Morgunblaðið - 25.11.1966, Blaðsíða 20
20
MORCUNBLAÐI™
Föstudagur 25. nóv. 1966
Slær í hart neð Rauð-
liium og verkamönnum
Rauðliðar nefndir glæpamenn; jbe/'r vilja setja
tvo valdamikla ráðamenn af fyrir svik Wð Mao
Peking, 23. nóv. — NTB
KÍNVERSKIR Rauðliðar
réðust á miðvikudag af
mikilli hörku gegn forseta
Kína, Liu Shao-chi, og að-
alritara kínverska komm-
únistaflokksins, Teng-Hsi-
ao-ping, og kröfðust þesss,
að báðir þessir menn létu
þegar í stað af embættum.
Er sú krafa rökstudd
með því, að báðir hafi
mennirnir rekið stefnu
fjandsamlega stjórn lands-
ins, og um langt árabil unn
ið gegn Mao-Tse-tung.
Peking, 23. nóvember — NTB.
í>á hefur fréttaritari japanska
blaðsins „Mainichi Shimbun“ í
Peking skýrt frá því, að um 60
manns hafi í fyrri viku særzt í
átökum í Peking. Þar var um að
ræða Rauðliða og verkamenn í
Peking.
Átökin hófust, er verfcamenn
reyndu að loka hliðum að verk-
smiðju einni (Verksmiðju nr. 1),
svo að Rauðliðar kæmust ekki
inn. Vildu Rauðliðar þar fylgja
fram þeirri skoðun Mao-Tse-
tungs, að Rauðliðar og verka-
menn skyldu koma saman reglu-
lega til að ræða stjórnmál.
Ráðamenn verksmiðjunnar
munu hins vegar ekki hafa kært
sig um að fá Rauðliðana inn í
verksmiðjuna, og skipuðu verka
mönnum að halda þeim úti.
„Þessir Rauðliðar (stúdentar)
eru glæpamenn“, var hrópað í
hátalara. „Við viljum þá ekki
hingað“.’
Þá sló í hart, og stóðu átökin
alla nóttina.
Fréttaritari japanska blaðsins
segist hafa allar upplýsingar
sínar úr blaðinu ,,Austrið er
rautt“, en það er gefið út af
Rauðliðum.
Endurhæfnisaaám-
skeið fyrir ökumenn
TJpprif junarnámskeið BFÖ.
Eitt aðalstefnumark Bindindis
félags ökumanna er að stuðla að
aukinni umferðarmenningu. Að
þessu hefur félagið unnið á ýms-
an hátt, t.d. með ritum félagsins,
Umferð og BFÖ-blaðinu og góð-
eksturskeppnum.
Nú síðustu ár hafa margar nýj
ungar komið fram í sambandi
við umferð og margir ökumenn
hafa ekki fengið tækifæri til að
ikynna sér þær og eru af þeim
sökum óvissir um hvernig haga
skuli akstri við ýmsar aðstæður.
Þetta kom glögglega í ljós í síð-
ustu góðaksturskeppni BFÖ hér
í Reykjavík í haust, er margir
keppendanna, tóku t.d. rangar
hægri beygjur og voru óvissir í
akreinaakstri.
deild BFÖ ákveðið að taka upp
þá nýbreyttni, að efna til upp-
rifjunarnámskeiða fyrir félaga
deildarinnar og aðra ökumenn.
Skal hið fyrsta hefjast fimmtu
daginn 24. nóvember kl. 20,30
og verður það til húsa í Slysa-
varnarfélagghúsinu við Granda-
garð. >Það námskeið er þegar
fullsetið, en tekið verður á móti
umsóknum á siðari námskeið á
skrifstofu Ábyrgðar hf., Skúla-
götu 63, Reykjavík.
Dagskrá fyrsta námskeiðsins
verður sem hér segir:
Fimmtud. 24. 11. Kl. 8,30-9.25:
Umferðarlög (Hákon H. Krist-
jónsson hdl.) Kl. 9.30-10,30: Er-
indi með skuggamyndum (Pétur
Sveinbjörnsson).
Mánudagur 28. 11. Kl. 8.30-
9.25: Umferðarlög (Hákon H.
Kristjónsson hdl..) Kl. 9.30-10.30:
Erindi og fyrirspurnir (Magnús
Einarsson, varðstj.).
Þriðjud. 29. 11. Kl. 8.30-9.25:
Erindi um hálkuakstur (Sig. E.
Ágústsson). Kl. 9.30-10.30: Kvik-
myndir um hálkuakstur.
Fimmtud. 1. 12. Kl. 8.30-9.26:
Umferðarlög (Hákon H. Krist-
jónsson hdl.). Kl. 9.30-10.30: Um
ferðarkvikmyndir.
Mánudagur 5. 12. Kl. 8.30-9.25:
Umferðarlög (Hákon H. Krist-
jónsson hdl.). Kl. 9.30-10.30:
Fyrirspurnir, námskeiðinu slitið.
Fréttatilkynning frá BFÖ.
S’ys í
Borgorskóla
UM 11 leytið í gær varð það
slys í vörugeymslu Eimskipa-
félags íslands, að aðkomumaður,
er þangað var að sækja vörur,
varð fyrir vörulyftara og fót-
brotnaði.
Fótur mannéins varð undir
hægra afturhjóli lyftarans, en
hann var að lokinni athugun í
slysavarðstofunni fluttur í Landa
kotsspítala.
Þessvegna hefur Reykjavíkur-
Dugleg kona
vön allri matreiðslu, óskar eftir ráðskonustöðu hjá
mötuneyti, eða góðú heimili í Reykjavík eða
nágrenni. — Húsnæði áskilið. —
Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 29. þ.m., merkt:
„Ráðvönd — 8543“.
Þorvaldur Halldórsson
Bannaður
framúrakstur
á kafla á Hafnar-
fjarðarvegi
Sýslumaður Gullbringu- og
Kjósarsýslu hefur auglýst að
ákveðið hafi verið að framúr-
akstur ökutækja skuli vera bann
aður á Hafnarf jarðarvegi á svæð
inu milli Silfurtúns og Hrauns-
holtshæðar. Verður vegurinn á
þessu svæði merktur í samræmi
við ákvæði þessarar auglýsing-
ar.
1500 eintök á þrem
vikum
HI N N ungi Siglfirðingur, Þor-
valdur Halldiórsson, sem syngur
með hljómsveit Ingimars Eydal
í Sjálfstæðishúsinu á Akureyri
’hefur nýlega sent frá sér tólf
laga plötu, sem SG-hljómplötur
gefa út. Hljómplata þessi hefur
náð örari sölu en nokkur önnur
plata, sem út hefur komið á ís-
landi, því af henni hafa selzt
1500 eintök á þremur vikum, að
því er forlagið skýrir frá.
Nokkur laganna á plötunni
hafa þegar náð vinsældum í
óskalagaþáttum útvarpsins, og
þá ekki hvað sízt í þættinum Á
frívaktinni, þar sem öll löigin á
plötunni eru sjómannalög, inn-
lend og erlend.
Hljómsveit Ingimars Eydal og
' Þorvaldur hafa áður sent frá sér
tvær plötur. Voru það fjögurra
laga plötur og hefur hin fyrri
þeirra, þar sem Þorvaldur syng-
ur lagið Á sjó selzt í rúmlega
fimm þúsund eintökum og er
þáð algjört met í hljómplötusölu
á fslandi. Kemst engin önnur
plata þar nærri.
Aðrar plötur, sem SG-hljóm-
plötur hafa nýlega sett á mark-
að eru m.a. sex laga plata, þar
sem Grettir Björnsson harmon-
ikuleikari leikur igömlu dansana.
Öll lögin á plötunni eru íslenzk
og er þar m.a. lítt kunnur skott-
is eftir Inga T. Lárusson.
Þá kom fyrir nokkru út tólf
laga plata með lögum úr kvik-
myndum og söngleikjum. Á þess
ari plötu syngur Elly Vilhjálms
með aðstoð enskrar hljómsveit-
ar, en hljóðritun plötunnar fór
fram í London og er þetta fyrsta
íslenzka hijómplatan með full-
kominni stereo-upptöku.
Jólaplata Ómars Ragnarssonar,
sem ber heitið Krakkar mínir
komið þið sæl hefur verið gefin
út aftur, en hún kom út nokkru
fyrir jólin í fyrra og seldist upp
á fáeinum dögum. Þá hafa báð-
ar þlötur Fjórtán Fóstbræðra
verið gefnar út á ný og hið
sama er að segja um plötur
Savanna-tríósins, en hin fyrri
plata þeirra, sem ber nafnið ís-
lenzk þjóðlög er mikfð keypt af
Sýslumanna-
embætti laust
Sýslumannsembættið í Suð-
ur-Múlasýslu hefur verið aug-
lýst til umsóknar og er um sókn
arfrestur til 30. nóvember. Verð
ur embættið veitt frá 1. janú-
ar.
Manila, 23. nóv. — AP
BLAÐAMAÐUR frá Filippseyj-
um, sem nýkominn er heim úr
ferðalagi um N-Vietnam, segir,
að 300.000 af 600.0000 íbúum
Hanoi, höfuðborgar N-Vietnam,
hafi verið fluttir á brott.
Fréttamaðurinn segir, að uppi
séu um það áætlanir. að flytja
enn á brott 200.000 manns, áður
en þetta ár er liðið.
erfendum ferðamönnum, sem til
Islands koma.
SG-hLjómplötur er,u með
nokkrar plötur í undirbúningi og
kemur hin fyrsta þeirra á mark-
aðinn strax í janúar, er það fjög-
urra laga plata með Sextett
Ólatfs Gauks.
Athugosemd
við yiiriýsingu
ÞESSA dagana stendur yfir nám
skeið fyrir leiðsögumenn er-
lendra ferðamanna og er það
haldið í Iðnskólanum í Reykja-
vík. Að námskeiðinu standa
tveir reyndir leiðsögumenn, sem
hafa haft slíka leiðsögn að at-
vinnu sl. ár. Kennarar á nám-
skeiðinu eru sérfróðir menn
hver á sínu sviði og undirbún-
ingur námskeiðsins hefur verið
mjög vandáður. Má því búast við
að það beri ágætan árangur og
verði aðstandendum þess tii
sóma.
Ferðaskrifstofa ríkisins hefur
nú lýst því yfir í blöðium að
námskeið þetta sé þeirri stofnun
óviðkomandi og verður yfirilýs-
mgin ekki skilin öðru vísi en
srvo, en að hún líti iþessa starf-
semi óhýru auga og vilji nám-
skeiðið feigt.
Við sem höfum á hendi mót-
töku erlendra ferðamanna og
höfum af iþeim dagleg afskipti,
teljum það í hver.t sinn þakkar-
verit þegar einhverjir aðilar
til þess, áð við íslendingar verð-
um hæfari til að sinna því vanda
sama stanfi, sem er að, greiða
götu erfendra ferðamanna. Ferða
skrifstofa ríkisins er eðli máls-
ins samkvæmt og einnig sam-
kvæmt lögum sá aðili, sem stuðla
á að því, að skilyrði til móttöku
erlendra ferðamanna hér á landi
séu bætt. Það er því undarlegit
að þesisi opinbera stofnun skuli
leggja stein í götu þeirra manna,
sem eitthvað vilja leggja af
mörkum í þessu efni. f lögunum
um ferðamál er Ferðaskrifstofu
ríkisins falið áð efna til dlíkra
námskeiða og hefur stofnunin á
30 ára starfsferfi gert það þrisv-
ar sinnum. Hvergi segir, að
Ferðaskrifstofan ein geti efnt til
slíkra námskeiða eða að hún ein
geti haldið próf og veitt iþátttak-
endum „viss starfsréttindi".
Það er ánægjiulegt að stór hóp
ur manna sækir það námekeið
sem nú er haldið og þetta fólk
viljum við fullvissa um að það
stendur jafnt að vígi þeim leið-
sögumönnum sem sótt hafa nám
skeið Ferðaskrifstofu rikisins,
þegar um atvinnu hjá fyrirtækj-
um okkar er að ræða.
Vir’ðingarfyllst,
Félag fslenzkra Ferðaskrifstofa
Ferðaskrifstofan Lönd & Leiðir
Ingólfur Blöndal
Ferðaskrifstofan Saga
Njáll Símonarson
Ferðaskrifstofan Sunna
Guðni Þórðarson
Ferðaskrifstofan Útsýn
Ingólfur Guðbrandsson
Ferðaskrifstofa Zoega
Geir Zoega.