Morgunblaðið - 11.04.1967, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1967.
23
- KVEÐJA
Framhald af bls. 22.
hann hafði 1 svo ríkum mæli til
að bera.
Hann gerðist í fyrstu eftir að
hann fór að stunda almenna
vinnu meðlimur i Verkamanna-
félaginu Hlíf.
Eftir að hann gerðist starfs-
maður Raftækjaverksmiðjunnar
h.f., gerðist hann einn af stofn-
endum Iðju félags verksmiðju-
fólks í Hafnarfirði og átti sæti í
stjórn þess félags um árabil.
Sveinbjörn hafði mikinn
álhuga og gaman af að spiia
bridge, og því varð það að hann
gerðist félagi í Bridgefélagi Hafn
arfjarðar, og starfaði þar af
sama áhuganum og annars stað-
ar.
Árið 1942 gerðist Sveinbjörn
starfsmaður Raftækjaverksmiðj-
unnar h.f. í Hafnarfirði og starf-
aði þar nær óslitið til dauðadags
eða í um það bil tuttugu og
fimm ár, og lengst af sem bif-
reiðarstjóri.
Þessi starfsferill hans hjá einu
og sama fyrirtækinu í öll þessi
ár, hlýtur að gefa okkur meira
en litla vísbendingu um, hvern
mann hann hafði í raun og veru
að geyma. Framkvæmdastjóri og
fleiri yfiiráðamenn verksmiðj-
unnar ásamt samstarfsmönnum
hans öðrum létu orð við mig
falla á þá leið, að þeir gætu vart
hugsað sér betri starfsfélaga í
einu og öllu, enda var greið-
vikni hans og skyldurækni svo
að af bar
Að eðlisfari var Sveinbjörn
nokkuð dulur og flíkaði hann því
ekki tilfinningum sínum nema
hann þyrfti þess nauðsynlega
með.
Það eru þung spor eiginkonu
og barna föður og systkina að
sjá á bak ástvininum og um-
hyggjusama heimilisföðurnum,
á bezta skeiði ævinnar, en ver-
um minnug þess að öll él birta
um síðir því skal það vera þeim
huggun harmi gegn að vita að
látinn lifir.
Ég flyt ástvinum hans öllum
minar innilegustu samúðarkveðj
ur og bið þeim Guðs blessunar á
komandi tímum.
Ég kveð svo að lokum minn
einlæga vin og bið honum farar-
heilla.
Guðl. B. Þórðarson.
t
SVEINBJÖRN Pálmason var
fæddur í Hafnarfirði 27. nóv.
1921 og lézt á Landspítalanum 3.
apríl sl. Hann var elztur 4 barna
hjónanna Þórlínar Jónu Sveins-
dóttur, sem látin er, og Pálma
H. BENEDIKTSSON. H F.
Suöurlandsbraut 4
Enskunám í Englandi
Nú eru að verða síðustu forvöð að sækja um sum-
arskóla í Englandi næsta sumar á vegum Scanbrit.
Góðir skólar, úrvals heimili, leiðsögumaður báðar
leiðir, hagstætt verð. Upplýsingar gefur Sölvi Ey-
steinsson, Kvisthaga 3, Reykjavík, sími 14029.
Jörð á Suðurlandi
Höfum kaupanda að jörð á Suðurlandi. Jörðin þarf
að vera landstór með góðu beitilandi. Nánari uppl.
gefur.
Mólflutnings- og fasteignastofa Agnar Gústafsson
hrl. og Björn Pétursson, Austurstræti 14.
Símar 22870 og 21750.
Matreiðslcm er auðveld
i 09 bragðið ljúflengt
ROYAL
SKYNDIBÚDINGUR
M œ I i ð '/2 llter al kaldrl
mjólk og hellið I skál
Blandið Innihaldi pakk-
ans saman við og þeyt
I eina mínútu —
Bragðtegundir —
Súkkulaðl
Karamellu
Vanillu
larðarberja
Jónssonar, starfsmanna á Raf-
veitu Hafnarfjarðar um árarað-
ir.
Við erum öll þess meðvitandi
að fyrr eða síðar verðum við
kölluð burt frá þessu lífi. Það
er eðli alls lífs að hrörna og
deyja. En fallvaltleiki lífsins er
oft fjarri hugsun vorri í hinu
daglega lífi og erum við því
hastarlega minnt á hann, þegar
menn í blóma lífsins eru óvænt
kallaðir burt frá stórri fjölskyldu
eins og raun ber vitni um með
fráfalli Sveinbjörns Pálmasonar.
Sveinbjörn var kvæntur Ás-
dísi Rögnu Valdimarsdóttur og
eignuðust þau 7 börn, en eitt
lézt rétt eftir fæðingu. Þá ólst
upp á heimili þeirra dóttir Ás-
dísar, er hún átti með unnusta
sínum er hún missti, og Svein-
björn gekk í föður stað, sem sínu
eigin barni.
Það þurfti mikinn dugnað og
iðjusemi, til að sjá farborða svo
stórri fjölskyldu, og er ekki of-
sagt að hann hafi oft á tíðum,
þess vegna, lagt nótt við dag. En
þrátt fyrir miki.nn eril og ónæði
oft og einatt, fór þar saman vel-
vilji og greiðasemi, ásamt æðru-
leysi og góðlátlegri kímni.
Sveinbjörn var um 24 ára
skeið starfsmaður Raftækja-
verksmiðjunnar Rafha og veit
ég að hans er þar sárt saknað.
Þess sem ég vildi sérstaklega
minnast er að Sveinbjörn var
síðustu 15 ár liðsmaður í slökkvi
liði Hafnarfjarðar, jafnframt
starfa sínum í Rafha, og þar
kynntist ég kostum hans bezt.
Það er svo margt sem leitar á
hugann á slíkum tímamótum. Ég
minnist m.a. starfa hans við
brunann í vélarrúmi togarans
Surprise við bryggju í Hafnar-
firði. Það er ekki hægt í slíkum
tilvikúm að Skikka menn til að
leggja sig í bráða hættu, þegar
alltaf mátti eiga von á spreng-
ingu í skipinu. En sjálfviljugur
og ótrauður brauzt hann, mr;ð
reykgrímu og vatnsslöngu,
ásamt vélstjóra togarans, niður
í sjóðandi heitt vélarrúmið, fullt
af reyk og gufu, svo ekki sást
handa skil, og tókst að ráða nið-
urlögum eldsins. Til þess þurfti
hörku og áræði. — Oft er það
svo að maðurinn hverfur á bak
við starfið og ekki er getið hver
gert hafi. — Lokið var farsælu
slökkvistarfi og iiðið í heild fék'k
hrós fyrii, en ekki getið afreka
eins fremur en annars.
Sveinbjörn var oft illa til
reika, öðrum fremur, eftir
slökkvistarf, því hann var svo
mikill eljumaður, sem fannst
eins og hann gæti ekki annars
staðar verið en þar sem mest
var um að vera. Við samstarfs-
menn mátum störf hans mikils,
annað var ekki hægt.
Það er sagt, að maður komi
manns í stað. Má vera, en ég fæ
trauðla séð, að svo verði með
stað Svéinbjörns í slökkviliðinu.
Ég ætla ekki að geta annarra
þátta í lífi Sveinbjörns, þvi ég
vildi aðallega með þessum lín-
um, bera fram þakklæti okkar
slökkviliðsmanna fyrir tilvist
hans, jafnframt því sem ég vildi
votta okkar dýpstu samúð til að-
standenda hans. Og til þeirra
vildi ég beina orðum frelsarans:
„Ég lifi og þér munuð lifa“. í
þeirri trú kveðjum við hinn
1‘átna.
Sigurður Þórðarson.
Verzlunarstarf
Okkur vantar vana stúlku í vefnaðarvörubúð. Upplýsingar gef-
ur.
Starfsmannahald S.Í.S.
Verzlunarstarf
Viljum ráða mann til starfa í varahlutaverzlun.
Starfsmannahald S.Í.S.
Einangrunargler
Er heimsþckkt fyrir gæði.
Verð mjög hagstætt.
Stuttur aígreiðslutími.
Leitið tilbv'ða.
Fyrirliggjandi
RÚÐUGLER:
2-4-5-6 mm.
Einkaumboð:
HANNES ÞORSTEINSSON,
heildverzlun,
Sítni 2 44 55.
PITMAN SCHOOL
OF ENGLISH
Árlegir sumarskólar í London, Oxford
og Edinborg.
Góð námskeið í ensku, þar sem sérstök á-
herzla er lögð á að gera nemendurna hæf-
ari til þess að skilja talaða ensku og tala
málið reiprennandi.
London (University College) 5.júlí til 1. ág.
og 2. til 29. ágúst.
Oxford 2. til 29. ágúst.
Edinborg 14. ágúst til 8. sept.
(á sama tíma og Edinborgarhátíðin).
Útvegum nemendum húsnæði þeim að
kostnaðarlausu. — Lengri námskeið eru
einnig haldin allt árið um kring í skólan-
um í London.
Nánari upplýsingar og ókeypis upp-
lýsingabækling fáið þér hjá:
T. Steven, Principal,
TUE PITMAN SCHOOL OF ENGLISH
46 Goodge Street, London, W. 1.
Viðurkenndur af mennta- og vísinda-
málaráðuneyti Bretlands.
BOUSSÖIS
INSULATING GLASS
HaínarfjörSur
Til sölu mjög vönduð hæð og ris ásamt bílskúr á
sérstaklega góðum stað í Suðurbænum. Á hæðinni
eru 4 herb. og eldhús. Teppi á stofum og holi. í
risinu eru 3 herb., eldhús og vel útbúið þvotta-
hús.
GUÐJÓN STEINGRÍMSSON HRL. Linnetsstíg 3.
Hafnar firði. — Sími 50960. Kvöldsími sölumanns
51066.
Hinar marg eftirspurðu
Bon-Gout leðurtöskur komnar. Fjölbreytt og mik-
ið úrval. Einnig kvöldtöskur úr silfur- og gullskinni
og Antilópurúskinni.
TÖSKUBÚÐIN, Laugaveg 73.