Morgunblaðið - 16.11.1966, Blaðsíða 24
24
MORGU N BLAÐIÐ
Miðvikudagur 16. nóv. 1966
Hörður Snævar Sæm-
undsson — Kveð'a
F. 27. sept. 1936. D. 1. nóv. 1966.
Á vetrarins kveldi
þá kulnaði von
þín kvöl var á enda minn vinur
ó Drottinn hann sendi
sinn elskaða son
sem lækni, nú hjarta vort stynur.
Svo bágt er að skilia
það nístandi böl
er barst oss sú helfregn á herðar
nú hjörtu vor kveina
af sárustu kvöl
þig kveðjum til síðustu ferðar.
En alvaldur himinsins,
sér og hann veit
■»
hvað börnum hans er fyrir beztu
því stöndum við hér
og strengjum þess heit
að standast í sorginni mestu.
Þú bjartsýni vinur
ó brosið þitt fritt
það býr í oss minningum fögrum
það var svo fagurt
svo falslaust og blítt
þá fagnandi hjálpaðir öðrum.
Svo börnunum fögru
og syrgjandi frú
við flytjum þeim samúð og hlýju
og óskum af hjarta
í heilagri trú
og hittist þið aftur að nýju.
Er kveðjustund nálgast
við biðjum um náð
því neyðarins stund, upp er borin
en minningar fagrar,
sem enginn fær máð
þær fylgja oss síðustu sporin.
Vertu sæll vinur í hinzta sinn
við söknum þín ókomin árin
vaki nú Drottinn,
sem verndari þinn
við vitum hann græðir öll sárin.
Hvíl þú í friði.
Drottinn þig blessi.
Jón Þ. Steindórsson og frú.
Gjafir til Útskólakirkju
Á ÁRINU 196J bárust Útskála-
kirkju góðar gjafir, Hvítasunnu-
dag 6. júní færði frú Erna Guð-
laugsdóttir Dvergasteini í Gerða-
hreppi kirkjunni vandaðan
skírnarkjól að gjöf, sem boðinn
er til notkunar öllum, sem bera
börn sín í kirkjuna til skírnar.
Sunnudaginn 13. júní afhenti
frú Guðrún Sveinsdóttir frá
Smærnavelli í Gerðahreppi,
kirkjunni skipslíkan að gjöf til
minningar um mann sinn Eirík
Guðmundsson, sem andaðist í
desember 1933.
En Eiríkur Guðmundsson
aði sjósókn lengst ævi. í kirkju-
ATHUGIÐ
Þegar miðað er við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
Kiistín DovíSs-
dóttir — Kveðjn
Fædd: 11. ágúst, 1867.
Dáin: 4. nóvember, 1966.
Á dimmu kveldi Guð þín gætti
og gaf þér fagurt bænamál,
þótt erfitt reyndist
margt er mætti
Guðs miskunn veitti styrk í sál.
Nú morgunroði mildur skín
Guð man öll litlu börnin sín.
Mín hjartans kveðja
í hinzta sinni
og hjartans þakkir vina mín,
Guð leiddi þig á lífsbraut þinni,
— Hann leiðir ætíð börnin sín —
Hann blessaði þitt bænamál
því barst þú gleði minni sál.
Hjartans þökk. Hví í Guðs
friði.
Guðrún Guðmundsdóttir
frá Melgerði.
kór Útskálakirkju var hann
einnig í áratugi.
Skipslíkanið er gert af miklum
hagleik af Jóhannesi Ólafssyni,
dóttursyni Guðrúnar og Eiríks
og er komið fyrir í kór kirkj-
unnar.
Þá færði frú Guðrún kirkjunni
ennfremur að gjöf kr. 10.000,00
til minningar um foreldra sína
Margréti Guðnadóttur og Svein
Sigurðsson er bjuggu að
Smærnavelli í Garði, gjöfin var
einnig gefin til minningar um
systkini hennar og aðra látna
ættingja.
Þessar gjafir afhenti hún í til-
efni 90 ára afmæli sínu, við
virðulega athöfn í Útskálakirkju
að viðstöddum ættingjum og
venslafólki, sem var um 100
manns. Einnig sóknarnefnd og
sóknarpresti.
Sóknarpresturinn séra Guð-
mundur Guðmundsson flutti við
þetta tækifæri, ræðu og þakkaði
frú Guðrúnu þessar höfðinglegu
gjafir og bað henni, ættingjum
hennar og öllu venslafólki guðs
blessunar.
Hinn 9. desember sama ár gaf
frú Katrín Jónsdóttir frá Fögru-
völlum í Garði til heimilis að
Urðarstíg 9 Reykjavík, Útskála-
kirkju ljóskross á turn kirkj-
unnar.
Á aðfangadag jóla skýrði
sóknarpresturinn séra Guðmund-
ur Guðmundsson söfnuðinum frá
gjöfinni og mælti á þessa leið:
„Kirkjugestir og aðrir hér í
Útskálasókn munu hafa veitt því
eftirtekt, að nú nokkru fyrir jól-
in var settur á turn kirkjunnar
stór og fagur ljóskross, sem
ljómað hefur og lýst í gegn-
um skammdegismyrkrið und-
anfarna daga. Þessi fagri
ljóskross er gefinn af Katrínu
Jónsdóttur, Reykjavík, sem áður
bjó að Fögruvöllum í Garði, —■
til minningar um mann hennar
Þorlák Ingibergsson, sem andað-
ist á síðastliðnu sumri. Á krossi
þessum var fyrst tendrað ljós kl.
6 að kvöldi hins 9. desember i
tilefni þess að þá voru liðin ná-
kvæmlega 60 ár frá því að þau
Þorlákur og Katrín voru gefin
saman í hjónaband í Útskála-
kirkju. En um leið voru gefin
saman þar Þorleifur bróðir Þor-
láks og Júlíanna Hreiðarsdóttir,
sem bæði eru látin.
Ég vil fyrir hönd kirkju og
safnaðar þakka KatrínU innilega
þessa stórhöfðinglegu og fallegu
gjöf til kirkjunnar. Og um leið
og ég bið henni og heimili hennar
blessunar og varðveizlu nú á
þessari helgu hátíð og allar
stundir, vona ég og bið, að þessi
fagri ljóskross megi jafnan
minna safnaðarmenn og alla,
sem hafa Ijós hans fyrir augum
á hið sanna ljós, sem upplýsir
hvern mann og oss var gefið á
hinum fyrstu jólum, á hann sem
sagði: „Ég er Ijós heimsins, hver
sem fylgir mér mun ekki ganga
í myrkrinu, heldur hafa Ijós lífs-
ins“.
Fyrir þessar gjafir og allar
aðrar, sem Útskálakirkju hafa
verið gefnar á undanförnum ár-
um viljum við fyrir hönd Út-
skálasafnaðar færa gefendum al-
úðar þakkir.
í sóknarnefnd Útskálasóknar
Sigurbergur H. Þorleifsson
Jóhannes Jónsson
Jón Eiríksson.
Frönsku haglabyssurnar
PUMPUR OG AUTOMATISKAR CAL NR. 12.
PANTANIR ÓSKAST SÓTTAR SEM FYRST.
Sportval
Laugavegi 48 — Sími 14390.
Þing Landssam-
bands vörubílstjóra
KHOL FULL-PROOF MASCARA
KHOL maskarinn uppfyllir óskir yðar um lengri og fallegri
augnhár — OG ER EKTA.
KHOL maskarafyllingar í öllum litum.
KHÓL REMOVER fjarlægir KHOL maskarann á svipstundu
og inniheldur næringu fyrir augnhár yðar
W
vatnsprufan sannar að KHOL
maskarinn uppleysist ekki í
vatni.
REYNIÐ sjálfar
HAFNARSTRÆTX 18 - Símar 12586, 23931
7. ÞING Landssambands vöru-
bifreiðastjóra var haldið í Rvík
5. og 6. nóv. Þingið sóttu 24 full-
trúar víðsvegar að af landinu.
Formaður sambandsins Einar
Ögmndsson setti þingið með
ræðu. Forseti Alþýðusambands
fslands, Hannibal Valdimarsson,
ávarpaði þingið.
Forsetar þingsins voru kjörnir
Guðmundur Kristmundsson,
Reykjavík og Guðm. Snorrason,
Akureyri. Ritarar voru Andrés
Ágústsson, Hvo.lsvelli og Þórar-
inn Þórarinsson, Axarfirði.
Þinginu la-uk á sunnudagskvöld
með kjöri sambandsstjórnar og
annarra trúnaðarmanna.
Á mánudag hafði samgöngu-
málaráðherrra Ingólfur Jónsson
boð inni fyrir fulltrúa þingsins
í ráðherrabústa'ðnum.
f stjórn LandssEunbands vöru-
bifreiðastjóra fyrir næstu tvö ár
voru kjörnir eftirtaldir menn:
Form. Einar Ögmundsson,
Reykjavík.
Meðstjórnendur: Pétur Guð-
finnsson, Rvík, Sigurður Ingvars
son, Eyrarbakkka, Þorsteinn
Kristinsson, Höfnum og Gunnar
Ásgeirsson, Akranesi.
Varatjórn: Kristján Steingríms
son, Hafnarfirði, Guðm. Krist-
anundsson, Rvík, Andrés Ágústs-
son, Hvolsvelli, Róbert Róberts-
son, Árnessýslu og Gísli Þor-
steinsson, Mýrarsýslu.
Trúnaðarmannaráð: Jón H.
Jóhannsson, Sauðárkróki, Ás-
grímur Gislason, Rvík, Guðm.
Snorrason, Akureyri, Lárus
Hagalínsson, Vestur-ísafjarðar-
sýslu, Hrafn Sveinbjarnarson,
Hallormsstað og Jón Árni Sig-
fússon, Suður-Þing.
Varamenn: Sturla Þórðarson,
Dalasýslu, Egill Guðjónsson,
Árnessýslu, Guðm. Jósepsson,
Rvik og Lú'ðvík Jónsson, Kefla-
vík, Vilhjálmur Sigurðsson,
Hólmavik, Höskuldur Helgason,
Hvammstanga, Stefán Hannes-
son, Rvík og Hafsteinn Stein-
dórsson, Seyðisfirði.
Endurskoðendur: Stefán Hann
esson, Rvík, Lúðvík Jónsson,
Keflavík. Til vara: Ásgrimur
Gíslason, Rvík.
Þingið samþykkti einróma að
Landssamband vörubifreiðastj.
gerðist aðili að samtökunum
„Varúð á vegum.“
Þingið gerði m.a. eftirfarandi
samþykktir:
„f tilefni af endursko'ðun gild-
andi vegaáæt'lunnar skorar 7.
þing L. V. á Alþingi að láta
hrinda í framkvæmd brýnum
og mikilvægum úrbótum í vega-
málum. Undirstaða þess er að
auka tekjur vegasjóðs til mik-
illa muna, en það má meðal ann-
ars gera með því að ráðstafa
hluta af umframtekjum ríkis-
sjóðs til vegamála.
Þrátt fyrir ýmis stórvirki I
vegamálum, sem framkvæmd
hafa verið á undanförnum árum,
eru mörg stór verkefni framund-
an, sem eigi þola bið. Má þar
meðal annars nefna:
1. Byggingu hraðbrauta með
varanlegu slitlagi á þéttbýlis-
svæðum, þar sem umferðin er
mest.
2. Endurbyggingu eldri þjóð-
vega og brúa, sem fullnægja eigi
lengur þörfum nútíma umferð-
ar.
3. Aukið vegaviðhald, en því
er nú mjög ábótavant.
Vaxandi fjöldi bifreiða og
auknir landflutningar kalla á
umfangsmiklar og skjótar endur
bætur á vegakerfi landsins, og
verður að treysta því, að Alþingi
leysi þessi mál á viðunandi
hátt.“
„Sjöunda þing Landssam-
bands vörubifreiðastjóra, haldið
í Reykjavik 5. og 6. nóv. 1966,
vill vekjá athygli á þjóðfélags-
legu mikilvægi umferðarmála og
nauðsyn aukins umferðarörygg-
is. Þingið vill ennfremur vekja
athygli á því að ekkert annað
en sameiginlegt og einbeitt átak
alþjó'ðar getur komið í veg fyr-
ir hina óheillavænlegu þróun er
nú á sér stað í sambandi við um-
ferðarmálin. Þingið hvetur með-
limi sína hvern á sínum stað á-
samt ölium almenningi til að
Framhald á bls. 25