Morgunblaðið - 16.11.1966, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 16. nóv. 1966
Sovétmenn efstir
á Havanomótinu
ÓLYMPÍUMEISTARARNIR
í skák, Sovétmenn, hafa nú
tryggt það, að þer halda titlin-
um, en þeir unnu í gær og fyrra-
dag aðalandstæðing sinn á Hav-
ana-mótinu, Bandaríkin, með
2!4 vinning gegn VÆ, en keppni
milli þessara tveggja þjóða var
frestað vegna ágrcinings milli
landanna.
Michael Tal vann Robert
Byrne auðveldlega, en jafntefli
varð milli Pals Benkö og Rússans
Stein í 21. leik. Á fyrsta borði og
hinu fjórða urðu jafntefli, en á
þeim tefldu fyrir Bandaríkin
Bobby Fischer og Larry Evans,
en fyrir Rússa Spassky og Pol-
ugajevsky.
Noregur vann í fyrsta sinn í A-
flokki, en þá átti hann vfð Kúbu.
Lauk viðureigninni 2!ú gegn 1%
Noregi í vil.
Eins og áður er komið fram í
fréttum skildu íslendingar og
Rúmenar jafnir, 2 íegn 2.
Staðan eftir 9 umferðir er því
þannig:
1. Sovétríkin 26%
2. Bandaríkin 25
3. Júgóslavía 22%
4. Ungverjaland 22
5. Búlgaría 20%
.—7. Argentína 20
.—7. Tékkóslóvakía 20
8. Rúmenía 19%
9. A-Þýzkaland 15
10. Danmörk 14%
11. ísland 14
12. Spánn 13%
13. Noregur 10%
14. Kúba 8%
Færð fór versnandi
- er byl gerði v'iða um landið i fyrrinött
TÖLUVERÐUR bylur var víða
um landið í fyrrinótt, og hafði
það í för með sér að færð versn-
aði mjög og þjóðvegir tepptust.
Þó var sæmilegasta færð í gær
um Suðurland, austur um
þrengslin en Hellisheiðin lokað-
ist. f nágrenni Reykjavíkur var
mjög mikil hálka og t. d. fóru
nokkrir bílar út af veginum á
Reykjanesbraut, og eins á Arn-
ameshæð í Kópavogi.
Vesturlandsvegur var nokkuð
greiðfær upp í Borgarfjörð, og
stórum bílum var fært vestur í
Dali. Á Snæfellsnesi var blind-
bylur í gærmorun, og voru þar
allir fjallvegir að lokast. Á Vest-
fjörðum var ástandið svipað og
að undanförnu — allir fjallvegir
lokaðir, en þokkaleg færð í
bygð.
Mikill bylur var á Holtavörðu-
heiði og í Fornahvammi í gær-
morgun, og heiðin lokuð. Vélar
voru þó komnar á staðinn strax
um morguninn, og var beðið á-
tekta eftir því, veður skánaði til
þess að ryðja mætti heiðina. Að
öðru leyti var Norðurlandsvegur
nokkuð greiðfær allt til Akur-
eyrar, nema hvað mikill snjór
er á Öxnadalsheiði, og er hún
Auglýsendur
athugið!
Auglýsingaskrifstofan er
opin frá kl. 9 f.h. til kl.
5 e.h. virka daga, nema
laugardaga frá kl. 9—12.
—★—
Handrit að auglýsingum
þurfa að hafa borizt aug-
lýsingaskrifstofunni fyrir
hádegi DAGINN ÁÐUR
en þær eiga að birtast.
—★—
Handrit að STÓRUM
AUGLÝSINGUM, sem
birtast eiga í SUNNU-
DAGSBLAÐI þurfa að
hafa borÍ7* auglýsinga-
skrifstofunni FYRIR KL.
5 Á FIMMTUDEGI, en
handrit að smærri aug
lýsingum í síðasta lagi
kl. 4 á föstudögum.
Myndamót þurfa að
fylgja auglýsingahandriti.
ef mynd á að birtast í
auglýsingu. — Við get-
um séð um að láta gera
hvers konar myndamót
með stuttum fyrirvara.
—★—
ekki fær nema stórum bílum og
jeppum. Vaðlaheiði lokaðist í
fyrrinótt en fært er til Húsa-
víkur um Dalsmynni.
A Austfjörðum var hríðarveð-
ur í morgun, og var gert ráð
fyrir að heiðavegir væru þar
ekki færir lengur.
Varningurinn ekki öllum falur
Baltikafarar fengu ekki varning, sem þeir höfðu
augastað á í Jalta
MBL. hefur haft af því spurn-
ir, að nokkrir fslendingar,
sem fóru í hina margumtöl-
uðu Baltíkuför hefðu villzt
inn í verzlun, sem hefði verzl-
að með mun betri varning, en
aðrar verzlanir i Jalta, er skip
ið var statt þar. Hefðu íslend-
ingarnir ætlað að kaupa sér
þar ýmislegt, en verið synjað
um kaup, þar eð þeir höfðu
ekki skírteini, sem veitti rétt-
indi til kaupanna.
Tveir þessara manna voru
Þorsteinn Ingvarsson, bakara-
meistari, og Geir Guðmunds-
son, bókari. Mbl. hafði tal af
Geir í gærdag og spurðist fyr-
ir um þetta, og sagðist honum
svo frá:
— Okkur fslendingunum
langaði til a'ð komast í á-
kveðna stórverzlun og tókum
til þess leigubifreið, en illa
gekk að koma bifreiðastjóran-
um í skilning um hvaða verzl-
un við meintum. Loks virtist
hann skilja okkur og ók okk-
ur til verzlunar, sem var í út-
jaðri borgarinnar, að því er
okkur virtist og fórum við
þar inn.
f verzlun þessari voru vör-
ur mun betri og nýtízkulegri
en gerðist í öðrum verzlunum
á Jalta, auk þess sem þær
voru á mjög góðu verði. Voru
þær ekki sambærilegar við
þær vörur, sem unnt var að
fá hjá Intourist og þar að auki
ódýrari.
Vi'ð völdum okkur þær vör-
ur, sem við höfðum augastað
á, en verzlunin verzlaði nær
eingöngu með fatnað og var
þar allra þjóða fatnaður, m.a.
ítalskur og enskur, sam-
kvæmt nýjustu tízku. Þegar
við ætluðum síðan að láta
verða af kaupunum kom í
ljós, að ekki var unnt að
verzla, nema gegn framvísun
einhvers konar skírteina, og
þar sem við höfðum ekki slík
skírteini fórum vi'ð bónleiðir
til búðar.
í verzlun þessari virtist
ekki unnt að verzla, nema við
komandi væri meðlimur í ein-
hverjum félagsskap eða þröng
um hóp, eftir því sem mér
skildist af verzlunarfólkinu,
sem vart talaði annað en rúss-
nesku. Mér skildist að verzlun
in væri einungis fyrir ein-
hverja stjórnarmeðlimi eða
einhverja slíka gegn framvís-
un skírteinanna. í fyrstu héld-
um við að fólkið vildi einung-
is gjaldeyri, en það kom á
daginn að það var ekkert skil-
yrði. Þeir vildu hvorki doll-
ara né pund.
í öðrum verzlunum var
vart unnt að verzla. Vörur
voru svo langt fyri rneðan
þann gæðaflokk, sem við er-
um vanir.
Skírteini þessi voru mynd-
laus og á þeim var einhver
áletrun á rússnesku, sem lík-
lega hefur verið nafn skírteins
hafa.
Okkur ferðafóikinu urðu
þetta mikil vonbrigði, þar eð
við höfðum loksins fundið
vamig, sem við gátum hugsað
okkur að kaupa. Okkur var
komið fyllilega í skilning mn
það a'ð þessi varningur væri
ekki falur hverjum sena væri,
svo að á þessu sviði virðist
um stéttaskiptingu að ræða.
Hins vegar reyndi bifreiða-
stjórinn, sem hafði ekið okk-
ur, árangurslaust að fá verzl-
unarfólkið til þess að afgreiða
okkur, en það vísaði einungis
á ferðamannaverzlanir, þar
sem allar greíðslur fóru fram
í gjaldeyri.
Verðlagsráð fjalli um
veri á fiskiírgangl
SAMKVÆMT stjórnarfrum-
varpi, sem lagt hefur verið
fyrir Alþingi mun Verðlags-
ráð sjávarútvegsins fram-
vegis fjalla um verð á fiskúr-
gangi, verði frumvarpið að
lögum. Ákvörðun verðs á
fiskúrgangi hefur fallið utan
ramma verðlagsráðsins og
hefur það reynzt nokkrum
annmörkum bundið.
í greinargerð segir m. a.:
Sala á úrgangi er þýðingar-
mikill liður í tekjum fiskvinnslu-
stöðva, og þá einkum frystihúsa,
og skiptir því úrgangsverðið
verulega máli fyrir ákvörðun
fiskverðsins sjálfs. Á hinn bóg-
inn eiga sjómenn og útgerðar-
menn nú enga aðild að ákvörðun
úrgangsverðsins og þær fisk-
vinnslustöðvar, sem ekki eiga
sjálfar hlutdeild í fiskimjölsverk
smiðjum, telja sig hafa veika að-
stöðu í samningum um úrgangs-
verð. Það frumvarp, sem hér er
lagt fram, miðar að því að bæta
úr þessum annmörkum. Gerir
frumvarpið ráð fyrir, að Verð-
lagsrá'ð fjalli um verð á fiskúr-
gangi með svipuðum hætti og
Kaupi
Loftleiðir
þotur
Kaupmannahöfn, 15. nóv.
Frá Birni Jóhannssyni.
BÚIZT er við því, að ríkisstjórn-
ir Norðurlandanna þriggja, sem
standa að SAS muni krefjast
þess í samningaviiiræðunum um
flutninga Loftleiða, sem hefjast í
Kaupmannahöfn nk. fimmtudag,
að Loftleiðir hækki fargjöld sín,
ef félagið á að fá heimild til að
nota hinar stóru RR-400 vélar
sínar milli Norðurlanda og
Bandaríkjanna. Mun þá gert ráð
fyrir því, að fargjöld Loftleiða
verði jöfn fargjöldum SAS, ef
Loftleiðir kaupa þotur til flugs
á þessari leið.
um fiskverð. Skal ráðið þá skip-
að 3 fulltrúum söluaðila, þ. e.
sjómanna, útgerðarmanna og
fiskvinnslustöðva og 3 fulltrúum
kaupenda, er tilnefndir séu af
síldar- og fiskimjölsverksmiðj-
um. Náist ekki einróma sam-
komulag í verðlagsráði um á-
kvörðun úrgangsverðs, mun yfir
nefnd fjalla um ágreiningsatri'ð-
in á þann hátt, sem 9. gr. lag-
anna gerir ráð fyrir, en ekki er
talin ástæða til, að nein breyting
verði á ákvæðum þeirrar greinar
í sambandi við þá breytingu lag-
anna, sem þetta frumvarp gerir
ráð fyrir.
Leitin enn
árangurslaus
LEITIN að Guðmundi Guðmunds
syni, verkamanni frá Stokkeyri,
sem lýst var eftir á sunnudag,
hefur enn ekki borið árangur f
gær voru skilyrði slæm til leit-
ar, þar sem snjóaði á leitarsvæð
inu og skyggni var slæmt. í dag
verður leitinni haldið áfram, og
þá gengnar fjörur frá Stokkseyri
til Þjórsárósa.
Fundur um Vín
landskortift
- haldinn ÍYfir lokuðum dyrum í
Smithsonian Institution í dag
Flslier héullar
skilnaSarmál
E. Taylorf
SAMKVÆMT fréttum, sem
Mbl. hafa borizt frá AP, mun
í dag, miðvikudag, fara fram
fundur vísindamanna í Smith
sonian Institution í Washing-
ton. Á fundi þessum, sem
haldinn verður fyrir luktum
dyrum, að því er fréttastofan
'segir, verður rætt um Vín-
landskortið fræga.
Meðal vísindamanna þeirra,
sem fund þennan sækja, er dr.
Stephen Kuttner, prófessor í guð
fræðirannsóknum við Yale-há-
skóla, en hann lýsti því yfir í
FoílsÍo á leið-
’ojdiiíid EFTA
Helsinki, 15. nóv. NTB.
• Forsætisráðherra Finnlands,
Rafael Paasio hefur ákveðið að
fara til London til þess að taka
! þátt í leiðtogafundi EFTA-ríkj-
anna dagana 4. og 5. desember.
Hann fer þangað í boði Ilarolds
I Wilsons, forsætisráðhei ra.
fyrri viku, að hann væri í nokkr-
um vafa um ýmislegt varðandi
Vínlandskortið. — Það voru ein-
mitt vísindamenn við Yale-há-
skóia, sem rannsökuðu kortið, og
áttu þátt í a’ð gefa út hina miklu
bók „The Vinland Map And The
Tartar Relation". — Ekki er vit-
að nánar um fundarefnið í Smith
sonian Institution í dag, enda
fundurinn fyrir lokuðum dyrum,
eins og fyrr greinir.
Los Angeies, 15. nóv. - NTB:
BANDARÍSKI söngvarinn
Eddie Fisher hefur höfðað
skilnaðarmál gegn fyrrver-
andi eiginkonu sinni Elizabeth
Taylor, sem nú er gift Richard
Burton, leikara. Staðhæfir
Fisher, að skilnaður þeirra,
sem gerður var í Mexico, hafi
ekki verið löglegur, — og
Elizabeth hafi yfirgefið hann
án þess að færa fyrir því
nokkra ástæðu.
Elizabeth Taylor giftist,
sem kunnugt er, hinum
kunna leikarar Richard Burt
on skömmu eftir að hún skildi
við Fisher í Mexico árið 1964.
Dcamskur rektoc
Kungölv skóBcam
Kaupmannahöfn, 15. nóv.
NTB.
• Danski lýðháskólakennarinn,
Niels Höjlund, frá lýðháskólan-
um í Askov, hefur verið skip-
aður rektor norræna skólans í
Kungálv við Gautaborg.
Við Kungálvskólann er fyrir-
hugað, að um 40 norrænir nem-
endur stundi nám og er ætlun-
in, að þeir eigi þar kost á lýð-
háskólamenntun eins og hún
bezt gerist á Norðurlöndum. 37
(T*
menn frá Norðurlöndunum öll-
um sóttu um starf rektors og vac
skipan Höjlund ákveðin á fur. íi
skólastjórnar í Kaupmannahö.n
í dag. Formaður stjórnarinnar
er Jörgen Jörgensen, fyrrum
fræðslumálaráðherra Dana.
Niels Höjlund er 35 ára að
aldri og hefur starfað sem ktn..-
ari við Askov-lýðháskóla frá
1959. Hann situr í sveitarstj. í n
fyrir Sósíalíska þjóðarflokkhin.