Morgunblaðið - 11.03.1967, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. MARZ 1967.
BÍLALEICAN
FERÐ
SÍMI 34406
Daggjöld kr. 300,00
og kr. 2,50 á ekinn km,
SENDUM
MAGNÚSAR
SKIPHOLTI 21 SÍMAR 21190
eftir lokun simi 40381
siw j-44-44
\mum
Hverfisgötu 103.
Sími eftir lokun 31160.
LITLA
bílaleignn
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald.
Bensin innifalið i leigugjaldi.
Sími 14970
BÍLALEIGAN
VAKUR
Sundlaugaveg 12. Sími 35135.
Eftir iokun 34936 og 36217.
rj==»B/iAir/SA0
RAUOARARSTÍG 31 SlMI 22022
22-1-75
^ Skíðaskálinn
Forstjórinn í Skíðaskélan
um kom að máli við Vel’vak-
anda vegna bréfs, sem birtist
hér á dögunum. Sagði hann
að yfirleitt gengi afgreiiðslan
hjá 'honuim snurðulaust og án
allra tafa og gætu mienn verið
öruggir um fljóta og góða þjón
ustu — þó með örfáum undan-
tekningum.
I>egar vel viðraði á sunnu-
dögum væri þröng á þingi einn
til tvo klukkufcíma um miðjan
daginn. Ef hann ætti að miða
mannaráðningaor við veitinga-
söluna við þennan örstutta tima
yrði starffólkið allt of margt.
Ekki væri hægt að fá fóik
aukalega á sunnudlögum nema
þá að borga því fyrir allan dag
inn — og þessi skorpa siðdegis
á sunnudögum stæði alls ekici
undir slíkum aukakostnaði
'k Arfur
Sagt var frá því hér í
blaðinu í vikunni að fcvö hundr
uð þúsund dala arfur (átta og
bálf milljón króna )'bíði þeirra,
sem sannað gætu tilveru sálar-
innar og brotfchvarf hennar úr
líkamanum við dauðann. I>að
var Bandaríkjamaður sem hét
þessari upphæð þeim, sem
fyrstur yrði að sanna þetta.
Er ekki einlhver hérlendis,
sem telur sig geta notað átta
og hálfa milljón?
Osturinn
Ný ostagerð er tekin til
starfa í Hveragerði Framleiðsl
an er væntanleg á markaðinn
einhvern næstu daga. — Á und
anförnum árum hefur margt
nýtt komið frá mjólkurbúum
landsins — nýjungar, sem fólk
hefur kunnað vel að meta.
Samt hefur samkeppnin aldrei
verið allt of hörð milli mjólk-
urbúana og í því sambandi má
minnast ráðstafana þeirra, sem
gerðar voru, þegar hæfct var að
selja smjörið með merki hvers
mjólkurbús um sig — og farið
var að blanda því öllu saman
undir einu merki.
Ef tilkoma hinnar nýju
mjólkurstöðvar í Hveragerði
skapar meiri samkeppni á
þessu sviði en verið hefur
hljóta neytendur að vera
ánægðir, því eðlileg samikeppni
leiðir jafnan til aukinnar og
bættrar þjónustu við almenn-
ing. Um það eru dæmin nógu
mörg.
Skíðaferðir
í dag hefst skíðalands-
mót unglinga. Vonandi verður
þetta öllu ungu fólki hvatning
til þess að stunda skáðaíþrótt-
ina meira og betur. Skiðaíþróct
in er fyrir allan fjöldann. Hún
er eins og sundið, skemmtileg
og holl öllum — hvort sem
þeir kunna mikið eða lítið —
eða hreint ekki neitt (þótt slíkt
geti að vísu komið sér illa í
sundi).
'bað þarf að hvetja lands-
menn enn meira til þess að
njóta fjallanna og útiverunnar
á skíðum, þegar vel viðrar til
skiðaiðkana. JÞessi íþrótt er
ekki sízt mikilvæg fyrir inni-
setufólkið.
Veiðimenn og
bændur
Allar gælur við sport-
veiðimenn eru óþarfar“, sagði
Búnaðarmálastjóri á Búnaðar-
þingi — og þá vitið þið það,
sportveiðimenn. Annars skilst
mér að veiðimenn hafi gælt
meira við bændur en hinir síð-
arnefndu við veiðigarpana. All-
ir vita að veiðiréttur og leiga
á veiðiám er orðin óhóflega há
— og ef það eru ekki eigendur
veiðiréttar, sem fá tekjurnar —
þá hverjir?
Ég hef ekki kynnt mér nán-
ar hvað rætt var um á Búnað-
arþingi, í hvaða tilviki gælur
við veiðimenn komust á dag-
skrá. Sjálfur er Velvakandi
ekki haldinn veiðidel'lunni (sem
betur fer) því honum er sagt,
að það sé dýrasta della, sem
menn geti fengið miðað við af-
rakstur — og segja þó sumir að
ýmsar aðrar dellur geti kostað
peninga — svo sem bíladella.
t>eir, sem veiðirétt eiga í
ám, er fiskur gengur í, ættu
hins vegar að hafa í huga, að
ekki er hægt að spenna bog-
ann endalaust. Mér skilst að
ýmsir ágætir veiðimenn séu að
þreyfcast á að láta hafa sig að
féþúfu — og séu farnir að leita
að annarri góðri dellu, sem
e.tv. gæti losað þá við bann-
setta veiðidelluna.
Einstök hjálpsemi
Og hér er loks bréf frá
Jónínu á Háafelli:
„í haust fórum við nokkur
saman í Landmannalaugar. Vor
um við öllum staðháttum
ókunhug. Er við komum að Jök-
ulgilinu, þá ókum við áfram og
er komið var að bakkanum
hinu megin, sat bíllinn fastur
með framhjólin uþp á bakkan-
um en þau aftari á- kafi í
bakkabrúninni. Þiarna er lausa
möl og ótryggur botn. >að v.ar
engan bíl og enga hjálp að fá,
svo að við urðum bara að bíða
— að við hugðum til morguns
þar sem við vissum að Ferða-
félagið var búið að auglýsa
ferð daginn eftir. En er liða tók
á kvöldið, komu tveir bílar
með drif á öllum hjólum og
annar þeirra hafði „spil“ fram-
an á, svo að nú var okkur borg
ið. Þeir gátu í sameiningu og
með hjálp „spilsins" komið bíln
um okkar á land, en þetta tók
sinn tima og þolinmæði mátti
fólkið sýna, sem var í þessum
bílum.
1 öðrum bílnum voru smá-
börn og roskið fólk og var það
að halda upp á fimmtugs af-
mæli bílstjórans. 1 hinum bíln-
um voru ungir menn, sem ætl-
uðu að veiða þarna einhvers
staðar 1 vötnum yfir helgina.
En margt fer öðruvísi en ætlað
er, því morguninn eftir var
komin úrehellis rigning með
rcJci. Jökulgilið í öirum vexti
svo að nú mátti engu muna að
við kæmumst yfir gilið áðxir
en það yrði ófært. Við slupp-
um með naumindum. Bíllinn
okkar var norðan og austan
við gilið, þar sem það rennur
frá sæluhúsinu svo við áttum
eftir að fara aftur yfir það. En
það var ekki hægt, svo mikill
og breiður var vatnsflaumur-
inn orðinn. í>ví var það ráð
tekið að fara austur eftir
Fjallabaksveg nyrðri og það
var ævintýralegt ferðalag.
Hinir bíiarnir höfðu okkur á
milU sín og veittu okkur alla
þá hjálp og aðstoð sem við
þurftum á að halda á hverju
sem gekk. Oft þurfti að kippa
í og draga yfir stokka og steina,
vatnsflaum og aðrar torfærur
og altaf buldi rigningin og
stormurinn æddi umhverfis
okkur. En mest reyndi á þeg-
ar við fórum yfir syðri Ófaeru.
Það tók þrjá tíma. Þá sýndu
þessir un \u menn í bílnum
Ö-239 hvað í æskunni býr í dag
þó alltaf sé verið að hnýta i
hana. Þeir óðu hvað eftir ann-
að út í til að athuga botninn
og 'koma með línu sem fest var
í bílinn til að draga hann yfir
og allt var þetta sjálfsagt og
velkomið þó að ekki væri þurr
þráður á þeim eftir volkið I
ánni og slagveðrinu.
Sá fimmtugi í bíl G-3707,
hann og hans fólk átti til þá
mestu þolinmæði og biðlund
sem ég hef nokkurn tíma fund
ið hjá fólki. Þau biðu hvað eft
ir annað eftir okkur, þegar
hinn bílinn með „spilið" var að
aðstoða okkur í öllum okkar
vanmætti og veitti hjálp sína
þegar þess þurfti með. Á þessu
gekk frá kL eitt um hádegi og
fram til kL 10.30 að kveldi, að
við kwnum í byggð.
Mig langar til þess, Velvak-
andi minn, að þú segir frá þess
ari hjálpsemi, er okkur var
sýnd þarna til að landsmenn
viti, að til er fólk í landinu
okkar, sem ennþá getur geíið
og fórnað náunganum dýrmæt
um degi, án þes að það sé á
háu kaupi og næturtaxta með
vísitöluuppbótum.
Skilaðu kærri kveðju með
þakklæti fyrir síðast og alla
elskulegheit frá okkur öllum
á M-202.
Með þakklæti fyrir birting-
una, ein af þrettán
Jonína á Háafelli.*1
Bjóðum nú
Kögglaða M.R. kú
blandaða úr nýmöluðum MAÍS og MILONMJÖLI frá
KORNMYLLU M.R.
Auk þess inniheldur blandan RÚGMJÖL, HVEITIKLÍÐ, BYGGMJÖL,
SYKUR, FISKIMJÖL, FÓÐURSALT A og D 3 VITAMÍN.
Mjólkurfélag Reykjavikur
Síminn er 1-11-25.