýlis.
Þannig er það vöxtur land'bún-
aðarins, sem einkum styður þró-
un staðarins. en ekki frumkvæði
eða framkvæmdir hreppsnefndar
Framhald á bls. 22.