Morgunblaðið - 25.11.1966, Síða 5
Föstudagur 25. nðv. 1966
MORGUNBLAÐIÐ
5
STJÓRNIR Læknafélags íslands
og Læknafélags Reykjavíkur
hafa látið endurprenta læknablað
það, sem próf. Guðm. Hannesson
gaf út á Akureyri í byrjun þessar
ar aldar. Er þetta gert í tilefni 100
ára afmælis próf. Guðmundar
þ. 9. september í haust, og vilja
læknasamtökin á þann hátt votta
minningu hans virðingu sína og
þökk fyrir hið mikla framlag
hans til eflingar íslenzkra lækna
samtaka og læknismenntar og
jafnframt til framfara í íslenzk-
um heilbrigðismálum almennt.
í bókinni eru árgangarnir þrír,
sem út komu af þessu læknablaði,
bundnir saman í eitt og telur
bókin alls 288 blaðsíður auk titil-
blaða og efnisyfirlits. Bókin er
ljósprentuð á vandaðan pappír
og virðist prentunin hafa tekizt
með ágætum.
A fundi fréttamanna og stjórn-
Stjórnarmeðlimir læknasamtak anna ásamt frú önnu Guð-
mundsdóttur á fundinum í gær.
Læknasamtökin heiöra minningu
próf. Guðmundar Hannessonar
Gefa út læknabfað hans frá byrjun aldarinnar
armeðlima læknasamtakanna
sagði próf. Ólafur Bjarnason, að
prentsmiðjan Litbrá ætti þakkir
skilið fyrir vandaða vinnu,
sem og Félagsbókbandið fyrir
sérstaklega smekklegt bókband
og vel af hendi leyst. Bókin er
í stóru broti og bundin í hvítt
skinnlíki. Hún er ljósprentuð í
500 tölusettum eintökum, eftir
eintaki, sem verið hefur í eigu
eiginkonu Guðmundar, frú Karo
línu ísleifsdóttur en er nú varð-
veitt í Háskólabókasafninu.
Próf. Guðmundur skrifaði
allt blaðið eigin hendi, hektogra-
feraði nokkur eintök og sendi
starfsbræðrum sínum á Norður-
og Austurlandi. Þetta var fyrsta
læknablað sem út kom á íslandi,
alls þrír árgangar.
Próf. Ólafur vék síðan nokkr-
um orðum að nokkrum æfiatrið-
um próf. Guðmundar. Gat hann
þess, að þrátt fyrir erilsamt
starf í stóru læknishéraði hefði
Guðmundur haft tíma til að
skrifa, fjölrita og gefa út lækna-
blað sitt, sem kom út annan
hvorn mánuð í þrjú ár. Blaðið
var fyrst og fremst ætlað lækn-
um, en í því er margan fróðleik
að finna, sem almenning varðar
og það er merk söguleg heimild
um heilbrigðisástand með þjóð-
inni á þeim tíma sem og ýmsa
lifnaðarhætti fólks.
f nóvemberblaði 1902 er rit-
gerð um ætlunarverk læknanna
og kemst Guðmudur Hannesson
að þeirri niðurstöðu, að það
sé ekki fyrst og fremst að lækna
sjúkdóma heldur að fyrirbyggja
sjúkdóma. í marz og aprílblöð-
um 1903 er merk ritgerð um
barnadauðann á íslandi.
Vegna órtógra undirtekta og
skilningsleysis gafst Guðmund-
ur upp á að halda blaðinu úti
lengur en þrjú ár, en margar
af þeim hugmyndum sem hann
bar þar fram og barðist fyrir
voru síðar teknar upp og born-
ar fram til sigurs. Útgáfa stétt-
arblaðs lækna lá svo niðri til
ársins 1915, en þá kom Guð-
mundur því til leiðar að hafin
var útgáfa þess læknablaðs, sem
síðan hefur komið út óslitið. Var
hann ritstjóri þess um fjölda ára.
Á fundi læknanna og frétta-
manna var stödd dóttir Guðmund
ar Hannessonar prófessors, frú
Anna Guðmundsdóttir.
Fyrrgreind bók verður afgreidd
til áskrifenda, en eftir 1. desem-
ber verður hún seld almenningi í
Domus Medica.
Þorsteinn Jósepsson með bókiaa
.Landiff þitt'
„Landið## þitt
staðfræðiorðabók
Fyrsta bók sinnar
t DAG kemur í bókaverzlanir ný
bók, sem Þorsteinn Jósepsson,
blaðamaffur hefur tekiff saman.
Nefnist hún „Landið þitt“ og er
þar rakin í fáum orffum saga og
eérkenni nær 2000 bæja og staffa
á íslandi. Útgefandi er bókaút-
gáfan Örn og örlygur h.f., en
þaff fyrirtæki er nýtt af nál-
inni. Bókina prýffa 40 heilsíðu-
myndir víffsvegar af landinu,
eem höfundurinn, löngu þjóð-
kunnur ljósmyndari, hefur tekið.
tegundar hérlendis
í formála fyrir bókinni segir
Þorsteinn m.a.:
»Tilgangurinn með þessari bók
var upphaflega sá, að vera ferða
fólki, sem legði land undir fót,
til nokkurrar fræðslu, er það
bæri að garði á sögustöðum eða
stöðum, sem .væru frá náttúrunn
ar hendi skoðunarverðir. í til-
efni af þessu hefur verið samm
sérstök skrá í bókarlok yfir upp-
sláttarorð hverrar einstakrar
sýslu til að auðvelda ferðalöng-
um að afla sér upplýsinga um
markverðustu staði, þar sem þeir
eru hverju sinni staddir.
En „Landið þitt“ hefur orðið
það umfangsmikil við samningu,
að bókin ætti að geta orðið
fleirum að liði en ferðalöngum á
skyndireisu um landið. Hún á
að geta orðið hverjum einstak-
lingi að liði við að rifja upp
átthagafræði heima — eða ná-
grannabyggðir sínar, ætti einnig
að koma skólanemendum að
gagni, svo og hverjum öðrum,
sem fræðast vill um land sitt
og þjóð".
Ennfremur segir höfundur síð-
ar í formálsorðum sínum:
„En mér er ljóst að allar afsak
anir eru tilgangslausar. Bókin
er komin út í þeirri mynd, sem
ég hef samið hana og verð ég að
taka á mig ábyrgðina á göllum
hennar og vöntunum. Einn af
menntamönnum þessarar þjóðar
hughreysti mig eftir að hafa
kynnt sér efni bókarinnar að
nokkru, er hann sagði, að slík
bók sem þessi yrði aldrei full-
komin í frumútgáfu. Hún gæti
ekki orðið annað en gallagripur.
Hins vegar væri hér um þjóð-
þrifaverk að ræða og væri furðu-
legt, að útgáfa íslenzkrar stað-
fræðiorðabókar skyldi ekki haf-
in fyrir löngu. En bókina væri
fyrst hægt að gera vel úr garði
í endurútgáfu, þegar þjóðin öll
hefði lagzt á eitt við að sníða af
henni hortittina, leiðrétta hana
og endurbæta. Og á þann hátt
vona ég að „Landið þitt“ verði
einhverntíma góð bók og þjóð-
inni þörf, þótt frumsmíðin sé
gölluð.“
Uppsláttarorðin í bókinni eru
í stafrófsröð og í bókarlok er
nafnaskrá þar sem uppsláttarorð
innan hverrar sýslu landsins eru
talin upp í stafrófsröð. Eru frá
70—90 uppsláttarorð innan hverr
ar sýslu í bók þessari. Þá er og
getið heimildarmanna um land
allt, sem höfundur ritaði til er
hann hóf samningu bókarinnar,
en margir þeirrar veittu honum
glöggar og greinargóðar upplýs-
ingar um staði og bæi heima-
héraðs síns. Að öðru leyti hefur
höfundur sjálfur viðað að sér
miklum fróðleik um staðhætti og
bæi á löngum blaðamannsferli
sínum og tíðum ferðalögum um
landið. Tæp tvö ár eru síðan
Þorsteinn hóf samningu þessarar
bókar að beiðni Örlygs Hálfdánar
sonar, sem rekur fyrrgreinda
bókaútgáfu ásamt Erni Marinó-
syni.
Bókin er öll hin eigulegasta í
fallegu bandi og prýdd 40 heil-
síðumyndum, eins og fyrr var
getið. Kápa og útlit bókarinnar
er gerð af auglýsingastofu Gísla
B. Björnssonar. Prentun og bók
band annaðist Prentsmiðjan
Edda h.f.
BAHCO
LOFT-
HURÐ
O P I Ð
r*-? í.v. 'i racx
LO KAÐ:
BAHCO
LOFTHURÐ
Hindrar gegnumtrekk,
ryk og hitatap í vöru-
geymslum og iðnaðar-
húsnæði með stórum
dyrum, sem oft þarf að
opna.
Skapar þægindl, sparar
mikið fé og er sjálf
ódýr í rekstri.
FONIX
SÍMI 24420 - SUÐURG. 10 - RVÍK
FYRSTA
FLOKKS
FRÁ ....
Bfaðaum-
sagnir um
úrslitin
— í dönsku
kosningunum
Helsingfors, Osló og Stokk-
hólmi 23. nóv. — NTB.
BLÖÐUM á Norffurlöndum verff-
ur í dag aff vonum ,tíðrætt um
úrslit þingkosninganna í Dan-
mörku, sem fram fóru í gær.
„Hinn raunverulegi sigurvegari
í þessum kosningum varð leiff-
togi SF-flokksins, Aksel Larsen,“
sagði blaðið Ilta Sanomat í
Helsinki í dag. Blaffiff er óháff,
en styffur borgaraflokkana. „Lar-
sen sigraði, og sigur hans er sér-
staklega heizkur fyrir Jens Otto
Krag, sem verffur nú tilneyddur
aff viffurkenna aff stefna sú, sem
hann hefur til þessa rekiff, hafi
veriff misheppnuff. Höfuðástæðan
til þess, aff róttækir kjósendur
hafa snúizt gegn sósíaldemókröt-
um er hin misheppnaffa húsnæff-
ismálastefna, bætir blaffiff viff.“
„Kosningarnar í Danmörku
voru reiðarslag fyrir þær áætl-
anir hinna stóru borgaraflokka
þar um að mynda borgaralega
ríkisstjórn", sagði Aftonbladet
(sósíaldemókratískt) í Stokk-
hólmi í ritstjórnargrein í dag.
„Að sjálfsögðu er ekki hægt að
komast hjá því að verða var
við þingmannatap sósíaldemó-
krata, en það sem skiptir máli
fyrir danska sósíaldemókrata er
að meirihluti kjósenda hafnaði
borgaraflokkunum."
Blaðið Expressen í Stokkhólmi,
sem styður Folkepartiet, segir í
dag að hin eðlilega afleiðing úr-
slitanna verði sú, að Krag stjórni
áfram. „Líkt og venjulega mun
hann reyna að koma í samstarfi
á sem breiðustum grundvelli. Til
þess að geta komið fram ýmsum
stjórnmálaaðgerðum, sem borg-
araflokkarnir eru andsnúnir,
mun hann styðjast við SF-menn.
En enda þótt hreyfing hafi verið
til vinstri í þessum kosningum,
þarf það ekki að þýða að til-
hneigingin sé til vinstri í raun-
hæfum dönskum stjórnmálum.
Ekki þarf að búast við mjög
róttækum breytingum, a.m.k.
ekki varðandi mikilsverðusta
atriði. Tap það, sem Venstre og
Ihaldsflokkurinn urðu fyrir,
kann að leiða til þess að þessir
flokkar sýni meiri skilning á
samstarfstilboðum frá ríkis-
stjórninni."
Oslóblaðið Verdens Gang sagði
í dag, að sigur SF-flokksins hafi
verið miklu meiri, en búizt hafði
verið við, og úrslitin hafa verið
mikið áfall fyrir sósíaldemó-
krata. „Það, sem að öðru leyti
kom mest á óvart, var tap
íhaldsmanna. Það er ljóst, að
Danmörk mun eftir þessi úrslit
verða stjórnað áfram af minni-
hlutastjórn sósíaldemókrata", seg
ir Verdens Gang. '
Siglufirði, 24. nóv.
ÞAÐ þykir næsta fátítt hér að
síld sé söltuð í nóvembermán-
uði, og þó var svo gert aðfara-
nótt laugardagsins og í fyrra-
dag. Var þar um að ræða 380
tonn úr v.b. Oddgeiri, sem alit
fór í söltun, og SigJfirðingur
kom með 70 tonn, sem for að
leyti í söltun, en einnig litils-
háttar magn í bræðslu