Morgunblaðið - 02.04.1967, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. APRÍL 1967.
Bréf iír Viefnamferð
Eftir John Steinbeck
* .fr| Hér í Bankok bera menn höf- breið og björt, eins og þjóð- uðið hátt. Frá gagnkvæmri braut fyrir báta af öllum virðingu er stutt í velþókn- stærðum og gerðum. Herberg un og vináttu. in okkar eru hreint ekki ódýr Segja má, að Thailendingar en verðið er sanngjarnt.
VIÐ fórum flugleiðis frá Sai-
gon til Bangkok, frá Suður-
Vietnam til Thailands. Slík-
ur reginmunur er á öllu svip-
móti þessara borga, að menn
þurfa tíma til að átti sig á
staðreyndum. Við urðum hálf
ringluð og dálítið tortryggin.
Thailendingar eru brosmild,
vingjarnleg þjóð, létt í lund
og þægileg í umgengni. Og
hvers vegna fannst okkur það
svo áberandi? Jú, við komum
frá Suður-Vietnam, þar sem
20 ára stríð hefur hrjáð og
þjakað íbúana, andlega og lík
amlega, ekki stríð þar sem
barizt er frækilegri baráttu,
heldur stríð, sem byggist á
undirferli, mannvígum og
pyntingum. Stríð sem háð er
til að brjóta á bak aftur and-
legt þrek manna, svo að þeir
verði leiðitamir og undirgefn
ir.
Thailendingar heilsast með
því að leggja saman lófana
og lyfta fingurgómunum í
augnhæð. „Wai“ kallast þessi
kveðja. Meðal vestrænna
þjóða mundi þehsi handatil-
burður tákna undirgefni eða
bænagjörð. En hér táknar
hún: „Ég virði þig, ekki vegna
stöðu þinnar heldur vegna
mannlegra eiginleika þinna“.
Og sá sem heilsað er, svarar
kveðjunni á sama hátt. Þetta
finnst okkur góðs viti, og
við metum kveðjuna ef til
vill meira fyrir þá sök, að
við erum nýkomin þaðan
sem tortryggni ræður miklu
fremur ríkjum en gagnkvæm
virðing manna á meðal. Tor-
tryggni og grunur um græzku.
Drengurinn þarna gæti verið
með handsprengju og í þess-
um lokuðu körfum sem mað-
urinn ber í léttinum, gætu
leynzt plast-sprengjur. Þessi
tortryggni á auðvitað ekki allt
af rétt á sér, en þó nógu oft
til að vekja stoðugan grun.
Og þessu ástandi vefur vís-
vitandi verið komið á, til að
brjóta á bak aftur gagn-
kvæma virðingu og þá and-
legu reisn, sem gerir mönn-
um kleift að hugsa sjálf-
stætt, leggja fram spurning-
ar og halda uppi sjálfsvörn.
sem þjóð hafi átt hamingju
að fagna. Þeir eru eina þjóð-
in í suð-austurhluta Asíu,
sem aldrei hefur verið undir-
okuð eða landið gert að ný-
lendu. Þeir hafa orðið fyrir
árásum, en þeir hafa stökkt
árásaraðilum brott, áður en
eyðandi áhrif yfirdrottnunar
eða spilling nýlendustefnunn-
ar náði að festa rætur. „Wai“-
kveðjan „Ég virði þig“ er
þessari þjóð eiginleg vegna
þess, að hver og einn hefur
til að bera sjálfsvirðingu en
hún er grundvallaratriði í
heilbrigðum samskiptum
manna.
Við borð liggur, að okkur
finnist lífsþægindin yfirþyrm
andi hér í Bankok. Við bú-
um í glæsilegri herbergjasam
stæðu á Oriental- hótelinu á
árbökkunum. Reyndar eru
þetta sömu herbergin sem
Somerset Maugham gisti í
sinni tíð. Ef til vill varð það
til þess, að við litum fyrst
Bankok með augum hans.
Herbergin eru stór og búin
öllum þægindum. Á Caravelle
hótelinu í Saigon vorum við í
eins manns herbergi með
tveim rúmum. Þegar síminn
hringdi urðum við að stökkva
yfir annað rúmið til þess að
svara. Ljósin viru svo léleg,
að varla sá handaskil eftir
að dimma tók. Vatnið var
bragðvont, en það var okk-
ur fært af og til í ferhyrndum
ginflöskum. Loftræstiviftan
gerði ýmist að drynja yfir
höfðum okkar með ógnar gný,
þangað til hitastigið var kom-
ið í frostmark, eða stöðvast
algerlega. Þá hljóp rakastig-
ið óðara upp úr öllu valdi,
svo andrúmsloftið líktist engu
frekar en ylvolgri grugguri
hænsnasúpu. Fyrir þessa „dýr
legu“ vistarveru greiddum við
28 dali á dag, auk mútufjár-
ins, sem við urðum að borga
til að komast inn. Eftir sex
vikna dvöl yfirgáfum við
Caravelle-hótelið með álíka
söknuði og menn yfirgefa
Sing-Sing-fangelsið.
Og svo komum við hingað.
Hvílíkur munur. Fyrir neðan
gluggann okkar er stór lysti-
garður og síðan tekur áin við,
Fyrst eftir að hingað kom,
urðum við vör við einhverja
undarlega kennd, sem gagn-
tók okkur. En við gátum ekki
gert okkur nokkra grein fyr-
ir af hverju hún stafaði. Loks
rann upp fyrir okkur ljós.
Hér voru engir skothvellir,
engir ljóskastarar upp í næt-
urhimininn, ekki skothríð úr
vélbyssum eða sprengjubrot.
Þessi undarlega tilfinning
hvarf, um leið og við gerð-
um okkur þetta ljóst. Her-
menn okkar fara í nokkurra
daga leyfi til Bankok eftir
langa og stranga herþjónustu.
Ég hef haft tal af nokkrum.
Þeir segjast líka þurfa tíma
til að öðlast aftur eðlilega ör-
yggiskennd.
Margir hafa orðið til þess
að skrifa um Bankok, um
Buddha-líkneskin og iðandi
lífið í borginni, að ógleymdri
ánni og skurðunum. Ég ætla
ekki að skrifa ferðalýsingu.
Hins vegar skal ég taka það
fram, að ég nýt lífsþægind-
anna, s’em birtist mér í hrein
um rúmfatnaði, nægu heitu
vatni, alúðlegri þjónustu,
kældum drykkjum við ána
breiðu, þar sem lífið geng-
ur sinn gang, Ég hef alltaf
haldið því fram, að hver sá,
sem þykist andvígur lífsþæg-
indum, eða jafnvel munaði,
sé annað hvort illa gefinn eða
lygari. Ég viðurkenni, að
menn þurfa líka að upplifa
hið gagnstæða til þess að
ánægjan verði ekki of hvers-
dagsleg. En við erum á leið-
inni til norður-héraða Thai-
lands, þar sem skæruliðar
kommúnista eru að reyna að
koma á sama ástandi og í
Vietnam. Okkur er sagt, að
þar sé landið hrjóstrugt og
erfitt. Þess vegna njótum við
sællífisins hér í enn ríkara
mæli. Hér er glaðværð og
hljóðfærasláttur, hér getur að
líta kvenlega fegurð dýrindis
silki og gullvefnað, og listi-
legt handbragð á tré og málm
um, og hér sezt sólu handan
við ána og geislar hennar
varpa gullnum bjarma á her-
bergin okkar. Við hljótum
að njóta lífsins.
Ykkar John.
Sovétríkin opna tshafs'eiðina
austur til Síberíu öllum ríkjum
BANDARÍSKA stórblaðið New
York Times hefur það eftir
fréttaritara sínum í Moskvu
(á miðvikudag sl.) að Sovétríkin
hyggist nú opna íshafssjóleiðina
austur til Síberíu norðan Sovét-
ríkjanna, sem tengir Evrópu og
Asíu, öllum ríkjum.
' Sjóleið þessari um íshafið er
nú orðið haldið opinni 150 til 160
daga á ári og styttir mjög alla
flutninga milli N-Evrópu og N-
Asíu. Frá sovézku hafnarborg-
nni Arkangelsk á norðurströnd
Sovétríkjanna í Evrópu og til
Vladivostok við Kyrrahafið er
vm 6.500 sjómílna leið sé farið
norðurleiðina, en sé farið suður-
leiðina um Súez-skurðinn leng-
ist hún um allan helming og er
sem næst 15.000 mílur.
Sovétríkin telja siglingaleið
þessa innanríkisfarveg þar sem
mikill hluti hennar liggur innan
12-mílna landhelgi Sivétríkjanna
og öll not af henni eru háð að-
stoð sovézkra ísbrjóta og hafn-
armannvirkja á landi meðfram
leiðinni. Fyrr á árum var leið
þessi ekki fjölfarin enda lokuð
langmestan hluta ársins.
Fyrir 1960 var þó farið að
halda henni opinni í 90 til 100
daga og síðar er öflugri ísbrjót-
ar komu til sögunnar, þ. á m. ís-
brjóturinn „Lenin“, sem er knú-
inn kjarnorku. lengdist enn sá
tími sem leiðinni varð haldið
opinni og er nú allt að 160 dagar
á ári eins og áður sagði. Það
fylgdi frétt þessari í New York
Times að Sovétríkin myndu að
sjálfsögðu krefjast gjalds fyrir
afnot af siglingaleiðinnL
Hafnarfjörður
FUS STEFNIR heldur fund í
Sjálfstæðishúsinu þriðjudaginn
4. apríl kl. 20,30. Kosnir verða
fulltrúar á Landsfund Sjálfstæð-
isflokksins. Guðmundur H. Garð
arsson, viðskiptafræðingur flytur
erindi, er hann nefnir: Frauntíð
íslenzks fiskiðnaðar.
Síðastaliðinn föstudag var leiksýning á „Loftsteininum“ eftir
svissneska leikritaskáldið Diirrenmatt í Þjóðleikhúsinu. Var sýn-
ingin í tilefni 40 ára leikafmælis Vals Gíslasonar leikara, sem
var hylltur að lokinni sýningu. Á myndinni hér að ofan er
Brynjólfur Jóhannesson að ávarpa Val fyrir hönd Félags ís-
lenzkra leikara. (Ljósm. Óli Páll).
Joan Littlewood og
Dario Fo koma í vor
Munu flytja fyrirlestra d norræna leik-
stjóranámskeiðinu í Þjóðleikhúsinu
NÁMSKEIÐ fyrir unga, norr-
æna leikstjóra, svonefnt Vasa-
námskeið, verður haldið hér í
í Þjóðleikhúsinu dagana 25. maí
til 2. júní. Námskeiðið munu
sækja 40 ungir Ieikstjórar frá
hinum Norðurlöndunum og um
10 íslenzkir.
Guðlaugur Rósinikranz, þjóð-
leiklhússtjóri, tjáði Morgunblað-
inu í gær, að á námskeiðinu yrði
fjallað um nútíma vinnubrögð
leikstjóra og leikara. Æfingar
og fundahöld muni fara fram í
Lindarbæ, en umræðufundir
verða í LeikJhúskjallaranum á
kvöldin.
Kvað hann leikrit Halldórs
Laxness, Prjóastofuna Sólina,
verða sýnt sérstaklega fyrir
þetta náimskeið.
Ýmsir þekktir erlendir leik-
stjóiar flytja fyrirlestra á nám-
skeiðinu. Sagði þjóðleiiklhús-
stjóri, að meðal þeirra yrðu Joan
Littlewood, sem er einn þekkt-
asti leikstjóri Breta og fræg fyr-
ir nýtízkulegar uppsetningar,
Dario Fo frá Ítalíu, einnig þekkt
ur leikstjórr og leikritalhöfund-
ur, svo og bandaríski leikstjór-
inn Sohneider, sem þekktur er
fyrir starf sitt við leiklhús á
Broadway og New Yonk.
Námskeiðið er haldið á vegam
Vasa-nefndarinnar, en að hen.ni
stendur Norræna leikíhússam-
bandið.
Þjóðleikhússtjóri sagði, að
umsóknarfrestur um þátttöku í
námskeiðinu hefði runnið út 1.
apríl og hefðu 20 íslenzkir leik-
stjórar og leikarar sent uimsókn-
ir.
Kópavogur
FULLTRÚARÁÐ Sjálfstæðis-
félaganna í Kópavogi heldur
fund í Sjálfstæðishúsinu miðviku
daginn 5. apríl kl 20.30. Fundar-
efni 1. Kosning fulltrúa á lands-
fund Sjálfstæðisflokksins. 2.
Ræða Ingólfur Jónsson samgöngu
málaráðherra.
—SVÍAR OG FINNAR
Framhald af bls. 1
fram sem ein heild í Kennedy-
viðræðunum, hefði mun meira
tillit verið tekið til þeirra, af
þeirri einföldu ástæðu, að sem
heild væru þau markaður, sem
keypti meira af Efnahagsbanda-
lagslöndunum, en Bandaríkin og
Kanada sameiginlega og nær
tvöfalt meira en Bretland. í lok
ræðu sinnar sagði Poul Hartl-
ing:
„Höfum við nú vilja og ein-
ingu til að ganga á móti Evrópu
og veita okkur þann styrk og
áhrif, sem eining okkar mundi
skapa? Eða er það ofvaxið getu
okkar, að leysa þetta verkefni,
sem að vísu er stórt, en eng-
inn hindrar okkur í að leysa
nema við sjálfir“?
Eino Siren, hinn nýkjörrti for
seti Norðurlandaráðs, lagði einn
ig áherzlu á markaðsmálin 1
ræðu sinni og er ljóst, að þau
munu verða mjóg á dagskrá á
þessum fundi.
Þá eru hér einnig áheyrnar-
fulltrúar frá Landssamtökum
ungra sjálfstæðismanna, fram-
sóknarmanna og jafnaðar-
manna, þeir Arni Grétar Finns
son, Björn Teitsson og Geir
Gunnlaugsson og ennfremur af
hálfu Norræna félagsins þeir
Einar Pálsson og Jón E. Ragn-
arsson.
í dag klukkan þrjú hefjast al-
mennar umræður og standa þær
í dag og á morgun, en eftir
helgina starfa nefndir. Sú nýj-
ung er upptekin að þessu sinni,
að sérstakur fyrirspurnatími
verður í upphafi fundar í dag
og eiga meðlimir Norðurlanda-
ráðs þá kost á þvf að beina fyr-
irspurnum til ráðherra. Mun
Sigurður Bjarnason stjórna
þeim fundi.