Morgunblaðið - 02.04.1967, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. APRÍL 1967.
3
Sr. Jón Auðuns dómprófastur:
STÆRSTI
SIGURHÁTÍÐ kristninnar er
okkur enn í huga. Við skulum
skoða í dag stærsta sigurinn,
sem Kristur upprisinn vann, af
drifaríkasta sigurinn, sem hann
hefir fyrr og síðar unnið.
Ekkert mátti sýnast vonlaus-
ari fjarstæða en það, að ætla
sér að vinna fyrir kristindóm-
inn rammasta andstæðing og hat
ursmann kristninnar, hinn unga
mann, hálærðan í guðfræði Gyð
inganna, Sál frá Tarsus.
Með vegabréf æðsta prestsins
1 höndum er hann á leið til Dam
askusborgar. Og erindi hans er
að handtaka kristna menn þar í
borginni og færa þá í böndum
til Jerúsalem. En úti fyrir borg-
arhliðum stöðvar hinn upprisni
SIGURINN
þennan volduga andstæðing sinn.
Úr ljóshafi, sem vitruninni
fylgdi, heyrir Sál rödd segja:
,,Sál, Sál, hví ofsækir þú mig? —
Ég er Jesús, sem þú ofsækir".
Sleginn blindu er Páll leidd-
ur inn í borgina. í>ar bíður hans
annað undur:
A bænastund sér hann sýn
sér ókenndan mann, heyrir að
hann heiti Ananías, og ennfrem
ur það, að þessi maður muni
koma og leggja hendur yfir
hann, og þá muni hann fá sjón-
ina aftur.
Og á sumu stund fær Ananías,
sem er kristinn maður í Dam-
askus, vitrum um það, að hann
eigi að leita uppi í nafnkenndri
götu í borginni mann, sem heiti
Sál og sé frá Tarsus, og leggja
yfir hann hendur, að hann fái
sjón sina aftur.
Öllu fer þessu fram eins og
vitrunin segir fyrir um. Eins
og næri má geta verður þetta
til þess að sýna Páli enn betur
fram á sanngildi vitrananna.
Óvæntari liðsmaður gat
kristnu söfnuðunum ekki kom-
ið, og þó var öllum hulið enn,
hver óhemju boðberi þessi gáf-
aði ungi maður átti eftir að
reynast.
Sinnaskipti Sáls eða Páls
eins og hann var kalaður eftir
að hann varð kristinn, komu
kristnum mönnum svo gersam-
lega á óvart, að þeir ætluðu
ekki að fást til að trúa þeim.
Þeir þekktu hann af svo
grimmilegum ofsóknum gegn
kristninni, að þegar hann leit-
aði á náðir þeirra, hrakinn úr
samfélagi fyrri samherja, ætl-
uðu þeir ekki að þora að veita
þessum voðalega manni við-
töku.
Á svo gagngerum sinnaskipt-
um manns með skapgerð Sáls
frá Tarsus, ætluðu þeir ekki að
geta áttað sig.
Sagan af vitruninni fyrir
borgarhliðum Damaskus sýnir,
að engan trúnað hefir Páll lagt
á sögurnar af upprisufyrirbrigð
unum í Jerúsalem. Sumar þær
sögur hefur hann vafalaust
heyrt, en engan trúnað hefir
hann lagt á þær.
Nákvæmlega eins hafði post-
ulunum farið fyrr. Lærsveinarn-
ir trúðu ekki upprisunni fyrr en
þeir urðu vottar að henni sjálf-
ir. Allir þessir menn eiga sam-
merkt um það, að þeim nægði
ekki vitnisburður annarra. Og
allir sannfærðust þeir af fyrir-
bærum sem þeir sannreyndu
sjálfir, voru þeim fullkomlega
raunveruleg og yfir allan 'efa
hafin.
Þetta gleymist undarlega oft,
þegar um upprisuna er rætt.
Sannfæringin byggðist á upp-
hafi á staSreyndum, sem vottarn
ir voru óhagganlega vissir um
að hafa sannreynt.
Og þannig sannfærðist Páll.
Það var Kristsvitrun, sýn, sem
kom fyrir hann vitinu.
Bréf hans sem varðveitl
eru í Ntm., og þó einkum Post-
ulasagan, sem rituð er af nán-
asta samverkamannd PáJ*.
„lækninum elskaða" Lúkasi,
sýna að eftir þetta veittust Páli
aðrar vitranir. Þær nærðu trú-
artraust hans. Þær færðu honum
dýrmætan styrk þegar vegur-
inn var honum hvað erfiðast-
ur. Þær færðu honum rósemi
og frið í mannraun og lííslháska
á hafi um vetur.
Og svo halda nýtizku guð-
fræðingar. að þeir vinni •
kristindómnum gagn með þvi
að „afklæða hann goðsögninni",
eins og þeir kalla það, og lim-
lesta Ntm. með því að strika
út úr því allir hið yfirvenju-
lega.
Ég held, að engurn geti
blandazt hugur um, að það
hefði Páli postiula þótt hláleg
guðfræði.
Með þvi að vitrast honum á
veginum við Damaskus, vann
Kristur upprisinn stærsta sig-
urinn fyrr og síðar.
UR VERINU
EFTIR EINAR SIGURÐSSON
Reykjavík
Tíðin var skapleg alla síðustu
viku og ágæt síðari hluta henn-
ar. Róið var alla daga.
Afli í net var mjög rýr, hvað
skást var við Jökulinn, 10—12
lestir í róðri. Fyrir innan Faxa-
dýpi var aflinn ekki nema 5—10
lestir.
Það styðzta, sem bátarnir
sækja, er 3—4 tíma sigling.
Fisks hefur ekki orðið vart
enn í grunnbugtinni.
1300 lestir bárust að af loðnu.
Afli hefur verið rýr hjá tog-
urunum undanfarið, og hefur
sjálfsagt miklu ráðið um það, að
tið var vond.
3 togarar lögðu á land afla
sinn í vikunni, Jupiter 340 lestir,
Þorkell máni 120 lestir og Sag-
itta, þýzkur togari, 35 lestir.
Margir togarar seldu I síðustu
viku, allir í BretlandL Það var
hörmungarútkoma á þessum
sölum. Skipunum var fyrst hald
ið 2 sólarhringa án þess að fá
að selja vegna forgangs brezkra.
Þegar kom að því, að þeir máttu
selja, var helmingurinn af afl-
anum orðinn skemmdur.
Hér er aðeins talið það magn,
sem seldist:
Lestir Krónur Kg.
Böðull 98 1.024,440,- 10/45
Sval'bakur 121 1.206,760,- 9/99
Sigurður 61 585,840,- 9/60
Harðbakur 138 1.258,200,- 9/11
Víkingur 90 1.068,840,- 11/86
Sléttbakur 83 850,800,- 10/25
EgiU Sk. 150 989,400,- 9/07
Keflavík.
Tíðin var sæmileg síðustu
viku. Afli netabátanna hefur
gamall og skemmdur fiskur.
1 bátur rær með línu frá Sand-
gerði og aflar vel. Nokkrir að-
komubátar, sem eru með línu,
hafa lagt upp afla sinn, þar á
meðal Gísli lóðs, og hefur hann
verið að fá 11—12 lestir í róðri.
Engin loðna barst í vikunni.
Vestmannaeyjar.
Róið var alla daga vikunnar.
Afli hjá netabátum var mest
morkur eftir frátökin um pásk-
ana. Fyrst um miðja vikuna voru
þeir búnir að sansa netin og
farnir að geta dregið allt dag-
lega, og þá er ekkert í þeim,
3—5 lestir.
Einn lltill bátur rær með línu,
og hefur hann verið að fá rúm-
ar 7 lestir í róðri.
Enginn afli sem heitið getur
hefur fengizt í þorsknótina, að-
eins nokkur hundruð kg. þótt
bátur og bátur hafi komizt upp
í 5 lestir.
Akranes.
Netabátarnir hafa verið að fá
aðeins 3—5 lestir, þegar dag-
lega er vitjað um. Sumir fá
svo lítið, að þeir koma ekki inn.
Einn bátuu rær með línu og
hefur aflað vel, 9—10 lestir í
róð'ú.
650 lestir bárust að af loðnu
í vikunnL
Styrkir til nýsmíði í Bretlandi.
I siðastliðnum mánuði voru
lagðar í brezka þinginu fram til-
lögur um nýsmíði fiskiskipa.
Áformað er að auka styrkinn úr
30% í 40% til skipa undir 80
fetum (um 150 lestir) og úr 25%
í 35% til skipa, sem eru stærri.
Þennan styrk má einnig
greiða til endurbóta á eldri skip-
um, þar með talin skip, sem
breytt er í síldveiðiskip.
Síldveiðin við Færeyjar 1966.
Janúar 7 skip 1.570 lestir
Febr. 4 skip 1.660 lestir
Marz 10 skip 4.470 lestir
í janúar veiddist síldin fyrir
norðan Eyjarnar, en í febrúar
og marz á hinum miklu fiski-
svæðum austur af Eyjunum.
Sérstaklega var mikið af síld
seinni tvo mánuðina. Hún var
á 20 — 170 faðma dýpi.
Fituinnihaldið var 11% í jan.
10% í febr. og 8% í marz.
Aflahæsta skip Breta.
Aflahæsta skip Breta 1966 var
skuttogarinn „Sommerset Maug-
ham" 787 lestir að stærð. Hann
fór 16 túra og var 343 daga á
sjónum og landaði um 2500
lestum fyrir um 20 milljónir
króna.
Þetta er heldur minna afia-
verðmæti en hjá stóru íslenzku
togurunum yfir árið.
USA styrkir togarasmíði.
Afráðið er nú að smíða í
Bandaríkjunum fyrir bandarískt
fyrirtæki 2 skuttogara, sem
jafnframt eru verksmiðjuskip.
Verð hvors skips er um 450
millj. króna og styrkir ríkið
smíðina. Lengd skipanna er 296
fet. Til samanburðar má geta
þess, að lengd nýjustu íslenzku
togaranna er 210 fet,
Mál sjávarútvegsins á alþingi.
Sjávarútvegsmálaráðh. skýrði
frá því fyrir nokkru, að ríkis-
stjórnin hefði nú í athugun kaup
á 3—4 skuttogurum eins og
skýrt hefur verið frá í þessum
pistlum. Nú hefur verið skipuð
sérstök nefnd til þess að athuga
þetta mál og er Davíð Ólafsson
formaður hennar.
Nokkur önnur mál, sem mikil
væg eru fyrir sjávarútveginn.
hafa nýlega verið lögð fram á
alþingi.
Nokkrir sjálfstæðismenn hafa
lagt fram frumvarp til laga um
Fiskimálaráð, sem skipað yrði
fulltrúum frá helztu stofnunum
sjávarútvegsins og því opinbera.
Er ráðinu ætlað að móta heild-
arstefnu í uppbyggingu sjávar-
útvegsins og í markaðsmálum.
Þá hafa 3 sjálfstæðismenn og
einn alþýðuflokksmaður lagt
fram þingályktunartillögu um
athugun á sérstökum ráðstöfun-
um til endurnýjunar smærri vél
báta og bættum rekstrargrund-
velli fyrir þá.
Tveir alþýðubandalagsmenn
flytja frumvarp til laga um kaup
á allt að sex skuttogurum.
Vertíðin í Vetur.
Menn muna vart aðra eins
ótíð og verið hefur í vetur, sama
hvar á landinu er. Veðrin hafa
verið svo hörð.
Neyðarástand er hjá útgerð-
inni, einkum smærri bátunum,
en svo eru nú bátar kallaðir a'H
upp í stóru síldarbátanna. Veið-
arfæratjón hefur verið gífurlegt
hjá netabátum og aflinn rýr og
fiskur oft mjög skemmdur og
þar af leiðandi verðlítið það lita,
það litla, sem fengizt hefur.
Netabátar hafa fæstir haft fyrir
tryggingu, það sem af er, og
línubátar ekki heldur. Þeir
hafa svo sjaldan komizt á sjó,
þótt sæmilega aflaðist, þegar
hægt var að róa.
Eftirtektarvert við netaútgerð
í vetur er, að stóru síldarbát-
arnir hafa sýnt mikla yfirburði
yfir gömlu tréskipin, hvað sjó
sókn í vondu veðri og getu til
að draga snertir. Spáir það góðu
um hæfni þessara skipa til þorsk
veiða í framtíðinni.
Meiri fiskur virðist vera á
miðunum í vetur en undanfarið,
þó með þeirri undantekningu, ,
að netafiskur hefur verið sára-
tregur á heimamiðum. A það
bæði við um Faxaflóaverstöðv-
ar og Vestmannaeyjar.
Nærri má geta, hve þröngt er
í búi hjá fjöldanum af útgerðar-
mönnum, enda kvarta menn I
viðskiptalífinu yfir, að óvenju-
lega lítið sé um peninga.
Eitt einkenni viðskiptanna
við útgerðina en er líka, hve
allir eru aðgangsharðir með
greiðslur. Olían verður að greið
ast mánaðarlega og öll þjónusta
við útgerðina má heita orðin
gegn staðgreiðslu. Alls slaðar
vofa refsivextirnir yfir, hvergi
minna en 12% og sums staðar
25% á ári. Það er því engin
furða, að útgerðarmenn eiga 1
miklum erfiðleikum með kaup-
greiðslur þegar við bætist ógæt-
ir, aflaleysi og veiðarfæratjón.
Og ekki gefur það opinbera sitt
eftir. Verið er að skylda þessa
útgerðarmenn, sem ekkert geta,
til þess að greiða í alls konar -
sjóði, — sagt er, að þeir séu 10
— auk aðstöðugjalds af tap-
rekstrL
í ofanálag eru þeir skyldaðir
til þess að halda eftir útsvörum
og sköttum af kaupi skipverja,
en láti þeir nú sinn síðasta pen-
ing til skipshafnarinnar og eigi
ekkert eftir handa því opinbera,
geta þeir komizt í þá úlfakreppu,
sem þeir geta ekki bjargað sér
úr. Lögin kveða þá svo á, að
þeir skuli sæta fangelsi fyrir
fjárdrátt. Er því opinbera ekki
nóg að hafa forgangsrétt á opin-
berum gjöldum og lögtaksrétt,
þótt ekki sé líka í slíkum tilfell-
um hótað með svartholinu,
Útgerðarmenn verða að reyna
að rétta hlut sinn. Þetta gengur k
ekkL
verið mjög lélegur. Á meðan
verið var að hreinsa upp eftir
páskahretið, voru bátarnir að fá
svoliLð, en síðan hefur þetta
verið hreint ekki neitt, 2—5
lestir í róðri.
3 bátar róa með línu, og hafa
þeir atlað mjög vel, 8—11 lestir
í róðri. Hafa þeir lagt upp afla
si'nn í Grindavík og honum síð-
an ekið til Keflavíkur.
Síðustu viku bárust á land
um 1400 lestir af loðnu.
Sandgerði.
Bátar fóru ekki út fyrr en á
þriðja í páskum vegna roks, sem
stóð aila páskadagana. Var þá
orðið 5 nátta f netunum. Síðan
hefur gefið á sjó daglega.
Afli er svo til enginn, ef dreg-
ið er daglega, innan við 100 fisk
ar í 15 neta trossu og það niður
í 10 fiska. 3 bátar stunda fjar-
lægari mið, svo sem Breiðafjörð
inn. Komu þeir með góðan afla
eftir frátökin, en það var allt
OS lágt vátryggt..
o£ lágar bætur
£f Innbú yðar er ekki tryggt f samræmi við raun-
verulegt verðmæti þess, fáið þér aldrei fullar
bætur, ef tjón ber að höndum. Iðgjöld fyrir
HEIMILISTRYGGINGAR falla f gjalddaga 1.
apríl n.k. og þá er rétti tíminn að hækka vá-
tryggingarupphæðina, þannig að fullt JAFN-
VÆGI só milli tjóna og bóta hverju sinni.
ALMENNAR TRYGGINGAR N
PÓSTHÚSSTRÆTI 9 . SÍMI 17700