Morgunblaðið - 11.03.1967, Page 2
2
MORGUNBLAÐXÐ, LAUGARDAGUR 11. MARZ 1967.
Sjómannafélagið efnir
til Bingós að Sögu
— til styrktar muna£arlau$um börnum
Á SUNNUDAGSKVÖLD gengst
skemmtinefnd Sjómannafélags
Reykjavíkur fyrir bingó í Súlna
sal Hótel Sögu.
Öllum ágóða af bingókvöldi
þessu verður varið til að styrkja
munaðarlaus börn og þau er búa
við erfiðar aðstæður til sumar-
dvalar í sveit á komandi sumri.
Fulltrúaráð Sjómannadagsins
1 Reykjavík og Hafnarfirði hef-
ir undanfarin sumur rekið sum
ardvala'heimili fyrir slík börn.
Á heimili þessu hefir daggjaldi
verið stillt mjög í hóf og alireí
verið hærra en hjá Rauða Krossi
íslands. Þrátt fyrir það er vit-
að um mörg börn, sem ekki hef-
ir reynzt unnt að koma til sum-
Kvenlélng Ás-
- prestakolls
ardvaiar á heimili þessu, vegna
fjárhagserfiðleika á heimiium
barnanna.
Sum þeirra félaga, sem að Sjó-
mannadeginum standa, hafa þó
lagt fram fé og greitt dvalar-
kostnað nokkurra slíkra barna.
>á hefir Kvennadeild Slysa-
varnafélagsins í Reykjavík varið
ágóðanum af kaffisölu sinni á
Sjómannadaginn í sama skyni
og greiddu þær t.d. dvalarkostn
að sjö barna á síðastliðnu sumri.
Bingó Sjómannafélags Reykja
víkur hefst kl. 20.30 á sunnu-
dagskvöld og verður fjöldi glæsi
legra vinninga á boðstólnum, svo
sem vetrarferð með Gullfossi,
hringferð fyrir tvo með Esju
og mörg glæsileg heimilistæki.
Stjórnandi verður Baidur Hólm-
geirsson. :
Að lokum verður dansað til kl.
eitt eftir miðnætti.
Slysavarnakonur bera fram gó ukaffi sitt.
Cácbaili h*á Slysa-
varnarhonum
Á MORGUN, sunnudaginn 12. þ.
m., verður hið árlega og vel-
kynnta Góukaffi Kvennadeildar
Slysavarnafélags íslands í
Reykjavík i Súlnas'al Hótel Sögu
og hefst klukkan hálfþrjú sd.
Hlaðborð með kræsingum mikl
um, kökum og smurðu brauði,
verður á boðstólnum að venju.
Nú verður sú nýbreytni tekin
upp að ýmsir skemmtikraftar
koma fram meðan setið er undir
borðum. Tvöfaldur karlakvart-
ett syngur, Karl Einarsson
skemmtir með gamanþætti og
þrír ungir piltar úr Kópavogi
syngja og leika á hljóðfæri.
Allur ágóði að kaffisölunni
rennur nú sem fyrr til hinnar
margháttuðu starfsemi Slysa-
varnafélags íslands og treysta
konurnar nú sem endranær á
góðar undirtektir borgarbúa um
leið og þær þakka þeim þeirra
ágæta stuðning á liðnum árum.
♦
ÉG Vil leyfa mér að vekja at-
hygli á því, að á morgun, sunnu-
daginn 12. marz, mun Kvenfélag
Ásprestakalls hafa kaffisölu í
Safnaðarheimili Langholtssókn-
ar, Sólheimum 13, að lökinni
guðsþjónustu, sem hefst kl. 2.
Fyrir ári hafði kvenfélagið
einnig veitingar á boðstólum á
sama stað fyrir kirkjugesti og
aðra eftir messu og fram eftir
degi og var mjög fjölmennt.
Gerum við okkur þess vegna
nú vonir um, að sóknarbörn og
aðrir þeir, sem styrkja vilja starf
semi Kvenfélags Ásprestakalls,
komi til messunar og drekki síð-
an kaffi hjá konunum.
Grímur Grímsson.
Saigon, NTB — Sprengjuflug
vélar af gerðinni B-52 gerðu
í dag miklar árásir á stöðvar
Viet Cong í S-Vietnam, sern
svöruðu með því að beita
sprengjuvörpum gegn bæki-
stöð Bandaríkjamanna í Me-
kongósunum sunnan Saigon.
Viðskiptavinir þyrptust í verzlunina þegar hún var opnuð i
gærmorgun. — Myndirnar tók Sigurgeir Jónasson).
Vínbúi í Vestamannaeyjum
eftir 13 ára héraisbann
VESTMANNEYJUM, 10. marz: I áfengi til útsölu Áfengisverzlun- I
__ Þriðjudaginn 7. marz kom ar ríkisins í Vestmannaeyjum,
Herjólfur með um sex tonn af I sem opnuð er í dag, og 9. marz j
Starfsmenn útsölu ATVR í Ve.itmannaeyjum koma vínbirgðun-
um fyrir í verzluninni.
kom skipið aftur með svlpað
magn. Nú flytzt vínafgreiðslan
hér í Vestmannaeyjum á einn og
sama stað, í verzlun þá, er
Áfengisverzlun rikisins opnar
hér, en áður var það að mestu
leyti Pósthúsið og afgreiðsla
Flugfélags íslands og Herjólfs,
sem afgreiddu áfengið, og þá að
undangengnum skeytasending-
um eða símtölum við ÁTVR í
Reykjavík.
Húsnæði verzlunarinnar er 270
ferm, teiknað af Hjalta Geir
Kristjánssyni. Búðarinnréttingu
smíðaði Kristján Siggeirsson,
Reykjavík, en Smiður hf., Vest-
mannaeyjum, sá um alla upp-
setningu. Málningu annaðist
Tryggvi Ólafsson og raflagningu
Har. Eiríksson hf., Vélsmiðjan
Þór kom fyrir öryggisútbúnaði í
verzlunarhúsinu. Fastir starfs-
menn verða þrír, en fyrstu dag-
Frra eftir- opnun verða tveir van-
ir afgreiðslumenn úr Reykjavík
þeim til aðstoðar.
Nokkur eftirvænting ríkir hér
um slóðir eftir því hvort breyt-
ing verði til hins betra eða verra,
en sitt sýnist hverjum a. m. k.
nú. svona að þessu óreyndu eftir
jafnlanga lokun. En héraðsbann
hefur verið 1 gildi í þrettán ár
hér í Vestmannaeyjum.
— Fréttaritari.
Ósigur brezka
verkamannaf!.
Missir mikið fylgi og eitt þingsæti
í þremur aukakosningum
London, 10. marz — NTB-AP , sigraði í Pollockkjördæmi í Glas
BREZKI Verkamannaflokkurinn gow og vann það af Verkamanna
tapaði einu þingsæti í auknakosn flokknum, sem sigraði í hinum
ingum, sem fram fóru í gær og í almennu þingkosningum í fyrra
tveimur öðrum kjördæmum með 1.975 atkvæða mun fram
minnkaði meirihluti hans stór- yfir íhaldsflokkinn. Frambjóð-
lega. Brezka stjórnin bíður andi íhaldsflokksins hlaut nú
þetta mikla fylgistap nú, þegar 14.270 atkv. en frambjóðandi
í fyrsta sinn reynir á afstöðu Verkamannaflokksins 12.0G9.
kjósenda frá því að flokkurinn Frambjóðandi skozkra þjóðernis
vann hinn mikla kosningasigur j sinna kom mjög á óvart með að
sinn í fyrra í almennum þing- hljóta 10.884 atkv.
kosningum. | Verkamannaflokkurinn hélt
Meiri hluti Verkamannaflokks þingsæti sínu í Nuneaton í Mið-
ins í Neðri deild brezka þings- j Englandi og hlaut hann 4.054
ins er nú 93 þingsæti en var 97 j atkv. fram yfir næsta frambjóð-
etfir kosningarnar í fyrra. Auka anda í stað 11.403 atkv. mun í
kosningarnar í gær fóru fram í fyrra.
þremur kjördæmum, í Englandi, j Þá hélt Verkamannaflokkur-
Skotlandi og Wales. Úrslit þeirra inn einnig þingsæti sínu í kjör-
eru talin eiga rót sína að rekja dæminu í Wales með aðeins
til sparnaðarráðstafana ríkis- 1 2.301 atkv. umfram næsta fram-
stjórnarinnar, sem leitt hafa til bjóðanda í strð 16.888 atkv. mun
þess, að meira en 600.000 Bretar í fyrra. Welski þjóðernissinna-
eru orðnir atvinnulausir. | flokkurinn fékk næst flest atkv.
Frambjóðandi íhaldsflokksins , eða 10.067.
UM nónbilið var A- og NA- Vestfjörðum og él við norð-
átt hér á landi, 10 vindstig í ur- og austuströndina, annars
Æðey og Vestmannaeyj um, staðar úrkomulaust.
en víðast 5—7 vindstig. Hiti Lægðin suður af ' landinu
var nálægt frostmarki, kald- þokaðist N-A á bóginn, svo
ast 3ja stiga frost í Grímsey. að norðaustlæg átt ætti að
Snjókoma var norðan til á verða í dag.