Morgunblaðið - 21.05.1966, Síða 22
22
MORGU NBLAÐIÐ
Laugardagur 21. maí 1966
Stulka
ekki yngri en 20 ára óskast til f jölbreyttra
starfa við verksmiðjurekstur. Upplýsingar
á skrifstofunni Brautarholti 22.
Verksmiðjan Dúkur hf.
Lokað ■ dag
vegna útfarar Haraldar Ó. Leonhardssonar
skrifstofustjóra.
Verzlunin SÍSÍ
Unnusti minn og bróðir okkar,
ÓLAFUR TRAUSTASON
lézt 18. maí síðastliðinn.
María Thoroddsen,
Ása Traustadóttir,
Jóhanna Traustadóttir,
Pétur Traustason.
Bróðir okkar
ÞORSTEINN RÖGNVALDSSON
frá Fagradalstungu Saurbæ Dalasýslu,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 23.
maí kl. 15.00.
Systkinin.
Útför konunnar minnar,
1 INGVELDAR ÞÓRU JÓNSDÓTTUR
Leifsgötu 5, Reykjavík,
fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 23. maí kl.
13,30.
Guðmundur Eiríksson.
Af alhug þökkum við öllum þá miklu samúð, sem
okkur var sýnd við fáfall og jarðarför
j PÉTURS PÁLSSONAR
frá Hafnardal.
Guð blessi ykkur öll.
Sigríður Jónsdóttir,
börn, tengdabörn og barnaböm.
Þökkum innilega öllum þeim er sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og jarðarför föður okkar, tengda
föður og bróður
GUÐMUNDAR KR. ERLENDSSONAR
vélstjóra.
skipsfélögum hans á m.s. Esju.
Erlendur Guðmundsson,
Kristín Guðmundsdóttir,
Bjami Þórðarson,
Valgerður Erlendsdóttir,
Jóel Fr. Ingvarsson.
Hjartans þakkir færum við öllum þeim, er sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarfðr eigin-
manns míns, föður og tengdaföður,
BJARNA GUÐMUNDSSONAR
frá Aldarminni.
Sérstaklega þökkum við Birni Gunnlaugssyni, lækni,
fyrir ómetanlega hjálp í langvarandi veikindum hans.
Jóhanna Jónsdóttir,
Lilja Bjamadóttir, Ólafur Guðjónsson,
Jóna Bjarnadóttir, Axel Þórðarson,
Óskar Bjarnason, Sigurjóna Marteinsdóttir,
Jóhannes Bjarnason, Dagbjört Guðmundsdóttir.
Þökkum innilega öllum þeim, sem auðsýnt hafa okkur
samúð og vinarhug við andlát og jarðarför,
SVEINBJARGAR BRYNJÓLFSDÓTTUR
fyrrum húsmóður í Stóradal,
og heiðrað minningu hinnar látnu.
Vandamenn.
— Um góða stjórn
Framhald af bls. 16
bændur hafa yfirleitt í öðru
að snúast en að spóka sig í
höllum. Svo virðist sem bænd-
ur hafi byggt höllina fremur
fyrir borgarbúa og erlenda
gesti en fyrir sjálfa sig, og
ber oss, sem hér búum, að
votta þeim heilshugar þakk-
læti vort og þakka hlýjan hug
þeirra til höfuðborgarinnar.
Minnzt hefir verið á „móðu-
harðindi af manna völdum" hin
síðari ár. En stórum eru þau
betri en hin fyrri móðuharð-
indi, sem vér lesum um í sögu
vorri, því þá gusu eldfjöll og
hækkuðu og hraun runnu. í
þessum síðari „harðindum" hef-
ir að vísu myndazt eitt mein-
laust eldfjall í hafi — og hefir
það orðið féþúfa bókaútgefend-
um og ferðaskrifstofum — en í
landi hefir myndazt smjörfjall,
sem vér borgarbúar fáum ekki
torgað. Er því full ástæða til
að þakka þá hagræðingu, sem
hér hefir orðið á harðindum,
og kæmi oss ekki á óvart þótt
Indverjar kynnu að vilja hafa
harðindaskipti við oss, ef það er
satt, sem erlend blöð segja, að
tíu milljónir þeirra hafi dáið úr
hungri á liðnu ári.
Þjóðsaga hefir fyrir allmörg-
um árum orðið til utan um orð
eins aldraðs sóknarprests á
landsbyggðinni. Ein útgáfa
hennar er á þessa leið: „Áður
fóru ýmsir úr mínu prestakalli
til Himnaríkis. Nú fara flest-
ir til Reykjavíkur". Hvaða
snjallræðum sem menn kunna
að beita til skýringar sögunni,
þá er eitt Ijóst, og það er að
hinn aldraði prestur hefir tekið
eftir því sterka aðdráttarafli,
sem höfuðborg vor hafði — og
hefir enn á hugi manna. Borg-
inni er vel stjórnað — en það
er vandi að stjórna henni vel.
Hve margir fara héðan upp og
hve margir fara niður eftir er
þeir hafa skilið við þeiman
heim og þessa borg, er svo ann-
að mál, því menn verða dæmd-
ir eftir verkum sínum af rétt-
látum dómara. Og hversu vel
sem einhver borgarstjórn kann
að stjórna, þá verður það ekki
af henni heimtað að hún tryggi
mönmrni húsnæði í hinni
himnesku Jerúsalem, aðeins að
hún leyfi fagnaðarboðskapnum
að hafa frjálsa ferð um borg-
ina.
Eflið heill borgarinnar, segir
Jeremía spámaður, því að henn
ar velgengni er yðar vel-
gengni. Og þó var þar ekki um
hans eigin höfuðborg að ræða,
heldur borg, þar sem þjóð hans
bjó í útlegðinni. Ekki ættum
vér síður að efla heill vorrar
borgar, þar sem vér búum sem
frjálsir menn.
V.
Stjóriimálamenn eru bæði
sérfróðir menn og áhugasamir
og reyna jafnvel að veita oss
óbreyttum borgurum nokkra
leiðbeiningu um hversu kjósa
skuli. Hins vegar eru þeir ekki
á eitt sáttir um hversu stjórna
skuli, og verða því kjósendur
sjálfir að skera úr um það, og á
íslandi eru leynilegar kosning-
ar. Og það ætti ekki að vera
viti bornum mönnum ofraun að
velja milli óljósra og sundur-
leitra hugmynda annars vegar,
en hins vegar traustrar og
reyndrar stefnu manna, sem
hafa gert reikningsskap ráðs-
mennsku sinar og hafa sýnt í
verki að þeir kunna að stjórna
veL
Jóhann Hannesson.
— Stefnt að
Framhald af bls. 15
innar i Borgaresi. Hreppsnefndin
hefur eiginlega ekkert gert til
þess að auka hér atvinnuna. En
þar væri þó margt hægt að gera,
ýmist beint eða með stuðningi
við þá, sem vilja leggja í at-
vinnurekstur. Ég er sammála
því, sem meðframbjóðandi minn,
Kjartan Gunnarsson apótekari
segir, að þau hráefni, sem til
falla í héraðinu, þ.e. landbúnaðar
vörurnar. eigi að verða undir-
staða nýs iðnaSar. Ullin, gærurn-
ar og húðir eru al'lt góð hráefni.
Sama er um kjötið og grænmetið.
Þarna eigum við framtíð, sem
gefa þarf gaum að.
„Ég vil að lokum“, segir Valde
mar Ásmundsson segja það að
í hreppsnefndinni mun ég vinna
að málefum þessa byggðarlags
eftir getu, bæði fyrir unga og
gamla, og heiti á Borgnesinga að
styðja okkur frambjóðendur
D-listans á sunnudaginn.
Björn Arason, kennari:
Björn Arason, kennari, er 4.
maðurinn á lista Sjálfstæðis-
manna. Hann er 34 ára að aldri.
Stúdentsprófi frá Akureyri lauk
hann og stundaði síðan nám um
skeið í Háskóla íslands. Hann
gerðist síðan kennari við gagn-
fræðaskólann í Borgarnesi og
starfaði þar um nokkurra ára
skeið. Nú er hann tekinn við
starfi sem forstöðumaður olíu-
verzlunar Skeljungs í Borgar-
nesi. Kvæntur er hann Guðrúnu
Jósafatsdóttur, og eiga þau þrjú
börn.
Björn hefur tekið mikinn þátt
í félagsmálum Sjálfstæðismanna
í Borgarnesi og er nú formaður
félags ungra Sjálfstæðismanna í
Mýrasýslu. Bjöm dvelur um þess
ar mundir erlendis, svo eigi var
unnt að ræða við harm.
— Úr borginni
Framhald af bls. 13
er að gera skólatónleika að föst-
um lið í starfsemi hljómsveitar-
innar á næsta ári. Verður þetta
væntanlega gert á þann hátt, að
nemendurnir fá í skólanum
nokkra fræðslu um verk þau
sem leikin verða á hverjum tón-
leikum og verður þannig hægt
að undirbúa nemendurnar betur
en hægt yrði á tónleikunum
sjálfum. í framkvæmd verður
þetta þannig, að nemendurnir
verða fluttir á tónleikana I
strætisvögnum og má segja að
hluti tónlistarkennslunnar verði
með þessu mó'ti fluttur úr skóil-
unum og út í Háskólabíó Kerfis
bundnir tónleikar af þessu tagi
hafa gefið mjög góða raun vest-
an hafs og r^yndar allsstaðar
þar sem þeim hefur verið komið
á. Því má ætla að starfsemi
þessi verði börnum borgarinnar
og nágrennis til mikils yndis-
auka og fróðleiks. s,
Hinir kerfisbundnu skólatón-
leikar verða jafnframt fyrsta
tilraunin til að byggja upp ís-
lenzka tónlistaræsku.
Eins og að framan er greint
frá, nemur framlag Reykjavíkur
borgar til hljómsveitarinnar
rúmlega 21%. Borginni verður
ekki með öðrum hætti * betur
veitt viðurkenning fyrir fram-
lag hennar en með sem fullkomn
astri tónlistarþjónustu við
yngstu borgarana.
Til solu
Ford Zephyr 4 model ’62 í góðu lagi til sölu.
Upplýsingar í símum 32793 og 37959.
Iðnaðarhusnæði
oskast
fyrir frekar þrifalegan iðnað á jarðhæð eða fyrstu
hæð, 50—70 ferm. Ekki í úthverfunum. Tilboð
merkt: „Sumar — 9088“ sendist blaðinu fyrir 29.
þessa mánaðar.
Volvo Amazon ‘62
Til sölu eða í skiptum á nýrri bíl.
Upplýsingar í síma 33494.
Nýtt eldhús
Norsku Pólarís-eldhúsinnréttingarnar eru það allra
nýjasta — stílfögur og sterk.
Komið og skoðið og fáið nánari upplýsinóar.
Einkaumboð fyrir Pólaris-eldhúsinnréttingar:
P. Sigtirðsson
Skúlagötu 63 — Simi 19133.