Morgunblaðið - 05.03.1967, Side 1
32 síður og Lesbók
54. árg._53. tbl. SUNNUDAGUR 5. MARZ 1967 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Mynd þessi var tekin þegar Clay Shaw var lciddur á brott frá
skrifstofu Garrisons ríkissaksd'knara í New Orleans að yfir-
heyrslu lokinni. Er hann sakaður um aðild að morðinu á Kenn-
edy forseta í nóvember 1963. Sjá frétt á bls. 31.
Rangoon, Burma,
4. marz. AP.
t STAÐFEST var í Rangoon
í Burma í dag, að U Thant,
framkvæmdastjóri Samein-
uðu þjóðanna hefði fyrr í vik
unni rætt við þriggja manna
sendinefnd frá Norður-Víet-
nam. Hefði hún afhent hon-
um orðsendingu frá Ho Chi
Minh, forseta N-Víetnam, þar
sem hann gerir endanlega
grein fyrir þeim skilyrðum,
er hann setur fyrir friðarvið-
ræðum um Víetnam.
| Haft er eftir U Thant, að
hvorugur stríðsaðila í Víet-
nam sé eins harður í afstöðu
sinni og þeir voru fyrir um
það bil ári.
U Thant hefur dvalizt um hríð
í Burma og aldrei viðurkennt
sjálfur annað en að hann væri
í orlofi. í gærkvöldi upplýsti
aðalræðismaður N-Víetnam í
Rangoón, Le Tong sun hershöfð-
ingi, að framkvæmdastjórinn
hefði rætt við sig og tvo aðra
sendimenn lands síns í skrif-
stofu ræðismannsins. Búizt er
við ummælum U Thants um
þetta síðar í dag.
Ekki er vitað, hvað sagði í
orðsendingu N-Víetnamstjórnar
til framkvæmdastjórans, en get-
um að því leitt, að þar hafi Ho
Chi Minh krafizt þess, að Banda-
ríkjamenn hættu loftárásum á
Norður-Víetnam og drægju úr
styrjaldarreksfrinum í Suður-
Víetnam.
Ekki er full ljóst, hvenær U
Thant heldur frá Ranigoon, en
vitað. að hann hyggst ræða við
George Brown, utanríkisráðherra
Breta, er hann kemur við í Lon-
don í bakaleiðinni.
/✓
Var „Tuka meira
en verksmiðjuskip?
Kaupmannahöfn, 4. marz
NTB.
• Danska blaðið „Ekstrablad-
et“ segir í dag, að sovézka
verksmiðjuskipið „Tukan",
sem sökk á Norðursjó, skammt
undan ströndum Danmerkur
sl. þriðjudagsnótt, hafi verið
annað og meira en verk-
smiðjuskip. — Það hafi verið
búið alls kyns rafeindatækj-
um, svipuðum tækjum þeim
er herskip nota, en fiski- eða
verksmiðjuskip yfirleitt
aldrei. Telur blaðið sig hafa
heimildir fyrir því, að danska
leyniþjónustan viti eitthvað
meira en lítið um mál þetta.
Verður Indira Gandhi
áfram forsætisráðherra?
Nýju Delhi, 4. marz — AP —
S ARVAPELLI Radhakrishnan, 1
forseti Indlands, hefur beðið
Indiru Gandhi forsætisráðherra 1
landsins og stjórn hennar að
gegna áfram stjórnarstörfum, |
unz ákvörðun hefur verið tekin
um það í Kongressflokknum,
hvort Indira heldur áfram em-
bætti forsætisráðherra, eða ein-
hver annar tekur við því. Eins
og nú standa sakir, telja frétta-
menn líklegast, að Indira haldi
embættinu áfram, en harðasti
keppinautur hennar verði Mor-
ari Desai, fyrrum fjármálaráð-
herra. Hugsanlegt er, að Y. B.
Chavan innanrikisráðherra verði
kjörinn sem málamiðlun.
Hann kom sjálfur sterklega til
greina sem forsætisráðherra fyr-
ir kosningarnar, en eftir ósigur
hans í Madras er hann úr sög-
unni sem keppinautur Indiru.
Búizt er við, að ákvörðun verði
tekin um forsætisráðherra fyrir
12. marz n.k.
Radhakrishnan, forseti, hefur
leyst upp neðri deild þingsins og
er beðið tilkynningar hans um
það, hvenær nýtt þing skuli
koma saman.
Síðustu tölur úr kosningunum
eru á þá leið, að Kongressflokk-
urinn heldur 278 þingsætum af
511, hægri flokkurinn, Swat-
antra, fær 42 þingsæti; flokkur
Hindúa, Jan Sangh, 35 þingsæti,
Peking-sinnaðir kommúnistar 19
þingsæti og Moskvu-sinnaðir
kommúnistar 22 þingsæti. Þau
sæti, sem þá eru eftir skiptast
á smáflokka, — en hugsanlegar
eru einhverjar smábreytingar á
þingsætaskipaninni.
Vínarborg, 4. marz. AP.
ANTONIN Novotny, forseti
Tékkóslóvakíu, hefur tilkynnt,
að innan skamms muni Tékkar
undirrita nýjan samning við
Austur-Þýzkaland. Er talið, að
þeim samningi verði sérstaklega
beint gegn Vestur-Þýzkalandi og
tilraunum Bonnstjórnarinnar til
nánari samvinnu við Austur-
Evrópuríkin.
Tveimur ráðamönnum
„Novy Mir“ vikiö frá
Moskvu, 4. marz — (AP) —
UPPVÍST varð í dag, að stjórn
kommúnistaflokksins í Moskvu
hefur hrakið frá störfum tvo
starfsmenn bókmenntatímarits-
ins „Novy Mir“ (Nýr heimur).
Eru það A. G. Dementiyev, ann
ar af tveimur aðstoðarritstjór-
um blaðsins og B. G. Zaks, fram
kvæmdastjóri og ábyrgðarmað-
ur. Hins vegar heldur skáldið
Alexander Tvardovsky aðalrit-
stjóri tímaritsins áfram sinni
stöðu, en hvað.eftir annað hef-
Mannfall I
portúgölsku
Guineu
Lissaibon, 4. marz. AP.
í OPINÐERRI tilkynningu portú
gölsku stjórnarinnar segir í dag,
að í febrúarmánuði hafi níutíu
uppreisnarmenn verið drepnir á
portúgölsku Guineu. Á sama
tíma segir, að tuttugu og þrír
portúgalskir 'hermann hafi fallið
í átökum við uppreisnarmenn.
ur hann verið tallnn að þvi
kominn að hrökklast þaðai^
vegna tilrauna hans til að auka
frjálslyndi tímaritsins.
Þeim Dementiyev og Zaks
hefur verið gefið að sök að hafa
staðið fyrir skrifum blaðsins um
flokkinn og vangavel'tum um
árangurinn af starfi hans. Eru
þeir sagðir hafa annast ritstjórn
ina að mestu í sameiningu, með-
an Tvardovsky hafi sinnt skáld-
skap sínum. Hins vegar telja
allir ljóst, sem til þekkja, að
hin frjálslynda stefna blaðsins
sé undan rifjum Tvardovskys
runnin. Hann hefur, sem fyrr
segir, oft verið hætt kominn í
starfi sínu og var t.d. víttur á
flokksþinginu í fyrra. Þá hafa
ljóðaleikic hans vakið deilur og
stundum verið hætt við sýningar
á þeim. Nú virðist þó sem hanii^
haldi enn velli.
Nokkurar eftirvæntingar var
farið að gæta um hvað væri
að gerast í herbúðum Novy Mir,
þar eð dráttur hafði orðið á
útkomu janúarheftisins. Er það
kom út í dag, höfðu nöfn þeirra
Zaks og Dementiyevs verið
felld úr „haus ritsins.“
Framhald á bls. 31
U. Thant ræddi við sendi-
nefnd frá Norður-Vietnam
Forseti Kongressflokkslns
Kumarswami Kamaraj hefur
rætt við marga helztu forystu-
menn flokksins að undanförnu.
Fiat í Búlgaríu
Tórínó, Ítalíu, 4. marz. AP.
♦ Fítaverksmiðjurnar hafa ný-
lega gert samning við ríkis-
stjórn Búlgaríu um að reisa Fíat
bifreiðaverksmiðju þar í landi.
Er ætlunin, að verksmiðjan geti
framleitt um tvö þúsund bifreið-
ir fyrir árslok 1968 og um 1970
verði framleiðslan komin upp í
tíu þúsund bifreiðir á ári.
Hálfan mánuð í fönn í hörku frosti
Moskvu, 4. marz AP)
DAGBLADIÐ Sovietskaya
Rossiya skýrir í dag frá því
að kona ein í Norður-Síberíu,
sem var á ferð á hundasleða á
leið til sjúkrahúss, hafi graf-
izt í fönn og legið úti í hálfan
mánuð áður en tókst að bjarga
henni.
Að sögn blaðsins fóru þau
Eptune Pupta, sem er fiski-
maður, og kona hans Valen-
tina frá þorpinu Agapa i Norð
ur-Síberíu hinn 27. desember
sl. Fóru þau á hundasleða og
ætluðu til Baykalovo, þar sem
næsta sjúkrahús er. Leiðin
milli þorpanna er um 240
kílómetrar. Frúin var veik og
þurfti að leita læknis, en ekki
er þess getið hvað að henni
gekk. Einnig ætluðu hjónin
að halda upp á áramótin með
átta ára syni sínum, sem er í
skóla í Baykalovo. Á leiðónni
lentu (hjónin, sem eru Nyen-
yets-eskimóar, í stórhríð og
viiltuist. Hundsr þeirra gáfust
upp og drápust. Matarbirgð-
irnar giengu til þurrðar.
Pupta leitaði að einíhverju
ætilegu, en fann ekkert nema
timfburskúr, sem hann notaði
í eldivið og bræddi snjó til
drykkjar. Loks tók hann það
til brags hinn 3. janúar að yf-
irgefla konu sína og lei'ta hjálp
ar. Þann sama dag hafði ver-
ið tllkynnt að hjónin væru
týnd og var nafinn undirbún-
ingur að leit.
Pupta komst til byggða, en
leitarflokkar fundu ekki konu
hans. Ekki vai unnt að nota
flugvélar við leitina vegna
veðurs fyrr en 11. janúar. Var
leitinni haldið áfram í hálfan
Framhald á bls. 2