Morgunblaðið - 05.03.1967, Side 28
28
MÓRGÚNfíLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. MÁRZ 1967.
snöggt. — Við skulum bara ekki
fara að karpa um það. — Við
ákulum fá þetta fram í dagsljós-
ið, og komdu nú fyrst með þína
hugmynd, Kerry.
Hún hikaði. — Jæja, hvaða
kvöld var það eiginlega, sem
Bvvie hvarf?
— Föstudagskvöldið fyrir hálf-
um mánuði.
— Svo að þegar við Steve
komum hingað á laugardaginn
var, var hún búin að vera týnd
í tvær vikur og einn dag? Þú
hafðir mikið hanaat þetta kvöld
og ég man, að þú sagðir í bréfi
til mín, að annað eins hefði verið
hálfum mánuði áður, — líka á
laugardagskvöldi. Svo að Evvie
hafði þá ekki verið horfin nema
eina nótt, þegar fyrra atið var
haldið?
— Þau voru bæði boðin en
'hvorugt kom, sagði Brad. — Dick
var heima og beið eftir að frétta
eitthvað frá Ewie.
— Brad, hafðist þú nokkuð
óvenjulegt að í sambandi við at-
ið, daginn áður — föstudag?
Hann kinkaði kolli og hleypti
brúnum. Spurningar Kerry voru
teknar að staðfesta eigin álykt-
anir hans. — Já, ég atti tveimur
lélegri hönum, sem eru ekki
nógu góðir í at, en fuligóðir til
undaneldis — eins konar tilrauna
fuglar. Við öttum einum tólf
slíkum — við Hawley í félagi, —
síðdegis þennan föstudag.
— Og þá hafði Hawley, bæði á
laugardag og föstudag, grafið
gryfjur til þess að k'oma fyrir
hönunum, sem biðu ósigur í at-
inu, einhvers staðar þarna úti
við kjúklingagarðana?
Brad svaraði stuttorður. —
Hann gróf þær á föstudagsmorg-
un.
Kerry hafði prófað kenningu
sína stig af stigi — og hún var
eins og mín. Brad setti upp
hörkulegan ánægjusvip við að
heyra þetta því að sýnilega hafði
honum dottið það sama í hug, og
ég sá líka, að Glenda kinkaði.
VERÐLÆKKIJM
VERÐLÆKKUM
VERÐLÆKKtM
Hættum að selja tilbúna kjóla. Seljum nokkra enska tízkukjóla
sem eftir eru, mikið niðursetta. Einnig dálítið af niðursettum
skokkum, pilsum og peysum. Aðeins fáir dagar. Ullarvörubútar.
Laugaveg 11.
Sögulegt
sumarfrí
eftir Stephen
Ransome
an hátt og ég hafði. Þetta var
alls ekki nein snillileg ályktunar
gáfa sem til þess þurfti, því að
mér fannst það alveg leiða af
sjálfu sér, að Brad ætti að vera
það ennþá Ijósara. En ég hafði
ekki búizt við, að hann viður-
kenndi það og ennþá gíður, að
hann teldi sig fúsan til að segja
frá þvi — og ég varð ennþá
meira undrandi þegar Kerry kom
með framhaldið.
— Ég hef líka góða hugmynd
um það, sagði hún. — Ég á við,
hvar lík Evvie er.
Við Brad gláptum báðir á
hana. Nánar aðgætt, var þetta
ekkert merkilegt, hvað Kerry
snerti, en svo litum við renn-
sakandi augnaráði á Glendu.
Mér skildist, að Kerry hefði
gert einhverja ályktun af eigin
rammleik. Hún þóttist líka vita
þetta.
Gott og vel. Þá þóttumst við
öll viss. Hvert okkar hafði gert
sér einhverja ákveðna hugmynd
um síðasta hvílustað Evvie, en
ekki þorað að segja hinum frá
henni. Nú kom það k>ks fram í
dagsljósið, þótt seint væri. Gott.
Nú lá næst fyrir að vita, hvort
við hefðum öll komizt að sömu
n n ❖❖❖❖❖❖❖❖❖-:
>❖❖❖❖❖❖❖❖•: Ll I ❖❖❖❖❖❖❖❖❖•:
niðurstöðunni, eða hvert okkar
að sinni niðurstöðu.
— Brad, sagði Kerry, alvöru-
gefin. — Ertu viss um, að ekki
væri betra að eftirláta það ein-
hverjum öðrum að finna ....
— Já, ég er viss, svaraði Brad
Skautar
Skíði
Miklatorgi — Akureyri.
— Þetta er ekkert, Sigríður mín. Hann Jói minn hefur gleymt
baðsloppnnm sinum.
Við höfðum öll hugsað þetta út
á sömu rökum. Það var ósköp
einfalt mál. Þegar morðinginn
gróf töskurnar hennar Evvie, var
líklegast að har.n hefði verið að
endurtaka verknaðinn sem hann
hafði áður framið, fyrir tveim
vikum og einum degi betur er
hann gróf lík hennar.
En erfiðara yrði að gera grein
fyrir þessum langa táma, sem
leið milli þessara tveggja at-
hafna hans — en það gat beðið.
Ég fór í gremju minni að hugsa
um annað. Ef Kerry hefði ekki
uppgötvað þessar ferðatöskur?
Þá hefðum við enn enga hug-
mynd um, hvar við gætum leitað
næst. Jafnvel var hugsanlegt, ?.ð
leitarflokkurinn færi algjörlega
framhjá þessu. En nú var það
ekki lengur hugsanlegt — svo
var Kerry enn fyrir að þakka!
Ég spurði: — Manstu hvar
hann Hawley gróf þessa gryfju
á föstudaginn fyiir háifum n:án-
uði?
— Já, það ve.it ég alvag upp á
víst.
Þegar Brad sneri til dyranna,
náði ég í handlegginn á honum.
— Bíddu við. Ef þú flýtir þér
svona mikið, þá getur það eitt
fyrir sig litið grunsamlego. út.
Þá hald'a þeir, að þú hafrr vilað
þetta frá öndverðu, og þú spillir
bara fyrir sjálfum þér. Betra er
að hugsa afleiðingarnar vand-
lega út, áður en þú hefst handa.
— Ég er búinn að hugsa nægi*
lega mikið um þær. Ég verð að
leggja á hættuna. Hann reif sig
lausan. — Verið þið hérna kyrr,
öllsömun.
Hann gekk út og skellti á eftir
sér hurðinni. Við hlustuðum á
hann stika niður eftir stígnum.
Við gerðum enga tilraun til að
horfa á hann né heldur að
stöðva hann. Gluggatjöldin voru
enn fyrir, og það var rét-t að
byrja að birta.
Eftir stundarkorn heyrðum við
þrusk, eins og verið væri að
grafa, bak við hlöðuna — rétt
við kjúklingagarðinn, þennan
dheillastað, sem sjálfur virtist
fullur af draugum.
Brad var í burtu tæpar fimm
mínútur. Hann kom inn aftur,
þunglamalegur og með viðhjóðs-
svip á andlitinu — sendi okkur
eitt eymdar augnntillit, gekk svo
beint að simanum og hringdi.
Enn leið mínúta áður en svar-
að var.
— Dick, sagði hann og var hás.
— Ég hef fundið hana!
18. kafli.
Kl. 1.40 e.h.
— Jæja þá.... sagði Kerry,
meðan við vorum að burðast við
að borða morgunverð. — Jæja,
ég get að minnsta kosti ekki hugs
anlega farið nú, úr því sem kom-
ið er ....
Atvinna
Ungur piltur með áhuga á hljómlist og
hljómplötum getur fengið atvinnu nú
þegar í Hljómplötudeild okkar. Upplýs-
ingar á skrifstofunni að Laugavegi 24.
FÁLKINN HF.
❖
bfiRElLOS*
sisters
skemmta í hléinu.
BINGÓ!
IViÁIMIJDAG 6.
KL. 8.30
Glæsilegasta kjörbingó ársins. Vinningar af 3 borðum.
Aðalvinningar eftir vali:
Nilfisk ryksuga og grillofn — Stokvis-ísskápur,
9,5 Cubícfet eða skatthol og armstóll eða vöru-
úttekt fyrir 12 þús.
F. F.
MÁIMIJDAG 6.
KL. 8.30
Meðal vinninga:
12 m. kaffistell.
Gundaofnar.
Hárþurrkur.
Rafmagnsrakvélar
Brauðristar.
Pottasett.
o. m. fleira.
Borðpantanir á morgun í
síma 35936 eftir kl. 4.
LIDO