Morgunblaðið - 02.04.1967, Qupperneq 4
4
M<2RGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. APRÍL 1967.
BÍLALEIGAN
FERD
SÍMI 34406
Bensín innifalið í leigrugjaldi.
SENDUM
MAGMÚSAR
SKIPHOLTI21 s’mar 21190
eflir iokun sími 40381
siw 1-44-44
miuí/Ðifí
Hverfisgötn 103.
Sími eftir lokun 31169.
LITLA
bílaleigan
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald.
Bensin innifalið í leigugjaldi.
Sími 14970
BILALEIGAIM
VAKUR
Sundlaugaveg 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
RAUÐARARSnc 31 SiMI 23022
Bílnleigon
GREIDI
Lækjarkinn 6, Hafnarfirði.
Simi 51*56.
Fjaðrir, tjaðrabloð. hljóSkútar
pustror o.fl. varahiutir
f margar gcrðir bifreiða.
Bilavörubúðin FJÖBRIN
Laugavegi 16S. — Sími 24180.
Tii fermingargjaía
Tensor-lamparnir fara nú sig-
urför um allan heiminn.
Princess-lampinn fyrir ferm-
ingarstúlkuna.
Stúdent-lampinn fyrir ferm-
ingardrenginn. Eihnig G. E.
rafmagnsvekjaraklukkurn-
ar með sjálflýsandi skífu.
Roimagn hf.
Austurgötu 10. Sími 14005.
★ Hvað á að gera
við kettina?
Lítil stúlka skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Á hverjum degi gef ég fugl-
unum, en það eru 2 kettir her
í næstu húsum, sem alltaf eru
að veiða fuglana, er ekkert
hægt að gera? Til dæmis að
hafa sem skyldu að hengja
bjöllur um hálsinn á öilum
köttum. Helst litla skærljóma
bjöllur til viðvörunar fuglun-
um.
Nú kveð ég þig kæri Vel-
vakandL
Anna Lára Friðriksdóttir.
' 10 ára“.
Kettirnir mótmæla þessu
áreiðanlega.
Tommur og
tryggingar
Frá Bandaríkjunum er
skrifað:
„Kæri Velvakandi.
Er það leti eða hugsunar-
leysL þegar blaðamenn breyta
ekki er erlendum mælieining-
um i íslenzkar?
1 blaðinu í dag (þ. e. reyndar
tvö blöð, þriðjungur 21. og mið
vikudagur 22.) morar af
gallónum, fetum og tommum
(skriðbíllinn kanadíski). Olíu-
flekkur er 700 mílur að flatar-
máli (sic), átt við fermílur en
hvaða fermílur, enska milu eða
sjómílu? Brezka stjórnin veitir
60 miUj. króna til hreinsunar
á olíunni en i sömu grein segir
að 130.000 lestir af efnablöndu
kunni að þurfa til að hreinsa
sjóinn. Það samsvarar 46 aur-
um á kílóið af efnablöndu.
Það þætti mörgum ódýr sápa.
Leitt þótti mér að heyra um
brunann hjá Örlygi og lágt var
vátryggt, segir hann. Hvernig
væri nú að taka upp trygginga-
vísitölu? Tryggingafélögin
myndu senda út sína iðgjalda-
reikninga með tveimur upp-
hæðum, a) iðgjaldinu miðað
við upprunalega trygginguna
og b) iðgjaldi miðað við vísi-
töluhækkaða tryggingu. Fólki
væri síðan í sjálfsvald sett,
hvort það hækkaði eða ekki.
Sá, sem greiddi hærra iðgjald-
ið, þyrfti síðan að greiða það
áfram, en hann væri líka
öruggur, ef hús hans brynnL
Með hinum nýju rafreiknivél-
um er þetta lítil fyrirhöfn fyrir
tryggingarfélögin. Þetta myndi
líka spara prestum talsvert
skósliL Það kemur venjulega í
þeirra hlut að safna handa
þeim, sem hafa ekki hugsun
á að viðhaida sinni vátrygg-
ingu.
Að lokum er eitt klögumálið
enn. Hvernig stendur á því, að
blöðin endurnýja ekki manna-
myndir sínar. Á ég þar við
stjómmálamenn og aðra framá-
menn. Blöðin nota sömu mynd-
ina ár eftir ár, virðulegir þing-
menn eru sýndir sem óþrosk-
aðir unglinga. Svo virðist líka,
sem einstaka maður hafi sína
uppáhaldsmynd. Eru þetta
venjulega ungmennafélagsleg-
ar hliðarmyndir, prófílar svo-
kallaðir, í Valentínó stil. Ef þú
þú ert hræddur, Velvakandi
minn, við gallóna- og tommu-
strákana, þá skaltu bara fleygja
þessu.
Geir Magnússon."
Velvakandi er ekkert hrædd-
ur við strákana.
Je Óheppileg ökutæki
„Síðustu daga höfum við
hér suðvestanlands fundið
fyrir snjó og vetrarveðráttu
sem aðrir landsmenn og víst er
um það að snjóavetur geta yfir
oss dunið enn sem fyrr. En ég
ætlaði ekki að fara að fjasa
neitt um veðráttuna, enda er
slíkt gjörsamlega þýðingar-
laust og við höfum sætt okkur
við hana fyrir löngu. Þó eru
samsktpti okkar við náttúru-
öflin á stundum nokkuð barna
leg. Tökum til dæmis þann
barnaskap að flytja til lands-
ins bíla frá fjarlægum sólar-
löndurn eggsléttra vega. „Höf-
undum" þeirra hefur tæpast
dottið í hug að nota þá við
slikar aðstæður sem hér er við
að búa. Svo halda íslendingar
að þeir hafi öðlast einhver
„töfrateppi“ og að þeir þurfi
engar áhyggjur að hafa af veg-
um hvað þá vegleysum.
Síðastliðinn laugardagsmorg-
un hugðist ég sem oftar fara
með strætisvagni niður í bæ
vestan af Seltjarnarnesi. Ekki
varð sú ferð samt með venju-
legum hætti, því þrír litlir
bílar (hlið við hlið) voru fastir
í skafli, illa búnir til hjólanna
og yfirgefnir, vörnuðu bæði
vagninum og öðrum duglegum
ökutækjum að komast leiðar
sinnar. Var því snúið við, en
ekki hafði lengi verið farið
þegar önnur fyrirstaða varð
vegna bíla sem ekki ættu að
vera í umferð þegar snjór er á
jörðu. Ég býst við að margir
gætu sagt frá svipuðum erfið-
leikum sem urðu, þennan eina
dag vegna þessara farartækja
sem ekki hæfa íslenzkum stað-
háttum. Ekki einungis að þau
séu óhæf á vetrum, heldur eru
þau alltof veikbyggð fyrir
okkar holóttu sumarvegi, enda
öll þeirra uppbygging miðuð
við akstur á steyptum eða mal
bikuðum brautum.
Það virðist alltof algengur
misskilningur að meta bíla
eftir benzineyðslu pr. km. en
tillits til traustleika eða end-
ingar. Menn láta þaer krónur
sem þeir spara sér í benzín-
kaupum, i ótímabært viðhald á
bilum, miðað við traustari bíl.
Nú mun einhver segja að
það sé einkamál hvers og eins
hvernig ökutæki h«nn velur
sér. En svo er ekki á meðan
léleg og óhentug ökutaeki valda
hinum traustari, töfum og
hættu 1 umferð.
Happdrætti
Lesendur skrifa:
„Kæri VelvakandL
Mig langar til að biðja þig
að koma orðsendingu á fram-
færi til forráðamanna happ-
drættis Háskóla íslands og
SÍBS um birtingu vinninga-
skrár. Mér þætti vænt um, ef
hægt væri að birta vinninga-
skrár i Morgunblaðinu nokkr-
um dögum eftir að dráttur hef-
ur farið íram.
Okkur sem spilurn fyrir
mörg hundruð krónur á ári
þætti skemmtilegra, að vita
þegar við vinnum.
Tveir seríuspilarar
í Vtri-Njarðvík.
hr Sjónvarpið
Sjónvarpsnotandi skrif-
ar:
„Velvakandi,
Ertu búinn að fá þér sjón-
varp? Ég minnist þess, að þú
sagðir frá því fyrir nokkrum
mánuðum, að þú færir til kunn
ingjanna til þess að horfa á
íslenzku dagskrána. Ég held að
þú getir það varla lengur —
eftir að frúrnar kvörtuðu yfir
öllu kökuátinu í sjónvarps-
gestunum. Ég á við þessar, sem
skrifuðu öll bréfin, sem þú
birtir.
Ástæðan til þess að ég spyr
þig hvort þú sért búinn að fá
sjónvarp er sú, að mig langar
til að spyrja, hvort þér leiðist
ekki þessar tékknesku og
pólsku teiknimyndir jafnmik-
ið og mér? Þær eru hreint og
beint þrautleiðinlegar — jafn-
leiðinlegar og bandarísku
myndirnar eru skemmtilegac.
„Steinaldarmennirnir" eru
jafnvel það bezta, sem sjón-
varpið flytur. Það finnst mér.
Hvað segir þú um það?
Sjónvarpsnotandi".—
Jú, ég er búinn að fá mér
sjónvarp. Ekki vegna þess að
kunningjar minir teldu mig
borða of mikið af kökum (teta
brauð fram yfir kökur), held-
ur vegna þess, að sjálfur vil
ég eiga mitt sjónvarpstæki á
mínu heimili — eins og þú. —
Og ég er alveg sammála þvi,
sem þú segir um teiknimynd-
irnar. Þess austrænu eru e.t.v.
ekki alltaf leiðinlegar. En þær
eru ferlega klunnalegar — og
ég held að þær höfði ekki jafn-
mikið til skopkyns okkar og
þær vestrænu. Steinaldar-
mennirnir eru frábærir, enda
með vinsælasta sjónvanwefni
um víða veröld.
Jazzballet
Reykvíkingur skrifar:
„Kæri Velvaakndi,
Svo er nú komið, að við get-
um ekki þverfótað fyrir þess-
um svonefnda jazzballet. Farir
þú á skemmtistað —- það er
jazzbailet. Gpnirðu sjónvarp —-
þá íærfiu iík= að sjá jazzbalieL
Ekki aðeins einu sinni 1 viku,
heldur tvisvar. Ég sé ekki bet-
ur en að þetta sé einfaldlega
„strip-teas“ I fötum, er svo
mætti segja: „kynlegar'* hreyf-
ingar lögulega vaxinna
stúlkna.
Ksera sjónvarp: Ekki meiri
jazzballet. Fiskabúrið er betra.
— Reykvikingur.*
Rýmningarsala
Rýmingarsala verður vegna brottflutnings, mánu-
dag, þriðjudag og miðvikudag.
VEKZLUNIN VKRA, Hafnarstræti 15.
Svefnstofnhnsgögn
mismunandi tegundir.
ÓTRÚLEGT EN SATT.
S Svefnstofuhúsgögn úr eik, tekki, álmi,
palisander, aski o. fL viðartegundum.
NORSKAR SPRINGDÝNUR.
ÓDÝR LUXUSVARA.
l-2C>l!tK*ú
Tfflff
Sinrrf-22900 Laugaveg 26