Morgunblaðið - 02.04.1967, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. APRÍL 1907.
Útgefandi:
Framkvæmdastj óri:
Ritstjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Auglýsingar:
Ritstjórn:
Aitgiýsingar og afgreiðsla:
í lausasölu kr.
Áskriftargjald kr. 105.00
Hf. Árvakur, Reykjavík.
.Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
7.00 eintakið.
á mánuði innanlands.
ausasolu kr. 7.00 eintakið. s
Id kr. 105.00 á mánuði innanlands. 5
ÉkxdSk
*.W5V
UTAN ÚR HEIMI
Stærðarsamanburður á „jumbo“ Boeing 747 og venjulegri Boeing 707.
Horfur á mikilli
aukningu flugferða
VÆNTA má gifurlegrar
aukningar á flutningum í
lofti, bæði á farþegum og vör
um, það sem eftir er af þess-
um áratug, samkvæmt rann-
sókn, sem First National City
Bank í New York hefur gert.
Mikil samkeppni er á milli
flugvélaframleiðenda um all-
an heim, um að byggja sem
hentugastar flugvélar, til að
fullnægja þörfum flugfélag-
anna á næstu árum. Farþega-
flutningar í lofti hafa tvöfald
ast á hverjum fimm árum, und
anfarin tuttugu ár og á seinni
árum hafa vöruflutningar
vaxið enn örar.
Ástæðan fyrir þessum vexti
er fyrst og fremst vaxandi af
kastageta nýrra flugvéla. Þot-
ur, sem nú eyu í notkun, fljúga
tvöfalt hraðar og flytja tvö-
falt meira, en flugvélarnar
sem þær komu í staðinn fyrir.
Þetta þýðir fjórfalda afkasta-
aukningu. Þessi aukning hef-
ur gert það mögulegt að lækka
fargjöld og auka hagnað á
sama tíma. Ódýrari og fljót-
legri flugferðir hafa einnig
stuðlað að þessari aukningu.
Flugfélögin eiga nú í pöntun
meira en þúsund þotur af
ýmsum gerðum. En þessi gíf
urlega aukning er aðeins
byrjunin. í byrjun næsta ára-
tugs verða teknar í notkun
„Jumbo“ þoturnar og þotur,
sem fljúga hraðar en hljóðið.
„Jumbo“ þoturnar geta
flutt frá 500 upp í þúsund far
þega í einu, samanborið við
180 til 250 farþega í stærstu
þotum, sem nú eru í notkun.
Hraðskreiðustu farþegaþotur
nútimans fljúga á 600 mílna
hraða (965 km.) en þotur,
sem fljúga yfir hljóðhraða,
koma til með að fljúga tvisvar
til þrisvar sinnum hraðar.
Fyrir farþega í þeim mun
tíminn standa kyrr, eða raun
ar færast aftur á bak.
Þessari miklu aukningu
fylgja þó vissir erfiðleikar.
Gifurlegt fé þarf til að stand-
ast straum af allri þessari fjár
festingu. Reiknað er með, að
fjárfesting bandarísku flug-
félaganna einna, muni nema
14 þúsund milljónum dollara
fram til 1975 og reikna má
með að fjárfesting annarra
heimshluta náligist þessa tölu.
Flugfélögin eru nú í betri
aðstöðu en nokkru sinni fyrr,
til að leggja í fjárfestingu.
Heildartekjur áætlunarflug-
félaga í heiminum voru 9.300
milljónir dollara á árinu 1965,
þrefalt meiri en 1955. Fyrst
eftir að þoturnar voru teknar
í notkun, lentu flugfélögin í
alvarlegum erfiðleikum, en
upp úr 1960 fór það að lagast
og heildarhagnaður þeirra
nam 100 milljónum dollara
1962 og var kominn í 900
milljónir dollara 1965.
Allar líkur eru á því, að
hagnaður muni vaxa fram til
1970, en nokkur hætta er á
ferðum, þegar nýju flugvél-
arnar koma í notkun eftir
þann tíma, ef þeim er bætt
við of ört, eins og skeði á ár-
unum 1956-61.
Bandaríkir. framleiða nú
verulegan meirihluta farþega-
flugvéla í heiminum, en fram
l'eiðendur í Evrópu hafa styrkt
aðstöðu sína í samkeppninni,
með aukinni samvinnu sín á
milli. f skýrslu bankans segir,
að markaður þessi sé svo stór,
að rúm sé fyrir marga stóra
framleiðendur, allir fylgjast
nægilega vel með á tæknilegu
sviði.
VIETNAM
TIMikla atihygli vekur að Han-
■‘■"■^oistjórnin hefur nú, að því
er virðist, hafnað tillögum U.
Thants, sem hann hefur sett
fram til lausnar Víetnam
vandamálinu. Þessar síðusitu
friðartillögur U Thants eru,
sem kunnugt er, aðeins út-
víkkun á fyrri tiilögum hans.
Kjarninn í tiilögum hans er
sá, að vopnahlé verði komið
á í Víetnam, áður en deilu-
aðilar setjast að samninga-
" borðinu. Bandaríkin urðu
fyrst til þess að failast á til-
lögur U Thants, en síðan hafa
mokkur lönd fetað í fótspor
þeirra, þar á meðal Suður-
Víetnam, sem hefur fagnað
tillögum þessum.
Kommúnistastjórnin í Han-
oi hefur, að því er segir í
frétt í Þjóðviljanum á mið-
vikudag, lýst yfir, að Sam-
einuðu þjóðirnar „hafi enga
heimild til þess að hlutast til
um málefni Víetnam." Og í
fyrradag réðst Mao-stjórn á
tillögur U Thants og friðar
viðleitni Sameinuðu þjóð-
anna.
Þar með hafa kommúnist-
ar og fylgilið þeirra um heim
al'lan fengið hina nýju línu:
Nú eru tillögui U Thants ekki
- lengur nógu góðar, þvá að
ekki er hægt að nota þær í
áróðri fyrir yfirgangsstefmu
kommúnista. Nú kemur Sam-
einuðu þjóðunum ekkert við,
hvað er að gerast í Víetnam,
segja kommúnistar. Eru þetta
harla athyglisverðar upplýs-
ingar og koma vafaiaust ýms-
um á óvart, sem hafa áiitið
að friðartal kommúnista und-
anfarið væri af heilindum
sprottið.
Morgunblaðið hefur áður
bent á það, meðal annars í
grein, sem birtist í blaðinu
1. des. sl., að kommúnistar
hafa staðið að baki svoköll-
uðum Víetnamhreyfingum í
nökkrum löndum Evrópu, en
ekki virðast aliir hafa faliizt
á þær upplýsingar blaðsims.
Sú staðreynd málsins er þó
að verða deginum ljósari, og
er vert að fylgjast rækilega
með því, hvernig tekið verð-
ur á þessum málum, ekki sízt
af kommúnistum hér heima.
Stjórnmálaritstjóri Þjóðvilj-
ans er t.d. þegar farinn að
feta sig í átt til nýrrar stefnu
og nýrrar áróðursherferðar. í
Þjóðviljanum í fyrradag seg-
tr hann ekki beinum orðum
að tillögur U Thants séu út
í hött eða einskis verðar, en
talar af þeim mun meiri f jálg
leik um það, að kommúnist-
•ar eigi að hafa sjálfdæmi um
það sem gerist í Víetnam.
Svo rammt hefur kveðið að
því að kommúnistar „eign-
uðu“ sér heitið „íslenzk þjóð,“
að farið var að hafa „þjóðina
á Þórsgötu 1“ í flimtingum
manna á milli. Þannig kalla
kommúnistar nú einnig skoð-
anabræður sína austur þar
„Þjóðina í Víetnam.“ Kernur
þetta sjónarmið mjög greini-
lega fram í fyrrnefndri Þjóð-
viljagrein, þar sem segir með-
al annars: „Tillögur sem Víet-
namar hafna koma ek'ki að
neinu gagni þótt þær séu fluitt
ar af góðum hvötum.“ Það
sem hér er átt við, er, að til-
lögur U Thants koma ekki að
neinu gagni, þar sem „Víet-
•namar“, þ.e. kommúnistar í
Víetnam, vilja ekki failast á
þær. Á þennan hát't muin svo
Þjóðvil'jinn fikra sig áfram í
áróðursstríði sínu og fara
nokkra hringi í kring um tiíl-
lögur U Thants, áður en Han-
oilínan verður tekin upp,
hrein og ómenguð.
Þetta eru öl'l heilindin. Það
er ekki verið að vinna að því
•að efla friðarhugsjónina, held
ur einungis að koma því til
leiðar að kommúnistar nái
takmarki sínu í Víetnam.
En íslendingar eiga áreið-
anlega eftir að sjá í gegn um
þennan blekkingarvef, áður
en hann er allur ofinn.
„VÍETNAM-
NEFNDIN"
Eins og kunnugt er, þá er
verið að setja á stofn hér á
land'i Víetnam-nefnd. Nú
reynir á heiiindi þeirra
manna, sem staðið hafa fyrir
þessari nefndarskipun og
virðist eðlilegt, að nefnd þessi
'láti það verða sitt fyrsta verk
að sýna stuðnimg sinn við til-
'lögur U Thants með því að
krefjast þess af Hanoistjórn-
inni, að hún breyti afstöðu
sinni tii þeirra og fal'list á
þær.
Friði verður ekki komið á
i Víetnam nema með hugar-
farsbreytingu þeirra sem
ábyrgðina bera og þeir hætti
árásum sínum og setjist að
samningaborðinu. Hlýtur það
að vera krafa ail'ls heimsins að
þeir setjist að samningaborði
að undangengnu skilyrðis-
lausu vopnahléi.
Eins og kunnugt er, áttu
kommúnistar frumkvæðið að
stofnun Víetnamnefndarinnar
hér á landi. Þeir hugðust nota
þessa nefnd sér og stefnu
sinni til framdráttar. Nokkur
önnur samtök hafa einnig
gerzt aðilar að nefndinni og
mun nú rækilega fylgzt með
>ví, hvort þau standa fast á
tröfunni um frið í Víetnam
á grundvelli tillagna U
Thants, eða hvort þau láta
kommúnista enn einu sinni
Háskólafyríi-
lestur
KAJ Langvad verkfræðingur og
kona hans frú Selma Langvad,
fædd Gujohnsen, stofnuðu fyrir
þrem árum sjóð við Háskóla ís-
lands. Á vegum sjóðsins hefur
dr. Kristján Eldjárn, þjóðminja-
vörur, farið fyrirlestraferð til
Danmerkur.
Nú kemur hingað til lands í
boði sjóðsins kunnur skólamað-
ur, Aage Nörfeldt fræðslustjóri á
Friðriksbergi, og dvelst hér í
viku. Hann flytur fyrirlestur í
I. kennslustofu Háskólans n.k.
mánudag 3. apríl, kl. 5.30 e.h.
Nefnist fyrirlesturinn „Opdrag-
else til menneske". Er öllum
heimill aðgangur.
Nörfeldt fræðslustjóri flytur
fyrirlestra í Kennaraskólanum á
þriðjudaginn kemur, og á mið-
vikudaginn flytur hann fyrir-
nota sig í ároðursstríði þeirra.
Mun þess nú skemmst að bíða
að sjást muni heilindin á bak
við stofnun íslenzku Víet-
namnefndarinnar.
lestur á vegum fræðslustjóra
Reykjavíkur og ræðir við skóla-
menn. Þá er ráðgert, að hann
flytji fyrirlestra á vegum
fræðslumálastjóra á Akureyri á
fimmtudag og á Laugarvatni, ef
aðstæður leyfa.
Stjórn framangreinds sjóðs
skipa Ármann Snævarr, háskóla-
rektor, dr. Broddi Jóhannesson,
skólastjóri og Sören Langvad,
verkfræðingur.
Á FUNDI Landsmálafélagsins
Fram, sem haldinn var 22. marz
s.l., gat formaður félagsins þess,
að stjórn félagsins hefði ákveðið,
að 40 ára afmælis þess yrði
minnzt með hófi, sem haldið yrði
í samkomuhúsinu á Garðaholti
laugardaginn 8. apríl n.k. Hefði
þegar verið skipuð nefnd til þess
að annast allan undirbúning af-
mælisfaenaðarins.
Enn gefur
Lionsklúbbur
LIONSKLÚBBUR Keflavíkur
hefur samþykkt að gefa tuttugu
og fimm þúsund krónur til bygg-
ingar Öryrkjaheimilisins við Há-
tún.
öryrkjabandalagið þakkar
gjöfina.
Gat formaður þess, að áherzla
myndi lögð á það að vel yrði
vandað til hátíðahaldsins, sem
hefjast ætti kl. 7 siðdegis með
sameiginlegu borðhaldi. Nokkur
skemmtiatriði yrðu og stutt
ávörp.
Er það von félagsstjórnarinn-
ar, að félagar og annað Sjáilf-
stæðisfólk fjölmenni.
(Frá Háskóla fslands).
LancÉsmúlafélaf;-
ið Fram 40 ára
Afmælisins verður minnzt nk. laugardag