Morgunblaðið - 02.04.1967, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. APRÍL 1967.
Fermingarkápur - Fermingarskðr
TÖSKUR, HANZKAR, SKARTGRIPASKRÍN.
Glæsilegt úrval.
Austurstræti 6 og 10.
Föndurskóli
Get bætt við nokkrum börnum á aldrinum 5—6 ára,
frá og með 1. apríl.
Upplýsingar í dag á milli kl. 2—5 e.h.
Föndurskóh Bergþóru Gústafsd.
Laugarásvegi 24 — Sími 35562.
Ný rafmagnsvörubúð hefur verið opnuð á Suðurlandsbraut 12.
Aðaláherzla verður lögð á að hafa
RAFLAGNAEFNI OG LAMPA
svo og annað sem tilheyrir nýbyggingum og breytingum á raf-
íögnum sömuieiðis: Rafmagnsheimillstæki
Sjónvarpstæki
og loftnetskapal
Ennfremur alls konar smávörur sem alla vanhagar um.
Gjörið svo vel að líta inn. Næg bílastæði.
Rafmagnsvörubúðin sf.
Suðurlandsbraut 12. — Sími kemur næstu daga.
Allt á sama stað
til sölu.
Hillman Hausky station 1962.
Buick Skylark 1965 glæsilegur bíll.
Jeep FC 150 ’64.
Reno R8 í mjög góðu lagi ’64.
Simca 1000 ’63.
Cheavy II sjálfskiptur 2ja dyra ’63.
Volkswagen ’66.
Buick Electra sjálfskiptur ’63. Skipti
koma til greina á minni amerískum bíL
Singer Vouge ’65.
Commer Cob ’66.
Willys ’66 lítið ekinn, með klæddu
amerísku stálhúsi, stórglæsilegur bíll
Egill Vilhjálmsson hf.
Sími 22240.
ALLT Á SAMA STAÐ
* NÝR STÚRCLÆSILEGUR JEPPI *
kominn á markaðinn 'JEEPSTER'
JEEPSTER er nýr, stórglæsilegur fjórhjóladrifsbíll, sem
er kominn á markaðinn. Allur er jeppinn gjörbreyttur
í útliti og líkist nú meir þægilegum fólksbíl. Þessi nýi
jeppi er 101” milli öxla. Frábærlega fallegur, enda
búinn að vera langi á teikniborðum verksmiðjunnar.
Hann hefir kosti gamla jeppans í ófærum, en kemst
með meiri hraða en áður um góða vegL Húdd v.atns-
kassahlíf og bretti er það eina sem gæti minnt á fyrir-
rennarann CJ-5.
Ekki gleymist að sjá fyrir öryggisbúnaði, því hemla-
kerfið er tvöfalt og fáanleg eru öryggisbelti með bíln-
um. Þetta er bifreið, sem mun vekja mikla athygli og
ekki sízt þeirra er kjósa traustan fjallabíl, sem einnig
er ákjósanlegur fjölskyldubílL
Jeepster verður fáanlegur í 3 mismunandi útfærslum,
sem hér segir:
Jeepster Convertible blæjubíll. Jeepster Commando
Roadster óyfirbyggður.
Jaapster Commando Pickup, og Jeepster Commando
Station Wagon.
Allar þessar tegundir fjórhjóladrifsbifreiða falla undir
jeppainnflutning og sama stærð á þeim öllum, 101”
milli öxla.
Fallegar línur einkenna allan jeppann og má með sanni
segja, að hér hafi verið mikið gert fyrir augað. Vara-
hjólinu er komið fyrir að aftan, ofan sbuðara, og setur
það skemmtilegan sportsvip á jeppann.
Hurðir eru nú smíðaðar og settar á yfirbygginguna hjá
verksmiðjunum og gefa þær ekkert eftir góðum fólks-
bíiahurðum.
Sé litið inn í jeppann er skemmtilegt um að litast.
Fallegt nýtízkulegt mælaborð blasir við. Bólstruð svamp-
sæti, færanleg, og klæðning af beztu gerð. Framstykkið
er með heilli framrúðu og rúðuþurrkur eru nú stað-
settar ofan á hvalbak.
LEITIÐ STRAX UPPLÝSINGA.
VERÐUR TIL AFGREIÐSLU I JÚNÍ.
PANTIÐ TÍMANLEGA.
EGILL VILHJÁLIVISSOM hf.
LAUGAVEGI 118, SÍMI 2-22-40.