Morgunblaðið - 17.07.1966, Qupperneq 3
Sunnudagur 17. júlí 1966
MORGUNBLAÐIÐ
Rabbað v/ð Marzellus Bernharbsson, skipasmlba-
meistara á ísafirði
— ÉG má ekkert vera að því
að tala við blaðamenn nú,
þegar ég er að vinna. Þið
blaðamenn komið alltaf á
versta tíma, segir hvatlegur
roskinn maður, Marzelíus
Bernharðsson, skipasmíða-
meistari, þegar við hittum
hann nú í vikunni í skipa-
smíðastöð hans í Neðstakaup
stað á ísafirði.
Hann skoðar skemmdir á
kili ísfirzks síldarbáts og gef
ur mönnum sínum fyrirskip-
anir um, hvernig verkið skuli
unnið. Við erum ekki á þvi
að gefast upp og fylgjum
Marzelíusi eftir í þeirri von,
að honum gefist kostur á að
rabba við okkur stundarkorn.
— Hve stór skip er þér
unnt að taka hér á land?
— Um 400 tonna skip, segir
hann.
— Hvenær stofnaðirðu fyr
irtækið?
— Árið 1939, og fyrirtækið
er fætt andvana, segir hann
og kímir um leið og við lítum
á hin reisulegu hús, sem alls
staðar blasa við augum.
— Ég varð að búa til land
ið sjálfur, hér sem við stönd
um, heldur hann svo áfram,
hér var áður flugbraut fyrir
sjóflugvélarnar, þar sem
Marzelius Bernharðsson,
skipasmíðameistari.
þeim var ekið á land.
Við fylgjum nú Marzeií-
usi inn í stórt gult hús, þar
sem unnt er að hans sögn að
smíða stálskip 450 tonn að
stærð. Þar er innandyra 200
tonna pressá til þess að
beýgja og móta járn og þar
er krani, sem lyft getur Í0
tonnum.
— Hve stórt er húsið?
— Þáð er að grunnfteti 40
sinnum 40 metrar.
— Hve marga báta hefur
þú smíðað?
— Ég hef smíðað 40 tré-
skip og get hafið smíði stál-
skips hvenær sem er. Ég hef
hér um 35—40 manns starf-
andi þar á meðal einn skipa-
tæknifræðing, sem vinnur að
teikningum, Gunnar Örn
Gunnarsson. Á skrifstofunni
vinna þrír. Áður en ég flutti
hingað syðst á Tangann var
ég með stöðina uppi í bæ, en
héðan hef ég smiðáð 35 skip.
— Hvaða gamla skip er
þetta, sem liggur þarna úti
við enda Tangans?
— Það er gamail togari,
Júpíter, sem ég ætia að nota
fyrir bryggjuhaus. Mig vant-
ar hér tilfinnanlega bryggju.
— Og hvað er svo stærsta
skipið sem þú hefur smiðað
til þessa? spyrjum við að ’ok
um.
— Það stærsta er 92 ja
tonna skip, segir Marzelius
um leið og við kveðjum hann,
og hann hálfhleypur við fót
niður á renniverkstæðið til
að taka til höndunum við
einhverja smíðina. Hann er
augsýnilega þeirrar mann-
gerðar að geta ekki setið auð
um höndum.
— Vietnam
Framhald af bls. 1
tH stjúrnarinnar í Hanoi. Sagði
Harriman, að líflát fiugmann-
anna yrði tii þess að breyta al-
erlega afstöðu bandarisku þjóð
arinnar til styrjaldarinnar. Til
íþessa hefði hún ekki beinzt
gegn þjóðinni í N-Víetnam, —
en gerðist stjórn landsins sek
um .slí'ka óhæfu, kynni að verða
breyting þar á. Harriman sagði,
að ljóslega væri það trú Hanoi
stjórnarinnar, að Bandaríkja-
menn myndu gefast upp í Ví-
etnam, rétt eins og Frakkar á
eínum tíma. En þar færu menn
viWir vegar — og ekkert mundi
herða Bandaríkjamenn eins í
andstööunni og líflát flugmann-
anna, er væri algert brot á
Genfarsamiþykktinni um með-
ferð stríðsfanga.
Stjórnin í Hanoi hefur marg-
lýst því y£ir, að hún líti ekki
á bandarísku flugmennina sem
stríðsfanga heldur sem stríðs-
glæpamenn, þar sem Banda-
ríkjastjórn hafi aldL”ei lýst
stríði á hendur N-Víe'*'am.
Harriman viðhafði j essi um-
mæli í viðtali við útvarpsstöð-
ina „Voice of America". Hann
sagði meðal annars, að Hanol
stjórnin hefði neitað að gefa
nokkrar upplýsingar um banda-
rísku fangana. Er ekki einu
sinni vitað, hversu margir þeir
eru — en gizkað á að þeir muni
34 talsins, að minnsta kosti.
Hanoi stjórnin hefur einnig
neitað að leyfa fuKtrúum Al-
þjóða rauða krossins að hafa
samband við mennina og neitað
að sjá svo um, að mönnunum
berist bréf og bögglar.
★ Viðtalinu við Harriman var
útvarpað nokkrum klukkustund
um eftir að George D. Aiken,
öldungadeildarþingmaður repu-
blikana frá Vermont, lýsti því
yfir að bandariska þjóðin
mundi krefjast algerrar eyði-
leggingar N-Víetnam, ef Hanoi
stjórnin léti verða af því að líf-
láta flugmennina.
Aiken. sagði í blaðaviðtali, að
Moskvustjórnin hefði átt veru-
legan þátt í að hvetja N-Ví-
etnam til aukinnar andstöðu.
Sovétstjórnin vissi, að Johnson,
Bandaríkjaforseti, vildi að frið-
ur kæmist á í Víetnam og gæti
því stuðlað að friðsamlegri
lausn með því að hvetja Hanoi-
stjórnina til að setjast að samn-
ingaborðinu. En Rússar virtust
meira fyrir friðinn í orði en á
borði. Aiken er einn þeirra, sem
til þessa hafa oft gagnrýnt
Bandaríkjastjórn fyrir að færa
út styrjöldina i Víetnam, —
einn af „dúfunum“ svonefndu,
— en 18 þeirra úr hópi öld-
ungadeildarþingmanna demó-
krata hafa sent Hanoi-Stjórn-
irani opineibrt bréf, þar sem hún
Sr. Jon Auðuns, dompróf.:
Fögur
„Tíminn er kominn að ég taki
mig upp. Ég hefi barizt góðu
baráttunni, fullnað skeiðið, varð
veitt trúna. Og nú er mér
geymdur sveigur réttlætisins,
sem Drottinn mun gefa mér á
þeim degi“%
Svo syngur guðsmaður sinn
dánarsöng, þegar hann veit
dauðann nálgast (2.Tím.4,6-8).
Hvílík ævilok. Hvílík rósemi.
Ætlar þú að deyja þannig? Mun
ég geta dáið svo?
Ævilok eru að nálgast. Sólar-
lagið færist nær og nær. En
rósemi guðsmannsins haggast
ekki. Traust hans er á bjargi
byggt. Hann horfir um öxl yfir
deyjandi dag og veit, að annar
dagur er að rísa. Hann horfir
á sólarlagið og fagnar því, af
því að hann veit, að sólarupprás
fylgir, þúsund sinnum auðugri
að dýrð. Hann horfir yfir ævi-
starfið og veit, að hann hefir
ekki brugðizt, ekki svikizt frá
neinu. Þessvegna er sálarfriður
hans svo mikill og æviíokin svo
fögur.
Eigum við þá sannfæringu um
Kolviðornesloug
opnuð ú ný
17NGMENNAFÉLAGAR í Snæ-
fellsness- og Hnappadalssýslu
réðust i það stórvirki í kringum
1940 að byggja steinsteypta sund
laug, 25 m langa, við Kolviðar-
neslaug í Eyjarhreppi, þar sem
áður hafði verið torflaug og
sund kennt i nálega 100 ár.
Skömmu síðar byggðu þeir
einnig sundskýli við laugina.
sem þó varð aldrej fullgert vegna
fjárskorts.
Síðastliðið sumar gáfu ung-
mennafélögin hmum nýja heima
vistar skól a, I.augargerðisskóla,
laugina, en har.n stendur aðeins
spölkorn /rá henni. Allan júní-
mánuð var unoið að endurbót-
um á lauginni, og stjórnaði þeim
framkvæmdum Sigurður Helga-
son, skólastjóri Var taugarþróin
máluð, sömuleðis sundskýlið
utan og innan Rafmagn var
leitt í sundskýlið og þar komið
fyrir steypuböðum og salernum.
Þá var reist skjólþii við laug-
ina og lóð lagíærð og girt.
Sundlaogin 'ierður fyrst um
sinn opin almenningi á kvöldin
frá kl. 9 — 11, mánudaga,
fimmtudaga og föstudaga, en
laugardaga og sunnudaga frá kl.
4 — 6 e.h.
Stjórn Jemen
segir nl sér
Kairo, 16. júlí. — NTB.
• Lýðveldisstjórnin í Jemen
hefur sagt af sér vegna ágrein-
ings við stjórn Egyptalands.
Áreiðanlegar heimildir herma,
að ágreiningur þessi hafi komið
fram á ráðstefnu, sem fulltrúar
stjórnar Jemens og Egyptalands
sátu fyrir nokkrum dögum í
Kairo. Þetta er fimmtánda
stjórnarbreytingin í Jemen frá
því iýðveldi var lýst yfir árið
1962.
er vöruð við að lífláta her-
mennina, þar sem slíkt mundi
bjóða heim alvarlegum gagn-
ráðstöfunum og enn draga úr
friðarlíkum. Meðal hinna átján
er Mike Mansfield, leiðtogi
demókrata í deildinni, sem
einnig hefur tekið undir fynr-
greind orð Aikens.
ævilok
líf og dauða, ég og þú, að við
fáum lifað öruggir og dáið með
rósemi? Munum við geta sagt
eins og postulinn, þegar leggja
skal upp í hinztu ferðina héðan:
„Tíminn er kominn að ég taki
mig upp“? En að „taka sig upp“,
þýðir að búast til brottfarar.
Um það ætti ekki að þurfa
að spyrja kristin mann. En þó
er raunin sú, að svo margt hef- '
ir lagst á eitt til að svæfa páska-
trú kristinna manna, að jafnvel
i kristinni boðun er tíðum far-
ið í kring um frmhaldslíf manns
sálarinnar eins og feimnismál,
sem réttast væri að segja um
sem fæst, fullyrða sem minnst.
En hver verða örlög kristninn-
ar, ef slíku fer lengi fram?
Menn segja unnt að trúa á
Guð án þess að trúa á fram-
haldslíf eða ódauðleika manns-
sálaríhnar. Látum svo vera. En
kristna trú er ekki unnt að eiga,
nema sannfæring sé fyrir hendi
um líf að baki líkamsdauðans.
Eftir 36 ára preststarf er ég
sannfærðari um það í dag en
nokkru sinni fyrr ,að kristninni
er ekkert nauðsynlegra en að
leiðir finnist til að endurvekja
þverrandi trú á, að það er byggð
á bak við heljarstrauma.
Með sitt hvað það í huga, sem
djúpsálarfræðin hefur leitt í ljós
á síðustu áratugbm, tel ég eng-
an veginn allt það vera rök fyrir
framhaldslífi, sem ég taldi rök
fyrir nokkrum áratugum. En
ýmis af þeim rökum, sem ég taldi
þá styðja ódauðleikatrúna, tel
ég með jafnmikilli vissu styðja
hana enn.
Ég hefi verið þessa dagana
verið að grípa að nýju ofan í
merkilega bók um sálgæzlu eft-
ir einn lærðasta Svía nútímans,
geðveikralækni í Stokkhólmi.
Það er sómi Díakonissustofnun-
inni sænsku, sem er fremur
íhaldssamur félagsskapur, að
gefa út þessa bók. En höfundur-
inn er bæði opinskár um við-
kvæm kynlífsmál og hefur einn
ig stundað í áratugi vísindaleg-
ar sálarrannsóknir og mjög iðk-
að dáleiðslu við rannsóknir sin-
ar, sem margt „trúað“ fólk er
hrætt við eins og galdra.
Hinn stórlærði geðlæknir seg
ir, að enginn geti stundað sál-
gæzlu að nokkru gagni nema
örugiglega sé trúaður á annað
líf. Og hann fullyrðir, að af
vísindalegum sálarrannsóknum
hafi fengizt niðurstöður, sem
verðskuldi að til þeirra sé lit-
ið með fullri virðingu. Sem geð-
læknir með geysilega reynslu að
baki og með mikla þekkingu á
vandamalum mannssálarinnar,
óttanum, friðleysinu og því
innra öryggisleysi, sem veidur
sálsýki, veit hann að ómetanleg
blessun og andleg heilsubót er
fólgin í einlægri trú. En hann
efar að þá blessun geti nokkur
fundið, sem á ekki örugga trú
á ódauðleika mannssáiarinnar.
Hann veit, hve fráleitt er að
ætla, að vísindin hafi afsannað
eða geti afsannað líf eftir dauð
ann. En fyrir hinu telur hann
sterkar líkur, að ódauðleikasann
færingin styðjist við þrugg rök.
Átt þú þá sannfæringu.
Það er ekki aðeins sjálfs sin
vegna eða ástvinamissis, sem
menn hafa persónulega orðið
fyrir, að menn glíma við þessa
gatu, heldur einnig og ekki síð-
ur til þess að freista þess að
bjarga trú sinni á lífið og verð-
mæti niannssálarinnar. En trúin
á þau er í hættu. Og hættan
steðjar að frá guðlausum vís-
indum og guðlausum hagkerf-
um.
Átt þú þessa sannfæringu?
Næsta sunnudag ætla ég að
taka þá spurningu aftur upp, ef
ske kynni, að þú vildir spyrja
líka.