Morgunblaðið - 11.03.1967, Síða 14
14
M U •
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. MARZ 1967.
j Húsin við Lækjargötu eins og
- KJÓLFÖTIN
Framhald af bls. 11
Bjargið henni mömui
Anna Bjarnadóttir dóttir frú
Áslaugar segir svo frá atburð-
um:
— Ég vaknaði við brothljóð
og skildi ekkert í því Ihvað
var að gerast úti í Vonar-
stræti. en um leið finn ég
þau litu út Gömul mynd.
brunalyktina. Ég þýt fram úr
rúminu og mæti þá lögreglu-
þjóni frammi í stofunni. Hann
hafði þá brotið gler í útidyra
hurðinni og sagði að kviknað
væri L Ég sagði bara: „Bjarg-
ið henni mömmu. Hún er uppi
á efsta lofti“. Svo beið ég á
meðan þeir voru að ná í hana
og slappaði svo af, þegar þeir
komu með hana út. Lögregl-
an fór síðan inn og sótti
nokkrar myndir — en ekki
var unnt að fara fleiri ferðir,
eldurinn var orðinn svo magn-
aður.
— Þegar mamma var kom-
in upp í lögreglubílinn sé ég
hvar logarnir koma upp úr
þekjunni, þar sem baðherberg
ið var og von bráðar var allit
alelda.
Þekjan a Lækjargötu 12A er fallin, en hus sera Bjarna stendur enn uppi.
Hús séra Bjarna stendur enn uppi. Lækjargata 12A er fallin og reyk leggur úr bankahúsinu.
Dregur til úrsiita milli
Indiru Gandhi og Desai
Nýju Delhi, 10. marz NTB.
KUMARASWAMY Kamaraj.
forseti Kongressfloklksins ind-
verska, og fleiri forystumenn
hans hafa í dag haldið áfram
tilraunum sínum til þess að miðla
málum milli Indiru Gandhi, for-
saetisráðherra og Morari Desai,
fjármálaráðherra, sem hefur lýst
því yfir, að hann muni bjóða sig
’fram gegn Indiru í embætti for-
sætisráðherra. Endanlega verður
gert út um mál þetta með at-
kvæðagreiðslu á sunnudag, svo
fremi þau hafi ekki komið sér
saman áður. í kvöld var fyrir-
hugaður fundur þeirra Gandhi
og Desai, en litlar líkur taldar á
samkomulagi.
í gærkveldi virtist sem væri
komin málamiðlunar tillaga er
bæði gætu sætt sig við, — en
á síðustu stundu slitnaði upp úr
samningum. í dag lýsti Desai
því yfir, að hann væri staðráð-
inn í því að fara þess á leit við
þingflokk Kongressflókksins, að
hann styddi sig til embættisins
gegn Indiru Gandhi og stuttu
síðar gaf hún út yfirlýsingu, þar
sem sagðh að hún hefði ekki í
hyggju að láta af embætti sínu
nema þingflokkurinn úrskurðaði,
með atkvæðagreiðslu, að svo
skyldi gert. Hún staðfesti jafn-
framt, að fram hefði komið til-
laga um, að Desai yrði varafor-
sætisráðherra ag innanríkisráð-
herra í stjórn sinni, þ.e.a.s. næst
valdamestur maður stjórnarinn-
ar, — en hún kvaðst hafa hafnað
því, þar eð hann fengi þar með
í hendur yfirstjórn allra fylkis-
stjórna.
Desai kveðst vongóður um sig'
ur á sunnudaginn, vegna hrak-
fara flokksins í kosningunum síð
ustu. Þær hafa að vísu orðið
Indiru Gandhi og flokknum mik
ið áfall, en á það er bent, að hún
vann sjálf persónulegan sigur 1
sínu kjördæmi og eru flestir sér-
fræðingar um málefni Indlanda
á því, að hún verði áfram for-
sætisráðherra.
Lælur eitir sig
rúm'ega 100
míllj. dali
New York, 10. marz AP.
í DAG var lesin upp erfffa-
skrá Henrys R. Luce, útgefanda
vikuritanna Time og Life, sem
lézt 28 febr. sl. Lætur hann eftir
sig eignir, er nema meiru en
hundrað milljónum dala og ganga
þær að mestu til ekkju hans,
Claire Booth Luce, fyrrum sendl
herra Bandarikjanna á Italíu og
sona hans tveggja, Henry Luc*
IU og Peter Paul Luce.
- BRUNINN
Framhald af blaðsíðu 1.
það að neinu leyti heldur aðeins
innrétta að nýju.
Innbú bankans mun tryggt
fyrir 4 millj. og vátryggingarmat
er 22—23 millj.
★
Á þriðju hæð var til húsa
Ríkisendurskoðun. Gunnar
Bjarnason, forstöðumaður henn-
ar, tjáði Morgunblaðinu að þeir
hefðu verið að flytja starfsem-
ina. Það hefðu aðallega verið
reikningar ýmissa stofnana, og
bréfasafn, ef' ’ t og bréf sem
þeim hefðu verið send. Lítið
hefði brunnið af reikningum
fyrirtækjanna en hinsvegar
bréfasafnið allt saman og því
yrði töluverð röskun á starfsem-
inni. Hinsvegar tækju þeir fljót-
lega til starfa að Laugavegi 105,
og kæmist hún brátt í eðlilegt
horf.
Á fundi með Rúnari Bjarna-
syni, slökkviliðsstjóra, kom fram
að slökkviliðinu barst tilkynn-
ingin frá Sigþrúði klukkan 5.28.
Var þegar í stað brugðið við með
allt tiltækt lið og farið með fjóra
slökkviliðsbíla og einn sjúkra-
bíl. Á leiðinni kom strax í ljós
að um mjög mikinn eld var að
ræða og gerði varðstjórinn því
ráðstafanir til að fá út allt vara-
lið. Voru það því fimmtíu og sjö
af slökkviliðsmönnum Reykja-
víkurborgar sem börðust við
eldinn auk aðstoðarmanna sem
þeir fengu frá Reykjavíkurflug-
velli, sem komu með tvo bíla.
Eldurinn kom upp í húsi númer
12A sem fyrr segir og þegar þeir
fyrstu bomu að, var það svotil
alelda og eldurinn þegar byrj-
aður að læsa sig í syðri hluta
þess. Lögreglan hafði þá bjargað
út fólki þar. Það var þegar sýnt
að slökkvistarf yrði mjög erfitt
og þar sem vindur var um sjö
stig af austri var óttazt að þau
hús sem í vindátt voru, en það
voru Iðnskólinn gamli, Iðnó og
hús VerzlunarmannaféL Reykja-
víkur. En eldurinn hafði þarna
yfirhönd og kiukkan um átta
voru Lækjargata 12A, 12iB, bak-
hús við 12A og Vonarstræti 2,
brunnin niður að miestu. Var þá
enn talsverður eldur í Iðnaðar-
bankanum sem er.fitt var að kom
ast að. Slökkvistarfinu var að
mestu lokið um klukkan hálf táu,
en haldið var áfram að sprauta
á rústirnar fram yfi-r hádegi. Það
kom og fram á fundinum aff
Þórir Þorsteinsson fyrstur lög-
— með fyrstu lögregluþjónuin
á vettvang.
slökkviíiðið skortir ýmis tæki,
sem hefðu auðveldað baráttu
þess við eldinn í þessu tilfelli.
Þórir Þorsteinsson, lögreglu-
þjónn var einn þeirra fyrstu
sem kom að eldinum, og það var
hann ásamt nokkrum félögum
sem bjargaði frú Áslaugu, ekkju
séra Bjarna út úr húsi hennar.
Þórir var að ijúba vaktinní
og á leið niður á stöð þegar hon-
um barst tilkynning um brun-
ann. Þegar þeir komu að logaði
út úr norðurenda hússins númer
12A. Þórir greip kylfu sína og
brauzt inn í húsið. Þegar þeir
bomu þar inn í gang hittu þeir
fyrir dóttur séra Bjarna og
Áslaugar, sem sagði þeim af
móður sinni en hún hafði her-
bergi í risinu. Þórir þaut upp
stigann inn í henbergi frú Ás-
la-ugar og vakti hana. Komst hún
út við illan leik því að nokbrum
sekúndum eftir að þau koma niff
ur stigann stóð hann í björtu
bálL Þórir bar frú Áslaugu út f
lögreglubílinn og fór svo aftur til
félaga sinna sem þrátt fyrir kæf-
andi og steikjandi hita hlupu
um íbúðina og gripu með sér þá
muni sem þeim litust verðmætast
ir. Þá var það Þórir og félagar
hans Eðvarð Ólsen, Kristinn Ósk-
arsson, Björn Jónsson og Eyjólf-
ur Karlsson, sem björguðu því
sem bjargað varð af málverk-
unum. Þeir gengu svo í næstu
hús og héldu áfram að vekja fólk
og sbjót viðbrögð björgunarlið-
anna forðuðu manrvskaða í þea«-
um mesta bruna sióustu ár«.