Morgunblaðið - 22.04.1967, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1967.
Grikkland einangraö eftir byltingu hersins
Mestallt samband Grikklands vib
umbeiminn rofið - Oljóst hver siendur
að baki byltingarinnar - Prentfrelsi
og hópfundafrelsi afnumið -
Fjöldahanútökur stjórnmálamanna
f AÞENU, Belgrad, Lundúnum, 21. apríl, AP-NTB.
HERINN í Grikklandi hefur tekið öll völd í landinu í sín-
ar hendur, lokað landamærum þess og flugvöllum og nánast
einangrað það frá umheiminum. Skömmu eftir miðnætti í
nótt tilkynnti útvarpsstöð hersins í Aþenu, að Konstantín
Grikkjakonungur, Panajotis Kanellopoulos forsætisráðherra
og innanríkisráðherrann, hefðu undirritað yfirlýsingu þess
efnis, að herinn hefði gert leifturbyltingu og hluti stjórnar-
skrár landsins væri numinn úr gildi. Samtímis umkringdu
skriðdrekar, hrynvarðar bifreiðir og herflokkar konungs-
höllina, ríkisráðsbygginguna og aðrar opinberar stofnanir.
Herlið tók einnig á sitt vald útvarpsstöðvar, símstöðvar-
byggingar og flugvöll Aþenu. Lýst var yfir hernaðarástandi
f landinu og mælt svo fyrir, að hver sá sem færi út húsi í
Aþenu eftir sólarlag skyldi skotinn án frekari viðvörunar.
Utgöngubannið nær þó ekki til lækna og lyfjafræðinga, sem
kvaddir eru út í neyðartilfellum. Þá var æðri og lægri skól-
um, bönkum og kauphöllum í Aþenu lokað og fólk varað
við að hamstra matvörur ella yrði það dregið fyrir herrétt.
Ymis lýðræðisleg réttindi hafa verið afnumin um óákveðinn
tíma, þ. á m prentfrelsi og hópfundafrelsi. Ekki er ljóst
hverjir raunverulega standa að baki leifturbyltingunni, en
margt bendir til þess að forsætisráðherrann hafi verið
þvingaður til að undirrita áðurgreinda yfirlýsingu.
Handtökur
í dag var upplýst, að margir
áhrifamiklir stjórnmálamenn úr
vinstri og hægri flokkunum
hefðu verið handteknir, þeirra á
meðal Kanellopouios sjálfur.
Sagði eiginkona hans í dag, að
hermenn hefðu sótt hann nokkru
eftir miðnætti og dregið hann
nauðugan út í bifreið, en
frúnni voru gefnar þær skýring-
ar, að þetta væri gert til að
vernda forsætisráðherrann. Kan-
ellopoulos hefur gegnt embætti
sínu í 18 daga. í Lundúnum er
atburðurinn túlkaður á þann
veg, að Kanellopoulos hafi verið
þvingaður til að undirrita yfir-
lýsinguna um valdatöku hersins.
Samkvæmt óstaðfestum fregn-
um hefur hinn áttræði foringi
hins öfluga miðflokks Grikk-
lands, Georg Papandreou, fyrr-
um forsætisráðherra, og sonur
hans, Andreas, fyrrum varaefna-
hagsmálaráðherra, einnig verið
handteknir og fangelsaðir.
Aþenuútvarpið sagði í dag,
samkvæmt fregnum frönsku
fréttastofunnar AFP, að herinn
hefði tekið völdin i sínar hend-
ur sökum hættu, er steðjaði að
ríki'nu innan frá. Útvarpið sagði
ennfremur, að ný rjkisstjórn
verði mynduð í dag og verði for-
sætisráðherra hennar Konstantín
Kolias, hershöfðingi og haésta-
réttardómari. Varaforsætisráð-
herra hennar verður, samkvæmt
sömu heimildum, Grigorios Daki
as hershöfðingi, yfirmaður
gríska heraflans. Sagði útvarpið,
að síðar yrði tilkynnt hverjir
skipa mundu aðrar ráðherra-
stöður.
Átakalaus bylting
Síðdegis í dag skýrði fréttastof
an Reuter frá því, að herinn
befði öll ráð í borginni í sjnum
höndum og éftir öllu að dæma
virtist byltingin hafa gengið fyr-
ir sig án blóðsúthellinga. Vafa-
samt er þó að hún krefðist ekki
einhverra fórna, þvi löggjöf sem
bannar aftökur af stjórnmálaieg-
um ástæðum hefur einnig verið
numin úr gildi. Þá hafa öll verk-
föll verið bönnuð að viðlögðum
fangelsunum, en skömmu áður
en byltingin var gerð fór sím-
'stöðvarfólk í Aþehu í vérkfall.
; Leifturbylting hersins er há-
•punktur stjórnmálakreppu, sem
Grikkland hefur átt við að stríða
síðustu mánuðina. Hefur Kon-
stantín konungur staðið í mikl-
um stjórnmáladeilum við nokkra
fremstu stjórnmálamenn lands-
ins, þ. á m. hinn aldna Papan-
dreou, sem er andkonungssinni
og hefur gagnrýnt einveldið harð
lega á opinberum vettvangi.
Máltæki hans er jafnan: „Kon-
ungurinn ríkir, en fólkið stjórn-
ar“. í Lundúnum er álitið, að
byltingin hafi verið gerð til að
fyrirbyggja sigur vinstri manna
í kosningunum, sem fram eiga
að fara 28. maí nk. Upplýsti
gríska sendiráðið í Róm í dag,
að kosningarnar mundu fara
fram á tilsettum tíma, en það
virðist vera eina sendiráð Grikk-
lands, sem náð hefur símasam-
bandi við Aþenu f dag.
Stjórnmáladeilur
Til mikilla deilna kom milli
konungs og Papandreous, er kon
ungur lýsti sig andvígan þeirri
ákvörðun hans, að láta fjarlægja
hægrisinnuð öfl úr herforingja-
ráði landsins. Það jók enn á
sundurþykki þeirra, er upp
komst um samsæri vinstri sinn-
aðra liðsforingja í hernum, sem
tilheyrðu leynisamtökum, er
nefndu sig Aspida (Skjöldur).
Var álitið, að Andreas, sonur
Papandreóús, væri félagi í þess-
um leynisamtökum, en hann
naut þá þinghelgi og var því
ekki leiddur fyrir dómstól. Til-
gangur Aspida var að steypa
stjórninni og segja Grikkland úr
NATO.
Frá vinstri: Panajotis Kanello poulos forsætisráðherra, Konstantín konungur og Georg Papan-
dreou fyrrverandi forsætisráðhe rra.
Fregnir eru mjög á reiki um
ástandið í borginni, þar eð hún
er næstum algjörlega einangruð
frá umheiminum. Júgóslavneska
fréttastofan Tanjug heldur því
þó fram, að skipzt haifi verið á
skotum í miðborginni í morgun.
Flugvélar, sem lentu á flugvelli
Aþenu voru stöðvaðar og hundr-
uð farþega bíða þar enn { óvissu.
Fær enginn að fara frá landinu
eða koma til þess um óákveðinn
tíma, a.m.k. ekki meðan núver-
andi ástand varir.
Yfirstjórn NATO í Napólí tjáði
blaðamönnum þar í dag, að sam-
band bandalagsins við Grikk-
land hefði ekki rofnað og ekk-
ert benti til þess að svo mundi
verða. Væru samskipti banda-
lagsins og Grikklands með full-
komlega eðlilegum hætti.
Tyrkneska stjórnin ákvað í
dag, að setja herflokka við
landamæri ríkjanna í varúð-
arskyni. Fregnin um valdatöku
'hersins í Grikklandi hefur vakið
mikla athygli í Ankara, höfuð-
■borg Tyrklands, en stjórnin var
ekki reiðubúin í dag að leggja
dóm sinn á ástandið.
Kref jast lýðræðis
Frjálsu verkalýðssamtökin í
Brussel hafa krafizt þess, að lýð-
ræði verði endurreist í Grikk-
landi. Sagði í yfirlýsingu samtak
anna, sem gefin var út í dag, að
•þau fordæmdu skilyrðislaust
valdatöku hersins rétt fyrir kosn
ingar, sem bersýnilega væri ætl-
að að hafa úrslitaáhrif á kosn-
ingarnar. Sagði í yfirlýsingunni,
að hverjum grískum borgara
væri leyfilegt og skylt, að kjósa
samkvæmt eigin sannfæringu.
í Lundúnum var um það rætt
hvort bylting hersins væri ávöxt
ur langs fjandskapar Papandreo-
us og Konstantíns konungs. — f
Aþenu var almenn skoðun
manna, að Papandreou mundi
vinna meirihluta á þingi við
fyrirhugaðar kosningar og
mundi hann þá á ný taka við
forsætisráðherraembættinu, sem
konungur svipti hann í júlí 1965,
en embættissviptingin olli mikl-
um úlfaþyt í Grikklandi. Papan-
dreou átti að halda í kosninga-
leiðangur til Saloniki á sunnu-
dag.
Síðustu fréttir
Síðustu fregnir hermdu, að
Konstantín hafi sett „Spandakis
hershöfðingja“ yfirmann bylting
arinnar. Var þetta haft eftir
•Aþenuútvarpinu, en ekkert hef-
•ur enn heyrzt frá Konstantín
•konungi milliliðalaust. Sagði út-
varpið ennfremur, að byltingin
•hefði verið gerð til að tryggja
lög og reglur í landinu meðan
á undirbúningi kosninganna
stæði.
Haft er eftir talsmanni gríska
sendiráðsins í Belgrad, að gríska
•Þjóðþingið verði kallað saman {
Aþenu innan viku til að stað-
•festa valdayfirtöku hersins eða
vísa henni á bug. Kvaðst tals-
maðurinn hafa náð símasam-
•bandi við Aþenu seint á föstu-
dagskvöld. Hafi sér þá verið tjáð,
•að borgaraleg ríkisstjórn fari
enn með völdin í landinu.
Samkvæmt fregnum, sem bár-
ust er Mbl. var að fara í prent-
un hefur ný ríkisstjórn Grikk-
lands verið mynduð og hélt sinn
fyrsta fund seint í gærkvöldL
Útvarpið í Aþenu las eftir fund-
inn yfirlýsingu frá innanríkis-
ráðherranum, Stylianos Patakos,
þar sem sagði, að bann við flug-
umferð yrði aflétt kl. 5.30 á
laugardagsmorgun að staðar-
tíma. Þá verður útgöngubanni
einnig aflétt, en bann ríkir á-
fram við því, að fleiri en fimm
safnist saman á almannafæri.
Upplýst var einnig að leiðtogar
stjórnmálaflokka hefðu verið
handteknir ásamt ýmsum öðrum
stjórnmálamönnum.
Lögreglan í eltingar-
leik v/ð drukkinn
mann á stolnum bíl
VEGAEFTIRLIT lögreglunnar
lenti í miklum eltingarleik við
drukkinn ökumann á stolnum
bíl í fyrrinótt, og lauk honum
suður í Hafnarfirði með því, að
hinn drukkni ók bifreiðinni á
steinvegg.
Lögreglan var á ferð um Silfur-
túnið, er hún veitti atíhygli bif-
reið, sem ekið var eftir Hafnar-
fjarðarvegi, og þótti henni akst-
ur hennar grúnsamlegur. Veitti
lögreglan bifreiðinni því eftir-
för, og gaf ökumanni hennar
stöðvunarmerki. Ökumaðurinn
sinnti því engu, heldur jók ferð-
ina, allt upp í 130-140 km. hraða.
Þegar hin stolna bifreið var
komin að mótum Hvérfisgötu og
Strandgötu í Hafnarfirði, missti
ökumaðurinn stjórn á henni er
hann þverbeygði fyrir aðra bif-
reið. sem kom á móti honufn og
lenti síðar. á steinvegg við göt-
una. Ökumaðurinn ætlaði að
reyna að hlaupa á brott, en lög-
reglan náði honum fljótlega.
Maðurinn reyndist vera undir
áhrifum áfengis og réttindalaus.
Við yfirheyrslur kom í Ijós, að
hann hafði stolið bifreiðinni úr
bilskúr í Reykjavík. Hafði bíl-
skúrinn verið ólæstur, og stóðu
lyklarnir í bílnum. Stóðst maður
inn ekki freistinguna og ákvað
að bregða sér í ökuför, sem end-
aði þarna við steinvegiginn i
Hafnarfirði.
Sss^vsyos* iil ú fissigllma
Pasadena, Kaliforníu 21.
apríl AP-NTB.
BANDARÍSKA tungflaugin Sur
veyor III lenti mjúkri lendingu
í Stormhafinu á tunglinu í gær.
Að sögn vísindamanna í Pasa-
dena var lendingin þó ekki mýkri
en svo að Surveyor hoppaði tvis-
var í loft upp áður en hann
stöðvaðist og í fyrra skiptið 11
metra. Ekki virðist þetta þó hafa
haft áhrif á tæki hans. Surveyor
III er 2. bandaríska tunglflaug-
in, sem lendir mjúklega á t-ungl-
inu. Surveyor fyrsti lenti þar á
sl. ári, en Surveyor H fór út af
réttri braut og eyddist.
Myndavélar Surveyors tóku
þegar eftir lendinguna að senda I
sjónvarpsmyndir til jarðar af;
lendingarstaðnum, sem er 7.6
metra djúpur gígur. Myndirnar
voru fremur óskýrar vegna of
mikillar birtu, en vísindamenn-
irnir vonuðust til að þær myndi
batna síðar meir. Þrátt fyrir að
Surveyor lenti í gígnum ná
myndavélarnar upp úr gígnum
og hafa sent myndir af lands-
laginu. Eru jarðfræðingar mjög
ánægðir með lendingarstaðinn
og segjast geta fem T meiri upp-
i lýsingar frá honum, heldur en
ef Surveyor hefði lent á sléttu
svæði.
Eins og kunnugt er er Sur-
veyor III búinn lítilli gröfu. sem
á að taka sýnishorn af jarðvegi
tunglsihs rannisaká þau og senda
upplýsingar til jarðar. Ætla vís-
indamenn með þessu að full-
vissa sig um að yfirborð tungls-
ins sé nægilega sterkt til að
þola lendingu mannaðs geim-
fars. Vísindamennirnir höfðu
enn ekki í gær sett gröfuna af
stað, því að gera þurfti margar
tilraunir til að kanna hvort hún
starfaði ekki rétt, áður en hún
verður send út úr geimfarinu.
Vllni cskcsl
SIÐASTLIÐINN miðvikudag
um klukkan 14:30 varð vart við
47 búið var að aka á bifreiðina
R-6295 þar sem hún stóð á bíla-
stæði á Kirkjutorgi. Þetta er
kremgul Taunus bifreið. Vinstri
hlið hennar aftan til og nokkuð
frameftir hafði verið klesst inn
svo að augljóst er að sá sem
olli ákeyrslunni hefur orðið
hennar var. ökumaður sá er
vinsamlegast beðinn S'i hafa
samband við rannsóknarlögregl-
una, og eins þeir sem kynnu að
hafa séð atburðinn.
Leiörétling
f GREIN minni um Hákon f
Haga, ef sagt, að Magnús fyrr-
verandi verkstjóri í Botni hafi
reist bergrisann á Kleifarheiði.
Héfur Magnús beðið mig um að
leiðrétta þessa missögn. Segir
hann að vegavinnuflokkur Krist-
leifs Jónssonar verkstjóra hafi
reist styttuna, sein nefnd er
„Heiðarbúinn“, en Magnús var
einn þeirrá manná. Höfuðið er
mótað og stevpt af Kristjáni Jí-
hánnessyni Boitni, Tálknáfirði,
bróðursyni Hákönar.
Þetta leiðréttist héúmeð.
Gísii Jónsson.