Morgunblaðið - 05.03.1967, Blaðsíða 32
Lang stærsta
og fjölbreyttasta
blað landsins
Helmingi útbreiddaia
en nokkurt annað
íslenzkt blað
SUNNUDAGUR 5. MARZ 1967
„Þrútið var loft og þungur sjór“ úti af Vestfjörðum í fyrradag, er Litlafell, olíuskip SlS, var þar
á siglingu. Mikill ís settist á skipið og þurftu skipverjar að berja hann af stögum og köðlum.
(Ljósm.: Sigurjón Kiristjánsson)
Styrkir til I Kópavogur vatnslaus
09 í tæpan sólarhring
starfa
UMSÓKNIR um styrki til
vís'inda- og fræðimanna árið
1967 þurfa að hafa borizt skrif-
stofu Mennfamálaráðs, Hverfis-
götu 21 í Reykjavík, fyrir 1.
apríl n.k. Umsóknum fylgi
skýrsla um fraeðistörf. >es$ skal
og getið, hvaða fræðistörf um-
sækjandi ætlar að stunda á þessu
ári. Umsóknareyðublöð fást í
skrifstofu Menntamálaróðs.
Umsóknir um styrk. sera
Menntamálaráð veitir til náttúru
íræðirannsókna á árinu 1967,
skuiu verða komnar til ráðsins
fyrir 1. apríl n.k. Umsóknum
fylgi skýrslur um rannsóknar-
störf umsækjenda síðastliðið ár.
I>ess skal og getið, hvaða rann-
sóknarstörf umsækjandi ætlar
að stunda á þessu ári. Umsókn-
areyðublöð fást í skrifstofu
Menntamálaráðs.
(Frá Menntamálaráði íslands).
KÓPAVOGSKAUPSTAÐUR og
austurhluti Bústaðahverfis urðu
vatnslaus síðastliðinn fimmtudag
vegna bilunar á 17 tommu pípu
Maður fyrir
mannlausri
bifreið
MAÐUR fótbrotnaði í gær, er
hann varð fyrir mannlausri bif-
reið, sem rann niður Skólavörðu
stíg.
Slysið varð skammt frá Kára-
stíg en þar hafði bifreið verið
lagt í bifreiðastæði vestan göt-
unnar. Hefur hún með einhverj-
um hætti hrokkið úr bremsu, því
að hún rann á ská yfir götuna
og lenti á gangandi manni, sem
var á leið upp Skólavörðustíg.
Hann var fluttur í Landakots-
spítala, og talið er að um fótbrot
hafi verið að ræða.
i skammt frá Ásgarði. Varð þetta
skiljanlega til mikilla óþæginda
fyrir íbúa þessara hverfa þar sem
ekki var hægt að elda mat, þvo
sér, raka sig eða neitt slikt.
Gunnar Pétursson hjá Vatns-
veitunni sagði Morgunblaðinu að
tekið hefði að bera á vatnsskorti
síðdegis á fimmtudag og hann
orðinn alvarlegur um kvöldið.
Var þá strax sendur flokkur
mánna til að leita að lekanunri en
það er ærið starf og ekki auð-
velt. Hann fannst því ekki fyrr
en snemma á föstudagsmorgun
og var þá sendur út allur sá
viðgerðarflokkur sem Vatnsveit-
an hafði yfir að ráða. Lauk við-
gerðinni um fjögur leytið og var
vatn komið á allt svæðið aftur
milli fjögur og fimm. Pípan sem
bilaði er 33 ára gömul og því
léleg orðin. Er ráðgert að leggja
nýja í sumar. Gunnar tók það
fram að fólk hefði verið mjög
skilningsríkt og aðeins örfáir
hefðu hringt til að skammast
vegna bilunarinnar.
íbúðir fyrir öldr-
uð hjón reistar
í Hveragerði
NÚ um þessar mundir er Elli-
heimilið í Hveragerði að aug-
lýsa útboð á byggingu 3ja — 6
húsa, sem reisa á í Hveragerði
fyrir aldrað fólk, og þá sérstak-
lega með tilliti til aldraðra hjóna,
sem að mestu leyti geta bjarg-
að sér sjálf. Áður hafa verið
byggð tvö hús þessarar tegund-
ar, en þau eru þó ekki svo langt
komin að unnt sé að taka þau
til íbúðar enn.
Mbl. hafði tal af Þóri Bald-
vinssyni arkitekt, sem sæti á í
stjórn Elli- og hjúkrunarheimil-
isins Grundar og spurði hann
um málið, en hann hefur haft
umsjón með byggingarfram-
kvæmdum.
Þórir sagði, að eigi væri enn
ljóst hvort reist yrðu 3 eða 6
hús, en það færi að mestu eftir
því hversu hagstæð tilboð bær-
ust. Þegar eru hafnar fram-
kvæmdir við tvö slík hús, en
þau eru þannig að í hverju húsi
eru tvær sjálfstæðar íbúðir fyr-
ir öldruð hjón, sem að mestu
leyti gætu séð um sig sjálf. Öll
húsin eru samkvæmt sömu teikn
ingu, en í hverri íbúð er ein
þægileg stofa, svefnherbergi og
annað lítið herbergi fyrir gest
eða skyldmenni. Þá er og lítið
eldhús fyrir konuna og lítið bað
herbergi.
Þórir gat þess að verið væri
að innrétta eins konar mötu-
neyti í sambandi við Elliheim-
ilið, svo að gamla fólkið þyrfti
ekki nauðsynlega að elda mat
sjálft. Yrði þar unnt að fá mat
við vægu verði. Verði fólkið
hins vegar veikt, er unnt að
koma því á elliheimilið sjáift
þegar í stað.
Elliheimilið á nú um 12 hús I
Hveragerði, sem það notar í
svipuðu augnamiði og ætlunin
er að nota þessi hús.
Farnir til Danmarkshavn
MIKIL snjókoma var í gær-
morgun í Meistaravík og gat Gljá
faxi því ekki farið árla í gær
áleiðis til Danmarkshavn, en
um 11-leytið í gær kom skeyti
frá Ingimar Sveinbjörnssyni,
Aætíun um
„kís'lgúrveginn11
verði
endurskoðuð
Blaðinu hefur borizt eftirfar-
andi frá Hinu íslenzka náttúr-
fræðifélagi.
Aðalfundur Hins íslenzka
náttúrufræðifélags, 25. febrúar,
1967, skorar á Skipulagsstjórn
ríkisins, að endurskoða áætlun
um legu „kísilgúrvegarins“ við
Mývatn milli Revkjahííðar og
Grímsstaða, með það fyrir aug-
um að gætt sé náttúruverndar-
sjónarmiða betur en verið hefur.
Fundurinn telur einnig, að
Þingvallanefnd hafi brugðizt
hlutverki sínu með úthlutun
lóða undir sumarbústaði á þjóð-
garðssvæðinu. Fundurinn telur,
að hlutverk nefndarinnar sé
vendun Þingvalla, svo að þjóð-
garðssvæðið verði varðveitt og
skilað ósnortnu í hendur kom-
andi kynslóða.
| flugstjóra og sagðist hann þá
vera að Jeggja af stað.
Frá Danmarkshavn mun flug
vélin hafa farið í gærdag að
ÖIlu forfallalausu og mun fljúga
til Meistaravíkur með viðkomu
í Danneborg, þar sem hún tek-
ur póst. Flugvélin mun síðan
fara frá Meistaravík áleiðis til
Reykjavíkur í dag og mun hún
þá hafa viðkomu í Scoresby-
sundi. Liggur eflaust mörgum
forvitni á að vita, hvort unnt
sé að bjarga Glófaxa, en það
kemur í ljós við komu þeirra
félaga til Reykjavíkur.
Fundur
Sjálfstæðis-
kvenna í
Kópavogi
Sjálfstæðiskvennafélagið Edda
í Kópavogi efnir til almenns
félagsfundar í Sjálfstæðishúsinu
Kópavogi n.k. þriðjudag 7.
marz kl. 20.30.
Á fundinum verða kjörnir
fulltrúar á Landsfund Sjálfstæð-
isflokksins. Gestir fundarins
verða Axel Jónsson, alþm. og
Gylfi Ásmundsson, sálfræðingur.
Sjálfstæðiskonur í Kópavogi
eru hvattar til þess að fjöl-
menna.
Fjölsóttur hádegis-
verðarfundur Varðar
LANDSMÁLAFÉLAGIÐ Vörður
efndi til hádegisverðarfundar í
SjálfstæðiShúsinu í gær og er
það nýjung í starfi félagsins.
Bjarni Benediktsson, forsætis-
ráðherra, flutti stutta ræðu á
fundinum og vakti m. a. at'hygli
á því, að íslendingar hefðu um
aldamótin veTÍð langt aftur úr
öðrum þjóðum, en hefðu nú náð
því marki að annarra mati að
vera í fremstu röð, bæði að því
er snertir þjóðartekjur á mann
og fjármunamyndun.
Forsætisráðherra svaraði fyrir-
spurnum að lokinni ræðu sinnL
Fundur þessi var mjög fjöleót.tur
ig er greinilega vinsæl nýjung í
starfi Varðar.