Morgunblaðið - 22.04.1967, Side 4
4
MOKGUJNTBLiAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. APRIL 1967.
y"
BÍLALEIGAN
FERÐ
SÍAff 34406
Bensin innifalið í leigugjaldi.
5ENDUM
ÍMAGINÚSAR
SKIPHOLTI 21 SIMAR 21190
eftír lolcun simi 40381 —
Hverfisgötn 103.
Sími eftir iokun 31169.
LITLA
bíloleigon
lngólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald.
Bensín innifalið í leigugjaldi.
Sími 14970
BÍLALEIGAN
VAKUR
Sundlaugaveg 12. Simi 35135.
Eftir tokun 34936 og 36217.
j ---'BUJkiriGAN
láÖJuyjBSif
Allt frá LADY
Austurstræti 7.
-+Z Meira af því góða
Einn af gamla skólanum skrif-
ar:
„Greint hefur verið frá því
í fréttum, að Júgóslavinn
Mihajlo Mihajlov hafi verið
dæmur í fjögurra og hálfs árs
fangelsi í heimalandi sínu —
fundinn sekur um að hafa
dreift áróðri fjandsamlegum
stjórn landsins. Það var enn-
fremur staðfest við réttarhöld
þessi — af hálfu dómarans —
að það skoðanafrelsi, sem gert
væri ráð fyrir í stjórnarskrá
Júgóslavíu næði ekki til þess
að menn hefðu frelsi til að láta
í ljós eða berjast fyrir skoð-
unum, sem væru andstæðar
sósíalisma eða stjórn landsins.
Jógóslavar hafa með öðrum
orðum frelsi til þess að styðja
einræðisstjórn landsins — en
lengra nær hið svonefnda
„frelsi" ekki.
Við þurfum ekki að vitna
til þessara nýjustu réttarhalda
til þess að öðlast vitneskju um
hið sérstæða „frelsi“ í komm-
únistaríkjunum. Réttarhöldin yf
ir rússnesku rithöfundunum
tveimur og dómurinn, sem
sendi þá í margra ára vist í
þrælabúðum, er annað nýlegt
dæmi. Það þótti víst hálfgerð-
ur „lúxus“ hjá þeim að missa
ekki höfuðið.
Fréttir sem þessar berast oft
,að austan" en samt halda okk
ar íslenzku kommúnistar á-
fram að syngja „frelsinu“
eystra lof og dýrð.
Hvað ætli þeir segðu, ef slík-
ar aðferðir yrðu upp teknar
gegn þeim hér á landi? Það er
einmitt þesskonar „frelsi“, sem
þeir eru alltaf að bíða eftir —
að vísu ekkí til handa sjálfum
sér, heldur okkur hinum, með-
borgurunum.
Eða hvað hefði gerst, ef rit-
höfundur eða blaðamaður i
Bretlandi eða Bandaríkjunum
hefði verið dæmdur í margra
ára fangelsi fyrir að lýsa yfir
skoðunum, sem stönguðust á við
skoðanir ríkisstjórna þessara
landa. Þá hafði hvinið í ís-
lenzkum rithöfundum. „Frelsis-
unnendur“ hefðu þá farið
á stúfana, hér hefði verið
efnt til mótmælafunda á götum
og gatnamótum — og ég er
hræddur um að fréttastofa Út-
varpsins hefði eytt fleri orðum
á „fórnardýrið" vestra en þenn
an sjálfsagða fangelsisdóm fyr-
ir austan.
Einhvernveginn er það þann-
ið, að þeir, sem verða fyrir
barðinu á réttvísinni eða stjórn
arvöldum á Vesturlöndum,
hljóta hér ákaflega samúð
vissra afla í þjóðfélaginu, hvort
sem það eru svertingjar í Chic-
ago, rússneskir njósnarar í
Amsterdam eða bara ósköp
venjulegar fyllibyttur.
Alt öðru mái gegnir það, þeg
ar fréttirnar berast að austan
þá kippir fólk sér ekki upp við
smámunina. Menn eru sendir í
þrælkun fyrir að lýsa yfir að
þeir séu ósammála hinum ó-
skeikulu stjórnarvöldum, aðrir
eru murkaðir niður og drepnir
með köldu blóði af því að þeir
una ekki vistinni og reyna að
forða sér vestur yfir landamær
in. Þetta þykir svo sjálfsagt og
eðlilegt. að það fer inn um
annað eyrað og út um hitt á
fólki. Þá er ekki rokið til handa
og fóta. Tiltekin íslenzk frétta-
miðlunarstöð hefði varla talið
það fréttnæmt þótt hundrað
Austur-Þjóðverjum hefði verið
slátrað við MÚRINN í einu. En
Martin Luther King varð hetja
mánaðarins af því að hann pré-
dikaði í New York gegn stefnu
Bandaríkjastjórnar í Vietnam.
Johanson forseti flytti aldrei
svo merka Tæðu að hann
skyggði á King hiá fyrrgreindri
fréttamiðlunarstöð.
Og hvar eru nú Thor Vil-
hjálmsson og allir hinir „frels-
isunnandi" rithöfundar og lista-
menn? Þeir láta Mihajlo Mihaj
lov varla liggja óbættan hjá
garðil Eða hlaut hann makleg
málagjöld? Hann braut jú lög-
mál „frelsisins".
— Einn af gamla skólanum".
Illa settir
Gulla Jóns skrifar:
.Vevakandi
Mikil lifandi skelfing er að
vita hvernig stjórnmálamenn-
irnir tala hver um annan. Ef
við, þetta venjulega fólk, hefð-
um sama hátt á gagnvart ná-
grönnunum? Þá værum við tal-
in eitthvað skrýtin. Þess vegna
vona ég að stjórnmálamennirn-
ir fái fyrirgefningu fyrir allar
ásakanirnar, sem þeir bera á
annað fók. Þeim veitir ekki af
Guðsblessuninni. — Gulla Jóns"
Hvað á að gera við
peningana
Gvendur gæi skrifar:
„H^lló Velvakandi
Maður skrifar þér ekki á
hverjum degi, maður hefur allt
annað og merkilegra að gera.
En samt les maður það, sem
þú og aðrir skrifa í Moggann.
Maður reynir svo að fylgjast
með.
En segðu mér, hvað á maður
að gera við kall og kellingu,
sem alltaf eru með nefið niðri
1 öllu, sem maður lítur á sem
einkamál, prívatmál — meina
ég. Það er eins og maður megi
ekki eiga neitt prívat fyrir sig.
Ég er orðinn sautján ára,
kominn með skegg og hvaðeina
— og samt er maður meðhöndl-
aður eins og beibí. Á maður að
segja öllu liðinu stríð á hendur
og spæla mannskapinn?
Nú er ég að hugsa um að
kaupa mér tryllitæki (ég meina
drossíu eins og kalinn og kell-
ingin orða það) og þau eru al-
veg galin yfir þessu. Hefur mað
ur annað þarfara við pening-
ana að gera? Ekki setur maður
allt í skvísur og skemmtanir þó
maður sér mikið í geiminu. Kall
inn segir að ég þéni meira en
hann, grænn og gulur af öfund.
En ekki er það hlutverk mitt
að spandera í uppeldi á honum,
þótt hann hefði gott af smá
yfirhalningu. Hann segir að
uppeldið á mér hafi mislukk-
ast. Er það mér að kenna?
Blessaður skrifaðu eitthvað
um að kallar og kellingar eigi
ekki að skipta sér af því þótt
synir þeirra kaupi sé tryllitæki.
Maður er nú orðinn sautján,
bráðum átján. Kellingin trúir
ölu sem þú skrifar.
En segðu ekki að ég hafl
skrifað þér. Þá spólar hún.
Blessaður.
Gvendur gæi".
Velvakandi breytti ekki rit-
hætti bréfsins til þess að
skemma ekki boðskapinn. Ég
get vel trúað því sem Gvend-
ur segir, að uppeldi hans hafl
að einhverju leyti mistekizt
og sennilega er það einum of
seint fyrri „kall og kellingu"
að ætla að byrja að rass-
skella hann núna. Það er erf-
itt að rassskella strák með
skegg.
Annars ráðlegg ég Gvendl
að læra að skrifa nafnið sitt
rétt áður en hann kaupir bíL
Traktorsgröfur
til leigu. Tökum að oss lóðastandsetningar, gang-
stéttar, heimkeyrslu o. fl. Sími 36366.
Til lcigu
rúmgóð (110 m) 3ja herbergja risíbúð á Högun-
ura frá 14. maí n.k. Engin fyrirframgreiðsla. Tilboð
sendist blaðinu fyrir miðvikudagskvöld merkt:
„Útsýni — 2412".
Manthey
Vönduð hljóðfæri. — Vestur-þýzk píanó og pían-
ettur. Margir verðflokkar. — Hagstæð greiðslu-
kjör.
Baldur Ingólfsson, heildverzlun.
Álfheimum 19 — Sími 8-10-40.
Atvinnurekendur
Reglusamur maður, sem er tæknifræðingur, vél-
stjóri og vélvirki, óskar eftir starfi. Vanur teikn-
ingum, nýsmíði, framleiðslu og viðgerðum. Margt
kemur til greina, m.a. starf hluta úr viku. Sendið
vinsamlegast skilaboð til afgr. Morgunbl. sem fyrst,
merkt: „Traust viðskipti — 2185“.
BRÆÐURNIR KAMPAKÁTU — — TEIKNARL JÖRGEN MOGENSEN