Morgunblaðið - 21.05.1966, Qupperneq 20
20
MORCUNBLAÐIÐ
Laugardagur 21. maí 1966
Sigrún Sigurðardóttir
Alviðru — Minning
Sigriður Kristófersdóttir
Hórgsdal á Síðu
í DAG verður til moldar borin
merkiskonan Sigrún Sigurðar-
dóttir í Alviðru. Hún var dóttir
þeirra ágætu Tannastaðahjóna,
Sigurðar Sigurðssonar og Guð-
rúnar Magnúsdóttur frá Engey.
Ættartölu Sigrúnar mun ég
ekki rekja hér, því að það hefur
Þórður bróðir hennar, ættfræð-
ingur og bóndi á Tannastöðum,
gert rækilega.
Sigrún var fædd að Tanna-
stöðum í Ölfusi 15. marz 1872 og
var því komin á 95. aldursár, er
hún lézt 10. maí sl. Þau sex af
11 Tannastaðasystkinum, er
náðu fullorðinsaldri, urðu öll há-
öldruð og komust þrjú þeirra
yfir nírætt.
Fórnfýsi og verklund var Sig-
rúnu í blóð borin samfara hug-
ulsemi, vérkhyggni og frábærri
starfsorku, sem entist henni fram
undir hið síðasta. Þurfti hún
snemma á þessum eiginleikum að
halda bæði úti og inni.
Eitt sinn, er hún var 16 ára,
kom móðir hennar með fataefni
og bað hana að sauma jakka. —
Guðrún, móðir Sigrúnar, var
með afbrigðum hagsýn kona og
mikil húsmóðir og hefði hún
vissulega ekki fengið dóttur
sinni fataefni'ð í hendur, ef hún
hefði ekki vitað, að slíkt var ör-
uggt. — Sigrún fór þá út í fjár-
hús, tók hurð af hjörum, lagði
á laup og sneið þar jakkann.
Saumaði hún síðan jakkann í
höndunum og þótti það falleg
flík. — Það var fyrst fjórum
árum síðar, sem saumavél kom
á heimilið. Slík hjálpartæki voru
þá óvfða til, en breiddust óð-
fluga út.
Ungu stúlkurnar, sem vönd-
ust því að sauma hvert nálspor
í höndunum, urðu svo vel saum-
f. 17. júní 1874, d. 9. maí 1966.
ÞESSI þrekmikla heiðurskona,
lézt á sjúkrahúsi Akureyrar, er
nokkra daga skorti á, að hún
næði 92 ára aldri.
Hún var fædd að Hóli í Keldu
hverfi, dóttir hjónanna Jóhönnu
Jóhannsdóttur og Jóns Kristjáns-
sonar er þar bjuggu, en fluttist
6 ára að aldri með foreldrum
sínum að Áslaugarstöðum og 14
ára að Ljósalandi. Albína giftist
2. nóvember 1898 Þórði Jónas-
syni. Hófu þau búskap á Ljósa-
landi og bjuggu þar til ársins
1938, er maður hennar lézt.
Eignuðust þau 11 börn, 4 syni og
7 dætur. Eftir lát manns síns
bjó frú Albína áfram á Ljósa-
landi með Helga syni sínum,
er var fyrir búi og systkinum
hans, Steingrími og Guðbjörgu,
allt til ársins 1945, er hún flutt-
ist til Reýkjavíkur. Dvaldist hún
eftir það hjá börnum sínum,
ýmist í Reykjavík, Akureyri og
Vopnafirði, en tryggð hennar og
ást til heimabyggðarinnar, mun
hafa ráðið því, að þar dvaldist
hún síðustu tvö árin.
Má nærri geta, að þau Albína
og Þórður hafa þurft að vinna
hörðum höndum til að sjá far-
borða svo mannmörgu heimili
og sérstaklega meðan börnin
voru ung, enda var vinnudagur
þeirra að jafnaði langur og
hvíldarstundir fáar. En bæði
voru þ?au samhent í því að láta
heimilið ekkert vanta — jafn-
vel ekki bækur. Var mikið lesið
þar á heimiliriu og börnin kost-
hagar, að unun var að sjá hand-
bragðið aila þeirra ævi, og bar
handbragð Sigrúnar þess glöggt
merki alla tíð, auk þess sem hún
var óvenju sjónhög,
Þegar Sigrún var 29 ára, gerð-
ist hún húsmóðir í Alviðru hjá
Árna Jónssyni. Eignu'ðust þau
eina dóttur, Margréti, og son, er
dó í fæðingu. f Alviðru var henn-
ar mikla lífsStarf um 65 ára
skeið.
Oft var vinnudagurinn langur
og margt heimilisfólkið, auk
gesta, þar sem bærinn er í þjóð-
braut, en aldrei heyrðist æðru-
orð. Aldrei var hugsað um á-
vinning eða laun. Alltaf var það
hún, sem fyrst gekk úr rúmi,
þegar þess þurfti með vegna
gesta, og það var æði oft.
Dýravinur var Sigrún og nat-
in við allar skepnur. Einnig unni
hún hvers konar gróðri.
Skemmtilegt var að eiga orða-
skipti við Sigrúnu, og báru þá
jafnan athuganir hennar og til-
svör vitni um glöggskyggni og
greind, og hafa þeir eiginleikar
lengi átt sér heimaland hjá Al-
viðru- og Tannastáðafólki.
Gaman hafði Sigrún af sögum
og öðrum fróðleik, eins og titt
er um þá, er alizt hafa upp á
menningarheimilum, þó að oft-
ast væru litlar stundir til þeirra
iðkana.
Það má með sanni segja, að
aldrei slyppi Sigrúnu verk úr
hendi og var hún jafnan glöð í
starfi. Alltaf var það henni eig-
inlegra að ganga sjálf í verkin
en ýta öðrum, enda var hún með-
al fórnfúsustu kvenna, sem ég
hefi þekkt.
Heimílisrækni Sigrúnar var
með afbrigðum, svo að hún
uð til náms, eftir því sem efna-
hagur frekast leyfði.
Frú Albína var fríða kona og
góðum gáfum gædd, umhyggju-
söm móðir og húsfreyja, sem
helgaði heimilinu alla orku.
Hún var sívinnandi og féll
henni aldrei verk úr hendi með-
an heilsan entist. Drengileg og
glæsileg börn hennar bera þess
vitni, að móðurhjartað af mildi
sinni og hlýju hlúði fagurlega
að þeim reit heimilsins, enda
endurguldu þau henni ríkulega
með umhyggju sinni síðústú
árin, þegar kraftur hennar og
þrek var farið að þverra. Hún
er jarðsett í dag á Vopnafirði.
Blessuð sé minning hennar.
Eiríkur Bjarnason.
fékkst varja til að yfirgefa heim-
ilið nokkra stund. Var hún bæði
stjórnsöm og hagsýn húsmóðir og
lagáði alla tíð góðan og heilnæm-
an mat.
Mesta hamingja Sigrúnar, auk
trúaröryggis, var það að eignast
dóttur til að annast. Þessi góða
og trygglynda dóttir varð svo
'hennar stoð og stytta, nótt sem
dag, þegar kraftarnir og lífsork-
an dvínuðu. Umhyggjusamari
dóttur er varla hægt að hugsa
sér, enda voru þær mæðgur.
Margrét og Sigrún, alla tíð mjög
samrýmdar.
Einnig var Magnús, maður
Margrétar, mjög nærgætinn við
tengdamóður sína. Mátu þau
hvort annáð að verðleikum.
Allt líf þessarar þróttmiklu og
góðu konu var tengt umhyggju
og fórnarlund.
Slíkir eiga góða heimvon.
Mætti það vera huggun ást-
vinum hennar, og öílum hennar
mörgu vinum, sem nutu um-
hyggju hennar og trygglyndis.
Blessuð sé minning hennar,
S. E. E.
IUinning
HÚN hét nafni ömmu sinnar,
Sigríðar Pálsdóttur, prófasts í
Hörgsdal, sem giftist séra Þor-
varði Jónssyni í Holti undir Eyja
fjöllum tæplega þrítug haustið
1848.
Ekki stóð það hjónaband nema
6 ár, því að frú Sigríður í Holti
andaðist 30. okt. 1854.
Þau séra Þorvarður eignuðust
5 börn. Af þeim komust upp að-
eins tvö: Anna, kona Sighvats
alþm. í Eyvindarholti og Kristó-
fer bóndi og póstur á Breiða-
bólstað á Síðu. Hann kvæntist
Rannveigu Jónsdóttur frá Mörk.
Þau voru foreldrar Sigríðar í
Hörgsdal. Var hún elzt af mörg-
um börnum þeirra, sem upp
komust, fædd 7. okt. 1879. Kristó-
fer Þorvarðsson féll frá á bezta
aldri. Hann var í póstferð er
hann drukknaði í Svínadalsvatni
5. maí 1893. Ekkjan hætti bú-
skap og fluttist heim til foreidra
sinna að Mörk. Fyígdu flest börn-
in hennar þangað, þeirra meðal
Sigríður. Eftir fárra ára veru i
Mörk, fór hún til dvalar í Ey-
vindarholt til Önnu föstursystur
sinnar, þar sem hún var unz hún
giftist frænda sínum Bjarna
Bjarnasyni í Hörgsdal 20. júlí
1901.
Á þessu forna stórbýli Síðunn-
ar bjuggu þau Sigríður og
Bjarni í hálfan fimmta áratug
við vaxandi búsæld og batnandi
hag eftir því sem árin liðu og
börnin uxu, vinnusöm og verk-
mikil eins og þau eiga kyn tiL
Bjarni í Hörgsdal var hægur
maður í framgöngu og geðspak-
ur, búmaður góður og ríkulega
gæddur þeim hyggindum, sem í
hag koma. Sigríður var ör í lund,
hispurslaus í tali og sagði hverj-
um síria meiningu, afdráttarlaust,
dugm’ikil tii verka og atorkusöm
að hverju sem hún gekk. Bæði
voru hjónin, þó ólík væru, sam-
hent og unnu eins og einn maður
áð hag og farsæld heimilis síns
og heill áinna mörgu barna. Alla
var þeim Sigríði og Bjarna auði'ð
11 barna. Skulu þau talin í ald-
ursröð: Bjarni bóndi og hrepp-
stjóri í Hörgsdal kv. Doroteu
Kissmann, Helga í Reykjavík og
Rannveig í Hafnarfirði, ógiftar,
Kristófer bóndi á Fossi á Síðu
kv. Þórunni Skúladóttur frá
Mörtungu, Jón, bílstjóri í Hörgs-
dal ókv., Guðríður í Hafnarfirði
g. Nikulási Jónssyni frá Vorsa-
bæ, Friðrik bóndi á Hraunbóli á
Erunasandi kv. Sigríði Matthías-
dóttur frá Fossi, Jakob bóndi á
Hörgslandi kv. Róshildi Hávarðs
dóttur frá Króki í Meðallandi,
Sigurjóna, d. 1950 var gift Jóni
Hannessyni frá Núpstað, Þorvarð
ur í Hörgsdal ókv., Páll bóndi í
Hörgsdal kv. Elsu Bock. Auk
síns fjölemnna barnahóps ólu
þau Sigríður og Bjarni upp þrjú
fósturbörn. Þar var mikið dags-
verk af hendi leyst. Það getur
hver sagt sér sjálfur, að oft hef-
ur húsfreyjan í Hörgsdal lagzt
þreytt til hvíldar.
Eins og fyrr segir, lézt Sigur-
jóna dóttir Sigríðar árið 1950.
Tregaði hún hana mjög og sýndi
minningu hennar mikla ræktar-
semi. A sama hátt hlúði hún á
ýmsa vegu í verki að minningu
foreldra sinna og annarra lið-
inan ættmenna og vandamanna.
í dag verður Sigríður í Hörgsdal
lög’ð til hinztu hvílu 1 kirkju-
garðinum á Prestsbakka við hlið
ástvina sinna. Við, sem þekktum
hana, þökkum henni samfylgd-
ina og sendum börnum hennar
og öðrum ástvinum samúðar-
kveðju. .
Guð veiti sál hennar fögnuð
og frið til eilífra tíða.
@ Andersen & Lauth hf.
LÉTTUR OG ÞÆGILEGUR
Sportjakki
FÆST AÐEINS HJÁ OKKUR
Keflðvík - Suðurnes - Keflavík
RÝMINGARSALA — RÝMINGARSALA
í dag föstudag hefst hjá okkur rýmingar-
sala og verða allar vörur verzlunarinnar
seldar með 25% afslætti.
Rýmingarsalan stendur til mánaðamóta.
Missið ekki af góðum kaupum.
VERZLUNIN HRINGUR
Hringbraut 96.
Barnavinafélagið
Sumargjöf
Aðalfundurinn verður haldinn 24. þ.m. í skrifstofu
félagsins Fornhaga 8 kl. 8,30 e.h.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
STJÓRNIN.
G. Br.
Albína Jónsdótfir
Vopnafirði — Minning
HAGUR B0RGARINNAR ER I VEDI X EB