Morgunblaðið - 04.02.1967, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 1067.
11
Frá Kópavogshæli
HR. Þorvaldur Steinason mun
vera trúnaðarmaður starfsíólks á
Kópavogahæli, þótt mér hafi
hvorki verið tilkynnt það munn-
lega né skriflega. UppL um það
fékk ég í blaðagrein hans í hitt-
eðfyrra. Hann hefur ekki rætt
þau mál, seim í grein hans í
Morgunblaðinu er fjallað um, við
mig eða yfirstjórn stofnunarinn-
ar, svo ’ég viti. Það er í mínum
augum svo sérkennileg og óeðli-
leg aðferð við að gegna trúnað-
armannsstörfum fyrir starfs-
mannafélag að hlaupa í blöð með
illindi, dylgjur og meiðyrði í
garð yfirmanna sinna, að ég mun
ekki taka þátt í þekn leik. Mun
ég því ekki eiga neinn orðastað
í Morgunblaðinu við hr. Þor-
vald Steinason. Ég mun á öðr-
um vettvangi leita afgreiðslu á
þessu frumhlaupi hr. Þorvalds
Steinasonar og öðrum málum
hans, sem snerta Kópavogsihæli.
Varðandi hinar endurteknu
fyrirspurnir frk. Vigdísar Ágústs-
dóttur vil ég taka þetta fram:
Þar sem ég hafði munnlega svar-
að frk. Vigdísi öllum þeim atrið-
um, sem Velvakandagrein henn-
ar fjallar um, taldi ég ekki til-
efni til að svara hinni opinberu
fyrirspum hennar í desember,
en ég vil nú þrátt fyrir allt svara
þeim hluta fyrirspurna hennar,
sem með nokkru móti geta talizt
alvarlega meintar.
1. Gæzlusystraskóli er stofnað-
ur í þeim tilgangi, að veita
stulkum, sem starfa vilja að
gæzlu og umönnun vangefinna
nokkra menntun til þeirra
starfa.
2. Spurningin ber með sér, að
um hótfyndni er að ræða og þvi
ekki svaraverð, en gefur tilefni
til að láta í ljós það álit mitt,
að allur rekstur fávitahælis sé í
þágu vistmanna, aðstandenda og
heimila þeirra.
3. Réttindi og skyldur gæzlu-
systra, sem eru orðnar fastir
starfsmenn rikisins, eru skil-
greind og ákveðin í lögum um
réttindi og skyldur starfsmanna
rikisins.
4. Kvennadeild eru aðeins
konur við gæzlu. Kröfur um
karlmenn til gæzlu hafa komið
fram, en þeím verið neitað með
öllu, svo fráleitar verða þær að
teljast, enda sá háttur hvergi við-
hafður srvo vitað sé. Næturvarzla,
frá kl. 24 til 6, á kvennadeild er
falin einni starfsstúlku eða nema,
með aðra á bakvakt í húsinu.
Karlmenn eru við gæzlu í næsta
húsi og kallkerfi á millí. Þannig
hefur i>etta verið síðan 19&8, að
kvennadeild tók til starfa, og
ekki komið að sök.
5. Um rétt til að víkja föstu
starfsfólki úr starfi gilda ákvæði
laga um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins. Reynslu-
tími nema og annarra, sem ráðn-
ir eru til reynslu, er til þess, að
báðir aðilar, nemi og stjórnandi
stofnunar geti slitið því samstarfi
ef tilefni er til, þ.e. ef stjórnand-
anum lízt ekki á, að sá, sem ráð-
inn er til reynslu, sé til starfs-
fallinn eða nýliðanum lízt ekki á
starfið. Þetta er svo augljóst mál,
að engra frekari skýringa er
þörf, enda ber orðið reynslutkni
sjálft merkinguna með sér.
Kópavogi 2/2 1967.
Björn Gestsson
(forstöðumaður Kópavogshælis).
Aths. Mál þetta er hér með
útrætt í Morgunblaðinu, ritstj.
Formaður
IðnaðarsnaiOu'
fél. heiðraður
FORSETI íslands hefir í dag, í
tilefni af 100 ára afmæli Iðnað-
armannafélagsins í Reykjavík,
sæmt formann þess, Ingólf
Finnbogason, húsasmíðameist-
ara riddarakrossi hinnar ís-
lenzku fálkaorðu í viðurkenn-
ingarskyni fyrir margvisleg störf
hans í þágu iðnaðarmála í land-
inu.
(Frá Orðuritara).
t]
STÁLHURÐIR
Smíðum mjög vandaðar einangraðar
stálhurðir fyrir kyndiklefa, geymslur,
verkstæði o. m. fl.
Stærð: 80x205 cm.
Einnig minni og stærri eftir beiðni.
= HÉÐINN =
PANTIÐ FERMINGARVEIZLUNA
TÍMANLEGA
Tökum að okkur
að laga
veizlumat í:
Brúðkaupsveizlur
Afmœlisveizlur
Fermingarveizlur
Látið fagmenn sjá
KJÖTBURIÐ HFo
Sími 37140 Háaleitisbraut 58-60 Sími 37140
Snittur
Smurt brauð
Brauðtertur
Sendum heim
um matinn fyrir ykkur