Morgunblaðið - 16.11.1966, Page 12

Morgunblaðið - 16.11.1966, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 16. nóv. 1966 Eitt verömætasta verk endurreisnar- tímabilsins ónýtt EINS OG kunnugt er af frétt- um, hafa málverk og aðrir Iist- munir skemmzt og eyðilagzt í flóðunum miklu, sem herjuðu á Flórenz á Italíu ekki alls fyrir löngu. Mbl. birtir hér mynd af einu dýrmætasta málverkinu, sem eyðilagðist í flóðunum. Það heitir Krossfestingin og er eftir málarann Cimabue, sem var uppi í Flórenz á seinni hluta þrettándu aldar og fyrri hluta þeirrar fjórtándu. Krossfesting- tn var í safninu Museo dell 'Opera di Sta Croce í Flórenz, og var að áliti dr. Ugo Procacci, yfirumsjónarmanns listasafn- anna í Flórenz, eitt af 20—30 dýr mætustu listaverkum á Ítalíu. Meðal annarra listaverka, sem glötuðust í náttúruhamförunum, er María Mey með barnið eftir Cranach, sem var hirðmálari Friðriks 2. hins vitra með aðset ur í Wittenberg. Cranach var fæddur árið 1472 og var hann Iengi í kynnum við Martein Lúther, og er talið, að sá síðar- nefndi hafi haft mikil áhrif bæði á efnisval og listsköpun málarans. Fyrirlestur í Háskólanum PRÓFESSOR Gunther Beitzke frá Háskólanum í Bonn flytur fyrirlestur í 1. kennslustofu Há- skólans í dag kl. 17:30. Fjallar fyrirlesturinn um Þróun þýzks sifjaréttar eftir setningu Bonn- stjórnarskrárinnar. Öllum er heimill aðgengur. Prófessor Beitzke flytur annan fyrirlestur í fyrstu kennslustofu á föstudag kl. 17:30, og nefnist hann: Hin nýja þýzka löggjöf um fjármál hjóna og erfðarétt maka. Að því er Björn Th. Björns- son, listfræðingur, tjáði bla.Va- manni Mbl. í gær, er Cimabue talinn faðir endurreisnartíma- bilsins í málaralist á Ítalíu, og algjör brautryðjandi nýrrar stefnu þar í landi. Hann var lærifaðir Giotto di Bondone, sem er einn af frægustu málurum endurreisnartímabilsins. Um Cranach sagði Björn Th. Björnsson, að hann hefði verið Þjóðverji, Bæheimsmaður, og verið einn helzti brautryðjandi endurreisnarinnar í Þýzkalandi, en þó gætti sterkra gotneskra á- hrifa í list hans. Þá gat hann þess að Iokum, að nú munu aðeins 7—8 verk eftir Cimabue varðveitt í heiminum. Krossfestingin. jr Islenzkur „Buddenbrooks Dómur danskra blaða um „Húsið", skáldsögu Guðmundar Daníelssonar *EINS og áður hefur verið skýrt frá í Morgunblaðinu hefur skáld saga Guðmundar Daníelssonar, „Húsið“, fengið nálega einróma lof í dönskum blöðum. Pleiri rit- dómar hafa nú borizt blaðinu, me'ðal annars úr Kaupmanna- hafnarblaðinu Aktuelt. Ove Ab- ilgaard rithöfundur og aðalgagn- rýnandi Aktuelt gengur svo langt að jafna „Húsinu" við fræg asta skáldverk þýzka skárdsihs Tómasar Mann: „Buddenbrooks". Hér skulu tilfærðir nokkrir kaflar úr ritdómnum: „Hingað til hafa þeir Gunnar Gunnarsson og Halldór Laxness verið næstum einu fulltrúarn- ir fyrir íslenzka skáldsagnalist hér í Danmörku. Við höfum mjög saknað næstu kynslóðanna, en með skáldsögu Guðmundar Daníelssonar, „Húsinu“, er fyrsta skrefið stigið. Hann hóf ritferil sinn árið 1935, sama árið og Martin A. Hansen, sem hon- um svipar til að vissu leyti. Síð- an hafa mörg verk komið frá hans hendi. „Húsið“, sem er í framúrskarandi þýðingu Eriks Sönderholms, fyrrverandi sendi- kennara Dana við Háskóla ís- lands í Reykjavík, var bók fs- lands í bókmenntasamkeppni Norðurlandaráðs fyrir árið 1963.“ Eftir að hafa rakið efni bók- erinnar og bent á nokkur kenni- leiti, sem hann telur táknræn, segir Ove Abilgaard enn frem- Guðmundur Daníelsson um og raunsæi. Mál Guðmundar Daníelssonar er hlaðið setning- um, sem túlka skarpa vitsmuni, og það hefur íþennan sér-íslenzka undirtón spurninga og duldra svara — hinnar hálfkveðnu vísu. Og hvarvetna í frásögninni lýsir af nánum kynnum við undir- stöðulögmál mannlegrar reynslu. Það er sagan um ósigur danska verzlunarvaldsins á íslandi, sem Guðmundur Daníelsson segir okk ur og samtímis bregður hann upp fyrir okkur afbragðs mynd af vissu tímabili í sögu íslands. Við þetta bætist, að „Húsið“ er fullt af fjörugum innskotum og uppfinningasömum tilþrifum. — Þetta er lifandi lesning með ó- sviknum samtölum og írónískri dýpt. Þetta er íslenzkur „Budd- enbrooks“. Skáldsaga, sem mað- ur gleðst yfir a’ð skuli hafa ver- ið þýdd.“ Vibeke Villumsen, ritdómari í B. T. er ekki jafn hrifin af bók- inni og Ove Abilgaard. Hún finn- ur það að sögunni, að hún sé hefðbundin og þar með þýði ekki ekki að leita í henni að nýj- Jarðgas finnst London, 15. nóv. NTB. • Frá því var skýrt í dag af hálfu brezka gasráðsins, að fund izt hefði jarðgas úti fyrir strönd Bretland, á þriðja staðnum, að- eins um átta kílómetra frá þeim stað, þar sem jarðgas fannst síð- ast. Ýmislegt bendir til, að mik- ið gasmagn sé á þessu svæði. ísl. dægurlagahöfundar með tvo þætti í sjónvarpi . „Persónulýsingarnar í bók- inni, svo sem af Henningsen kaupmanni og dætrum hans og fleiru af því fólki, ekki sízt unga manninum, Tryggva Bólstad, eru glitrandi vel gerðar. Átök- unum milli andstæðra hagsmuna hópa er lýst með fíngerðu háði og djúpskyggni. Samskiptum Dana og íslendinga á þeim breytingatímum, sem sagan nær yfir, er lýst af miklum sannind- ÁKVEÐIÐ hefur verið að Félag ísl. dægurlagahöfunda sjái um tvo þætti fyrir íslenzka sjón- varpið, þar sem eingöngu verið kynnt íslenzk dægurlög. Er búið að ákveða að Sextett Ólafs Gauks leiki í öðrum þættinum, en hljómsveit Ragnars Bjarna- sonar í hinum, og að þar verði eingöngu flutt ný lög eftir ís- lenzka höfunda. Þetta kom m. a. fram á blaða- mannafundi með stjórn FÍD. — En við getum auðvitað ekkert án hljómsveitarmanna, sagði for- maðurinn. Og þessvegna bíðum við þess að sjónvarpið verði búið að semja um kaup og kjör við hljómsveitarmenn, svo þeir geti komið fram í sjónvarpsþætti. Vonum bara að það verði áður en tæknimennirnir hætta. um bókmenntastíl, auk þess sé varla hægt að kalla það nútíma- sögu, ®em gerist skömmu eftir fyrri heimsstyrjöldina. Engu að síður fær höfundurinn og bók- in þennan vitnisburð hjá frú Vil’lumsen: „Guðmundur Daníelsson hefur skilning og kunnáttu til að lýsa hinum fjárhagslegu, félagslegu og andlegu átökum, sem gerðust á íslandi fyrir fjörutíu árum. Hann er breiður og traustur rit- höfundur, og bækur eins og bók hans eru alveg öruggar um að ná útbrefðslu, því að þær fullnægja svo gersamlega næstum öll- um þeim kröfum, sem skáld- sagnalesendur gera til þeirrar bókmenntagreinar.“ Frásögn ungversk fréttamanns: Hanoi-íhúar virðast eúga von friðsamSeg ra tímabiEs i Budapest, 10. nóv. AP. • 1 dag birtist í Budapest frásögn frá fréttaritara ung- versku fréttastofunnar í Hanoi þar sem segir, að þar sjáist ýms merki þess, að búizt sé við friði á næstunni. Virðist svo sem borgarbúar séu að búa sig undir friðsamlegra tímabil. T.d. hafi vegir og stræti borgarinnar verið end- urbyggð og gangstéttir lagðar, opinberar byggingar verið skreyttar og gangstéttir gerð- ar við stígana umhverfis vatn ið litla í miðri borginni, þar sem algengt er að borgarbúar gangi um í frístundum sín- um. Bjórstofur og kaffistof- ur hafi verið opnaðar á ný, kvikmyndahús og leikhús aug lýsi nýjar myndir og leikrit, aukin hafi verið útgáfa bók- menntarita og verið sé að 7 hefja undirbúning að nýjum 1 orlofsstað við sjávarsíðuna. Fréttaritarinn kveðst hafa dvalizt fjarri Hanoi í nokkrar vikur og orðið var mikilla breytinga, er hann kom þang- að aftur. „Þegar ég fór áttu borgarbúar í miklum erfið- leikum. Loftárásir Bandaríkja manna í nágrenni borgarinnar og stundum allt að úthverf- unum ollu miklum vandræð- um — svo og árásir þeirra á stíflugarða Rauða fljótsins, einmitt á þeim tíma, er fljót- ið var að flæða yfir bakka I sína. Þá varð að leggja alla áherzlu á að koma börnum, 1 unglingum, kennurum og öldr ) uðu fólki úr borginni og 1 styrkja og gera við vegi og i járnbrautarlínur. Samgöngur í egngu þá erfiðlega og matvæla 7 dreifing var stopul“. 1 „En nú er allt miklu frið- ) sælla og rólegra í Hanoi“ seg- \ ir hann. „Allir eru farnir úr j borginni, sem ekki þurfa nauð ? synlega að vera þar. Enn má i sjá biðraðir við matvælaverzl ) anir, en dreifingin er miklu í betri en áður og matvælabirgð i irnar meiri. Hver borgari fær ) daglega ákveðinn skammt mat ) væla og annarra lífsnauð- y synja." . „Meðal þess, sem eykur á rósemi borgarbúa", heldur I ungverski fréttaritarinn áfram ^ „eru hinar auknu loftvarmr < borgarinnar. Það vekur traust í þeirra, að sjá MIG þoturnar, 1 sem fljúga yfir borgina. Þess ) er einnig að gæta“, segir hann J að lokum, „að menn eru farn- \ ir að venjast ástandinu. Þeir I skipuleggja sitt daglega líf eft ) ir því, sem aðstæðurnar leyfa, 1 — laga sig að þeim aðstæð- um, sem þeim eru búnar hverju sinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.