Morgunblaðið - 16.11.1966, Blaðsíða 31
Miðvikudagur 16. nðv. 1966
MORGUNBLAÐIÐ
31
Bjölluturniim
gegnum þakið ...
Leicester, 15. nóv. — AP.
} SVO bar við í dag í hvass-
viðri miklu, að bjölluturn á
skóla einum í Leicester lét
undan storminum og fór
gegnum þakið á skólahúsinu.
22 drengir og 2 kennarar
meiddust og voru fluttir í
s^úkrahús, en talið er, að að-
eins þrír drengjanna hafi
hlotið alvarleg meiðsli.
Fræðslumálastjóri borgarinn-
ar, Wiliam Black lét svo um
mælt, að það væri hreinasta
mildi, hversu vel börnin hefðu
sloppið. Hefði orðið að grafa
mörg þeirra út úr brakinu, það
hefðu slökkviliðs- og lögreglu-
menn gert og búizt við, að þau
væru verr farin.
Einn kennaranna sagði: „Við
heyrðum einhvern skruðning í
fyrstu, síðan ægilegan hávaða
og vissum ekki fyrr en þakið
kom niður í skólastofuna. Það
er nánast kraftaverk, að enginn
skyldi láta lífið.
í skóla þessum voru um 650
nemendur. Urðu ýmsar aðrar
skemmdir á byggingunni svo og
fleiri skólahúsum í nágrenninu.
iCátir karlar og kogari
ÞAÐ VAR síðari hluta dags í
fyrradag er nokkrir starfs-
menn Ríkisskip unnu að þvi
að stafia upp kössum í vöru-
húsi fyrirtækisins að þar bar
að ungan mann, sem tók þá
tali. Var maður þessi ákaflega
glaður og reifur, enda nokkuð
við skál. Er hann hafði rabb
að við starfsmennina nokkra
stund, rak hann augun í
kassa, sem vakti athygli hans.
Var kassi þessi merktur ÁTVR
og til frekara öryggis tók
maðurinn kassann upp, og
heyrði að það gutlaði í hon-
um.
Skipti þá engum togum,
maðurinn þreif kassann í fang
ið, hljóp með hann sem leið
liggur út að Hafnarbúðum
þar sem hann hrópaði hátt
og snjallt að hann væri með
fullan kassa af áfengi í fang-
inu. Virðist þá sem hann
minntist þess skyndilega að
lögreglan hefði kannski eitt-
hvað við þetta að athuga —
og tók á rás með kassann út
Mýrargötu. Þar faldi hann
kassann, en hljóp þessu næst
upp Ægisgötu að Landakoti,
þar sem lögreglan tók á móti
honum.
Maðurinn gerði grein fyrir
öllum sínum ferðum, og vís-
aði lögreglunni á staðinn, þar
sem hann hafði falið áfengis-
kassann. En þegar lögreglan
fór að athuga kassann nánar
kom í ljós, að hann var tóm-
ur.
Síðar kom á daginn, að Hafn
arbúðir höfðu tæmzt skömmu
eftir að maðurinn upplýsti um
innihald. kassans. Tjáði rann-
sóknarlögreglan Mbl. að svo
hefði verið komið undir kvöld
að vart hefði verið líft inni í
Hafnarbúðum fyrir angan af
,kogara“, en það hafði kassinn
haft að geyma.
— Brasilía
Framhald af bls. 1.
hefur handtekið ungan mann,
sem grunaður er um morðið á
Rocha.
Kosningarnar nú eru hinar
fyrstu frá því, að herinn stóð fyr
tr byltingu í landinu árið 1964.
Fréttamenn í Rio de Janeiro
telia að ARENA—þjóðlega endur
reisnarbandalagið, sem meiri-
hluta hefur nú í báðum deildum
þingsins, muni halda meirihluta
en missa þó nokkur þingsæti
yxir til stjórnarandstöðunnar,
lýðræðishreyfingarinnar. Eink-
um er talið, að svo fari í stærstu
borgunum, — en meirihluti
ARENA sé tryggur úti um sveit-
ir landsins.
Um það bil 2’2 milljónir
manna hafa atkvæðisrétt. Kjörn
ir verða 409 þingmenn í fulltrúa-
deild og 23 af 66 þingmönnum
öldungadeildarinnar. Ennfrem-
ur verða kjörnir 1972 menn á lög
gjafarþing einstakra ríkja, 1804
borgarstjórar og bæjar- og
héraðsstjórar á 2251 stöðum.
Áherzla hefur verið lögð á, að
landsmenn séu skyldugir að
koma á kjörstaði og til þess að
stuðla að mikilli kjörsókn hefur
dagurinn verið lýstur almennur
frídagur.
Þingkosningar í
Bæjariandi á sunnudag
Eykur flokkur nýnazista fylgi sitt ?
Miinchen, 15. nóv .AP.
KOSNINGAR til fylkisþings-
ins í sambandsríkinu Bæjara- j
landi í V-Þýzkalandi fara fram
á sunnudag. Þær eru taldar það
mikilvægar, að þær kunna að
ráða því, hvernig fer um stjórn-
armyndunina í Bonn. Kosning-
arnar munu enn fremur leiða
í ljós, hvort nýr hægri flokkur,
sem margir skipa á bekk með
nazistaflokkinum, muni enn efl-
ast í Vestur-Þýzkalandi.
Meira en 6 millj. kjósenda eru
á kjörskrá í þessu syðsta ríki sam
bandslýðveldisins, og eru mögu-
leikar beggja kanzlaraefnanna í
Bonn, Kurt Georg Kiesingers
og Willy Brandts til stjórnar- \
myndunar að verulegu leyti tald
ar undir því komnar, hverjum
kjósendur greiða atkvæði sitt. j
Franz Josef Strauss á ekki síður:
mikið undir þessum kosningum
komið, en hann er formaður j
kristlegra sósíalista, en svo nefn '
ist armur kristlegra demókrata í
Bæjaralandi.
Strauss er talinn hafa ráðið
miklu í því sem fram fór að
tjaldabaki, áður en Erhard ákvað
að segja af sér kanzlaraembætti
og þingmennirnir úr flokki hans
veittu Kiesinger mikilvægan
stuðning, er flokkurinn kaus hinn
síðastnefnda sem kanzlaraefni.
Stuðningurinn mun hafa verið
það mikill, að jafnaðarmenn
saka Kiesinger um, að hann muni
verða „fangi Strauss", verði
Kiesinger kanzlari.
Á fylkisþinginu eiga 204 þing
menn sæti, þar af hefur flokkur
Strauss hreinan meiri hluta eða
110 þingsæti, jafnaðarmenn 79 og
frjálsir demókratar hafa 10. .—
Möguleikar hinna síðastnefndu á
því að fá nokkurt þingsæti nú
eru taldir naumir. Þjóðlegi demó
krataflokkurinn, sem er flokkur
yzt til hægri og kom mjög á ó-
vart með því að vinna verulega
á í fylkisþingskosningunum í
sambandsríkinu Hessen fyrir
skemmstu, telur vonir sínar á
því að vinna sæti á fylkisþinginu
nú mjög miklar. Telja forystu-
menn flokksins, að hann muni fá
um 6% atkvæða í öllu Bæjara
landi og muni að minnsta kosti í
tveimur héruðum hljóta 10% at-
kvæða. Þegar þessi flokkur bauð
fyrst fram í almennum þingkosn
íngum í V-Þýzkalandi fyrir ári
hlaut hann aðeins 2,7% atkv. í
Bæjaralandi. í sveita- og bæjar-
stjónakosningum í þessu sam-
bandsríki, sem fram fóru í vor,
hlaut han talsvert fylgi sums
staðar.
— Flugslys
Framhald af bls. 1.
metra hæð, er hún fórst. Ekki er
vitað með hverjum hætti, en haft
er eftir lögreglumanni, er var á
vakt í Vestur-Berlín, að hann
hafi heyrt mikinn hávaða um
það leyti er sambandið við vél-
ina slitnaði.
Fulltrúar Sovétríkjanna við
flugumsjónina í Berlín, sem fjór-
veldin reka í sameiningu voru
beðnir að kanna hvort og hvar
flugvélin hefði farizt og gefa um
það upplýsingar. Tók það langan
tíma — tókst ekki að fá staðfest
fyrr en eftir níu klukkustundir,
a'ð flugvélin hefði farizt við Dall-
gow, um fjóra kílómetra frá
borgarmörkum Vestur-Berlínar.
Staðurinn, þar sem flakið fannst,
er skammt frá stóru æfinga-
svæði, þar sem fjöldi rússneskra
hermanna er.
SpIIakvöSd
á Akureyri
SPHLAKVÖLD verður í Sjáif-
stæðishúsinu á Akureyri fimmtu-
dagskvöld 17. þ. m. ki. 20.30.
Spiluð verður félagsvist. Ávarp
flytur Herbert Guðmundsson, rit
stjóri. Söngvarinn A1 Bishop
skemmtir, og dansað verður tii
kl. 1 e. m. Miðsala í Sjálfstæðis-
húsinu verður opin kl. 14—15
sama dag. öllum er heimill þátt-
taka á meðan húsrúm ieyfir.
Sjálfstæðisfélögin á Akureyri.
Kiesinoer
Sild af aust-
fjar5amiðum
Akranesi, 15. nóv.: —
í DAG er verið að landa 1560
tunnum af síld af Austfjarðarmið
um úr Höfrungi II. Síldin fer til
vinnslu í salt og frystingu hjá
Haraldi Böðvarssyni & Co.
Fjórir línubátar fiskuðu í gær
4—6 smálestir af blönduðum
fiski. Togarinn Víkingur veiðir
viö Grænland. — H.J.Þ.
Framhald af bls. 1.
fer fram á milli þessara tveggja
stjórnmálamanna, sem báðir
koma til greina sem kanzlarar,
mun Kiesinger eiga viðræður
við Erich Mende leiðtoga frjálsra
demókrata. Líkur á því, að þær
viðræður beri árangur, eru tald-
ar enn minni en á því að takast
muni að mynda „stóra sam-
steypustjórn", þ.e. stjórn kristi-
legra demókrata og jafnaðar-
manna.
Þetta kom enn greinilega fram
í stefnuskrá þeirri, sem frjálsir
demókratar birtu eftir fund
sinn í Nurnberg í dag. Samkv.
stefnuskránni er það ljóst, að
frjálsir demókratar eru á engan
hátt reiðubúnir til þess að gefa
eftir í þeim atriðum varðandi
fjárlagafrumvarp ríkisins, sem
voru beinlínis þess valdandi, að
samsteypustjórn Erhards leystist
upp. Samtímis gaf flokkurinn
yfirlýsingu, sem í öllum mikil-
vægum atriðum varðandi utan-
ríkis- og öryggismál svo og sam-
einingu Þýzkalands er í sam-
ræmi við sjónarmið jafnaðar-
manna.
Talsmaður frjálsra demókrata
sagði einnig eftir fundinn, að
stefnuskráin bæri með sér „sam-
stöðu, sem gengi langt til móts“
við sjónarmið jafnaðarmanna.
Stjórnmálasérfræðingar telja
því nú, að ljóst sé, að frjálsir
demókratar stefni nú að því að
komast í samsteypustjórn með
jafnaðarmönnum.
f stefnuskrá frjálsra demó-
krata, sem birt var eftir fund-
inn í Núrnberg, segir, að vinna
skuli að því að taka upp aftur
stjórnmálasamband við ríki
Austur-Evrópu, að því að auka
samskipti á milli Austur- og
Vestur-Þýzkglands og að þvi að
bæta sambandið bæði við Was-
hington og París. í stefnuskránni
er ennfremur skýrt hafnað hvers
konar þátttöku Vestur-Þýzka-
lands í sameinginlegum kjarn-
orkuherafla Nato, en einungis
sagt, að flokkurinn vilji, að Vest
ur-Þýzkaland hafi neitunarvald
gagnvart því að kjarnorkuvopn-
um verði beitt frá vestur-þýzku
landi.
Foringi frjálsra demókrata,
Erich Mende sagði eftir fundinn,
að hann reiknaði með því, að
enn myndi líða nokkur tími, unz
mynduð yrði ný ríkisstjórn með
meirihluta þings að baki sér og
gaf í skyn, að það yrði senni-
legast í fyrsta lagi í kringum 10.
desember. Samtímis benti hann
á, að jafnaðarmann og frjálsir
demókrata myndu geta stjórn-
að landinu með meirihluta þings
að baki sér. Meirihluti þessara
tveggja flokka umfram kristi-
lega demókrata, sex þingsæti,
væri að vísu lítill en ekki of lít-
ill, sagði Mende að loknum fundi
flokks hans í Núrnberg í dag.
Bjargað
Framhald af bls. 32
sem ætluðu að ganga yfir Botns
heiði frá Súgandafirði niður í
Dagverðardal. Beið ég þarna all
langa stund, en fór um síðir að
leiðast biðin. Hafði ég samband
við Súgandafjörð í því skyni að
kanna, hvort þeir væru þar enn,
en fékk þær fréttir, að annar
maðurinn væri kominn í skýli
Slysavarnafélagsins á heiðinni,
en félagi hans hefði gefizt upp
á heiðinni.
— Ég fór þá strax heim, náði
í skíði og fékk í lið með mér tvo
samstarfsmenn mína þá Hermann
Sigfússon og Jón Jónsson. Vorum
við Hermann báðir á skíðum, en
Jón fór gangandi. Við feng-
um fyrst lýsingu hjá manninum i
skýlinu hvar félagi hans lægi, og
fundum við 'Hermann hann
brátt, en Jón varð eftir í skýl-
inu.
— Maðurinn hafði þá legið
um 1*4 tíma í snjónum, hafði
týnt af sér öðrum skónum, og var
mjög kalt. Grófum við hann í
fönn, en síðan fór ég á móti
skátunum sem voru á leið til að
stoðar með sjúkrabörur en þeir
voru fótgangandi. Einnig komu
til aðstoðar bændur úr Súganda
firði. Fékk ég teppi hjá skátun-
um og hraðaði mér síðan aftur til
mannsins og vöfðum við Her-
rnann hann inn í teppið.
— Skátarnir komu á vettvang
um tveimur tímum á eftir að við
komum að manninum fyrst og
hafði hann þá legið í snjónum
í um 4 tíma. Var maðurinn bor-
inn á sjúkrabörum niður í Dag-
verðardal, þar sem lögreglubif-
reið beið, og ók honum í sjúkra-
húsið.
— ReyðarfjÖrður
Framhald af bls. 32
Fundurinn á Reyðarfirði var
framhald af fundi sem haldinn
var á Seyðisfirði 6. nóv. sl. en
þar var kosinn 5 manna nefnd
til að undirbúa þennan fund og
var formaður nefndarinnar Páll
Magnússon, skipstjóri. Eins og
fyrr greinir hófst þessi fundur
kl. 2 e.h. og setti Páll Magnús-
son hann með stuttri ræðu. Fund
arstjóri var Kristján Jónsson og
fundarritari Axel Schiöth. For-
maður undirbúningsnefndarinn-
ar gat þess m.a. að ákveðið hefði
verið að fulltrúar sjómanna
í verðlagsráði mættu á fundin-
um en sökum veðurs hefðu þeir
ekki getað mætt enda ekki flog-
ið til Austurlands í gær.
Margir tóku til máls á þessum
fundi en þótt umræður snerust
, mjög um það nýja síldarverð,
sem gengur í gildi í dag voru
rædd fjöldamörg önnur hags-
munamál sjómanna og virtist
koma nokkuð almennt fram sú
skoðun að fulltrúar sjómanna-
samtakanna bæði í verðlags-
ráði og annars staðar væru ekki
nógu vel á verði um þeirra hags-
munamála, því svo virtist sem
einatt væri gengið á hlut sjó-
manna umfram aðra stéttir þjóð-
félagsins sem þó sízt skyldi gert.
Eins og fyrr greinir voru mikl
ar umræður á þessum fundi og
skiptust menn þar á skoðunum
en allir bentu þó á að ef menn
vildu koma einhverju í fram-
kvæmd væri það frumskilyrði
að allir stæðu saman sem einn.
Annað væri tilgangslaust m.a.
fundur sem þessi.
Á fundinum komu fram marg
ar tillögur m.a. sú að síldveiði-
flotinn hætti allur veiðum og var
afgreiðslu hennar frestað þar til
í dag.
En eftirfarandi samþykktir
voru gerðar: Fundur síldveiði-
sjómanna haldinn á Reyðarfirði
15. nóv. 1966 samþykkir að ekki
verði farið á veiðar fyrr en náðst
hefur fundur með fulltrúum okk
ar í Verðlagsráði"
„Fundur síldveiðisjómanna
haldinn á Reyðarfirði 15. nóv.
1966 skorar á síldveiðisjómenn
að hefja ekki síldveiðar að vori
fyrr en viðunandi síldarverð
hefur fengist að dómi nefndar
síldveiðisjómanna eða stjórnar
Félags síldveiðisjómanna“.
„FUNDUR síldveiðisjómanna
haldinn á Reyðarfirði 15. nóv.
1966 samþykkir að kjósa nefnd
skipaða fimm mönnum sem vinn
ur að undirbúningi félagsstofn-
unar starfandi síldarsjómanna“.
„Fundur síldveiðisjómanna
haldinn á Reyðarfirði 15. nóv.
1966 mótmælir þeirri stórfelldu
kjaraskerðingu sem sjómenn
hafa orðið fyrir með lækkun
síldarverðs úr kr. 1,71 í 1,20.
Teljum við óréttlátt að laun okk-
ar lækki um þriðjung á sama
tíma og allt verðlag í landinu
og laun annarra stétta hækka.
Þótt lækkun yrði á síldarafurð-
um átti hún ekki eingöngu að
lenda á sjómönnum og útgerð
skipanna. Teljum við æskilegt að
lækkað yrði útflutningsgjald af
síldarlýsi og síldarmjöli en af
þeim er tekið hærra gjald en
öðrum afurðum og var gjaldið á-
ætlað hátt á annað hundrað mill
jónir króna fyrii þetta ár. Sjó
menn eru mjög óánægðir með
rekstur á Síldarverksmiðjum
ríkisins og telja Verðlagsráð
sjávarafurða óstarfhæft þar sem
það hefur ekki aðgang að öðrum
rekstrarreikningum en frá
ríkisverksmiðjunum einum
og teljum við að fulltrúar okk-
er geti ekki tekið þátt í
störfum Verðlagsráðs eins og að
því er búið. Þar sem síldarsjó-
menn eiga kjör sín að mestu
komin undir rekstri og afkomu
Síldarverksmiðja ríkisins gerum
vér kröfu til þess að eiga full-
trúa í stjórn þeirra en nú er
stjórn Síldarverksmiðja ríkisins
skipuð fulltrúum stjórnmála-
flokkanna Kosnum af Alþingi“.