Morgunblaðið - 03.11.1966, Page 4

Morgunblaðið - 03.11.1966, Page 4
4 MORCUNBLADIÐ Fimmtudagur 3. nóv. 1966 BÍLALEICAN FERÐ SÍMI 35135 OC 34406 SENDUM id SÍM' 1-44-44 \mim Hverfisgötu 103. Daggjald 300 H 3 kr. ekinn km. Benzín innifalið. Sími eftir lokun 31100. LITLA bílaleigon Ingólfsstræti 11. Sólarhringsgjald kr. 300,00 Kr. 2,50 ekinn kílómeter. Benzin innifalið í leigugjaldi Sími 14970 BÍIALEIGAIM VAKUR Sundlaugaveg 12. Sími 35135. BÍLALEIGA S/A CONSUL. CORTINA Sími 10586. B O S C H Háspennukefli ^ ^ - Brœðurnir Ormsson Lágmúla 9- — Smu 'AtttiZD. Sorpritin Góði Velvakandi. Hvað getum við gert til þess að stemma stigu við þeirri flóð öldu af óhollu lestrarefni, sem fer yfir landið okkar? Ég er stundum svo sár yfir því, sem lagt er upp í hendurnar á unga fólkinu — því að það eru ekki sízt óharðnaðir unglingar, og menn í mótun, sem lesa hið skaðlega lestrarefni — að mér liggur við að tárfella. Við, sem falin hefur verið umsjá og uppeldi barna og ung linga, erum áð reyna eftir beztu betu að innræta þeim það, sem við trúum, að geti orðið þeim styrkur og festa í lífinu og eflir þau til baráttu við öfgar og freistingar, sem gætu leitt til falls. Sorprit.in iega áreiðanlega stóran þátt i því að rífa það niður, sem Við leitumst við að byggja upp. Þar er höfðað til þeirra hvata og tilhneiginga, sem við eigum að beizla og temja, svo að við getum lifað mannsæmandi lífi í þessum heimi. Þar er rætt um kynmök ógifts fólks og ævin- týri eins og um sjálfsagða hluti sé að ræða. Það er staðreynd, að margir æskumenn okkar hafa fallið i saurinn og valdið sjálfum sér og heimilum sínum hinni mestu sorg og böli. Þeir kunnu ekki fótum sínum forráð fyrir æsku sakir og vegna hins lausbeizl- aða tíðaranda, sem sorpblöðin eiga stóran þátt í að móta. Rit- stjóri blaðs nokkurs gat þess fyrir nokkru, að hann hefði fengið þær upplýsingar hjá ein um aðstandenda nefndra sorp blaða, að blað hans kæmi út í tólf þúsund eintökum. Þið blaðamennirnir hafið mikið vald til áhrifa. Viljið þið nú ekki skera upp herör í þessu máli? Rita í tíma og ótíma um þetta fargan? Er ekki svo, að flóðaldan dvínaði fyrir nokkr- um árum vegna skrifa blað- anna? Nú er hún risin á ný, sennilega magnaðri en nokkru sinni fyrr. Ég sárbæni ykkur nú að vinna gegn þessum blöð- um. Sóðalegt lestrarefjni dreg- ur þróttinn úr æskumönnum okkar. Það stuðlar að því að gera þá að nautnaseggjum og þar með óhæfum til að berj- ast fyrir háum hugsjónum og góðum málefnum. Ég bið ykkur, góðu blaða- menn, takið hör.dum saman og vinnið gegn þessu meini. Gerið þeim erfitt fyrir, sem hirða að- eins um pyngju sína, en ekki um heill æskunnar. (Ég gec ekki að því gert, að mér finnst slíkir menn líkjast þeim, sem selja fólki eiturlyf.) Varpið réttu ljósi á verknað þeirra. Gerið lýðum ljóst, hvílíku tjóni þeir valda, hvílíkum sárum, böli — og svo ólýsanlegu menningarleysi. Ég er ekki gömul nöldur- skjóða. Ég er „barnakerling“ með sár í_ hjarta vegna þessa vanda. — Ég veit ekki, Velvak- andi góður, hvort þú vilt birta þetta bréf. Mér er fyrir mestu, að þið ágætu blaðamenn neytið aðstöðu ykkar til áhrifa og ger- ið ykkar, ef unnt væri, til þess að vinna gegn því vandamáli, sem hér um ræðir. Þó gæti birt- ing bréfs þessa orðið eins og lítið lóð á vogarskálina. Með kærri kveðju og þakk- læti fyrir góðan dálk og marg- víslegt „mannlegt" efni fyrr og síðar, bín Þura í Þurranesi." ÍT Útivistartími barna „Ánægð móðir" skrifar: „Vel vakandi góður! Ég skrifa þér í gleði minni yfir þeirri herferð, sem nú er farin gegn_ útivist barna á síð- kvöldum. Ég á ekki orð til að lýsa feginleik mínum. í mörg ár hef ég sjálf barizt von- lausri baráttu, ein gegn öðrum mæðrum í þessu húsi, fyrir því að börnin færu ekki út eftir kl. 8. Hvernig áttu börn mín að skilja það, að þau mættu ekki vera úti, á sama tíma og leikfélagar þeirra og skóla- systkin á sama aldri léku sér óhindruð. Einstaka sinnum gat ég fundið smáletursklausu í Dagbók Morgunblaðsins um útivistartíma barna á kvöldin; greip ég þá tækifærið og syndi börnum mínum, þeim læsu, en las fyrir hin ólæsu. Jú, þau efuðust svo sem ekki um, að þetta stæði þarna svart á hvítu. En því var ég að fara eftir þessari klausu, úr því að margar aðrar mæður gerðu það ekki? Öll min rök gegn þeirri staðreynd voru óðar brotin á bak aftur. En nú loks- ins stend ég með pálmann i höndunum. Börnin heyra um þessa reglugerð hjá kennara sínum og í útvarpi, og í strætis- vögnum og blöðum lesa þau um hana. Enginn efast nú leng- -------------«---------------- ur um sinn heimkomutíma og köllum mínum er nú skilyrðis- laust hlýtt. Því bið ég þig fyrir beztu þakkir til réttra aðila fyrir þessa ánægjulegu fram- för. Ánægð móðir". ★ „Dýrlingurinn“ Sjónvarpsnotandi skrif- ar; „Undirritaður vill beina þeirri fyrirspurn til blaðs yðar, hversvegna sjónvarpið er með þessa mynd „Dýrlingurinn". í einu orði sagt, finnst mér það ófært, og ekki beint uppörv- andi, sérstaklega fyrir börn frá 10 ára, því þegar þessi mynd er sýnd, þá vilja þau horfa á hana, og ef það er ekki hægt, er ófriður á heimilum. Ég sagði heimilinum því undirrit- aður veit um að á mörgum heimilum ríkir óánægja út af þessu atriði. Þetta finnst mér atriði, sem hver hugsandi mað- ur hlýtur að bera áhyggjur af. Annars er sjónvarpið ágætt, hef ekkert út á það að setja að öðru leyti. Ég hef trú á að sjón- varpið éigi eftir að ná miklum vinsældum út um landsbyggð- ina í framtíðinni. Sjónvarpsnotandi". ^ Mannlýsing og aldarfar H.S. skrifar: „Átján hrossa afl sá ber úr honum fossar mælskan sver. Ægis glossa gildur ver í galsa, blossa og trylling fer. Þessi litríka persónulýsing gefur tilefni til samanburðar við aldarfarið nú til dags. Átján hrossa aflið svarar til hinna aflmiklu og stórvirku vinnuvéla. Hin fossandi mælska svar til hins fossandi málæðis og hljóðfæraglaums, sem liggur I eyrum daglega frá rismáli til háttamála. Hin skrúðmikla kenn- ing svarar til tækjanna, sem galsanum, blossanum og tryll- ingnum valda og mörg eru tryllitækin og margvísleg. — Atkvæða- og áhrifamest munu fjölmiðlunartækin svonefndu — útvarp og sjónvarp — kapp- leikir, kvikmyndahús og leik- hús. Víðar kemur tryllitæknin samt við. — Um hana má með sanni segja, að hún er lævía og lipur. H. S.-. Til sölu Mercedes Benz 1900 árgerð 1963 í góðu lagi með nýrri dieselvél. — Upplýsingar í síma 22909 frá kl. 5—7 næstu daga. Raðhús til sölu í Háaleitishverfi. 4ra — 6 herbergja íbúð óskast i skiptum. Tilboð merkt: „Góð eign — 8445“ sendist Morgunblaðinu fyrir 10. nóvember. Tapazt hefur RAUÐBLESÓTTUR HESTUR 7—8 vetra, mark fjöður framan vinstra. Þeir, sem upp- lýsingar geta gefið um hestinn eru vinsamlegast beðnir að hringja í síma 40441. Stór flygill Stór, mjög vandaður, vel með farinn og lítið notaður flygill, gerð BÖSENDORFER, til sölu strax. Upp- lýsingar í síma 20 180 kl. 18 til 19 í kvöld. Vörumarkaður Vörumarkaður í Breiðfirðingabúð. Fatnaður á konur og börn á mjög hagstæðu verði, stendur aðeins í dag og á morgun. GJÖRIÐ SVO VEL OG LÍTIÐ INN. V ÖRUM ARK AÐURINN.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.