Morgunblaðið - 05.03.1967, Page 19
MORGUNBLAÐm, SUNNUDAGUR 5. MARZ 1967.
19
Ályktun háskóla-
menntaðra kennara
HINN 24. febrúar síðastliðinn
var fundur haldir.n í Félagi há-
skólamenntaðra kennara. Á
fundinum var einróma sam-
þykkt ályktun sú, er hér fer á
eftir:
Fundurinn telur, að við undir-
búning síðustu kjarasamninga"
hafi réttur og hagsmunir há-
skólamenntaðra kennara verið
fyrir borð bornii af Bandalagi
starfsmanna ríkis og bæja og
Landssambandi framhaldsskóla-
kennara. Af þeim sökum hafa
félagsmenn sagt sig úr ofan-
greindum samtökum, vantreysta
þeirn og vilja ekki afskipti þeiria
af málefnum sínum í væntanleg-
um kjarasamningum.
Fundurinn harmar þann drátt,
sem á því hefur orðið, að Banda-
lagi háskólamanna sé veutjr
samningsréttur til jafns við
Bandalag starfsmanna ríkis og
bæja og telur það óviðunandi,
að háskólamenntaðir starfsmenn
í þjónustu ríkisins skuli enn vera
án þeirra sjálfsögðu réttinda,
»em slíkur samningsréttur veitir.
Fundurinn skorar á Alþingi cg
ríkisstjórn að hraða afgreiðslu
samningsréttarmálsins og láta
framkvæmdir í því ekki undir
höfuð leggjast, ef breytingar
verða gerðar á samningsréttar-
lögunum á yfirstandandi þingi.
Háskólamenntaðir kennarar
Fyrirlestrar um
gríska oglatneska
sálma
SÉRA Sigurjón Guðjónsson,
præp. hon. flytur nokkra fyrir-
lestra í háskólanum um gríska
og latneska sálma í íslenzkum
sálmabókum o'g höfunda þeirra.
F y r s t i fyrirlesturinn verður
mánudaginn 6. marz og hefst kl.
18.15 í V. kennslustofu. Næsti
fyrirlestur verður mánudaginn
13. marz á sama tíma. Öllum er
heimill aðgangur.
launaflokka um eitt ár, enda
verður ekki annað séð en tveggja
ára samningstímabil eigi að
nægja til nauðsynlegrar undir-
búningsvxnnu við starfsmat og
fleira.
Fundurinn lýsir því yfir, að
háskólamenntaðir kennarar
vilja ekki una við niðunstöðu n>™u ekki sætta sig við að
kjaradóms frá 30. nóvember hugmynd B.S.R.B. um samn-
1905. Fundurinn mótmælir því
harðlega þeirri ætlun B.S.R.B.
og löggjafarvaldsins að fresta
nauðsynlegum tilfærslum milli
ingsréttargjald á alla ríkisstarls-
menn verði að lögum.
(Frá Félagi háskólamenntaðra
kennara)
Hörmuleg
veizlulok
Bombay, 4. marz. AP.
+ Á fimmtudagskvöldið voru 15
börn og unglingar á ferð í svo-
nefndum GHAX-fjölIum, glaður
hópur og kátur að koma úr brúð
kaupsveizlu. Þar voru m.a. brúð-
hjónin og ók brúðgúminn bifreið
inni. För þeirri lauk svo, að bif-
reiðin steyptist niður í sextíu
metra gil og biðu allir bana ut-
an einn. Að sögn lögreglunnar í
Bombay er þetta alvarlegasta
bifreiðaslys í sögu Indverja, þar
sem í hlut á aðeins ein bifreið.
Bangkok, 4. marz, — AP —
Utanríkisráðherra ísraels,
Abba Eben, hóf fjögra daga
heimsókn í Thailandi í dag. Eban
mun síðar heimsækja fleiri As-
íulönd og Nýja Sjáland að auki.
- PODGORNY
Framhald af bls. 17.
fyrir skemmstu, en einnig Frakk
land og England. Aftur á móti
var Podgorny harðorður í garð
stjórnar Kiesingers í V-Þýzka-
landi og sagði hana halda til
streitu gamalli hefndarstefnu í
stjórnmálum og drap á nýfas-
ismann sem þar hefði nú skorið
upp bolli. Kvað Podgorny kröf-
ur V-Þjóðverja um að þeir
skyldu einir teljast réttir full-
trúar þýzku þjóðarinnar óraun-
hæfar og fáránlega og lauk máii
sínu með því að segja að það
væri stefna Sovétríkjanna í utan
ríkismálum að vinna gegn
hefndarstefnumönnum og hern-
aðarsinnum en efia samvinnu og
skilning Evrópulanda.
Hafnarfjörður
Arsliátíð Karlakórsins Þrestir
verður haldin laugardaginn 11. marz 1967 kl. 19
í Alþýðuhúsinu.
Aðgöngumiðar í verzluninni Málmi.
Miðar óskast sóttir fyrir miðvikudagskvöld.
SKEMMTINEFNDIN.
Afar ódýr frímerki
frá Austurríki
Tvö þúsund og átta hundruð falleg mismunandi
safnfrímerki og sérfrímerki, raunverulegt verðmæti
um 320 mörk, en í auglýsingaskyni aðeins 300,00
íslenzkar krónur gegn póstkröfu, svo lengi, sem
birgðir endast. — Póstkort nægir.
MARKENZENTRALE, Dempschergasse 20, 1180 Wien.
Fyrirtæki - Stofnanir
Einkaritari
Ung stúlka, er lokið hefur V. f. og útskrifast með
„DIPLOMA“ frá Berkeley Secreatarial School, New
York, óskar eftir vellaunuðu einkaritarastarfi við
enskar bréfaskriftir og hraðritun. Er fær um að taka
enska hraðritun 125 orð pr .mín. og 55 orð pr. mín.
í vélritun. Starfsreynsla sem einkaritari. Tilboð
merkt: „Einkaritari 8234“, sendist afgr. Mbl.
Hitaveita Arnarness
Þar sem tilskilinn fjöldi félagsmanna var
ekki mættur á boðuðum aðalfundi þriðju-
daginn 28. febrúar sl. er aðalfundur boð-
aður að nýju þriðjudaginn 21. marz n.k.
kl. 5 e.h. í Tjarnarbúð uppi.
Stjórnin.
Þvær,
hreinsar
09
gefur ferskan
háralit
Þegar æfi líður á, föinar
æskuljómi hórsins. Wellaton
gefur hórinu nýjan og
ferskan blæ og þvær um leið
eins og ber.ta shampoo •
Wellaton uppfyllir kröfur
allra kvenna, þvi fjölbreytt
litaval gefur konunni kost
á að velja sér fagran og'
persónulegan hórblæ.
weiiaron
Heildvtrzlun: HALLDÓR JÓNSSON H. F.
Slml 23995 09 125(4 Hafnamraci 18
Útvegum hringstiga
frá Svíþjóð með
stuttum fyrirvara.
Hagstætt verð,
leitið upplýsinga.
Einkaumboð fyrir:
HVERFISGÖXU 42 A KKYKJAVÍK A SÍMI I S1 II
Nauðimgaruppboð
Nauðungaruppboð það sem auglýst var í 6., 8. og
9. tbl. Lögbirtingablaðsins 1967 á 2ja herb. íbúð á
jarðhæð í Ásbraut 7, þinglýstri eign Grétars Magn-
ússonar, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn
9. marz 1967 kl. 14 samkvæmt kröfum Ólafs Þor-
grímssonar, hrl. og Hákonar H. Kristjónssonar hdl.
BÆJARFÓGETINN f KÓPAVOGI.
Platignum
FOR GOOD HANDWRITING
PLATIGNUM Longlife er nýjasti og
vandaðasti kúlupenninn.
PLATIGNUM Longlife er með stórri
stálfyllingu, sem endist lengur en
nokkrar aðrar fyllingar/
PLATIGNUM Longlife er með kúlu úr
wolfram og pennaoddi úr ryðfríu stáli.
Það kemur í veg fyrir að blekið smiti,
hversu lengi sem skrifað er með penn-
anum.
PLATIGNUM Longlife gefur mýkstu
og áferðarfallegustu skriftina.
Spyrjið um PLATIGNUM Longlife í
næstu bóka- eða ritfangaverzlun.
Kynnið ykkur hið hagstæða verð á
PLATIGNUM Longlife og fyllingum
í hann.
Einkaumboð:
ANDVARI
Smiðjustíg 4, sími 20433.
niMnnii
m 1