Morgunblaðið - 06.11.1966, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 06.11.1966, Blaðsíða 5
Sunnuðagur 6. nóv. 1966 MORCUNBLAÐIÐ 5 og taka Listamannaskálann fyrir hesthús segir Helgi Bergmann, sem ætlar að fara að halda sýningu Hrlgi Bergniann með alpahúfuna. LÁGUR til hnésins, en hnell- inn og mikill kraftakarl, enda fæddur Ólsari, eins og þeir Ólafsvíkingar eru nefndir. Sjálfsagt hefur honum ein- hverntíma verið í nöp við Sandara, og þykir víst til siðs þar vestra, þótt vafalaust hafi andrúmsloftið breytzt til hins betra, þegar vegur opnaðist fyrir Ennið. Alpahúfan hans er rauðleit, krimsonrauð, myndu málarar kalla það og farinn af henni toppurinn. Það er einnig lágt undir loft í kjallaranum við Grundar- stig, þar sem hann hefur vinnustofu. en hann rekur sig ekki uppundir. Maðurinn, sem þarna vinnur og málar er Helgi Bergmann íistmálari, sem sumir hafa vegna útlits- ins kallað Picassó íslands. Hann er um þetta leyti að halda málverkasýningu í sal- arkynnum Góðtemplara, þar sem undanfarið hefur verið haldin slöngusýning. Og við lögðum leið okkar einn góðan góðveðursdaginn upp á Grundarstig til að rabba við þennan hnellna málara, síungan og skemmti- legan. „Vertu hjartanlega velkom- inn, eins og þeir segja í frétt- unum í blaðinu, þar sem sam- komuauglýsingar birtast. Eig- um við að fá okkur kaffi?“ „Ég er nú ákaflega lítið fyrir kaffi, en þakka þér annars fyrir. Eigum við ekki að láta nægja í þetta skipti að rabba svolítið um mál- verkin þín?“ — og taka Listamannaskálann fyrir hesthús „Jú, ég skal sýna þér þau svona eitt af öðru, halda fyrir þig undirbúningsmálverka- sýningu — einkasýningu hérna í kjallaranum. Hérna er til dæmis málverk af víði- hríslu. Víðirinn seiglast þetta við að lifa í landinu, og það er alltaf eitthvað bjart og skemmtilegt við hann. Oftast er hann smár, ekki hár í loft- inu, en margur er knár, þótt hann sé smár, og mátt þú þekkja dæmin. Svo er hérna stórt málverk frá Þingvöllum, af Drekkingar hyl. Það mótíf þykir mér allt- af fallegt. Önnur er hér líka af Hestagjá. Hún var grösug þessi gjá, og eins og rétt í lag- inu. Þar geymdu þingmenn hesta sína frá stofnun Atþing- is á Þingvelli og til þess tíma, að það var flutt á mölina. Nú er öldin önnur. Þingmenn eru hættir að koma á þarfasta þjóninum til þings. Annars væri það ekki úr vegi, ef þetta skvldi breytast, að taka Listamannaskálann við hlið- ina fyrir hesthús, hann er varla til annars orðið nothæf- ur. Og svo er nú Austurvöll- ur handhægur, og ekki vanza- laust fyrir þingmenn að taka lengur upp bílastæði fyrir Góðtemplurum. Vitinn á Malararrifi logar alltaf Auðvitað hef ég málað margar myndir frá Snæfells- nesi, því veldur uppruninn. Mér þykir vænt um Nesið, og þótt ég sé Ólsari, þá er allt mitt skyldfólk á Sandi og Rifi. Ég hef málað á Stapa, og sérðu þessa mynd frá hinni björtu sumarnótt þar. Alveg stórkostlegir litir á Nesinu. Og vitinn á Malarrifi logar alltaf í mínum myndum, og færi betur að þeir vitaráða- menn tækju mig til fyrir- myndar um það. Svo hef ég méíað á Húsa vík, og þar kynntist ég árans góðum gæja. Það var sprútt- salinn á staðnum. en ég nefni auðvitað engin nöfn. Og hér kemur svo ein lítil sjúkrasaga. Fékk eitt sinn í magann, — þá kom Jón vinur minn, sem þú sérð þarna við dyrastafinn, mikill náttúru- skoðari, — með meðal á dropaglasi. f því var seyði af Valhumli, sem þeir kölluðu mellefoliu í gamla daga, og það var segin saga, að mér snarbatnaði. Þeir vissu, hvað þeir sögðu þeir gömlu. Rauðmagi með filter- sígarettu í kjaftinum En ég verð að víkja að Snæ- fellsnesi aftur, því að þaðan á ég svo margar minningar, einkanlega frá bernsku minni. Þá fór ég á rauðmaga, við stungum hann í fjörunni, þar. sem hann lá í fjörulónunum, og frá þeim minningum mál- aði ég þenna rauðmaga hérna. Hann er að vísu svolítið frá- brugðin þeim í lónunum, því að hann er me'ð sígarettu í kjaftinum, m. a. s. filtersígar- ettu, Og sá rauði hefur ekki endaskipti á þeim, eins og sumir, sem stinga neðri end- anum upp í sig, en kveikja svo í filternum. Hér kemur svo mynd af eyðibýli heillakarlsins hans Laxness, Bjarts í Sumarhús- um. Ég kann vel við þann karl, það mátti segja, að hann væri bæði Sumarliði og Vet- urliði í senn, og hafði gott vit á hlutunum, og þeir voru margvíslegir í hans ungdæmi. Milljóneramynd af Flosagjá Og nú sýni ég þér bráðum ekki fleiri myndir, en hér er þó mynd af Flosagjá, og þetta er milljóneramynd, því að þarna geturðu greint sumar villurnar þeirra á ströndinni allt út að Rauðukusunesi, þar sem eitt sinn átti að standa Norræna höllin, sem svo var'ð úr að setja niður í Vatnsmýr- inni, þar sem Kjarval vildi reisa Sönghöllina. Kannske að verði sungið í þessari höll líka? Og svo að síðustu skal ég segja þér, að ég mála aldrei eftir pöntun, mála aldrei af- mælisgjafir eftir pöntun, og það er ósatt, að ég noti nokk- urntíma hörpusilki. En á síð- ustu sýningu, sem ég hélt í Kópavogi seldust allar mynd- irnar, 33, upp á svipstundu, og ég er að vona, að eins fari nú þarna í Templarahöllinni, enda verða þarna enn þá stærri, fallegri og ódýrari mál verk en þá, og þú mátt skila hjartans kveðju minni til allra aðdáenda minna og vina, og það neðanmáls í ramma, a'ð ég voni, að þeir verði nú ekki of seinir sumir, eins og síðast, að koma og kaupa.“ Og við göngum út úr hin- um lágreista kjallara, endur- nærðir af miklu litaflóði mál- verkanna, skemmtilegheitun- um í Picassó íslands, gengum upp á efri hæðina þar sem hann býr og drukkum einn kaffibolla með Helga Berg- mann. Hann segir það vera svo hollt fyrir sáliná, andann og holdið. Og yfir kaffiboll- anum rissuðum við skyndi- mynd af karli, en svona til bragðbætis, bættum við hin- um glataða toppi á alpahúf- una. — Fr. P. ÚR ÖLLUM ÁTTUM Listamaðurinn stendur viS eitt málverka sinna niðri í kjallaranum, Milljóneramyndina. Bræðrafélag Hallgrímskirkju Það var sú tíð, að kirkjulegt Btarf fól ekki annað í sér eri starf prestanna. Engin félagssam tök unnu á vegum kirkju eða safnaða. Nú er þetta mjög að breytast. Fyrst var farið að dæmi Dana og Norðmanna, að stofna kristileg félög, sem stóðu í óbeinu sambandi við kirkjuna, en nú á seinni árum er meira farið að amerískri fyrirmynd, kyggja félagsheimili í kirkjun- um eða við þær, og mynda sér- stók félög í tengslum við söfnuð- 1 inn sjálfan. Nokkur reynsla er fengin í þessum efnum hér á ' landi og í Evrópulöndunum er þetta að verða ríkjandi fyrir- komulag. Skömmu eftir að Hallgríms- söfnuður var stofnaður, varð til Kvenfélag Hallgrímskirkju. Um nokkurra ára skeið starfaði æskulýðsfélag í söfnuðinum, en það lagðist niður, meðal ann- ars vegna húsnæðisskorts Kven- félagið hefur hins vegar starfað með miklum blóma, þrátt fyrir húsnæðisskortinn. Langt er síðan farið var að ræða um stofnun bræðrafélags Hallgrímskirkju. Slíkt félag get- ur tekið að sér mörg og fjöl- breytt verkefni. Ég hefi hér ekki aðeins í huga byggingu hinnar miklu og fögru minningarkirkju, heldur ýmiskonar menningar og uppbyggingarstarf. Dálítið hefir veiið að því gert á undanförn- um árum að hafa kirkjukvöld með fræðilegu og listrænu efni á vegum kirkjunnar. Og Kven- félagið hefir hugsað um meira en fjársöfnun. Fundarefni lið- inna vetra sýna það bezt, að fé- lagið hefir látið sér annt um fræðslu og skemmtun af því tagi sem menntar og gleður í senn. I Enda þótt það starf, sem hér hefir verið minnzt á, hafi óefað | gert sitt gagn, er full þörf á bræðrafélagi með sínum sér- i stöku verkefnum. Fyrir tveim árum var stigið fyrsta skrefið í þá átt að stofna slíkt félag, en ýmsra orsaka vegna hefir ekki orðið að formlegri stofnun fyrr en nú. Fundur verður haldinn í Hallgrímskirkju í kvöld (sunnu- dag). kl. 8.30. Söfnuðurinn er stór, og enn stærri sá hópur, sem hugsar vel til séra Hallgríms. Kynslóðir koma og fara. Marg ir þeirra, sem báru hita og þunga dagsins fyrir aldarfjórðungi, hafa nú horfið til feðra sinna. Ný kynslóð er að taka við. Þess vegna er það þýðingarmikið, að ungir menn finni sem fyrst, hvað á þeirra herðum hvílir, og láti ekki þau verkefni verða út und- an, sem andleg menning þjóð- arinnar hvílir á. Mér þykir það góðs viti, að meðal þeirra, sem standa að stofnun hins væntan- lega bræðrafélags Hallgríms- kirkju, eru ungir menn. Frum- mælandinn er lögfræðistúdent, , sem kynnzt hefir kirkjulegu I starfi í öðru landi og hefir hug | á að efla samtök yngri kynslóðarinnar í þágu kirkjunnar. Þessi ungi maður hefir verið fermdur í Hall- grímskirkju, og það gefur mér tilefni til að „láta orðið ganga“ til annarra, sem þar hafa fermzt á undanförnum árum — og sömu leiðis til fermingarbarna minna frá þeim árum, er Hallgríms- kirkja var ekki til orðin nema sem hugmynd — ég vildi geta hvatt þá til að koma á fundinn g taka þátt í því verki, sem framundan cr. Guð gefi, að það skref, sem nú er verið að stíga, verði til bless- unar fyrir samtíð og framtíð Gerizt meðlimir í bræðrafé- lagi Hallgrímskirkju og hvetjið vini yðar tl að gera slíkt hið sama, bæði ungir og gamlir. Jakob Jonsson. *■

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.