Morgunblaðið - 05.03.1967, Blaðsíða 5
MORGÚNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. MARZ 1967.
1 LIÐINNI viku voru lögð
fram á Alþingi tvö mál, sem
væntanlega munu teljast
stærstu mál þessa þings, ásamt
verðstöðvunarlögunum, s e m
samþykkt voru fyrir jól. Annað
þeirra er frv. ríkisstjórnarinn-
ar um ráðstafanir vegna sjáv-
arútvegsins, sem beðið hefur
verið eftir um hríð og hitt er
frv- sjö þingmanna Sjálfstæðis-
flokksins undir forustu Matt-
híasar Bjarnasonar um Fiski-
málaráð. Þá er vert að geta
þess að nú er kominn inn í
þingið tillaga um auknar veiði-
heim.’ldir í landhelgi, að vísu
aðeins fyrir minni báta. Það er
Björn Pálsson, hinn óstýriláti
þingmaður Framsóknarflokks-
ins, sem hana flytur.
Ýmsir voru farnir að gerast
óþolinmóðir vegna þess, að
fram eftir febrúarmánuði ból-
aði ekki á stjórnarfrv. í sam-
ræmi við þau fyrirheit, sem
gefin voru um viðbót á fisk-
verðið þegar í janúar. Ástæðan
var sú, að í'íkisstjórnin vildi
fella saman í einn lagabálk að-
gerðir vegna vélbátaflotans og
frystihúsanna, en samningavið-
ræður við frystihúsin drógust
nokkuð á langinn. Efnisatriði
þeirra ráðstafana, sem ríkis-
stjórnin hyggst beita sér fyrir
vegna þessara atvinnugreina
eru vel kunn og því óþarft að
rekja þau. En óhætt er að full-
yrða, að hér.hefur tekizt á far-
sælan hátt að leysa mikinn
vanda. í þessu sambandi er rétt
að vekja athygli á, að allt frá
því i haust hefur ríkisstjórninni
tekizt að leysa erfið vandamál
með þeim hætti, að hún hefur
óumdeilanlega styrkt stöðu sína
verulega.
1 haust var allt ástand í éfna-
hags- og atvinnumálum mjög
ótryggt. Framundan var á-
kvörðun um búvöruverð, samn-
ingar verkalýðsfélaganna runnu
út 1. okt. og menn veÞu mjög
fyrir sér. hvort ný kauphækk-
unarskriða mundi fylgja í kjöl-
far ákvörðunar um búvöruverð.
Þá var þegar orðið ljóst að
alvarlegt verðfall hafði orðið á
útflutningsafurðum landsmanna
og það hlaut að skapa mikla
erfiðleika.
Ingóifi Jónssyni tókst að
halda þannig á málum land-
búnaðarins, að ákvörðun bú-
vöruverðs leiddi ekki til hækk-
unar þess til ney+enda. í kjöl-
far þess kom verðstöðvunar-
stefna ríkisstjórnarinnar fram í
dagsljósið og smátt og smátt
varð ljóst, að verkalýðshreyf-
ingin mundi a. m. k. virða verð-
stöðvunarstefnuna og láta frek-
ari kaupkröfur liggja milli
hluta- Traustur fjárhagur ríkis-
sjóðs hefur svo gert kleift að
ráða fram úr vandamálum út-
flutningsatvinnuveganna. Ríkis
stjórnin stendur því tvímæla-
laust sterkari í dag en á haust-
mánuðum, þegar ekki var ljóst
hvernig til mundi takast um
lausn þessara viðamiklu vanda-
mála.
Frv. sem sjö þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins flytja, um stofn
un Fiskimálaráðs, er vafalaust
eitt stærsta mál, sem lagt hefur
verið fyrir þingið. Því er ætlað
að móta heildarstefnu í sjávar-
útvegs- fiskiðnaðar- og mark-
aðsmálum. Fram til þessa ihafa
mál þessi verið í höndum
margra aðila og þess vegna
skort á nauðsynlega samræm-
ing.u, en nú er von til þess, að
úr því rætist. Það er fagnaðar-
efni að frv. þétta kemur fram
i röðum Sjálfstæðismanna á
Alþingi. Það sýnir glögglega, að
í þeirra hópi á sjávarútvegur
og fiskiðnaður sína traustustu
málsvara.
Fyrir jólin var þess beðið
með nokkurri eftirvæntingu,
hvórt tillaga um auknar tog-
veiðar í landhelgi yrði lögð fyr-
ir þingið í einhverju formi. Svo
varð þó ekki að því sinni, en
nú hefur Björn Pálsson borið
fram lagafrv. um að leyfa
40—100 lesta bátum heimild til
togveiða skv- sérstakri ákvörð-
un ráðherra, með tilteknum
skilyrðuiíi. Þegar frv. þetta var
til 1. umræðu tóku ekki aðrir
til máls en flutningsmaður og
Guðlaugur Gíslason, hinn ötuli
talsmaður Vestmannaeyinga í
þessu máli. Hins vegar verður
fróðlegt að fylgjast með því á
síðari stigum málsins, hvort
einhverjir stuðningsmenn tog-
araútgerðarinnar leggja fram
breytingartillögu við frv. þess
efnis, að heimilt sé að veita tog-
urunum frekari veiðiheimildir
en nú er, þannig að á það reyni,
hver afstaða þingsins til máls-
ins raunverulega er.
f umræðum um utanríkismál
undanfarnar vikur, hefur kom-
ið fram margvíslegur fróðleik-
ur, sem yngri mönnum a.m.k.
er ekki kunnugt um og sjálf-
sagt er það svo um marga hina
eldri líka. Þannig upplýsti
Bjarni Benedik*sson t. d. að til-
raun hefði verið gerð til þess
að endurlífga nýsköpunarstjórn
ina á sínum tíma, en hún hefði
strandað á því, að kommúnist-
ar kröfðust þess, að u*an-
ríkisráðherraembættið yrði fal-
ið ópólitískum embættismanni,
væntanlega til þess, að þeir
sjálfir gætu haft veruleg áhrif
á störf hans.
Þannig koma fram á óvæn*an
hátt ýmis fróðleg söguleg atvik,
sem of mikil hætta er á að
gleymist, ef ekki er unnið að
því á skipulagsbundinn hátt að
varðveita slíkar heimildir. —
Vafalaust mun mönnum t. d.
þykja a*ihyglisvert síðar að vita
um þær tilraunir, sem gerðar
voru til að endurvekja aðra
sögulega ríkisstjórn, þ.e. vinstri
stjórnina.
Jóhann Hafstein svaraði á
miðvikudag fyrirspurn frá Al-
ferð Gíslasyni um öryggisút-
búnað álbræðslunnar. Hafi fyr-
irspyrjandi ætlað sér að gera
mál þetta að árásarefni á ríkis-
stjórnina varð fljótt ljóst af
svari ráðherrans að það mundi
ekki takast. Jóhann Hafstem
flutti þinginu mjög itarlega
skýrslu um mál þetta og átti
fyrirspyrjandi ekki annað eftir
en að þakka ,.pent“ fyrir.
Það er sjaldan sem verulegar
„hugsjóna“umræður fara fram
á Alþingi. Það gerðist þó í Efri
deild fyrir nokkrum dögum,
þegar þeir áttust við Ólafur
Björnsson prófessor og Gils
Guðmundsson um Viðtækja-
verzlun ríkisins. llmræSur
þeirra í milli snerust raunar
mjög um grundvallaratriði, um
frelsi í innflutningi eða ekki,
úm einkasölur eða ekki. Þessar
umræður voru mjög fróðlegar
og skemmtilegar. Ólafur Björns
son er einn áhrifamesti tals-
maður Sjálfstæðisflokksins i
Alþingi á sviði yerzlunar- og
efnahagsmála og vissulega er
Gils Guðmundsson rökfastur og
sterkur ræðumaður.
Styrmir Gunnarsson.
Skriístofuhúsnæði óskast
2 — 4 skrifstofuherbergi óskast til leigu frá 1. aprfl,
eða sem fyrst.
Upplýsingar i símum 16954 og 20433.
í miklu úrvali
Innkaupatöskur — kvenveski — loðfóðr
aðir skinnhanzkar.
Seðlaveski og buddur.
Hljóðfærahús Reykjavlkur
Hafnarstræti 1. — Sími 13656.
SUMT KVENFÓLK HEFUR ENGAN ÁHUGA Á MAKE-UP...............
en fyrir þœr sem hafa það, hefur
PIERRE ROBERT
búið til froðukennt make-up í ereosolbrúsa „Soft and Gentle“.
Algjör ný tegund af make-up, fljótvirkari, auðveldari, þægilegri.
Soft and Gentle er fullkomið make-up, púðurundirlag óþarft — það tekur aðeins nokkrar sekúndur að bera þessa
léttu froðu á og húð yðar fær hlýjan blæ.
Erosolbrúsarnir gera það fært, að make-up verður jafnt yfir alla húðina.
Soft and Gentle er eðlilegt make-up, það sézt ekki, það finnst ekki, en það er þar.
ÍSLENZK-
c&m.erióUa."
Aðalstrœti 9 - Póstlwlf 129 - Reykjavík - Sími 22080
Hristið brúsann vel, ýtið á tappann,
svo hæfilega mikið komi í lófann.
Berið það á andlit yðar og háls.
Á nokkrum sekúndum eruð þér með
FULLKOMIÐ make-up, sem gefur
húðinni silkiblæ.