Morgunblaðið - 05.03.1967, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. MARZ 1967.
31
Útför séra Sigurðar Einarssonar i Holti yar gerð i fyrradag.
Um morguninn var kveðjuatliöfn í Dómkirkjunni í Reykjavík,
en síðar um daginn var séra Sigurður jarðsettur að Breiða-
bólstað í Fljótshlíð. Á myndinni er verið að bera kistu hins
látna úr kirkju að Breiðabólstað. Fjölmenni var við báðar
athafnirnar. (Ljósm.: Ottó Eyfjörð).
Oarrison heidur
yíirheyrslum áfram
Fjórir hafa verið kvaddir til sak-
sóknarans, einn þeirra sakaður um
cðild að morðinu á Kennedy
New Orleans, 4. man (AP). [
JIM Garrison, rikissaksóknari |
i New Orleans, er nú sagður vera
að kanna það hvort Lee Ilarvey \
Oswald, sem sakaður var um;
morðið á Kennedy forseta, hafi í
ekki verið einn af eigendum
vopnabirgða, sem ríkislögreglan
FBI gerði upptæk i borginni
Lacombe, skammt frá New
Orleans, sumarið 1963.
Kom þetta fram eftir að Garrl-
son hafi lokið fjórðu yfirheyrzl-
unni í þessari viku seint á föstu
dagskvöld. Að þessu sinni yfir-
heyrði hann Dante nokkurn
Marachini, 42 ára starfsmann við
Chrysler Michoud eldflaugasmiðj i
urnar í New Orleans, sem áður
rak krána „Dante's Inferno“ í
franska borgarhlutanum.
Marachini var yfirheyrður í
hálfa aðra klukkustund, en síðan
látinn laus. Skundaði hann á
brott frá skrifstofu saksóknar-
ans, og vildi ekkert við frétta-
menn ræða. Fyrir yfirheyrsluna
fevaðst hann ekkert vita til hvers
hann væri kvaddur á fund
Garrisons, en þegar hann ruddist
gegnum raðir fréttamanna að
fundinum loknum, sagði hann að
eins „Hvað á þetta að þýða. Ég
veit að hér er prentfrelsi, en lát-
ið mig í friði“.
Fyrr í vikunni hafa þrir menn
verið kvaddir til yfirheyrslu hjá
Garrison 1 sambandi við „sam-
særi um að myrða Kennedy for-
seta“, sem saksóknarinn heldur
fram að stofnað hafi verið til í
New Orleans sumarið 1963. Tveir
mannanna voru látnir lausir að
yfirheyrslu lokinni, en sá þriðji,
Clay L. Shaw, var handtekinn og
sakaður um aðild að samsærinu.
Var hann síðar látinn laus gegn
10 þúsund dollara tryggingu.
Sjálfur segist Shaw ekkert um
samsærið vita, og neitar að hafa
þekkt Oswald. Einnig hefur dóms
málaráðherra Bandaríkjanna lvst
því yfir að ríkislögreglan FBI
hafi rannsakað Shaw seint á ár
inu 1963 og komizt að þeirri nið
urstöðu að hann hefði ekkert
verið viðriðinn morðið á Kenne-
dy. Hversvegna mál hans var
rannsakað kemur ekki fram í
yfirlýsingu dómsmálaráðherrans.
Garrison hefur margsinnis lýst
því yfir að undanförnu að hann
muni færa sönnur fyrir því að
um samsæri hafi verið að ræða.
Áður en Shaw var handtekinn,
þurfti saksóknarinn að fá heim-
ild til að gera húsrannsókn hjá
honum. í umsókn sinni um þá
heimild segir saksóknarinn að
hann hafi sannanir fyrir því að
Shaw, Oswald og flugmaðurinn
David W. Ferrie, sem lézt í síð
ustu viku, hafí komið saman í
íbúð Ferries í september 1963, og
samþykkt „að myrða Kennedy".
Eftir yfirheyrsluna í gærkvöldi
skýrði sjónvapsstöð í New Orle-
ans frá því að Garrison væri að
leita að Bandaríkjamanni — öðr-
um en Oswald — sem hann teldi
vera einn þeirra, er áttu vopna- I
birgðirnar í Lacombe. Birgðir |
þessar fundust við leit FBI í
mannlausu húsi þar í borg hinn
31. júlí 1963. Voru þar m.a. 20 ó-
hlaðin sprengjuhylki 48 kassar
af dýnamíti og eldsprengjur.
Sagði ríkislögreglan þá að birgð-
ir þessar hafi átt að
nota til „hernaðarað-
gerða gegn erlendu ríki, sem
Bandaríkin ættu ekki í styrjöld
við“. FBI skýrði einnig frá því að
eigandi hússins, þar sem birgð-
irnar fundust, væri William Jul-
ius McLaney í New Orleans. Haft
var eftir konu hans að þau hjón
in hefðu lánað flóttamanni frá
Kúbu húsið, og sagði hún flótta-
manninn heita Jose Juarez, en
gaf ekki nánari heimildir á hon-
um. Einnig skýrði frúiti þá frá
því að þau hjónin hefðu verið bú
sett á Kúbu þar til árið 1960 að
þau fluttu til New Orleans, vegna
þess að „Castro gerði lifið á Kúbu
óbærilegt".
Frú McLaney var að því spurð
í gærkvöldi hvort Garrison eða
starfsmenn hans hefðu nokkurt
samband haft við hana nýlega
um þetta mál. Svaraði hún því
neitandi, og vildi ekkert um mál
ið ræða við fréttamenn.
Bezt að auglýsa
1 Morgunblaðinu
Hafls er nú á siglingaleið fyrir Vestfirði og í fyrradag tilkynnti Hornbjargsviti að is væri land-
fastur í Látravík. Þessa mynd tók Sigurjón Kristjánsson um borð í Litlafelli í fyrradag og sýnir
hún ísspöngina. Þegar Mbl. hafði tal af Landhelgisgæzlunni í gærmorgun hafði enn ekki gefið
fyrir fiug vestur og því hafði ekki verið unnt að fara í ísskönnunarflug.
Paul Smith, verk-
fræðingur látinn
PAUL Smith, fyrrum símaverk-
fræðingur og stórkaupmaður lézt
í fyrrakvöld 86 ára að aldri, en
hann fæddist hinn 2. marz árið
1881 að Hálogalandi í Noregi.
Paul heitinn lauk verkfræði-
prófi frá Osló árið 1900 og var
verkfræðingur Landsíma íslands
á árunum 1908—’20. Árið 1920
stofnaði hann heildsölufyrirtæki
undir eigin nafni og verzlaði
með rafmagnsáhlöld og sprengi-
efni. Verzlunina rak hann til
ársins 1956. Baul Smith var einn
af stofnendum Verkfræðifélags
íslands, en hann er síðastur
þeirra verkfræðinga, sem unnu
að lagningu landssímans frá
Seyðisfirði til Reykjavikur á sín-
um tíma.
Paul var tvíkvæntur.
Aðalfundur Verkakvenna-
félagstns Framsóknar
- „NOVY MIR"
Framhald af bls. 1
Mennirnir tveir taka nú aft-
ur upp sín fyrri störf, að sögn
talsmanna Novy Mir; Zaks mun
starfa við mánaðaritið „Sovét-
bókmenntir", sem flytur þýðing-
ar á sovézkum ritverkum á er-
lendum málum — en Dementiy-
ev tekur að nýju við kennslu í
heimsbókmenntum við Gorky
stofnunina.
Brottvikning manna þessara
úr starfi er, að sögn fréttamanna
í Moskvu, vísbending um að
„afturhaldssinum" í flokknum sé
að vaxa fiskur um hrygg á ný.
Önnur vísbending um það er
listi, sem birtur hefur verið yf-
ir nöfn þeirra, er til greina
koma við úthlutun Lenínverð-
launanna í listum í ár. Þeirra
á meðal er. Ekaterina Belashova
ritari sovézka listasambandsins,
skáldið Yaroslav Smelyakov, mál
arinn Yuri Pimenov, kvik-
myndahandritahöfundurinn Yev
gený Gabriolovich, kvikmynda-
stjórnandinn Sergei Yutkevic og
dansahöfundurinn Igor Moiseyev
sem stjórnar hinum kunna
Moiseyev þjóðdansaflokki.
Lenínverðlaununum sem eru
mikils metin í Sovétríkjunum,
verður úthlutað 22. apríl n.k.
Þau nema að fjárupphæð 10.000
rúblum, eða sem svarar nær
hálfri milljón íslenzkra króna.
AÐALFUNDUR Verkakvenna-
félagsins Framsóknar var hald-
inn í Alþýðuhúsinu við Hverfis-
götu þriðjudaginn 28. febr. sl.
Formaður félagsins Jóna Guð-
jónsdóttir flutti skýrslu stjórn-
arinnar og skýrði frá starfsemi
félagsins á liðnu ári. Þá minnt-
ist formaður 9 félagskvenna, er
létust á liðnu starfsári, og vott-
uðu fundarkonur þeim virðingu
sína með því að rísa úr sætum.
í félaginu voru um áramót
1668 konur.
Að skýrslu lokinni voru lesn-
ir og skýrðir reikningar félags-
ins og nam skuldlaus eign þess
í árslok 1966 kr. 1.776.987.00 auk
sjúkrasjóð.
Úr sjúkrasjóði voru veittar kr.
431.539.00 og í árslok nema eign-
ir hans um kr. 2.400.000.00.
Ákveðið var, að árgjald skyldi
vera hið sama og á síðastliðnu
ári kr. 700.00
Stjórnin var sjálfkjörin, en
hana skipa: Jóna Guðjónsdóttir,
formaður, Þórunn Valdimarsdótt
ir, varaformaður, Guðbjörg Þor-
steinsdóttir, ritari, Ingibjörg
Bjarnadóttir, gjaldkeri og Ingi-
björg Örnólfsdóttir, fjármála-
ritari. Meðstjórnendur eru þær
Pálína Þorfinnsdóttir og Kristín
Andrésdóttir. Ennnfremur var
stjórn Sjúkrasjóðs endurkjörin,
en hana skipa Þórunn Valdi-
Jóna Guðjónsdóttir og Kristín
Andrésdóttir.
Samþykkt var reglugerð fyr-
ir Orlofsheimilasjóð. Einnig var
samþykkt á fundinum að gefa
til Hallveigarstaða kr. 5,000.00.
(Frá Verkakvennaf. Fram-
sókn).
átt og víða rigning en hiti allt
upp í 6 stig. I dag mun lægðin
vafalaust verða komin norð-
austur fyrir land. Þá ætti að
vera snjókoma á norðanverðu
landinu en léttskýjað á suður-
ströndinni.
I GRÆMORGUN var vindur
tvíátta hér á landi. Á Norður-
og Vesturlandi var NA átt
með snjókomu og frosti, en
við sunnanverðan Faxaflóa og
með suðurströndinni til Aust-
fjarða var suðlæg eða austlæg
UTBOÐ
Elli- og hjúkrunarheimilið Grund óskar eftir tilboð-
um í byggingu 6 einshæða tvíbýlishúsa í Hvera-
gerði. Áætlað er, að framkvæmdir hefjist eins fljótt
og unnt er í vor. Útboðsgögn afhendast á skrifstofu
Elli- og hjúkrunarheimilisins Grund, Hringbraut 50
gegn 2.000.— króna skilatryggingu.
Elli- og hjúkrunarheimilið Grund.
BLAÐBURÐARFÓLK
í EFTIRTALIN HVERFI:
VANTAR
Tjarnagata
Sjafnargata
Baldurgata
Kjartansgata
Lambastaðahverfi
Trlið við afgreiðsluna, sími 22480