Morgunblaðið - 06.11.1966, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 06.11.1966, Blaðsíða 31
Sunnudagur 6. nóv. 1966 MORGUNBLAÐIÐ 31 Jasstríó Paul Bley í Jassklúbhnum Á MÁNUD AGSKV ÖLDIÐ n.k. mun tríó Paul Bley leika hér í Jazzklúbb Reykjavíkur í Tjarn- arbúS. Paul Bley er einn af helztu forsvarsmönnum píanó- leikara, sem tilheyra hinni svo- kölluðu „avant-garde" stefnu í jassinum. Með honum leika hér bassaleikarinn M. E. Bevinson og trommarinn Barry Altshul. Paul Bley þykir mjög góður píanóleikari, og sést það bezt Verkfallið við Búrfell Engir viðræðuíundir VERKFALL stendur nú yfir við Búrfellsvirkjun og hófst það í gær og mun standa til þriðju- dagskvölds. Ennfremur hefir vinnuveitendum verið tilkynnt, að hafi ekki verið samið fyrir miðjan nóvember verði verkfall aftur dagana 14. og 15. nóvem- ber. Engir samningafundir hafa verið boðaðir. Baðið spurði Björgvin Sigurðsson framkv.stj. Vinnuveitendasambandsins um hvað væri því valdandi að ekki væru viðræðufundir í deilu þessari. Björgvin Sigurðsson sagði að það kæmi Vinnuveitendasam- bandinu á óvart, en svo virtist sem viðsemjendur þeirra hefðu um þessar mundir öðrum hnöpp um að hneppa en sitja á samn- ingafundum viQ vinnuveitend- ur. Námskeið fyrir leiðsögumenn ÁKVEÐIÐ er að efna til námskeiðs fyrir leiðsögumenn erlendra ferðamanna, sem ferð- ast hingað til lands. Kennsla í leiðsögn fer fram á ensku og íslenzku jöfnum höndum Kennslan er utan venjulegs vinnutima, en þó ekki á kvöld- in. Helztu ferðámannaleiðum um landið verða gerð skil á nám- skeiði þessu. Forstöðumenn námskeiðs- ins eru Kristján Arngrimsson og Kristján Jónsson, en þeir eru báðir reyndir leiðsögumenn erlendra ferðamanna hér á landi. á því að jafn frægir menn sem Mingus, Jimmy Guiffre og Orn- ette Coleman hafa fengið hann til þéss að leika í hljómsveitum sínum. Bley er Kanadamaður, en for- eldrar hans voru evrópskir inti- flytjendur. Hann byrjaði ungur að fást við músikina. 5 ára að aldri hóf hann fiðlunám, og 2 árum síðar sneri hann sér að píanóinu, og hefur hann haldið sér að mestu við það síðan. Hann er fæddur 10 nóvember 1932 í Montreal í Kanada. Hann fór fyrst að láta verulega að sér kveða sem tónlistarmaður 12 ára að aldri, en þá hafði hann stofn að eigin hljómsveit. Og hróður hans jókst jafnt og þétt sem ár- in hurfu fleiri í aldanna skaut, og liðlega tvítugur var hann tal inn leiðandi jasspíanisti Kanada Pollyanna bók fyrir telpur TELPNABÓKIN „Pollyanna", eft ir Eleanor H. Porter, er nú kom- in út aftur í íslenzkri þýðingu Freysteins Gunnarssonar, fyrr- verandi skólastjóra. í undirtitli segir að telpan sú hafi komið öllum i gott skap, enda hefur bók in orðið mjög vinsæl meðal þeirra lesenda, sem hún er ætluð. Mottó bókarinnar er: „Því gleð in er það bezta, sem veröldin á til“. — Bókin er 219 bls. að stær'ð. Útgefandi er Bókfellsútgáfan. *■■■■■■>■■■■■■«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ I Þeim að þakka ; ÞEGAR piparsveinninn Char | les Burgess lézt í Boston átt- ; ræður að aldri, arfleiddi hann 1 að öllum eignum sínum, sem ; námu 700.000 dollurum, þrjár Z gamlar frúr, sem hann hafði ; beðið að giftast sér 55 árum I áður en árangurslaust. „Þeim ; er að þakka sá friður og sú ; kyrrð, sem ríkt hefur í lífi mínu“. Innritun á námskeið þetta og upplýsingar eru veittar í síma 30485 dagana 7.-12. þ.m. Ætlað er að námskeiðið standi frá 14. nóv. til 3. des. n.k. — Úr ýmsum áttum Framhald af bls. 16 járnbrautarstöðvum og raunar allsstaðar þar sem búast má við margmenni. Þetta hefur lagt byrðar á herðar viðurkenndra gler- augnasmiða. Þeim berast þús- undir hjálparbeiðna, svo flest- ir þeirra taka þann kostinn að sinna aðeins pöntunum frá viðurkenndum augnasérfræð- ingum — en slíkir sérfræð- ingar krefjast hærra gjalds fyrir þjónustu sína en er á færi hins almenna Indverja að greiða. Indlandsstjórn hefur farið þess á leit við öll ríki lands- ins að þau reyni að gera alla hómópata í gleraugnasmíði útlæga, og í athugun er lög- gjöf til þess að stuðla að bar- áttu gegn augnsjúkdómum. En þangað til landið hefur á að skipa nægum fjölda menntaðra gleraugnasmiða munu gangstéttaslípararnir halda áfram að hafa nóg að gera. — Stuðlar, strik Framhald af bls. 23 er Goethe og Beethoven gengu saman um götur Carlsbad og fólk hneigði sig og heilsaði með virktum en Goethe kvartaði og sagði við Beethoven: „Aldrei er maður laus við þetta bölvað bukt og beygingar“, en tón- skáldið brosti við og sagði: „Kærið yður kollóttan, menn gætu allt eins vel verið að bukka sig og beygja fyrir iner“. G.oethe hafði eins og áður sagði, ákveðnar skoðanir á flestu milli himins og jarðar. lærdómi, lífinu eftir dauðann, kímni, harmleikum, Englend- ingum og trúmálum og óllu þar á milli. Hann var lítið hrifinn af tóbaki og sagði að reykinga- menn gætu ekki hugsað skýrt eða skrifað af viti og um bjór- inn sagði skáldið: „hann þykkir blóðið og eykur um allan helm- ing hin forheimskandi áhrif tóbaksins". Johann Wolfgang Goethe lifði langa ævi og iðjusama og lézt loks í marzmánuði 1832, 83 ára gamall. Mælsku sinni hélt hann fram á banabeð og sagan hermir okkur að síðustu orð hans hafi hann mælt til þjóns síns, Friðriks, og sagt: „Dragðu frá gluggunum svo það verði I bjartara hér inni“. Ályktun útvegsmanna félags Reykjavíkur Paul Bley eftir að Oscar Peterson hafði horfið þaðan aftur til heim- kynna sinna fyrir vestan landa- mærin. Síðan hélt hann til New York og hóf nám í tónfræði og hljóm sveitarstjórn í hinum fræga Juilliard-tónlistarskóla þar. Hann gerði sína fyrstu hljóm- plötu árið 1953, en um fimm ára skeið eftir það lék hann aðallega á vesturströndinni. Um tíma árið 1958 stjórnaði hann kvartett, sem Ornette Coleman tók síðan að sér, og hefur ver- ið með síðan. Hann hefur leikið með eigin kvartettum og tríóum síðan 1964. MBL. hafa borizt eftirfarandi frá Útvegsmannafélagi Reykja- víkur: Félagið mótmælir mjög ein- dregið framkomnum hugmynd- um um opnun landhelginnar fyrir togveiðum frá því sem nú er,' sérstaklega fyrir úthafsskip (togarana). Telur félagið hina miklu og því nær óyfirstíganlegu örðugleika hinna smærri báta, sem meðal annars stafa af minnk i andi íiskiríi, vera gerða meiri með slíkum aðgerðum. Öll rök falla í þá átt, að meiri ágengni á fiskistofninn innan landhelginnar en nú er, sé ekki heppileg. Fundur í Útvegsmannafélagi Reykjavíkur, haldinn 3. nóv. mótmælir harðlega frumvarpi um verðjöfnunargjald á veiðarfær- um, sem komið er fram á Al- þingi, þar sem lagt er til að lagð- ur verði 2% innflutningstollur á innflutt veiðarfæri. Útvegurinn er þegar hlaðinn tollum og skött- um og hefur enga getu til þess að taka á sig aukin útgjöld. Fundurinn skorar á Alþingi að fella þetta frumvarp. Fundur haldinn í Útvegs- mannafélagi Reykjavíkur 3. 11. 1966, lýsir undrun sinni og óánægju með vinnubrögð vél- bátaútgerðarnefndar og sjávarút- vegsmálaráðherra. Telur fundur- inn, að þó farið væri eftir til- j lögum nefndarinnar, þá séu það algerlega ófullnægjandi úrræði til að mæta þeim gegndarlausu hækkunum, sem orðið hafa á út- gerðarkostnaði; einnig lýsir fund urinn undrun sinni á þvi pukri, sem sjávarútvegsmálaráðherra hefur haft á um meðferð þessa máls. Ennfremur lýsir fundurinn megnri óánægju sinni á þeirri rikisstjórn, sem byrjar nýhafin þingstörf með því að bera fram frumvarp til laga um nýjar álög- ur á sjávarútveginn, í stað þess að gera tilraun til að finna hon- uní viðunandi starfsgrundvöll. í Útvegsmannafélagi Reykja- víkur eru 40 virkir félagar en á fundi þeim, sem þessar ályktanir voru gerðar, voru 23. Þinghúsið í Washington. — Kosningar Framhald af bls. 12 viða látið til sín taka til stuðn ings frambjóðendum demókrata Sagt er að Kennedy hafi hug á forsetaembættinu, annað hvort 1968 eða 1972, og vilji með stuðningi sínum nú tryggja fylgi frambjóðendanna við fram boð sitt þá. En sjálfur hefur hann lýst því yfir að hann sækist ekki eftir að láta af nú- verandi embætti sem hann á að gegna þar til árið 1970. Repúblíkanar hafa einnig teflft fram sínum sterkustu mönnum þar sem þeir hafa á- litið þörfina mesta. Má þar benda á Richard Nixon, fyrr um varaforseta, sem hvergi er í framboði, hefur verið á stöð ugu ferðalagi og flutt ótal ræð ur og ávörp til stuðnings fram bjóðendum flokksins. Hvort það hefur svo áhrif á það hver verður forsetaefni flokksins 1968 skal látið ósagt. EINSTAKT FRAMBOÐ Um einstaka framboð í þess um kosningum má lengi ræða. En sum kjördæmi draga að sér meiri athygli en önnur, og skulu nokkur þeirra talin hér. 1 New York beinist athyglin aðallega að ríkisstjórakosn- ingunum. Eins og fyrr segir er þar um baráttu að ræða milli Rockefellers ríkisstjóra og O'Connors, frambjóðenda demó krata, um ríkisstjóraembættið. Samkvæmt nýjustu skoðana- könnunum er O'Connor líklegri til sigurs, en erfitt er að spá um hver áhrif smáflokkarnir j hafa á framboðið. Robert Kenn edy er eindreginn stuðnings- maður 0‘Connors, og kann það að ráða nokkru um úrslitin. í Massachusetts er háð hörð barátta um Öldungadeildarþing sætið. Frambjóðandi repúblí- kana er Edward Brooke, og er hann talinn líklegri til sigurs en frambjóðandi demókrata, Endicott Peabody, fyrrum ríkis stjóri. Rætist þær spár, verður Brooke fyrsti blökkumaðurinn sem hlýtur sæti í Öldungardeild inni í nærri 100 ár. I Illinois er frambjóðandi rep úblíkana Charles Percy, talinn líklegri til sigurs en frambjóð- andi demókrata, Paul Douglas, þrátt fyrir stuðning Kennedy.s og Humphreys varaforseta við þann síðarnefnda. Öruggt er talið að George Romney verði endurkjörinn ríkisstjóri Michigan. Óg ef sigur inn verður mikill gæti það haft áhrif á það hvort hann verður frambjóðandi repúblíkana við næstu forsetakosningar. George Wallace núverandi ríkisstjóri Alabama, hefur verið í heimsfréttum oft að undan- förnu vegna blökkumannaof- sókna. En hann má ekki lengur samkvæmt lögum, gegna ríkis stjóraembætti. Þess vegna fann hann upp á því snilldarbragði að hafa eiginkonu sína, frú Lurleen Wallace, í framboði og er hún talin örugg um sigur. En George hefur lýst því yfir að þótt kona hans verði kjör inn muni það engu breyta, hann haldi áfram um stjórnartaum- ana. Samkeppnin um ríkisstjóra- embættið í Arkansas er hörð, og erfitt að spá hvor sigrar. Win- throp Rockefeller, frambjóð- andi repúbíkana, eða Jim John son, frambjóðandi demókrata. Demókratar hafa ráðið þarna ríkjum að undanförnu, og er talið sennilegra að þeir haldi völdum, þrátt fyrir ötula bar- áttu Rockefelleís. í Kaliforniu beinast allra augu ao baráttunni um ríkis- stjóraembættið. Nuverandi ríkis stjóri er Edmund „Pat“ Brown, sem býður sig fram í þriðja skipti fyrir demókrata. And- stæðingur hans er Ronald Regan fyrrum kvikmyndaleikari fram bjóðandi hægri arms repúbli- kana og fylgismaður Goldwat- ers. Skoðanakannanir benda til að Regan muni sigra þrátt fyrir það þótt Johnson forseti komi til Kaliforníu til að berjast fyr ir Brown. En hvað sem skoðanakann- anir segja er eitt víst. Alltaf eru margir kjósendur í óvissu þar til á síðustu stundu, og úrslit kosninganna verða ekki kunn fyrr en atkvæði hafa verið tal in. Hvergi í Bandaríkjunum er málum þannig háttað að ein- hver einn flokkur geti fyrir- fram verið viss um 99,99% at- kvæða, eins og sumstaðar tíðk ast. Jafnvel þeir, sem í dag eru taldir öruggir að ná kosningu á þriðjudaginn, geta fengið hin ar hörmulegustu útreið í kosn ingunum, ef kjósendum sýnist. Því þar eru það kjósendur sem ráða. b. L

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.