Morgunblaðið - 05.03.1967, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. MARZ 1967.
ÚTSALAN
stendur yfir í nokkra daga enn.
BattaverzEun Soffíu Pálma
Laugaveg 12
Bezt ú auglysa í IVIorgunblaðinu
Var Kennedymoröinu
stjórnað frá Kúbu?
BANDARÍSKA útvarpsstöðin
W-I-N-S sagði í dag, að stöðin
hefði frétt eftir áreiðanlegum
heimildum í New Orleans, sem
hafa aðgang að skjölum Garri-
sons saksóknara, að hann sé þess
fullviss, að Kennedy Bandaríkja
forseti hafi verið myrtur af hópi
samsærismanna, sem stjórnað
var frá Kúbu. Garrison, sem
KARNABÆR
Tízkuverzlun unga fólksins auglýsir.
N Ý K 0 M I Ð!
Dömudeild
• PILS MEÐ
SKOTASNIÐI
í ÖLLUM
NÝJUSTU
TÍZKULITUNUM.
• KJÓLAR —
MIKIÐ ÚRVAL.
• KÁPUR
• PEYSUR —
ALLRA
NÝJASTA TÍZKA
OG LITIR.
• MIKIÐ ÚRVAL
BLÚSSUR
Herradeild
FERMINGARFÖT
STAKIR JAKKAR
NÝJAR GERÐIR
SKYRTUR
PEYSUR O. FL.
KARNABÆR
TÝSGÖTU 1 SÍMI 12330.
ætíð hefur svarað neitandi, er
hann hefur verið spurður hvort
erlent riki ætti þátt í morðinu,
fékkst ekki til að segja álit sitt
á málinu.
Fréttamaður útvarpsstöðVar-
innar sagði, að skv. skjölum
Garrisons hefði hann vitneskju
um að Castro, forsætisráðherra
Kúbu, hefði fyrirskipað lífiát
Kennedys forseta eftir Svinaflóa
innrásina. Fjórir aftökuflokkar
voru skipulagðir í Bandaríkjun
um, en innflytjendayfirvöldin í
New York náðu einum flokk-
anna og var bandarísku leyni-
þjónustunni og forsetanum þegar
gert viðvart. Einn flokkurinn var
(í New Orleans og voru í honum
David Ferrie, Clay Shaw, sem
handtekinn var í gær og fleiri
menn, sem ekki eru nefndir með
nafni.
Innfly'.jendayfirvöldin í New
York neituðu í dag staðhæfing-
um útvarpsstöðvarinnar og
sögðu þær með öllu ósannar.
Kossamót-
mælum mót-
mælt með
kossum
Michigan, 3. marz AP.
MÓTMÆLAAÐGERÐIR geta I
fengið á sig ýmis form, sum-
ir setjast á opnar götur og
neita að standa upp, sumir
svelta sig af hugsjónaástæð-
um, aðrir kyssast í mótmæla-
skyni.
Þegar tveir ungir stúdent-
ar — karl og kona — í fylk-
isháskólanum í Michigan buðu
i góða nótt með kossi fengu
þau hátíðlegt skjal frá há- ;
skólastjórninni, þar sem at- |
hæfi þeirra var mótmælt, og
þeim gefin viðvörun.
Hinir 600 stúdentar háskól-
ans hófu gagnmótmælaað-
gerðir. Þeir söfnuðust saman
í einum sal skólans og kysst-
ust metkossum, — sérhver
þeirra var klukkustund lang-
ur. Háskólaráð hefur mót-
mælt harðlega þessum mót- fi
mælaaðgerðum stúdentanna,
sem meðal annars báru spjöld,
hvar á var letrað „Eiska
skaltu náunga þinn.“
USA reynir mólnmiðlun
milli Breta og V-Þjóðverja
Waghington, 3. marz AP-NTB
BANDARÍSKA stjómin til-
kynnti í dag, að hún muni ekki
lengur krefjast þess að V-Þjóð-
verjar kaupi hergögn eingöngu
frá Bandaríkjunum til þess að
vega upp á móti útgjöldum
Bandaríkjamanna vegna herliðs
ins í V-Þýzkalandi en nú eru
225.000 bandarískir hermenn í
landinu. Heimildir herma að
Bandaríkjastjórn hafi tilkynnt
þetta til þess að reyna að auð-
velda fyrir lausn í deilunni miili
Breta og V-Þjóðverja um kostn
aðinn vegna dvalar brezka her-
liðsins í Y-Þýzkalandi.
Bretar hafa krafizt þess að
Bonnstjórnin standi straum af
kostnaðinum, en hún hefur lýst
því yfir að hún megni ekki að
greiða allan kostnaðinn. Hafa
Bretar þá hótað að draga til
baka stóran hluta herliðsins.
Bandarfkjastjórn fékk Breta til
að fresta brottflutningnum I
fyrra með því að lofa að kaupa
vopn af Bretum fyrir 3ö milljón
ir döllara, en kostnaður'brezku
stjórnarinnar vegna 50000 her-
manna í V-Þýzkalandi nemur
270 milljónum dollara. Síðasta
tilboð Bonnstjórnarin>nar var að
kaupa vörur af Bretum fyrir 79
milljónir dollara.
Ilndirbúníngs-
viðræður í
næstu viku
KVIKSJA
FROÐLEIKSMOLAR
Ekki löngu eftir tíma
Shakespeares fékk púrítanism
inn yfirhöndina í Englandi.
Samkvæmt þeim kenningum
voru sjónleikir bannaðir og
skipun var gefin um að öll
leikhús skyldu rifin og
brennd. Leikarar voru ákærð
ir um að vera þorparar, sem
réttlátast væri að hegna opin-
berlega ef þeir voguðu sér að
leika opinberlega. Allir þeir
sem séð höfðu, þó ekki væri
nema einn sjónieik, áttu að
greiða 5 shillinga í sekt. Árið
1648 hættu nokkrir leikarar á
að flytja sorgarleik í leikhúsi
einu. Þeir gættu fyllstu var-
úðar meðan á sýningunni
stóð, en samt sem áður fór
það þannig, að hópur her-
manna ruddist inn er sýning-
in var hálfnuð, og flnttu leik-
arana með sér í Hatton House,
sem var fangelsi þeirra tíma.
Þar sátu leikararnir vikum
saman, þar til þeim að end-
ingu var sleppt út í nærklæð-
um einum, því fangverðimir
höfðu stolið af þeim búning-
unum.
Moskvu 3. marz AP.
TALSMAÐUR bandaríska sendi-
ráðsinsí Moskvu sagði í dag að
búist sé við, að undirbúnings-
viðræðum fyrir samningana milli
Rússa og Bandaríkjamanna um
takmörkun á smíði árásar og
varnareldflauga, hefjist í Moskvu
í næstu viku milli Thomsons
sendiherra Bandaríkjanna I
Moáívu og Gromykós utanríkis-
ráðherra Sovétrík j anna. Ekkl
er vitað hvenær aðalviðræðurn-
ar hefjast, né heldur hverjir
muni taka þátt í þeim af hálfu
landanna. Stjórnmálafréttaritar-
ar telja víst, að aðalvandamálið
verði eftirlitsstörfin, en það
vandamál hefur leyst margar af-
vopnunarviðræður, því að Sovét
stjórnin hefur aldrei viljað fall-
ast á að leyfa erlendum eftir-
litsmönnnum að vinna störf sín
í Sovétríkjunum.
Höfðaborg, 2. marz — NTB
RÍKISSTJÓRN Suður-Afríku
hefur lagt fram lagafrumvarp,
sem miðar að því að hindra fólk,
sem lítur út fyrir að vera hvítt
en er af lituðum kynstofni, í þvl
að verða opinberlega skráð sem
verandi hvítt.
Síðustu mánuði hafa dómstól-
ar í landinu kveðið upp marga
dóma, þar sem það er viðurkennt
að fólk af lituðum kynstofnl
skyldi skráð sem hvítir menn,
etf það leit út fyrir að vera þann
ig og almennt var talið vera það.
1 frumvarpinu segir, að ætt-
emið eitt skeri úr um það, hvort
maður skuli skráður hvitur eða
litaður, þannig að þeir verða
taldir litaðir, þar sem annaö for
eldranna er ekki hvítt.
Wiu. fleygói hníimun í sama mund og ég hleypú aí bysaumii. Kiuu og vvint voru báðir dauðir — og það stóð hnífur í
vrjósti mé*.