Morgunblaðið - 25.11.1966, Blaðsíða 32
/
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
271. tbl. — Föstudagur 25. nóvember 1966
Lang stærsta
og fjölbreyttasta
blað landsins
Alvarlegt slys
á síldveiðiskipi
Taka varð af fæti annars mannsins
SEINT í gxerkvöldi vildi það til
um borð í v.b. Sigurborgu frá
Ólafsfirði, á Austfjarðamiðum, að
tveir menn slösuðust, er skipið
var að kasta nótinni í vonsku
veðri; annar mikið.
Vildi slysið þannig til að Jón
Guðmundsson, Vesturgötu 26,
Akranesi, festist í svokallaðri
brjóstlínu, og mun hann hafa
dregizt útbyrðis, en hann náðist
skjótlega upp aftur. Jóhannes
Guðjónsson stýrimaður frá Akra
nesi ætlaði að koma félaga sínum
til hjálpar, slasaðist einnig.
Jón slasaðist mjög mikið á
fæti, og fékk skipstjórinn á Sigur
borgu, Þórður Guðjónsson, varð-
skipið Ægi til þess að sigla með
manninn til Norðfjarðar. Þegar
þangað kom, var hann fluttur í
sjúkrahúsið þar, og kom í ljós að
vinstri fóturinn hafði skaddast
svo illa ,að taka þurfti hann af
fyrir neðan ökla. Samkvæmt upp
lýsingum læknisins á Neskaup-
stað var líðan Jóns, sem er 56
ára, eftir atvikum góð í kvöld.
— Fréttaritarar.
Stóri hitaveitugeym-
irinn tekinn í notkun
NÝI hitaveitugeymirinn á
Öskjuhlíð var tekinn í notkun
og tengdur fyrir réttri viku.
Tekur geymirinn 9000 tonn, og
má nefna til samanburðar, að
gömlu tankarnir taka allir til
saman 8000 tonn. Eins og kunn-
ugt er hefur vatnsskorturinn
verið mestur í gamla bænum,
en eftir að þessi tankur kom til
sögunnar, hafa tankarnir ekki
tæmzt og því ekki komið til
vatnsleysis neins staðar, samkv.
uppl. hitaveitunnar.
Um þessar mundir er Hita-
veita Reykjavíkur að póstleggja
bækling, sem sendur verður öll
lun viðskiptavinum hitaveitunn-
ar. Hefur hann að geyma ýmsar
upplýsingar og ráðleggingar til
hitaveitunotenda svo sem hvern
ig bezt sé að nýta heita vatnið
o.fl.
Vöruskemmurnar gömlu hverfa nú hver af annarri af hafnarba
fyrir nýju skipulagi og nýjum byggingum. Hér er verið að rífa
félagsins, en ljósmyndari Mbl. ÓI. K. M. tók þessa mynd.
kkanum * Reykjavík og víkja
skemmu Sameinaða gufuskipa-
Ákvörðun tekín um bygg'
ingu endurvarpsstöðva
— á SkálafeUi og Vablaheiði
— Sjónvarp til Suðurlands og hluta
Vesturlands næsta sumar
Menntamálaráðherra skýrði
frá því á Alþingi í gær, að
þess að hefja byggingu end-
urvarpsstöðva sjónvarpsins á
heimild hefði verið gefin til Skálafelli og Vaðlaheiði og
yrðu stöðvar þessar byggðar
samtímis.
Þá skýrði ráðherrann frá
því, að ákveðin hefði verið
bygging endurvarpsstöðva í
Vestmannaeyjum, Borgar-
nesi, Grindavík og Vík í
Mýrdal.
Þessar yifirlýsdngar ráðherrans
komu fram í umræðum í Efri
dieiild Alþingis í gær um breyt-
ingar á útvarpsiögunum, sem
fela í sér að átkvæði ym sjón-
varp eru tekin upp í útvarps-
löigin.
f vfðtali við Mbl. að loknum
þingfundi í gær, sagði mennta-
málaráðherra, að ákvarðanir
þessar mundu leiða til þess að
þegar næsta sumar mundi sjón-
varp ná til alls Suðuriandsund-
irlendis og nokkurs hluta Vest-
urlands. Hann sagði ennfremur
að ákvörðunin um Skálafells-
stöðina og Vaðlaiheiðarstöðina
mundi verða til þess, að sjón-
varp næði til þéttbýlissvæðanna
á Norðurlandi á árunum 1967—
1968, en nánar væri ekki hægt
áð tímasetja iþað.
Ræða aðstöðu Loftleiða
Kaupmannahöfn, 24. nóv.
Einkaskeyti til Mbl.
FUNDUR forsætisráðherra
Norðurlandanna verður hald-
inn í Kaupmannahöín dag-
ana 1. og 2. desember. Hcfur
verið ákveðið að taka I.oft-
leiðamálið á dagskrá fundar-
ins. Engin lausn fékkst á
þessu máli þegar það var
rætt á fundi embættismanua
frá Norðurlöndunum fyrir
skömmu, og kemur nú til
greina pólitísk lausn þeirra
atriða, sem ekki náðist sam-
komulag um.
ASktjórn á breiöari grundvelíi
HANNIBAL Valdimarsson, for-
seti ASÍ bar í fyrrakvöld fram
tillögu til lagabreytinga á lögum
Alþýðusambandsins. Vildi hann
gera breytingu á 41. grein lag-
PanAm hyggst bjóða stórlækk-
uð fargjöld yfir Atlantshaf
í FRÉTTASTOFUFREGN frá
NTB í gær er greint frá því,
að Pan American World Air-
ways muni hinn 1. janúar n.k.
gefa kost á lægstu fargjöldum,
sem nokkru sinni hafa verið
boðin á flugleiðinni yfir Norð-
uratlantshaf.
Nýju gjöldin eiga við ferðir
fram og til baka fyrir minnst
10 manna hópa, sem ferðast á
„inclusive tours“ frá 14 og upp
í 21 dag. Ástæðan fyrir þessum
lágu fargjöldum er sú, að á
flugleiðinni yfir Atlantshafið
hefur myndazt svokallað „frjálst
ástand“, þannig að flugfélögin
geta sjálf ákvarðað fargjöld sín,
án þess IATA komi þar nokkuð
við sögu. '
Verða hin nýju fargjöld Pan
Am 23% lægri en hin lægstu
fram til þessa, og er verðið á
ferðum fram og til baka frá
Osló til Bandaríkjanna 1829 kr.
norskar (um 11 þús. kr.), en
lægstu fargjöld á þessari leið nú
eru 2572 kr. norskar fyrir ein-
staklinga, en 2393 kr. fyrir 15
manna hóp. Hin nýju fargjöld
munu auk þess einnig ná til
flugleiða yfir Kyrrahaf og milli
Norður og Suður-Ameríku, ef
viðurkenning viðkoinandi yfir-
valda fæst.
Pan American mun hafa sent
hinum 17 flugfélögum IATA sem
fljúga yfir N-Atlantshafið bréf,
þar sem lagt er til að þau tækju
öll upp „inclusive tours“ þegar
núverandi samkomulag um At-
lantshafsfargjöldin renna ú 1.
apríl n.k. Stuttu eftir að bréfin
voru send, mun eitt að hlutað
eigandi löndum hafa dregið til
baka staðfestingu sína á gildandi
fargjöldum og með því skapað
„breytt ástand“ á Atlantshafs-
flugleiðinni. Segja forráðamenn
Pan American, að þar af leið-
andi muni flugfélagið innleiða
þessi nýju verð frá og með 1.
janúar, og leggja til við IATA,
að þessi „inclusive-tours“-verð
verði tekin upp í næstu far-
g j aldasamningum.
Samkvæmt upplýsingum hjá
Loftleiðum er núverandi gjald
á farmiðum félagsins milli
Oslóar og New York rúmiar 2500
kr„ en félagið hefur að undan-
íörnu unnið að því að reyna að
fá fargjöldin lækkuð á þessari
leið, og eru samningaviðræður
þær, sem fram fóru í Kaup-
mannahöfn milli íslands og
SAS-landanna, m. a. í því sam-
bandi.
anna, sem f jallar um sambands-
stjórn, en greinin kveður á um,
að í stjórninni sitji 17 menn.
Lagði Hannibal til, að í stjóm-
inni sætu 21 maður.
I lögunum segir, að 6 stjórnar-
menn úr hverjum landsfjórðungi
en forseti gerði það að tillögu
sinni að kosnir yrðu 10 og mynd-
uðu þeir 13 menn, sem með for-
seta og ritara, sem kosnir eru
sérstaklega, mynda miðstjórnina.
Þá gerði hann það að tillögu
sinni, að sambandsþing kysi þrjá
menn úr hiverjum landsfjórðungi
í stað tveggja áður. Varamenn
fyrir aðalmenn úr hverjum lands
fjórðungi í stað tveggja áður.
Varamenn fyrir aðalmenn í mið-
stjórn skyldu vera sex í stað
fjögra áður og þrír í stað tveggja
fyrir aðalmenn í hverjum hinna
fjögurra landshluta. Var sam-
þykkt að vísa tillögu Hannibals
til Skipulags- og laganefndar.
Hannibal rökstuddi tillögu
sína á þeim grundvelli að mjög
góð samvinna hefði verið með
þeim aðilum, sem beitt hefðu sér
fyrir breytingum í skipulagi
sambandsins og vildi hann með
þessu koma stjórn ASÍ á breið-
ari grundvöll.
Björgvin Sighvatsson frá ísa-
firði lét í ljós ánægju sína með
framkomna tillögu forseta og
fagnaði þeim samvinnuvilja, er
speglaðist í henni. Vandamál
launþega yrðu aldrei leyst nema
allir stæðu saman sem einn mað-
ur.
Fundur hafði verið bo'ðaður á
ASf-(þinginu í gær kl. 17.00, en
er setja skyldi fundinn hafði
nefndarstörfuim um tillögu
Hannibals ekki lokið. Var því
fundd frestað til kl. 21, en þá
láigu tvö mál fyrir fundinum, um
ræður og kosning um áður-
nefnda tillögu svo og kosning
stjórnar fiyrir næsta kjörtíma-
bilL
! 100 m.-
■
j slapp ómeiddtj
■
I Neskaupstað, 24. nóv.
■ f GÆR fóru tveir menn,
; Sigurður Guðnason og Samúel
I Andrésson, á rjúpnaveiðar hér
; í nágrenninu. Fóru þeir inn «;
: við Oddskarð og gengu þar út
; fjallið. En er þeir voru stadd-
: ir upp við svökallað Staðar-
I Skarð, vidi það til að Samúel
; missti fótanna, og rann hann
; c>o—100 metra niður fjallið.
■ Hann meiddist þó ekkert að
: ráði, þótt furðulegt sé, nema
■ hvað hann skrámaðist Mtið
: eitt.
I — FréttaritarL
rrtmimii • ■■■*> <■■• J