Morgunblaðið - 02.04.1967, Qupperneq 32
WÝJUMG!
HoíeCSö
iÚMFATAEFNI
SUNNUDAGUR 2. APRÍL 1967
hoietf^
ÞAAFNAST
SKia STAAUIMGAR
ísjaki lokaði hafnar-
mynninu á Húsavík
Þrem bátum tókst að ýta honum út
HÚSAVÍK 1. apríl. — Einn af
þessum ísjökum, sem rekið hafa
inn á Skjálfanda, rak í fyrrinótt
inn á Húsavíkurhöfn og lokaði
mynninu fyrir stærri skipum.
í nótt á háflæðinu keyrðu þrír
vélbátar á jakann og hann var
ekki landfastari en það, að bát-
arnir gátu ýtt honum úr hafn-
armynninu og út fyrir höfnina.
Sunnan áttin rak svo jakann út
flóann.
í morgun var hann sem betur
fer horfinn sjónum Húsvíkinga.
— Fréttaritari.
Kveikt í úrgangs-
olíu á Sauðárkróki
Reykjarstrókinn lagði hátt til himins
SAUÐÁRKRÓKI 1. aprfl. —
Á sjöunda tímanum sl. föstudag
varð fólk hér vart við að mikinn
reykjarstrók lagði upp frá svo-
kallaðri Eyri, sem er athafna-
svæði nálægt höfninni.
Þetta var gífurlegur reykjar-
strókur og áleit fólk fyrst að
kviknað hefði í olíu- og bensín-
geymum olíufélaganna, sem eru
þarna skammt frá.
Slökkviliðið fór strax á vett-
vang og kom þá í ljós, að þarna
logaði í úrgangshráoliu. Þangað
höfðu verið fluttir nokkrir tugir
olíufata á vegum Rafmagns-
veitna ríkisins. Starfsmenn þeirra
höfðu kveikt I olíunni til að
eyða henni, en láðst að láta
slökkviliðið og aðra vita um
þetta.
Svo mikill var reykurinn, að
hann lagði norður með allri
Klukkunni
var flýtt
í ndtt
KLUKKUNNI var flýtt einni
klukkustund eftir miðnætti
síðastliðnu. Þegar hún varð
01.00 var hún færð fram um 1
eina klukkustund. Er þá kom
inn sumartími en reglugerð
um breytingu klukkunnar
var sett hinn 28. febrúar
1947. Segir þar að flýta skuli
klukkunni um eina klukku-
stund fyrsta sunnudag í apríl
en seinka henni aftur fyrstí
sunnudag í \efri. Breycingin
er ávallt framkvæmd kl.
Reykjarströnd. Logaði í olíunni
um það bil tvær klukkustundir.
í dag er hér indælis veður,
frostlaust, en þokuloft. — jón.
Fádæma léleg söluvika
togaranna erlendis
Mikill hluti afla þeirra seldist í
mjölvinnslu eða dýrafóður
kSv-
SJÖ islenzkir togarar seldu afla
sinn erlendis í síðustu viku, allir
í Bretlandi. Var þetta einhver
lélegasta söluvika togaranna um
langt árabil.
Röðull seldi 168 tonn í Grimby
sl. þriðjudag fyrir 8.537 sterlings-
pund og Svalbakur sama dag 155
tonn fyrir 10.073 sterlingspund.
Sigurður seldi 184 tonn í
Grimsby sl. fimmtudag fyrir
4.882 sterlingspund og Harðbakur
sama dag 224 tonn fyrir 10.485
sterlingspund.
Á föstudag seldu í Grimsby
Akranes
FUNDUR verður haldinn í Sjálf-
stæðisfélaginu Báru Akranesi í
félagsheimili templara þriðjudag
inn 4. apríl ki. 8,30 e.h. — Á
fundinum mætir Auður Auðuns,
alþm. Kosnir verða fulltrúar á
landsfund.
Kappræðufundurinn
á þriðjudag
NÆSTKOMANDl þriðjudags-
kvöld fer fram í Sigtúni kapp-
ræðufundur Heimdallar og FUJ
í Reykjavík um efnið „Þjóðnýt-
ing, opinber rekstur og verð-
gæzla."
Ræðumenn Heimdallar verða:
Birgir ísl. Gunnarsson, borg-
mrfulltrúi. Hörður Einarsson, hér-
aðsdómslögmaður, Sigfinnur Sig-
urðsson, hagfræðingur.
Fundarstjóri af Heimdallar
hálfu verður Kristján Kristjáns-
son, trésmiður.
Fundurinn hefst kl. 20,30, en
húsið verður opnað kl. 20. Stjórn
Heimdallar hvetur æskufólk í
Reykjavík til að fjölmenna á
fundinn.
Sléttbakur og Víkingur. Slétt-
bakur var með 160 tonn og fékk
7.090 sterlingspund og Víkingur
270 tonn, sem seldust fyrir
8.907 strelingspund.
Egill Skallagrímsson seldi í
Hull á föstudag 193 tonn fyrir
8.245 sterlingspund.
Miklir erfiðleikar voru á sölu
fisks í Bretlandi í síðustu viku.
Allt frá 20—70% af fiskinum ým-
ist seldist ekki, svo sem stein-
bítur, karfi og nokkuð af milli-
fiski og smáfiski, eða fór í mjöl-
vinnslu, seldist til söltunar eða
í dýrafóður.
Engar sölur eru fyrirhugaðar
erlendis í þessari viku.
Mjólkurbíllinn
3 dngn ú leiðinni
Húsavíik, 1. apríl.
HINGAÐ kom í gær mjólkurbíll
úr Mývatnssveit og fór fyrir
honum að mestu af leiðinni jarð-
ýta, en ferðin hafði tekið þrjá
sólarhringa vegna ófærðar og
annara tafa.
Búið er að ýta veginn fram
að Tjörn og er þangað greiðfært.
Þar fyrir framan er allt á kafi í
snjó og verður ekki reynt að ýta
fyrir en veðurútit batnar, en spá
fyrir Norðurland er ekki hag-
stæð til snjóruðnings.
— Fréttaritari.
GAMUI læknisbústaðurinn (
á Vopnafirði brann aðfara-
nótt 29. marz sl. Eyðilagðist
húsið algerlega í eldinum, en
það stendur þó uppi, eins og
myndin sýnir. í húsinu var 1
skrifstofa hreppsins og brann
mikill hluti skjala hans og
reikningar, svo og peninga-
seðlar. íbúð sveitastjóra var
í húsinu. Hvolpur vakti hann
og varð það honum til björg-
unar. Missti sveitastjórinn
allt sitt innbú. Ljósmynd.
Pétur Jónsson.
Leggja ekki
þorskanet af
hræðslu við hafís
RAUÐMAGAAFLI er góður,
þegar gefur á sjóinn. Grásleppa
er ekki veidd vegna sérstaklega
lágs verðs á grásleppuhrognum.
Bátarnir eru nú í dag að
landa rauðmaga. Enginn hefur
lagt ennþá þorskanet og hefur
þar ráðið mestu hræðslan við
hafís. Fiskur virðist samt næg-
ur miðað við afla á handfæri.
Afli lélegur hjá netabátum
BETUR hefur viðrað til veiða
hjá netabátum um Suðvestur-
og Vesturland nú þessa síðustu
daga, en fyrir páska og á pásk-
um var mikið gæftaleysi. Hins
vegar hefur afli verið mjög rýr
og fiskurinn sáratregur. Virð-
ist veiðin ekki hafa glæðzt neitt
eftir páska.
Samkvæmt upplýsingum
Högna Torfasonar fréttaritara
Mbl. á ísafirði hefur afli báta
þar verið ákaflega rýr. Fyrir
tveimur dögum kom t.d. vélbát-
urinn Guðrún Jónsdóttir með
30 lestir og var það vikuafli,
sem teljast má lélegur. Virðist
netafiskirí ekki hafa glæðzt eftir
páska.
Fréttaritari Mbl. 1 Stykkis-
hólmi tjáði því, að veiði báta
þaðan hefði verið ákaflega lé-
leg að undanförnu. Hæsti bát-
urinn er nú með 230 lestir og
er afli sáratregur.
Júlíus Þórðarson fréttaritari
á Akanesi sagði ,að afli hefði
veið mjög rýr, þrátt fyrir betra
veður. Ekki lágu fyrir tölur um
aflamagn komið á land, en land
að hafði verið 8500 lestum af
loðnu þar í fyrradag. í fyrradag
komu að landi á Akranssi Jör-
undur II með 260 lestir og Hann
es Hafstfein með 190 lestir. Var
fiskurinn veiddur undan Jökli.
Samkvæmt upplýsingum
Helga S. Jónssonar í Keflavík
komu sex bátar til Keflavíkur
í fyrradag með gamlan netafisk
4—5 daga gamlan. Var fiskur-
inn skemmdur og slæmur, en
aflamagnið 2—6 lestir. Afli hjá
Keflavíkurbátum er frekar rýr.
Páll Pálsson í Sandgerði
sagði, að afli báta hefði ekki
verið góður. Bátarnir eru bún-
ir að hreinsa úr netunum eft-
ir páskana og komu með eins
til tveggja nátta fisk.
Gísli lóðs leggur upp í Sand-
gerði línufisk og kemur yfirleitt
með um 10 tonn á dag, sem
teljast má ágætt.
Vöruskiptin öhagstæð
um 54,9 mill]. í febr.
VÖRU SKIPTA J ÖFNUÐURINN
varð óhagstæður í febrúar um
54.9 milljónir króna. Út voru
fluttar vörur fyrir 355.1 milljón
kr., en inn fyrir 410 milljónir.
í febrúar 1966 varð vöruskipta
jöfnuðurinn óhagstæður um
13.7 milljónir króna. Út voru
fluttar vörur fyrir 383 milljónir,
en inn fyrir 396.8 milljónir.
Mánuðina janúar og febrúar
1967 varð vöruskiptajöfnuðurinn
óhagstæður um 238.8 milljónir
króna. Út voru fluttar vörur fyr-
ir 605.6 milljónir króna, en inn
fyrir 844.4 milljónir.
Á sama timabili 1966 varð
vöruskiptajöfnuðurinn óhag-
stæður um 17.2 milljónir króna.
Út voru fluttar vörur fyrir 781.3
milljónir, en inn fyrir 798.3
milljónir.