Morgunblaðið - 11.03.1967, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. MARZ 1»67.
5
Svetlana dóttir Stalíns til USA sem
póiitískur flóttamaður
— Taldi sér ekki Bengur
óhætt í Sovétríkjunum
Washington, 10. marz
NTB-AP
Þ Æ R fregnir bárust frá
áreiðanlegum heimildum
í Washington í gærkveldi
að Svetlana Stalina, dóttir
Jósefs Stalíns, íyrrum ein-
ræðisherra Sovétríkjanna,
hefði beðizt hælis í Banda-
ríkjunum sem pólitískur
flóttamaður. Hafði hún gef
ið sig fram við bandaríska
sendiherrann í Nýju Delhi
í Indlandi fyrir nokkrum
dögum og tjáð honum, að
hún hefði ákveðið að snúa
ekki aftur til Sovétríkj-
anna, þar sem hún teldi
sig í hættu þar í landi.
Frá Nýju Delhi fór hún sl.
miðvikudag til Rómaborg-
ar, að talið er í fylgd starfs
manns sendiráðsins, og
þaðan hélt hún í dag, föstu
dag, flugleiðis til Banda-
ríkjanna. Bandarísk yfir-
völd hafa hvorki staðfest
fregn þessa né vísað henni
á bug.
Talsmaður utanríkisráðu-
neytisins, Robert McCloskey
sagði, er hann var spurður,
hvenær mætti vænta við-
bragða stjórnarvaldanna, að
væntanlega mundi Svetlana
Stalin sjálf gera grein fyrir
fyrirætiunum sínum, er hún
kæmi til Bandaríkjanna eða
einhverjir þeir aðilar aðrir,
sem málið varðaði. Lagði
hann áherzlu á, að hann gæti
hvorki staðfest né borið til
baka fregnina.
Svetlana, senv nú er rúm-
lega fertug að aldri, er dótt-
ir Stalíns af seinna hjóna-
bandi. Eftir fráfall Stalíns
hvarf hún algerlega af opin-
berum vettvangi í Sovétríkj-
unum svo og bróðir hennar
Vassily, sem verið hafði for-
ingi í sovézka flughernum.
Ekki er vitað með vissu um
örlög hans, en óstaðfestar
fregnir herma, að hann hafi
látið lífið í fangelsi eða vinnu
búðum. Aðrar fregnir herma,
að hann sé enn í fangelsi —
í Lubianka fangelsinu í
Moskvu. Annar sonur Stalíns,
Jacob, mun hafa verið skot-
inn í fangabúðum nazista ár-
og eignaðist með honum tvö
börn. Föðurnum féll ekki
tengdasonurinn og neyddi
hana til að skilja við hann.
Næst er talið, að hún hafi
gifzt árið 1951, en ekki er full
ljóst hverjum, sumar fregnir
segja, að það hafi verið son-
ur Andreis Zhdanovs, sérfræð
ings Stalíns í menningarmál-
um, aðrar, að það hafi verið
jé
Mynd þessi af Josef Stalín og dóttur hans Svetlönu
tekin á fyrstu árum heimsstyrjaldarinnar síðari.
var
ið 1045, er hann hafði gert
tilraun til sjálfsmorðs.
Meðan Stalín var enn við
völd var oft minnzt á Svetl-
önu í fréttum og í Moskvu
var fylgzt gjörla með henni
og þeim mönnum, er hún
hafði samband við. t>að gerði
faðir hennar líka og sendi
marga þeirra í fangelsi, ef
honum líkaði ekki við þá.
Meðal annars er getið um
kvikmyndaframleiðanda einn,
sem hafði setið í fangelsi í
nær tíu ár vegna sambands
síns við Svetlönu.
Winston Churchill minnist
í ævisögu sinni á Svetlönu
— hann sá hana árið 1942, er
hann heimsótti Moskvu og tal
ar um hana sem rauðhærða
telpuhnátu, „sem kyssti
pabba sinn blíðlega og hjálp-
aði til við að leggja á mat-
borðið um kvöldið.“
Svetlana giftist f fyrsta
sinn sautján ára að aldri ung
um stúdent Grigorí Morozov
Mikhail Kaganovitch, sonur
kommúnistaforingjans Lazars
Kaganovitch. Hafi Stalín vér-
ið á móti þeim ráðahag í
upphafi, vegna þess að Kaga-
novitch var Gyðingur, en lat-
ið sig og haldið þeim veg-
lega brúðkaupsveizlu, sem
160 gestir sátu.
Síðustu árin hefur Svetl-
ana búið í gráu steinhúsi á
bakka Moskvufljóts — svo-
kölluðu Stjórnarhúsi, þar sem
eru búsettir margir embætt-
ismenn í háum stöðum. í þrjú
ár hefur hún búið með ind-
verska kommúnistanum og
furstanum fyrrverandi, Bri-
jesh Singh, sem lézt í desem-
ber eða janúar sl. Hann var
59 ára að aldri, hafði átt við
vanheilsu að stríða og komið
til Sovétríkjanna sér til
heilsubótar. Þar starfaði hann
sem þýðandi hjá bókaforlag-
inu „Progress“, þar sem
Svetlana vann einnig. Lík
Singhs var rennt í Moskvu,
Svetlana fór þess á leit
þegai' eftir lát hans, en
við sovézku stjórnarvoldin, að
hún fengi að fara með ösku
hans til fjölskyldu hans í
Nýju Delhi. Meðal ættingja
Brijesh Singhs er núverandi
utanríkisráðherra Indlands,
Dinesh Singh. Segir í NTB
frétt í dag, að síðdegis hafi
sovézkur sendiráðsmaður
gengið á fund Dinesh Singlh
og var talið víst, að umræðu-
efnið hafi verið mál Svetlönu.
Eklki var almennt vitað í
Moskvu, að Svetlana væri
gift Indverjanum, en svo mun
þó ha'fa verið. Er haft eftir á-
reiðanlegum iheimildum í
Moskvu, að hún hefði aldrei
fengið fararleyfi og vega-
bréfsáritun hefði þar ekki allt
verið löglegt.
Þegar Svetlana fór frá
Nýju Delhi, mun hún hafa
gengið undir nafninu Allem-
oujeva Allilujeva, — en Nad-
ezjda Allilujeva var nafn
móður hennar, sem fórs't með
voflegum hætti í nóvember
1952. Voru uppi get.gátur um,
að hún hefði verið myrt —
eða framið sjálfsmorð, eftir
að hún hafði sagt manni sín-
um til syndanna fyrir hungrið
og óánægjuna í landinu. Er
sagt, að Stalín hafi svarað
með óbótaskömmum og
nokkru síðar hafi kona hans
fundizt látin.
Fréttamaður NTB í Moekvu
skrifar, að fyrrverandi utan-
rikisráðherra Sovétrikjanna,
Litvinov, segi frá því í endur-
minningum sínum, að móðir
Svetlönu hafi skömmu fyrir
andlátið skrifað henni bréf,
þar sem hún sagði frá grimmd
Stalíns. Þetta bréf hvarf úr
fórum Svetlönu s’kömmu eftir
lát móðurinnar.
Sérfræðingar I Washington
um málefni Sovétríkjanna
segja, að Svetlana Stalina
hafi áreiðanlega geysilega
mikilsverðar upplýsingar um
valdatímabil föður síns. Hún
er málfræðingur, að menntun
og sögð tala ensku mjög vel.
í Sovétríkjunum skildi hún
eftir börn sín tvö. uppkomin,
fimmtán ára stúlku, Ekater-
inu, sem er í framhaldsskóla
og 21 áns son, Josef, sem er á
þriðja ári í læknisfræðinámi.
í tilefni fregnarinnar um
landflótta Svetlönu Stalínu
hefur AP fréttastofan rifjað
upp nöfn nokkurra frægra
Sovétborgara, sem flúið hafa
hið kommúníska þjóðskipulag.
Er þá skemmzt að minnast
sovézka ballettdansarans,
Rudolfs Nureyevs, sem reif
sig lausan frá öryggisvörðum
Kirov-ballettsins frá Lenin-
grad eftir sýningarferð I
FrakklandL Var hann að fara
frá París, er hann hljóp í fang
franskra lögreglumanna og
hrópaði, að hann vildi ekki
fara aftur til Sovétríkjanna og
bæðizt hælist sem pólitískur
flóttamaður.
í ágúst 1946 tók kennslu-
kona, að nafni Oksana Step-
anovna Kasenkina svipað
stökk í New York. „Stökk til
frelsisins“? eins og hún
nefndi það í bók, er hún skrif
aði síðar. Frú Kasenkian, sem
var kennari barna starfs-
manna sovézka sendiráðsins
stökk út um glugga á þriðju
hæð í sendiráðsbyggingunni,
til þess að komst hjá því að
fara aftur heim til Sovétríkj-
anna. Símalínur drógu nokkuð
úr falli ’hennar, en hún slas-
aðist mjög mikið. Hún náði
sér þó nokkurn veginn og
varð bandarískur ríkisborgari
árið 1957. Hún lézt af hjarta-
bilun 24. júlí 1960 í Miami i
Florida.
Ýmsir, se.m flúið hafa frá
Sovétríkjunum hafa flutt með
sér mikilsverðar upplýsingar.
Meðal þelrra er Igor Gouz-
enko, sem starfað hafði við
dulmálslykla sovézku leyni-
þjónustunnar. Hann flúði
ásamt konu sinni úr sovézka
sendiráðinu í Ottawa í Kana-
da 5. september 1945 og veitti
kanadískum stjórnarvöldum
ómetanlegar upplýsingar,
se.m m.a. urðu til þess að af-
hjúpa sovézkan njósnahring
í Kanada. Þær upplýsingar
leiddu einnig til handtöku
sovézkra njósnara í Banda-
ríkjunum og Bretlandi, meðal
annarra Rósenberg hjónanna,
sem voru tekin af lifi í Sing
Sing fangelsinu — Klaus
Fudhs og Alan nunn May,
Gouzenko skrifaði nokkrar
bækur og býr nú undir dul-
nefni í Kanada.
Annar flóttamaður, sem
mikiivægur reyndist vestræn-
um leyniþjónustum var Yuri
I. Nosenko, háttsettur í ör-
yggislögreglu Sovétríkj anna,
sem baðst hælis í Bandaríkj-
unum í febrúar 1964, er hann
við staddur á 17 ríkja afvopn-
unarráðstefnunni í Genf I
Sviss. En annar, Anatolý
Dolnytsin, sem verið hafði
háttsettur í sovézku leyni-
þjónustunni, flúði í ársbyrjun
1962 og haifði með sér mikils
verðar upplýsingar um skipu-
lag njósnastarfsemi Sovét-
manna. Ekki var skýrt frá
flótta 'hans fyrr en 18 mánuð-
um eftir að hann fór frá Sov-
étríkjunum og ekkert er vit-
að hvað hann aðhefst nú. Þá
f-lúði sovézkui vísindamaður,
dr. Mikhail Antonovich
Klooh í nóvember 1961, er
hann sat vísindaráðstefnu 1
Montreal.
Jazzklúbbur R.víkur.
JAZZKL'CBBUR Reykjavikur
hefur sofið um stund, en nú er
hann vaknaður endurnærður
og fullur lífskrafts.
Öllum þeim er jazztónlist
unna má vera það ljóst að
ekkert er hættulegra jazzleikur
um okkar en að fá ekki tæki-
færi til að leika fyrir fólk. Einn
helzti tilgangur Jazzklúbbs
Reykjavíkur er því að tryggja
slíkt jafnframt sem hann fræð-
ir félaga sírva um jazztónlist.
Næstk. sunnudag kl. 1.30 e.h.
▼erður haldinn aðalfundur
klúbbsins í Glaumbæ uppi. Þá
verða félagsskírteini J.R. afhent
í fyrsta sinn. Vonandi láta jazz-
unnendur sig ekki vanta á þenn
*n fyrsta fund ársins. Því á
fjölda félaga byggist styrkleiki
klúbbsins. *
Að loknum venjulegum aðal-
fundarstörfum hefst dagskrá
dagsins.
Fyrst mun leika tríó Carls
Möller. Síðan verður stutt hljóm
plötukynning. Vernharður Linn-
et kynnir píanósnillinginn Earl
Hines. Þá leikur hljómsveit und-
ir stjórn Þórarins Ólafssonar og
er hún skipuð valinkunnum
mönnum.
Fundinum líkur með Jam
sesion, en slíkt hefur ekki heyrst
hér lengi. A þessum fundi verð-
( ur afhent fyrsta tölublað hins
nýja tímarits „JAZZMÁLA“, er
klúbburinn hefur hafið útgáfu
á.
Öllum má vera ljóst að hér
eru stórmerki á ferð í starfi
klúbbsins, hrein endurskipulagn
ing og „jazzsesionir" þær er
klúbburinn gengst fyrir í Glaum
bæ verða með allt öðru og
betra sniði en tíðkast hefur hér.
Hver jazzunnandi verður að
skilja að með því að gerast
félagi í Jazzklúbbi Reykjavíkur
verður hann lóð á vogaskál
þeirri er lyftir jazzlífi okkar til
meiri þroska og gengis.
Húsið verður opnað kl. 12 á
hádegi og verður framreiddur
heitur matur fyrir þá sem þess
óska.
V.L.
LOEWE
, Dælur og dæiukeríi
= HEÐINN =
VÉLAVERZLUN — SÍMI 24260.
- I.O.G.T. -
Svava nr. 23.
Munið fundinn á morgun.
Búumst við myndum frá
grímuballinu.
Jóhann Ragnarsson, hdl.
málflutningsskrifstofa
Vonarstræti 4. Sími 19985.
LOFTUR hf.
Ingólfsstræti 6.
Pantið tíma í síma 1-47-72.
ÞORFINNUR EGILSSON
lögfræðingur
Olíusamlagshúsinu Keflavík.
Opið kl. 1—5 e. h. Sími 1586.