Morgunblaðið - 25.11.1966, Side 30
MokcUNBLAÐIÐ
Föstudagur 25. nóv. 1966
stundin hjá ísl.
í handknattleik
Tapaði fyrir Turnverein Oppum 18:25
Svartasta
landsliðinu
„Enginn verður óbarinn bisk-
np“ sagði mætur maður við son
sinn forðum. Söguna má viðhafa
um ísl. landsliðið í handknatt-
leik — nema það er búið að
berja það svo oft, að vonlítið
fer að verða um biskupstitilinn
því til handa. Þýzka liðið, sem
hefur verið eftirbátur Fram og
FH liðanna á öllum sviðum
handknattleiksins, tók frum-
kvæði leiksins i sínar hendur í
byrjun Ieiksins við „tilrauna-
landslið“ í gærkvöldi og hélt
því til loka og sigruðu 25—18
eftir að staðan hafði verið 13—6
fyrir Þjóðverja í hálfleik.
Segir mér svo hugur um að
því verði vart á lofti haldið í
Þýzkalandi að leikið hafi verið
gegn Fram og FH en hitt muni
seint gleymast suður þar, að
Turnverein Oppum hafi farið til
íslands og unnið landsliðið með
25—18.
Og satt að segja er ósigurinn
hin mesta hneisa, eitt hið mesta
afhroð sem handknattleikurinn
hefur goldið. Því óhögguð standa
enn þau orð sem viðhöfð voru
um leik Þjóðverjanna í fyrri
leikjunum að þeir hefðu hvorki
hraða né skothæfni á við ísl.
handknattleiksmenn.
Vopn Fram og FH, sem ger-
sigruðu Þjóðverjana, voru taktik
og hraði. Þó uppistaða landsliðs
ins sé úr þessum liðum sást ekki
örla hvorki á taktik né hraða.
Það var eins og ísl. liðsmennirn-
ir hefðu verið tíndir saman sinn
frá hverri plánetunni — sam-
æfing var ekki meiri en það,
að svo gat verið. Og mark-
varzlan gekk eftir öðru. Na=st-
um ekkert skot varið í fyrri hálf
leik og örfá í þeim síðari.
Einu ‘sinni var staðan jöfn.
Það var eftir 4% mín 1-1. Sið-
an tóku Þjóðverjarnir forystuna
og staðan varð svo dæmi sé
tekin 1-3, 2-6, 3-8 og 6-13 var
staðan í hálfleik.
Svo hastarlega illa gekk
ísl Iiðinu að mark var ekki
skorað — ef vítaköst eru und
anskilin — fyrr en eftir 2214
mín. í fyrri hálfleik. Slíkt
mun eindæmi hjá nokkru
landsliði.
MOLAR
Skotland og Wales (áhuga-
menn) skildu jöfn 1—1 í
landsleik í Lanelli í Wales.
Skotland er þá efst í 1. riðli
Evrópukeppni áhugamanna-
landsliða með 7 stig, Wales
hlaut 3 og írland 2.
í öðrum riðli vann England
Holland 1—0. En áður höfðu
Austurríkismenn tryggt sér
sigur í riðlinum og halda því
áfram í úrslitakeppninni.
Austurríki hlaut 6 stig, Eng-
land 5 og Holland 5.
Þjóðverjarnir reyndu að
halda hraðanum niðri og tókst
það, án þess tilraun væri gerð
til að breyta því. Þá tókst þeim
að spila alllagelga, en mestu
j munaöi xun að ísl. liðinu virðist
enginn vörn fyrir miðju marknu
og í skotum þaðan ýmst af línu
eða langskotum, bæði góðum og
lélegum, komu flest mörkin —
og ,rjóminn“ af ísl. handknatt-
leiksmönnum horfði á undrandi.
í síðari hálfleik örlaði aðeins
fyrir vilja til að gera eitthvað
hvað meðal ísl. liðsins. Það sá-
ust tilþrif í sóknarleiknum og
forskot Þjóðverjanna minnkaði
í 5 mörk. En vörn ísl. liðsins
stóð svo illa í stykkinu, að aldrei
tókst að hamra meir á forskotið.
Og tækifærin til marka fengu
Þjóðverjar oft eins og færð á
silfurfati, því sendingar voru
svo lélegar milli íslendinga að
knötturinn fór útaf eða Þjóð-
verjar gátu hlaupið á milli
manna.
Rétt fyrir lokin var forskot
Þjóðverja komið í 9 mörk 25—16
en tvö síðustu mörkin tryggðu
þó jafntefli í síðari hálfleik —
ef það er einihverjum huggun.
Mörk Þjóðverjanna skoruðu:
Schwanz (9) 7, Zwirkowki (10)
8 Rebach (5) 6, Sehroers 2,
Grallert og Aute sitt hvor.
Mörk landsliðsins: Hermann 6
(2 úr víti) Birgir 4 (3 úr víti),
Geir 4 (1 úr víti) Gunnlaugur 2,
örn eitt úr víti og Einar Magn-
ússon 1.
íslendingar fengu 10 vítaköst
en misnotuðu 3. Þjóðverjar fengu
eitt vítakast og skoruðu. Tveim
Þjóðverjum var visað af velli í
tvær mín. fyrir gróf eða ítrekuð
íslenzka liðið lék nú í flestu
eins og ekki á að leika handknatt
leik og vonandi fáum við að sjá
eitthvað annað og betra fljótt —
því ella verður falið ilbrúanlegt.
Ekki er hægt að gagnrýna Sig-
urð Jónsson „veljara“ liðsins.
Hann hélt sig innan ramma 22
manna hópsins er æft hefur á
vegurn nefndarinnar. Og satt að
segja á ekki að vera svo mikill
munur á neinum þeirra manna
að sköpum geti algerlega skipt
ef t.d. tveir eru ekki með í ein-
um leik eins og raunin var með
Ingólf og Sig. Einarsson nú.
Mistökin hljóta að liggja í
þjálfuninni — samæfingunni og
við skulum vona að „þrístirn-
inu“ sem nú sér um þjálfaramál-
in takiizt að finna gallana og
gera hugarfarsbreytingu þar á
þeim 5 dögum sem etfir eru til
landsleiksins við V-Þjóðverja.
Já, það eru bara 5 dagar.
Magnús Pétursson dæmdi leik
inn af mikilli nákvæmni, enda
var leikurinn rólegur og prúður.
A. St.
Kolbeinn verst undir körfunni.
Simmenthal vann KR115:64
Og KR-ingar úr
ÞÁTTTÖKU KR-inga í Evrópu-
keppni meistaraliða í körfu-
knattleik er lokið. í síðari leikn
um við Simmenthal, sem fram
fór í Milano í fyrrakvöld töpuðu
KR-ingar með 64 stigum gegn
115. Fyrri leikinn vann Simm-
enthal með 90—63 svo Evrópu-
meistararnir hafa unnið KR sam
anlagt með 205 stigum gegn 127.
Leikurinn í fyrrakvöld fór
fram í íþróttahöllinni í Milano
og voru áhorfendur 3000.
Bandaríkjamennirnir tveir í
keppninni
FH eitt 16 liða í
Evrópukeppninni
5 þáttlökuEið fallin út
FH tekur í vetur þátt í Evrópu-
keppni meistaraliða í handknatt-
leik — eins og í fyrravetur, en
þá vann FH Fredenborg og
komst í 2. umferð, en féll þar
úr eftir góða frammistöðu gegn
Dukla Prag.
í ár tilkynntu 21 meistaðalið
þátttöku í keppninni. Var ákveð-
ið í aðalstöðvum keppninnar, að
draga út 10 þeirra og skyldu þau
leika í 1. umferð, en hin 11 sitja
hjá. Fimm leikjum þessara liða
er nú lokið og hafa úrslit orðið
þessi:
Sittardia, Holland — Scraerbeck,
Belgíu 21—5; 25—18.
Ivry, Paris — Oporto, Lissabon
22—19; 25—8.
Fredensborg, Osló — Granollers,
Madrid 19—24; 27—16.
Medvescak, Júgóslavíu — Union
West, Vín, 21—5.
Gummersbach, V-Þýzkal. — Göta
Helsingborg 19—20.
Lokið er síðari leikum milli
Medvescak og Union West og
milli Gummersback og Göta, en
úrslitatölur hafa ekki borizt hing
að. En Union West mun vart
hafa möguleika til að vinna upp
21—5 forskot Júgóslava og
Gummersbach er talið sigur-
stranglegra á heimavelli sínum.
í 16 liða keppninni verða því:
Sittardia, Holland — Ivry,
París — Fredensborg, Osló —
Medverscak, Júgóslavíu —
Gummersbaeh V-Þýzkal. eða
Göta, Helsingborg — Fimleika-
félag Hafnarfjarðar — Urheilu-
Kerho, Helsingfors — HG, Kaup-
mannahöfn — DHFK, Leipzig —
Wylorzario, Gdansk, Póllandi —
Dinamo, Bukarest — Grasshopp-
er, Zúrich — Trud, Moskvu —
Dukla, Prag — Honveg, Buda-
pest — Dudelange, Luxemborg.
Nú verður dregið um það,
hvaða lið lendi saman í næstu
umferð og verður spennandi að
. vita, hvað fellur í hlut FH-inga.
liði Simmenthal settu mestan
svip á leik Evrópumeistaranna
bæði að því er snerti að móta
spilið og að skora stigin. Austin
Robbins, sem áður lék með liði
Tennesy háskólans skoraði 28
stig og var stighæsti maður
leiksins og Steve Chubin frá
Californiu skoraði 11 stig. í hálf
leik stóð 55—24.
★
Nú sem fyrr vakti það athygli
Italanna í hve góðri úthalds-
þjálfun KR-ingar eru, en geta
þeirra sem liðs var ekki nægj-
anleg móti hinu sterka ítalska
liði. Einstakir leikmenn KR
stóðu jafnfætis mótherjum sín-
um, en heildin ekki.
Thomas Curren þjálfari KR
sagði eftir leikinn að hann hefði
búizt við stórum ósigri. En við
komum hingað til að auka lær-
dóm okkar í körfuknattleik, og
okkur finnst förin, þrátt fyrir
ósigurinn, fyllilega borga sig.
Liðsmenn Simmenthal báru
af í knattmeðferð yfirleitt og
'hinum hröðu og nákvæmu stuttu
sendingum. Hins vegar var lítill
munur á liðunum hvað það
snertir að ná fráköstunum.
Simmenthal náði forysttt
strax. Staðan var 8—2 eftir 3
mín. og 33—12 eftir 12 mín.
Fyrir Simmenthal hófu leikinn
Jellini, Massini, Robbins, Rim-
inucci og Chubin. Þeir léku all-
an hálfleikinn, en í síðari hálf-
leik tóku við Longhi, Pieri,
Vianello, Ongaro og Gnocchi.
Fyrir KR hófu leikinn Kol-
beinn, Hjörtur, Gunnar, Ágúst
og Einar en að venju skiptu KR>
ingar mikið allan tímann.
Stig Simmenthal skoruðu
Robbins 28, Pieri 14, Macini 18,
Chubin 11, Longhi 8, Gnocchi
og Binda 7 hvor.Riminucci,
Vianello og Ongaro 6 hver og
Jellini 4.
Stig KR skoruðu: Gunnar og
Einar 13 hvor, Kolbeinn og Þor?i
steinn Ólafsson 12 hvor, Ágúst
Svavarsson 6, Kristinn 5, Gutt-
ormur 2 og Hjörtur 1.
Simmenthal skoraði 10 stig úr
vítum af 16 mögulegum, en KR
skoraði 12 stig af 26 í sínum
vítaköstum.
Dómarar voru B. Krumen og
E. Bergber frá Sviss.
Bezta stökkbraut
heims i Grenoble
HIN nýja 90 metra stökkbraut
i Grenoble verður að sögn bygg
ingameistarans fræga Heini
Klopfer, sem ábyrgð ber á bygg-
ingu hennar, bezta stökkbraut
heimsins. Mun hún taka öllu
fram á sínu sviði sem nú þekk-
ist, sagði hann í viðtali við
þýzku fréttastofuna. Byggingin
mun kosta 7 milljónir marka.
Við stökkbrautina verður
áhorfendasvæði fyrir 60—80 þús.
manns, lyfta fyrir keppendur og
dómaraturn. Áður en þetta gat
risið var að fjarlægja 270 þús.
teningsmetra jarðvegs og urðar.
Stökkbrautin sjálf verður vígð
í sambandi við Mið-Evrópustór-
mótin í febrúar næsta ár, en
byggingarnar við brautina
verða þá ekki tilbúnar.
Samkv. áætlunum meistarans
verður „krítiskí" punktur braut
arinnar um 90 metra en beztu
stökkmenn munu stökkva yfir
100 m í brautinni.
Klopfer telur að þessi braut
sé með „réttara" eða betra lagi
en Holmenkollenbrautin, braut-
in í Innsbruck og í Zakopane og
fallhættan verði mun minni og
svifið betra.