Morgunblaðið - 17.07.1966, Síða 30

Morgunblaðið - 17.07.1966, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ Sunnu'dagur 17 júlí 1966 \ Hinir þýzku gestir ÍBK: Áhugamenn á borð við atvinnumenn Leika á ftljarlWíkurvelli í kvöid 1>ÝZKA liðið frá Sportclub 07, Bad Neuenahr kom til Reykjavíkur á föstudagskvöld. Liðið er hér í boði Keflvíkinga og leikur sinn lyrsta leik í kvöld. Mótherjarnir í kvöld verða Keflvíkingar «g leikurinn verður á grasvellinum í Njarðvík. á Níu með hér á landi Þýzku liðsmennimir virð- • ast snaggaralegir liðsmenn og leika án efa góða knatt- spyrnu, eins og öll þau þýzku Jið er hingað hafa komið hafa gert. Liðið hefur náð prýðis- árangri, varð 8. í meistara- keppni þýzkra áhugamanna á sl. ári og vann tvær alþjóð- legar keppnir í París og Remagen sem ætíð eru vel skipaðar liðum. En eins og komið hefur fram þykir for- ráðamönnum félagsins sætast- nr sá árangur sem liðið náði í fyrra í kappleik við Bor- ussia Dortmund, sem á sl. ári vann Evrópubikar bikar- meistara. Áhugamenn SC 07 töpuðu að vísu leiknum en úr- slitin voru 4:6 og flaug frægð- arsaga SC 07 víða. 1 samtalinu við Þjóðverjana á flugvellinum í fyrrakvöld kom fram að níu leikmanna Jiðsins í þeim fræga leik eru með nú og verður vissulega gaman að sjá þessa ágætu áhugamenn. Bkiki skyggir það á Keflavíkuir- liðið virðist vera komið í góða þjálfun og frammistaða liðsins og einstakra ieikmanna í síðustu leikjum gefur vissulega ástæðu til að vonast eftir skemmtilegri viðureign í kvöld. I.iðin Lið Þjóðverjanna er yfirieitt jskipað ungum mönnum, mjög fjöihæfu.m, eins og margir þýzkir iknattspyrnumenn eru, enda „al- ast þeir upp“ í glæsilegum æf- ingamiðstöðum sem nóg er af. í Þýzikalandi. Lið Þjóðverjanna er þannig skipað: Markv. Steinseifer, bakv. Fuhrmann og Hans Graf, framv. Lorenz Graf, WöMgang Much og Ludwig Geef, framh. Helmut Stollenwerk, Heinz Welter Aug- Ust Thiir, Helmut Knebel og Rolf Kleser. Lið Kefiavíkur: Markv. Kjart- «n Sigtryggsson, bakv. Magnús Haraldsson og Ólafur Marteins- son, framv. Guðni Kjartansson, Sigurður Alibertsson og Einar Bönsk unglingo- lið gegn Reykjn- vikiuúrvnli TVÖ dönsk unglingalið i knatt- spyrnu eru hér stödd á veífum Víkings. Leika þau bæði i kvöld og fara leikirnir fram á Mela- vellinum. f 3. aldursflokki keppa iiðs- menn danska félagsins Avarta gegn jafnöldrum sínum í Viking. Hefst sá leikur kl. 7.30. Strax á eftir, eða kl. 8.30, leik- ur 2. flokkur frá sama féiagi við Reykjavíkurúrval í 2. aldurs- flokki. Lið KRR er þannig: Framhald á bls. 31 l'jorir ísl. liðmannanna, Valbjörn, Kjartan, Eriendur og Olafur. Magnússon, framh. Karl Her- mannsson, Einar Gunnarsson, Jón Jóhannsson, Grétar Magnús- son og Jón ólafur Jónsson. Skozku liðin. My ndin er tekin á Laugardalsvelli. „Viöleggjumokkurallafram" segja landsliðsmennirnir, sem mæta Skotum á morgun og þriðjudag Frjálsíþróttamenn okkar hafa að undanförnu verið að búa sig undir iandskeppnina við Skota og hafa flestir þeirra er i landsliðið voru valdir æft vel. Á fimmtudaginn voru þeir t.d. flestir á lokaæfing- unni á Melavellinum og nutu aðstoðar þjálfara sinna þeirra Jóhannesar Sæmundssonar og Benedikts Jakobssonar. Við leituðum álits nokkurra um horfur í landskeppninni og fara hér á eftir svör þeirra: Ragnar Guðmundsson, Á, á að keppa í 100 m. hlaupi og 4x100 m boðhlaupi. Hann sagðist vera í góðri æfingu núna, og sinn bezti tími í ár væri 11,1 sek., sem hann hefði náð við heldur óhagslæð skil- yrði austur á Laugarvatni nú um siðustu helgi. Ragnar sagðist hafa keppt við Skot- ana er keppa eiga í 100 m. hlaupinu í iandskeppninni í fyrra, og hefðu þeir þá sigrað með 2/10 sek. Hann vildi engu spá um úrslit nú, en sagði að vissulega yrði að reikna það sér til hagsbóta að hlaupa nú á heimavelli. Þórarinn Ragnarsson, KR, sagðist vona að keppnin yrði jöfn, og það yrði hún örugg- lega, svo framarlega sem Skotarnir hefðu gefið upp réttan árangur. Þórarinn sagðist heldur hallast að ís- lenzkum sigri og víst væri að hann mundi taka á öllu sem til væri og jafnvel meiru til. Er ekki ósennilegt að svo verði, þar sem Þórarinn hef- ur áður í landskeppni kom.ð á óvænt og sýnt mikla keppnishörku. Guðmundur Jónsson, HSK, keppir nú í fyrsta skipti í þrí- stökki í landskeppni. Hann sagði að heilsuleysi hefði hamlað æfingum hjá sér að undanförnu og væri hann því ekki sem bezt undir þessa keppni búinn. Auk þess væri hann tæplega nógu vanur að stökkva á Laugardalsvellin- um. Eigi að siður var Guð- mundur bjartsýnn á horfur í keppninni, og jcyaðst vonast eftir því, að {ronum tækjzt að vinna sigur í sinni grein, en hans bezti árangur í ár er 14,24 metrar. Þórður B. Sigurðsson, KR, verður fyrirliði íslenzka lands liðsins Og keppir jafnframt í sleggjukasti. Hann sagði að engin keppni væri töpuð fyrr en hún væri búin, og víst hefðu íslendingar farið út í landskeppni með minni sigur- möguleika en nú væri fyrir hendi. Landskeppni væri allt- af skemmtileg, og kvaðst Þórður hlakka til þátttökun- ar, hver svo sem úrslit yrðu. Hann taldi keppnina í það fyrsta, þar sem margir af íþróttamönnunum væru nú fyrst að komast í æfingu. Ekki vildi Þórður spá um úr- slit, og þegar hann var spurð- ur um horfur í keppnisgrein hans, svaraði hann því til, að vonandi væri að Jón Magn- ússon tæki a.m.k. annan Skot- Jón Þ. ólafsson, 1R, sagði, að miðað við þær upplýsing- ar sem fyrir lægju ætti hann að sigra í hástökkinu en það væri nú sem áður, að allt gæti skeð í keppni og bezt væri að vera ekki of öruggur. Jón sagðist vona, og jafnframt spá því, að sigur íslendinga í há- stökkinu yrði tvöfaldur. Jón sagði, að keppni þessi væri islenzkum frjálsíþróttamönn- um kærkomið tækifæri, þar sem þeir fengju alltof sjald- an tækifæri til keppni við er- lenda iþróttamenn. Væri leið- inlegt hve margir af fyrirhug uðum keppnum féilu niður, og væri nú skemmst að minn ast þess, að landskeppni við Norðmenn hefði verið aflýst. Þá hefði einnig verið um það talað, að hingað kæmu 30 bandarískir íþróttamenn tii keppni, en ekkert hefði bólað á þeim enn, þrátt fyrir að tíminn sem þeir áttu að koma á væri liðinn. Sagði Jón að siíkt væri ekki vænlegt til að örfa menn til æfinga. Annars sagðist Jón vera í góðu formi núna og vonast til þess að sér tækist að bæta eigið met í há stökkinu í sumar. Þorsteinn Þorsteinsson, KR, hefur komið á cvænt í sumar og bætt árangur sinn mjög. Sagðist hann hafa stundað háskólanám í Bandarikjun- um sl. vetur og æft vel þar. Hinsvegar sagðist hann ekki æfa mjög mikið núna, enda byggi hann að góðri vetrar- æfingu og það væri því ekki nauðsynlegt að æfa mikið yfir keppnistímabiiið. Þor- Halldóra Ilelgadóttir, fyrirliði kvenna. steinn sagðist vera mjög ápægður með aðstöðuna til íþróttakeppni hérlendis, og sagðist ná betri tímum hérna en erlendis. Um keppnina sem framundan er sagði Þor- steinn, að ekki væri gott um að segja, hvoru megin sigur- inn lenti. Hann mundi gera sitt bezta og aðstæður og áhorfendur gætu einnig hjálp að mikið. Valbjörn Þorláksson, KR, sagði það trú sína, að íslend- ingar ættu að sigra í keppn- inni, en þá þyrftu að fara saman heppni og það gamla og góða form, sem íslending- ar kæmust oft í þegar i lands keppni væri komið. Valbjörn sagði, að í þeim greinum, sem hann ætti að keppa í. ætti hann að sigra í stangar- stökki og einnig hefði hann sterkar sigurlíkur í 110 m. grindahlaupi og spjótkasti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.