Morgunblaðið - 22.04.1967, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. APRtL 1967.
11
RÆTT VIÐ FULLTRÚA Á LANDSFUNDI
ana af, 1 sumarfríum. Annar
þessarra lækna sagði mér, að
nú gætu þeir valið úr mörg-
um mönnum til að leysa sig
af. Og tel ég það mikið happ,
að við þurfum ekki lengur að
standa auglitis til auglitis við
læknisleysi eins og sl. sumar.
Ég er bjartsýnn á kosning-
ernar í sumar á Húsavík og
S-þing. og eru tvær ástæður
til þes. Hin fyrri er að þing-
menn Sjálfstæðisflokksins
hafa reynzt kjördæminu mjög
vel enda óvenjugott samstarf
milli þessarra þriggja manna.
Hin ástæðan er sú, að Bjart-
mar á Sandi er sá Suður-Þing
eyingurinn, sem kemur til
greina með að sitja á Alþingi
iiæsta kjörtímabil og því
búizt að Þingeyingar vinni
ötullega að kosningu hans.
★
MARZELÍUS Bernharðsson,
•kipasmiðameistari, á ísafirði
er einn fulltrúa á Landsfundi
Sjálfstæðisflokksins. Við tök-
um hann tali og hann segir
okkur svolítið frá bæjarmál-
efnum á ísafirði:
— Það þarf að vinna bet-
ur að uppbyggingu á ísafirði.
Mikill húsnæðisskortur er þar
og verði ekiki unnið að lausn
þess vandaméls. fjölgar ekki
í bænum. Iðnaðurinn vex
heldur ekki meðan fólki ekki
(fjölgar, svo að allir sjá hversu
brýnt mál þetta er. Gera þarf
iðnaðinn margbreytilegri.
Samgöngumál eru orðin góð,
eérstaklega í lofti. Hins vegar
þarf að vinna betur að vega-
kerfinu — vegir eru enn ekki
nógu góðir. Athyglisvert er
hvað samgöngur í lofti bötn-
uðu mikið og eru raunar
orðnar prýðilegar við til-
fcomu Fokker-vélanna.
Nú er og unnið að því að
bæta aðstöðuna á ísafjarðar-
flugvelli. Lagður hefur verið
grunnur að nýju flugstöðvar-
húsi sem vonast er til að
verði komið upp í sumar, Þá
standa og voriir til að völl-
urinn verði malbikaður og
bætir það að sjálfsögðu að-
stöðuna til muna.
— Þá væri æsilegt að
fleiri skipakomur yrðu í fram
tíðinni. Komur strandferða-
skipa hafa verið helzt til stop
ular upp á síðkastið, en með
tilkomu þeirra tveggja skipa,
sem áætlað er að smíða fyrir
Skipaútgerðina mun væntan-
lega leysast þetta vandamál.
Hins vegar má segja, að
samgöngur yfir sumarmán-
uðina séu orðnar allgóðar.
— Hvað ég vil segja að
lokum? — Ég vona það, að
kosningastarfsemin gangi vel
og að flokkurinn haldi sínu
hvar sem er á landinu.
★
ÁSGRÍMUR Hartmannsson,
bæjarstjóri á Ólafsfirði, er
einn af íulltrúum Norðiend-
inga á Landsfundinum.
— Mér lízt nokkuð sæmi-
lega á kosningarnar í vor.
Við höfum aldrei gengið til
kosninga sterkari málefna-
lega. Það er áberandi fyrir
landsbyggðina, að núverandi
ríkisstjórn er fyrsta stjórnin,
sem gert hefur verulegt átak
til að skapa uppbyggingu um
land allt, og á ég þar
við framkvæmdaáætlanirnar,
bæði Vestfjarðaáætlunina og
Norðurlandsáætlunina.
Þrátt fyrir aflaleysi og ýmsa
óáran, sem brjáir okkur fyrir
norðan virðist meiri skilning-
ur ríkjandi hjá ríkisstjórninni.
en oft áður, á nauðsyn já-
kvæðra aðgerða til að mæta
tíimabundnum erfiðleikum
vegna aflabrests og annars
þess konar og til að mæta
vaxandi kröfum almennings
til bættra lífskjara, ekki sízt
úti á landi. Landsbyggðin var
orðin á eftir í uppbyggingu,
sérstaklega á tímum aftur-
haldsstjórnarinnar, sem leyfði
sér oft að kalla sig vinstri
stjórn.
— Atvinnuástand er nokk-
Uð sæmilegt á Ólafsfirði. Er
það fyrst og fremst að þakka
Útgerðarmönnunum, sem hafa
haft báta sína heima, þrátt
fyrir aflaleysi. Því verður að
vísu ekki neitað, að veðurfar
hefur verið með eindæmum
og erfitt til sjósóknar. Vil ég
að lokum geta þess, að ekki
eru líkur á, að stærri bátar
verði gerðir út frá Ólafsfirði
að vetri til, nema hafnarskil-
yrði verði bætt, en að því er
nú verið að vinna.
★
LÁRUS Gíslason, bóndi í Mið
húsum, sagði að veturinn
hefði verið frekar erfiður og
gjafafirekur. Að vísu hefði
ekki verið snjóþungt, en um-
hleypingasamt.
— Ég tel, að brýnasta hags-
munamál okkar bænda sé að
auka útflutningsframleiðsluna
á landbúnaðarafurðum og
reyna að fá hærra verð. Sér-
staklega á það við um sauð-
fjárafurðir. Það mundi koma
allri þjóðinni að gagni. Ég
hallast að því, að yfirleitt hafi
verið haldið nokkuð vel á
málum landbúnaðarins, en
auðvitað er alltaf hægt að
finna eitthvað að, og er það
ekki nema eðlilegt. Það voru
gerð mistök á síðastliðnu vori,
er innviktunargjaldið var
sett á, enda kom í ljós, að
þess þurfti ekki, og var það
fyrirsjáanlegt. Tíðarfarið í
fyrra var þannig, að auðséð
var, að framleiðslan myndi
minnka. En til þess eru mis-
tökin, að ménn læri af þeim.
— Það verða ekki miklar
breytingar í kosningunum í
vor að mínu viti. Sjálfstæðis-
flokkurinn stendur vel mál-
efnalega og þjóðin ætti að
hugsa sig tvisvar um áður en
hún breytti stjórnarfari. Hin
leiðin er óráðin og vafasamt
að það verði til heilla að
fara hana.
★
KRISTJÁN Skarphéðinsson,
framkvæmdastjóri félagsheim
ilisins á Sauðárkróki, sagði,
að atvinna hefði veríð heldur
dræm í vetur.
— Það hefur verið fiski-
og gæftaleysi í vetur og ann-
að frystihúsið hefur verið svo
til lokað í allan vetur. Það er
mjög brýnt, að atvinnumál-
unum verði komið í viðun-
andi horf, og tel ég, að léttur
iðnaður ætti að sitja í fyrir-
rúmL
— Félagsheimilið er orðið
full lítið og svarar ekki leng-
ur kröfum tímans, sérstaklega
háir það leikstarfsemi. Það er
hugmynd okkar að reyna að
reisa nýtt félagsheimili, og er
það nú í teikningu hjá Jóni
Haraldssyni arkitekt. Er ætl-
unin, að þar verði góð að-
staða fyrir leikstarfsemi og
eins góður danssalur. Leik-
starfsemi er mikil á Sauðár-
króki og verður leikfélagið 80
ára á næsta ári.
— Mér lýst nokkuð vel á
kosningarnar sagði Kristján
að lokum, það eru ungir og
efnilegir menn í framboði og
væntum við okkur miikils af
því. Tel ég ekki ólíklegt, að
flokkurinn bæti verulega við
sig í kosningunum í vor.
★
ÞÁ hittum við að máli Jó-
hann Friðfinnsson úr Vest-
mannaeyjum, og inntum hann
tíðinda af málum þeirra eyj-
arskeggja.
— Það hefur verið með ein-
dæmum erfið veðrátta, svo að
sjósókn hefur verið mjög harð
sótt, en aflabrögð hafa geng-
ið sæmilega. Okkar mesta
hagsmunamál er, að land-
helgin verði skipulega nýtt,
og teljum við rangt að farið,
að halda litlu bátunum með
sín afkastalitlu veiðarfæri
utan landihelginnar, meðan
stóru bátarnir mega veiða
innan hennar. Menn eru mjög
óánægðir með þessa skipan
mála, og það liggur fyrir, að
þessu verður að 'breyta. Vest-
mannaeyingar verða að sækja
allt sitt til sjávarins og I
Eyjum eru miklir möguleikar
til góðrar nýtingar. Þar eru
stærstu og bezt skipulögðu
frystihúsin í landinu. Vil ég
í því sambandi geta þess, að
útvegsmönnum í Eyjum þætti
vænt um, ef sjávarútvegs-
málaráðherrann kæmi til
þeirra til skrafs og ráðagerða,
þvi að hann hefur ekki sézt
í mörg ár.
Forustuhlutverk Sjálfstæð-
isflokksins frá því að vinstri
stjórnin hrökklaðist frá, hef-
ur skapað þau tímamót og
markað þá stefnu, að von-
andi bera fslendingar gæfu
til að halda henni áfram.
— Samgöngur við Vest-
mannaeyj ar hafa stórbatnað
á síðustu árum. Hinar nýju
flugvélar F.f. hafa átt þar
stóran hlut að máli, og er
nú verið að gera aðra flug-
braut, og bindum við miklar
vonir við það. Þá fylgjumst
við af áhuga með nýjungum
á sviði samgöngumála, sem
henta mundu Eyjum og höf-
um sérstakan áhuga á loft-
púðaskipi ef það reynist vel.
Allir þungaflutningar fara
fram á sjó, og mikils um vert
að þeir gangi greiðlega.
NÆST tökum við tali Ólaf
Þórðarson, bónda á ökrum í
Hraunhreppi í Mýrasýslu.
Við spyrjum hann um helztu
hagsmunamál byggðarlagsins
og hann svarar:
— Brýnustu hagsmunir eru
að vegaframkvæmdir verði
aúknar. Einnig eru raforku-
mál mjög brýn, en byggðar-
lagið er strjálbýlt og því raf-
magn frá samveitum fátítt
sums staðar. Hins vegar hefur
það aukizt mjög að settar hafi
verið upp heimaveitur og er
þar raunar um stórátak að
ræða.
— Búskaparhorfur eru góð-
ar. í Hraunhreppi eru mestu
ræktunarframkvæmdir í sýsl-
unni, bæði í nýrækt og skurð
greftri. Landið er flatt og vot
lent og því mikil þörf á að
ræsa fram. í þeim efnum
verðuT hið opinbera að koma
til aðstoðar. Afréttur er ekki
góður og heimabeitiland lítið,
en með stórvirkum þurrkun-
um og áburði má gera mik-
ið til endurbóta.
— Jú, það er mun betra
að búa nú en áður. Þær ráð-
stafanir, sem gerðar hafa
verið í tíð núverandi stjórn-
ar hafa borið miög góðan ár-
angur, þótt alltaf þurfi að
sækja fram. í því sambandi
má geta þess að við erum vel
í sveit settir — samgöngur
eru góðar við Reykjavík og
nýtur Mýra- og Borgarfjarð-
arsýsla þess.
■— Já, ég er því bjartsýnn
á framtíðina og kosningarnar.
Ég býst ekki við mikilvæg-
um breytingum á afstöðu
flokkanna. Stjórnarflokkarn-
ir hafa unnið vel og mér
finnst sérstaklega mikil á-
stæða fyrir bændur að styðja
við þá, því að þeir vinna þeirn
veL
★
JÖHANN Ölafsson frá
Siglufirði er í fjrrsta sinn
fulltrúi á Landsfundi. Sér
hann um skrifstofu Sjálfstæð-
isflokksins á Siglufirði.
— Ég tel það brýnt fyrir
Siglfirðinga, að aukin verði
bátakaup til staðarins, sérstak
lega síldarbáta. Þá þykir mér
einnig rétt, að leyfðar verði
togveiðar í landhelgi, bæði
togbátum og togurum á viss-
um stöðum. Þá er einnig
brýnt að auka niðursuðuiðn-
að á Siglufirði og fullnýta
síldarafurðirnar.
— Samgöngur við Siglu-
fjörð eru óviðunandi að vetr-
inum eins og er. En úr því
mun rætast þegar jarðgöngun
um 1 gegnum Stráka er lokið..
Einnig mun flugvöllurinn,
sem verið er að gera, stór-
bæta ástandið.
— Mér lízt nokkuð vel á
kosningarnar. Listinn er ágæt
lega skipaður og við stöndum
vel málefnalega. Norðurlands-
áætlunin verður til mikils
gagns fyrir Norðlendinga, þeg
ar farið verður að vinna sam
kvæmt henni. Þá er hin mikla
aðstoð við húsbyggjendur
þungt lóð á vogarskálina. Þá
væntum við okkur mikils af
byggingaráætluninni, og
þeirri aðstoð er húsbyggjend-
um er veitt með henni.