Morgunblaðið - 17.07.1966, Side 21
Sunnudagur 17. iúlí 1966
MORGUNBLAÐIÐ
21
Edward Crankshaw og Lajos Lederer:
Tímnmót í Júgóslavíu
EF Júgóslavía heldur áfram
braut þá, sem Tító forseti
landsins markaði í upphafi, og
hefur komið landinu töluvert
áleiðis, eru allar horfur á að
stjórnarfyrirkomulagið verði
mun frjálsara en verið hefur
og smám saman verði komið á
nýju sósíalistísku ríki. E£ illa
tekst til, verða afleiðingarnar
hins vegar hrun og upplausn
júgóslavneska sambandsríkis-
ins, en mesta afrek Títós hefur
einmitt verið að halda því sam
an.
í samanburði við þetta verð-
ur að líta á hina æsandi at-
burði, sem skeðu 1 byrjun
þessa mánaðar sem smáatriði,
enda þótt þeir séu bæði mikil-
vægir og víðtækir. Sjálfsfor-
ræði öryggislögreglunnar hef-
ur verið að engu gert. Hið lang
varandi ástand, sem gerði það
að verkum að pólitískur yfir-
maður lögreglunnar, Alexand-
er Rankovich, fékk neytt að-
stöðu sinnar til þess að hafa
áhrif á veitingu embætta inn-
an ríkisstjórnarinnar og flokks
ins, getur ekki endurtekið sig
nema því aðeins að stjórnar-
bylting komi til.
Júgóslavneska miðstjórnin
varð að beina fyrstu aðgerðum
sínum gegn Rankovich og
mönnum hans, þar sem þeir
hafa ekki látið sér nægja að
'koma í veg fyrir þær endur-
bætur efnahagsmála sem byrj-
að var á á sl. ári, heldur hafa
þeir einnig staðið manna mest
igegn hinum róttæku, pólitísku
endurbótum, sem sósíalíska
sambandsþingið kunngerði í
júní sl. Þannig neyddist mið-
stjórnin til að taka fyrir mál
Rankovichs og þeirra félaga á
fundi, sem haldinn var í byrj^
un þ.m. og var ætlað það hlut-
verk að koma af stað hinum
pólitísku endurbótum (aðskiln
aði kommúnistaflokksins frá
framkvæmdavaldinu). En. nú
geta þeir sem vinna að endur-
bótunum gefið sig að meiri
háttar vandamálum, þar sem
andstaða Rankovich og manna
hans hefur verið brotin á bak
aftur. 400 stuðningsmenn
Hankovich voru sviptir em-
bættum í kyrrþey áður en sjálf
ur höfuðpaurinn var tekinn
fyrir og síðan hafa 800 manns
í viðbót orðið að hröklast úr
stöðum sínum.
Sem dæmi um það sem var
að ger-ast má geta þess, að einn
af ræðumönnum á fundi mið-
stjórnarinnar lýsti því yfir, að
júgóslavneska innanríkisráð-
herranum hafi algjörlega fall-
izt hendur vegna þeirra
manna, sem Rankovich, yfir-
maður öryggislögreglunnar
höfðu skipað honum til „að-
stoðar". Fjöldamörg atvik þess
arar tegundar hafa átt sér stað.
Nú mun þetta allt taka enda.
Mikilvægum áfanga hefur ver-
ið náð, þar sem bráðlega verð
ur unnt að sjá að hve miklu
leyti andstaðan gegn endurbót-
um í efnahagsmálum og stjórn
málum er runnin undan rifjum
Rankovich og stuðningsmanna
hans, og að hve miklu leyti
þar er um að kenna íhaldssemi
ótal embættismanna innan
flokksins, sem ekki eru bein-
línis tengdir öryggislögregl-
unni en hafa séð stöðum sínum
ógnað eða halda í alvöru, að
Tító sé genginn af vitinu. Þá
er einnig rétt að hafa í huga
þá vaxandi þjóðemiskennd,
sem grunnt er á í hinum ýmsu
sambandsríkjum.
Ástandið er enn óskýrara af
þessum sökum. Þannig hefur
t.d. baráttan milli frjálslyndra
afla og afturhaldssinna orðið
mun flóknara sökum meiri eða
minni háttar „skæruhernaðar“
milli Króata og Slóvena annars
vegar og Serba hins vegar —
eru deilur þessar öflugt berg-
mál hinna fornu deilna róm-
versk-kaþólskra og grísk-
kaþólskra manna í landinu og
bræðravígum Króata og Serba
á tímum síðari heimsstyrjaldar
innar.
Eitt þeirra mála, sem voru
að komast í hámæli var nokk-
urs konar leynimakk um að
bæla niður hreyfingu frjáls-
lyndra Króata með því skil-
yrði, að einnig yrði hafður
hemill á tilteknum serbneskum
öfgamönnum. Var mönnum svo
heitt í hamsi vegna þessa, að
ein ástæðan fyrir því, að Tító
skirrðist við að snúast fyrr
gegn Serbanum Rankovich var
ótti hans við serbneska upp-
reisn. Því var það, að þegar
Tító fór til Brioni í byrjun
þessa mánaðar komu slóvensk-
ar hersveitir í stað hinna serb
nesku hersveita í setuliðunum
og hallarvarðliði höfuðborgar-
innar.
Þrátt fyrir óvinsældir sín-
ar naut Rankovioh trausts
Títós, sem fól honum nær ótak
markað vald. Nú andar þjóð-
in léttar eftir aðgerðirnar gegn
lögreglunni og þá sérstaklega
gegn Rankovich, * og Titó fer
sér að engu óðslega.
1 fyrstu opinberu ræðunni,
sem hann hélt eftir fund mið-
stjórnarinnar beindi hann orð-
um sínum til hóps fyrrverandi
hermanna, sem margir hverjir
gegna æðri stöðum sökum
vaskrar framgöngu í hemum
í heimsstyrjöldinni síðari og í
spánska borgarastríðinu. Gaf
Tító
hann þeim varfærnislega
fyrstu ábendinguna um, að
tími væri ekki aðeins kominn
fyrir marga þeirra til að draga
sig í hlé — „fyrr eða seinna
þurfum við öll að draga okkur
í hlé“, lét Tító um mælt —
heldur stæði einnig til að skipu
leggja herinn upp á nýtt og
fækka þar mönnum.
Ennfremur notaði Tító tæki
færið til að vara við of miklu
frjálslyndi. Hosum fórust svo
orð, að mikið væri rætt um
frjálslyndi en það væri í raun-
inni neikvætt. Þegar að því
kæmi að taka upp vestræna
háttu eða þegar um væri að
ræða að bæla niður þjóðernis-
hreyfingar og aðskilnaðarstefn
ur ætti frjálslyndi í stjórnmál-
um enga lífsvon.
„Vér stefnum að því að skapa
ósvikið lýðræði, þannig að sér
hver borgari sé frjáls og öháð
ur. Vér getum ekki látið það
viðgangast, að fólkið lifi í sí-
felldum ótta“. Þetta var vissu-
lega vel mælt. En Tító hélt
áfram máli sínu og sagði þá
að sá eini, er ástæðu hefði til
að óttast væri „óvinur upp-
byggingar sósíalismans og lýð
ræðisins“. En hver á að kveða
á um það hvað sé sósíalismi og
lýðræði annar en kommúnista
flokkurinn undir forystu Títós?
Hver á að vekja ótta hjá þeim
sem eru á öndverðum meiði
við þær kenningar, sem komm
únistar boða ef ekki leyniþjón
ustan, sem hefur mikil völd
með höndum, þó að hún sé,
sem starfandi heild, ábyrg
gagnvart miðstjórninni? Marg-
ar þær ræður, sem meðlimir
miðstjórnarinnar fluttu í Bri-
oni gáfu ótvírætt til kynna, að
miðstjórnin hafi á undanförn-
um árum lagt of oft blessun
sina yfir handahófskenndar
ákvaiðanir Rankovich eða ann
arra „óskeikulla" leiðtoga. í
þessu er vandamálið einmitt
fólgið.
Enginn vafi leikur á því, að
Tító er staðráðinn í, á meðan
hann er enn við völd, að færa
út undirstöðu stjórnarfyrir-
komulagsins með því að dreifa
völdunum á hendur fleiri
manna og með því að stofna
sérstaka stjórnardeild í Bel-
grad, sem yrði ekki aðeins sann
ur fulltrúi hinna andstæðu
krafta, sem bornar eru fram af
hinum ýmsu sambandsríkjum,
heldur einnig fulltrúi ólíkra
skoðana, sem almenningur læt-
ur uppi.
En þessi leið verður vand-
farin. Tító virðist ímynda sér
einn öflugan kommúnistaflokk
sem starfi við hlið stjórnar-
deildar skipaðri hæfileikamönn
um, sem ekki þurfi endilega að
vera kommúnistar. Hann fór
þess á leit, að hafnar yrðu opin
berar viðræður um sem flest
vandamál, svo að flokkurinn
og ráðamenn hans kæmust að
samkomulagi. Svo virðist sem
Tító sé að fara fram á að
kommúnistaflokkurinn haldi
sínum stranga aga og vinni við
hlið óflokksbundinna einstakl-
inga með ótakmörkuðu skoð-
ana- og athafnafrelsL
Ráðgert er að halda auka-
flokksþing nú í haust, og eru
tvær undirbúningsnefndir þess
teknar til starfa. Á önnur
þeirra að gera nánari grein fyr
ir starfsemi og skipulagi örygg
isþjónustunnar og fylgjast vel
með þeim, sem standa gegn
endurbótunuim. Hinni nefnd-
inm hefur verið falið að taka
til abhugunar flókin pólitísk
vandamál, sem þurfa úrlausn-
ar við áður en unnt er að
skipuleggja nýtt samstarf
Rankovich
milli kommúnistaflokksins og
stjórnarinnar, sem hefur í för
með sér mikla valdaskerðingu
flokksins. Þessi vandamál taka
ekki einungis til hugmynda-
kenninga og hvernig eigi að
haga yfirstjórn landsmála,
heldur einnig til þess hvernig
eigi að koma fyrir skipulagn
ingu sambandsstjórnar í landi,
þar sem þjóðfélög, sem eru
langt á veg komin eins og
Slóvenía, verða að eiga sam-
leið með öðrum skemmra á
veg komnum eins og Make-
dóníu og með því þjóðfélagi
sem venjulega segir hinum fyr
ir verkum, þ.e. Serbíu.
Þar sem andstaða Ranko-
vichs og samstarfsmanna hans
hefur verið brotin á bak aftur
þykir ljóst að Tító muni fyrr
en hann bjóst við standa and-
spænis aðalinntaki þess vanda
máls, sem hann nú glímir við
þ.e. hvernig kommúnistaflokk
urinn fái haldið stöðu sinni,
þegar málfrelsi hefur ekki að
eins verið leyft, heldur einnig
gert að veruleika. Tító hefur
hafið ákaflega djarfa tilraun,
sem samræmist vel eðli hans,
en með henni mun hann ekki
aðeins efla eða brjóta Jógó-
slavíu niður, heldur einnig
hafa áihrif á öll komandi
kommúnistísk stjórnarfyrir-
komulög Evrópu. Sú tilraun,
sem nú hefur verið hafin til
að fara vandasaman meðalveg
í landi, þar sem ofsi, þrjóska
og öfgar ráða ríkjum, markar
því hvorki meira né minna en
alger tímamót.
(Observer — öll
réttindi áskilin).
<
Bíltæki
„Standard66
Festingar í flestar
tegundir bifreiða.
Ferðatæki
fyrir bíla
Bílloftnet í miklu úrvali
Sendum gegn póstkröfu
RADIOVER sf.
SkölavörOuttfg 8 • Reykjavfk • Sfmi 18525
Skolprör
2^” 4“ og 6” ásamt tilheyrandi fittings, væntan-
legt fyrir mánaðamót.
Pantanir óskast endurnýjaðar.
BYGGINGAVÖRUVERZLUN
Isleifur Jónsson hf.
Bolholti 4 símar 36920—36921.
ÁBYRGÐ Á H ÚSGÖGNI JM
Athugið, oð merki þetto sé ó húsgögnum, sem óbyrgðarskirteini fýlgir. Kaupið vönduð húsgögn. 025421 RAMLEIÐANDI í = NO.
HÚSGÁGNAMEISTARA ÉLAGI REYKJAVÍKUR i
HÚSGAGNAMEISTARAFÉLAG REYKJAVÍKUR