Morgunblaðið - 16.11.1966, Side 15
Miðvikudagur 1S. nðv. 1966
MORGUNBLADIÐ
15
Páll Karlsson
Bjargi, Miðfirði
BJARG í Miðfirði er ein sögu-
frægasta jörð í Húnavatnssýslu.
Öllum fslendingum, sem komn-
ir eru til vits og ára, kemur
nafnið kunnuglega fyrir vegna
átakanlegra örlaga Grettis, Atla
Iiluga og Ásdísar móður þeirra.
Nú er þessi fornfræga jörð
orðin að tveimur stórbýlum.
Þar búa tveir bræður: Páll og
Sigurgeir Karlssynir. Páll átti
sjötugsafmæli 8 þ.m. Hann er
svo merkur og valinkunnur
maður, að ég get ekki orða bund
izt um æviferil nans og heilla-
ríkt lífsstarf. Fyrst vil ég minn-
ast á ætt hans og uppvöxt. Karl
Sigurgeirsson bóndi á Bjargi,
fluttist ungur norðan úr Þing-
eyjarsýslu vestur í Húnaþing
með föður sínum Sigurgeir Páls
syni frá Svartárkoti í Bárðar-
dal. Sigurgeir fluttist á gamals
aldri til Kanada og er hin
kunna Bardals-ætt af honum
komin.. Karl var eitt mesta prúð
menni (gentleman) sem ég hefi
þekkt, jafnt í orði sem allti
raun. Hann bjó á Bjargi meira
en hálfa öld. Ég minnisi; þess
frá langri kynningu, að hann
þótti einn sá bezti gestur hvar
sem hann kom, vegna háttprýði
og hóflegrar glaðværðar. Gest-
risni hans og hans mikilhæfu
konu var viðbrugðið. Það var
ekki óvenjulegt að gestir sátu
þar dægrum saman við góðar
veitingar, söng og spil.
Kona Karls á Bajrgi og móðir
Páls hét Ingibjörg Jóhannesdótt
ir. Hún var dóttur-dóttir Jóns
Sigurðssonar, þess er var kvadd
ur að Illugastöðum á Vatnsnesi
í morgunsárinu 14. marz 1823,
er þar höfðu verið unnin hörmu
leg mannvíg um nóttina, en bær
inn með líkunum nær brennd-
ur til ösku. Hann sýndi meiri
stillingu, aðgæzlu og hyggindi
en venjulegt er þegar válegir at
burðir gerast. Hann ræddi ekxi
með einu orði um það sem hon-
um þótti auðsætt, að mannalát
og eldsvoði var af mannavöld-
um, en reið jafnskjótt til Blön-
dals sýslumanns og tilkynnti
honum það sem hann hafði orð-
ið áskynja á Illugastöðum.
Margt gáfumanna er komið út
af Jóni þessum, en nær undan-
tekningarlaust fylgir þeim kyn-
stofni frábær hljómlistargáfa.
Ingibjörg móðir Páls kunni að
spila á hljóðfæri og hafði hlot-
ið þessa ættarerfð í ríkulegum
mæli. Ég ætla að Ingibjörg hafi
verið gáfuð kona. Hún gat sagt
nær orðrétt langar sijgur, sem
hún hafði lesið milli þrotlausra
heimilisanna.
Ekki gæti ég tölu á það kom-
ið, hve oft ég gisti þessi merku
hjón, Karl og Ingibjörgu. Ekki
hændist ég að þeim vegna
söngs eða hljómlistar, því að
ég er frásneiddur allri músik-
gáfu. En sólskinið, sem þau
færðu mér í fang eins og öðrum
gestum, lágum sem háum, er
eins og Ijúfur en löngu liðinn
draumur í endurmiriningunni.
Við ofangreinda heimilishætti
ólst Páll Karlsson upp, sem nú
er orðinn sjötugur að aldri.
Sjaldan fellur eplið langt frá
eikinni, segir gamalt máltæki.
Páll hefur líkzt foreldrum sín-
um um þeirra miklu mannkosti.
Þegar hann óx úr grasi og fékk
nokkurn líkamsþroska, hafði
hann, ásamt Sigurgeir bróður
sinum, mestan fordrátt um bús
annir og var snemma orðlagður
fyrir kapp og dugnað. Ekki var
hugsað um skólagöngu, því að
annað lá fyrir sem ekki þoldi
bið, en það var að umbæta þetta
gamla höfuðból, sem hafði níðst
niður á undangegnum öldum
eins og flestar jarðir í landinu.
Þeir bræður unnu með ofur-
kappi að því að rækta tún og
byggja vönduð hús yfir fólk og
fénað. Þegar vélvæðing kom til
að seinni heimsstyrjöldinni lok-
inni, var Páll manna skjótastur
að hlýða tímans kalli og verða
manna fremstur í flokki í hinni
miklu jarðræktarbyltingu.
Ótræðisflóar, mýrasund og blásn
ir melar langt út frá gamla tún
inu, eru orðnir arðsamir töðu-
100 lítra.
Fyrirliggjandi.
Hagstætt verð.
G. ÞORSTEINSSON 8 JOHNSGN HF.
Árrnúla 1 - Grjótagötu 7
Simi 2-42-50
bóndi
70 ára
vellir. Það hefur sagt mér merk
ur og skýr sveitungi Páls, að
túnvöllur á Bjargi sé meiri og
víðlendari en á nokkru öðru
býli í héraðinu. Mér er sagt að
á þessu fornfræga óðali sé bú-
menning eftirbreytnisverð.
Páll á Bjargi hefur miklu á-
orkað í umbótum enda ann hann
jörð sinni eins og augum í höfði
sér. En hann hefur ekki verið
einn í leik. Kona hans er Guð-
ný Friðriksdóttir, hreppstjóra á
Stóra-ósi. Hún er kyngöfug
kona, á ætt að rekja til Arn-
gríms lærða, Páls lögmanns i
Víðidalstungu og Friðriks Þór-
arinssonar prests á Breiðabol-
stað, sem var nafnkenndur söng
listamaður, en móðurfaðir henn-
ar var Þorvaldur prestur á Mel-
stað, afburða málfræðingur.
Það var margt líkt um upp-
vöxt þeirra Guðnýjar og Páls
Karlssonar. Æskuheimili hennar
Stóri Ós, varð upp úr síðustu
aldamótum, þegar Hvamms-
tanga-kauptún óx með hverju
ári, mestur gisti- og viðkomu-
staður á krossgötum. FViðrik,
faðir Guðnýjar, var hinn mesti
höfðingi í sjón og raun, sem
leysti hvers manns vandræði, eft
ir því sem honum var unnt, en
hann var mikill velvildar- og
mannúðarmaður. Margt fólk á
þessu stóra heimili vann eftir
órjúfanlegu lögmáli ísl'enzkrar
gestrisni, að taka hverjum sem
að garði bar eins og heiðurs-
gesti, hvernig sem á stóð. Á
mestu umferðatímum hvers árs
varð sumt af heimafólki nótt eft
ir nótt að ganga úr rúmi fyrir
gestum, einkum börnin. Söngur
og spil létu þreytta ferðamenn
gleyma áhyggjum og striti hins
daglega lífs. Þetta var barna-
lærdómur Guðnýjar, sem hún
hefur aldrei gleymt.
Þessi merku hjón, Páll Krist-
jánsson og Guðný Friðriksdóttir,
hafa verið einstaklega samtaka
alla þeirra sambúðartíð. Það
hefur ávallt verið björt heið-
rikja yfir samlífi þeirra. Löng
og ströng lífsbarátta hefur ein-
kennzt af hugsjónum, að hefja
fornfrægt óðal til fyrirmyndar
í sveit. Þau eiga mörg og mann
vænleg börn.
Nú, þegar Páll hefur náð sjö
tiu ára aldri, veit ég að hann
er slitinn maður, þó hann starfi
sem áður ótrauður að búi sínu.
Hann hefur löngum unnið lang-
an vinnudag og Guðný kona
hans ekki síður. En að kvöld-
lagi og á stopulum frístundum
hafa þau hjón ásamt bórnum
sínum gengið í dísahöll sönggyðj
unnar og notið par yndisstunda,
sem lyft hefur af þeim dagsms
þunga. Dætur þeirra flestar eru
giftar og eiga staðfestu annars
staðar. Þær koma oft á sict æsku
heimili og mynda þá ásamt for-
eldrum og heimasystkinom
orkestur, sem nægt gæti múg
manns til unaðar. Sönglistin er
það mái, sem hjartað skilur bezt.
Veglyndi og mannúð Páls og
Guðnýjar á Bjarni er slík að orð
fer af fjær og nær. Oft taka
þau börn til dvalar af fátæku
fólki og veita þeim skjólstæðmg
um umönnun og ástríki, eins og
þeirra eigin börn væru.
Ég og kona mín árnum Páli
heilla við þessi áratugamót í
lífi hans og þökkum honum vin
áttutryggð, sem aldrei hefur
brugðizt.
Magnús F. Jónsson.
Kaup og saEa
Óskum eftir að kaupa góð vörupartý. Tilboð merkt:
„Kaup — 8424“ sendist fyrir 21. nóvember.
Amerískar
GálffEirar
nýltomnar í fjölbreyttu og fallegu úrvali.
L’taver
Grensásvegi 22. — Símar 30280 og 32262.
GOOD^EAR
300D YEAR VINYL - GÓLFFLÍSAR þarf ekki að
bóna það er nóg að hreinsa þær með rökum klút.
GOOD YEAR VINYL - GÓLFFLÍSAR endast mjög
vel og litirnir dofna ekki.
GOOD YEAR VIIMYL - GÓLFFLÍSAR eru heims-
þekktar fyrir gæði — spyrjið þá sem reynt hafa.
Verðið er mjög hagstætt. — Fjölbreytt litaúrval
AÐEINS GÆÐAVÖRUR FRA GOOD YEAR.
M ALNING & JA’RN VÓRUR LAUGAVEGI 23 SÍMI 11295
GOOD YEAR VINYL GÓLFFLÍSAR
hafa þessa eftirsóttu eiqinleika
SVONA AUÐVELT ER ÞAÐ