Morgunblaðið - 22.04.1967, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1967.
19
!>
New York, Washington,
Ziirich.
21. apríl — NTB—AP —
SVETLANA Stalína, dóttlr
Jósefs Stalíns fyrrum einræð
isherra Sovétríkjanna, Kom
tii New York í kvöld með
flugvél frá Ziirich í Sviss.
Við komuna til New York
sagði hún við blaðamenn, er
biðu hennar á Kennedyflug
velli, að hún hefði komið til
Bandaríkjanna til að finna
sjálfa sig — ,,nokkuð sem
mér hefur verið neitað um í
Sovétríkjunum“, sagði liún
og bætti við: „Allt frá barns
aldri var ég alin upp við
kenningar kommúnismans og
upphaflega trúði ég á þær.
En eftir því sem ég varð
eldri og reyndari, fengu aðr-
ar hugsanir meiri ítök í mér.
Hún skýrði ennfremur frá
því, að hún hefði skrifað bók,
sem gefin yrði út í Banda-
ríkjunum. ,Sú bók verður
tákn fyrir tilgang minn með
því að koma til Bandaríkj-
anna — en hann er sá, að
öðlast rétt til að segja það,
sem mér sjálfri finnst. Þess
réttar hef ég lengi leitað.“
Talsmaður bandaríska ut-
anrikisráðuneytisins, Mc-
Closky, sagði við blaðamenn
í Washington í dag, að Svet
lana hefði fengið vegabréfs-
áritun til Bandaríkjanna og
ferðamannaleyfi — sem
venjulega gildir í þrjá til sex
mánuði — sem hún gæti
framlengt að vild. Henni
væri frjálst að setjast að í
Bandaríkjunum eða livar
annars staðar, sem hún vildi
— hún mundi gei-a þ:ið upp
við sig sjálf og taka ákvörð
un um það ein.
McClosky sagði, að Sovét-
stjórninni hefði verið skýrt
frá för Svetiönu til Banda-
ríkjanna.
Haft er eftir góðum heim-
Mynd þessi var tekin árið 1930. Barnið til vinstri er Svetlana. Næstur henni situr bróð-
ir hennar, Vassili og heldurá dóttur Bukharins, kommúnis taleiðtogans, sem var drepinn
fjórum árum síðar. Að bakiheim eru frá vinstri: fóstra barnanna, Nadia, móðir Svetlönu
og Anna móðursystir Svetlönu. Að baki þeim standa systirog mágkona Stalins.
Svetlana Stalina í New York:
,Komin til að öölast rétt til að
segja þaðsem mér sjálfri finnst'
ildum í Washington, að
bandarískir einkaaðilar
greiði ferðir Svetlönu — eða
lögfræðingur í New York,
sem gengið hafi frá útgáfu
bókar hennar.
Handritið að bók. Svet-
lönu — sem telur um það
bil 80.000 orð, er fyrir
nokkru komið til New York
og er þýðing á því að hefj-
ast. Segir í frétt AP, að hún
liafi lokið við að skrifa bók-
ina fyrir fjórum árum — en
þar segir frá dvöl hennar og
lífi í Kreml. Bókin mun
koma út hjá Harper & Row-
forlaginu 16. október n.k.
Fregnin um að Svetlana
væri á leið til New York
kom mjög á óvart, því að
ekkert hefur frétzt um ferð
ir hennar að undanförnu.
Var ekki vitað, þegar hún
fór frá Sviss, en skömmu
eftir brottförina var birt
orðsendimg frá henni, þar
sem sagði, að hún hefði farið
til Bandaríkjanna að eigin
ósk og af frjálsum vilja. í
orðsendingunni þakkaði hún
svissneskum ' yfirvöldum
hjartanlega fyrir þá gest-
risni og vinsemd, er þau
hefðu sýnt henni— og sagð-
ist mundu geyma góðar
finningar um dvöl sína í
Sviss, þar sem hún hefði get
að hvílzt og fengið næði til
að hugsa.
Það var 'ögfræðingur Svet
lönu í Ziirich, sem orðsend-
inguna birti og það með, að
hún hefði fengið vegabréfs-
áritun til Bandaríkjanna þeg
ar, er hún var í Nýju Delhi.
NTB hefur í dag eftir
frönskum vini Svetlönu í
New York, Emmanuel Aast-
ier de la Vigerie, að útgáfu-
fyrirtæki hafi boðið henni
milljónir dollara í æfiminn-
ingar hennar — en hún hafi
viljað forðast að skapa æs-
ingu, — hún hafi andstyggð
á stjórnmálum og eigi raun-
verulega hvorki heima 1
Bandaríkjunum né Soi'étríkj
unum. Ekki kærir hún sig
heldur um að flótti sinn
verði notaður í æsingaskyni.
Nýlega birti Astier, sem
sjálfur er bókaútgefandi og
stjórnmálamaður, þrjú bréf
frá Stalín til dóttur sinnar.
Seldi hann birtingarréttinn
„The Sunday Teiegraph“
með þeim ummælum, að
hann væri að reyna að afla
fjár fyrir Svetlönu, til þess
að hún neyddist ekki til að
taka tilboðum bandarískra
bókaútgefanda í æfiminning-
ar sínar.
í bréfum þessum kemur
fram, að Svetlana befur nán
ast tekið við stjórn heimil-
isins eftir fráfall móður
hennar, 1932, enda þótt hún
hafi þá sjálf aðeins veiið
lítil stúlka. Stalín kallar
hana „litlu húsmóðurina" og
segist sakna fyrirskipana
hennar. „The Sunday Tele-
graph“ segi næsta ótrúlegt,
að Stalín skuli hafa skrifað
þessi bréf til Svetlönu, svo
full elskusemi um þær sömu
mundir — á árunum 1934—
’39, sem hann sendi hundr-
uð þúsund manna til aftöku
sveitanna eða í fangelsi og
vinnubúðir, þar sem ekki
beið annað en þrælkur. og
dauði.
í einu bréfanna segir Stal
ín: „Ég fékk bréfin frá þér.
Það er augljóst, að þú hef-
ur ekki gleymt pabba gam’.a
ennþá. Það er gott. Mér líð-
ur vel, en ég sakna þín þó
nokkuð. Ég hef þig ekki til
að skipa mér fyrir eða láta
mig snúast í kringum þig og
það er heldur leiðinlegt fyrir
mig, vesalings einkaritarann
þinn, að hafa engan til að
stjórna sér. Ég sendi þér
nokkur póstkort. Skoðaðu
þau, kannski hefðurðu gam-
an af þeim.
Allir ritararnir þínir senda
kveðjur. Þeir biðja þig að
gleyma sér ekki og senda
margar skipanir. Koss handa
elskulegu bústýrunni minni.
— Þinn pabbi.“
Og í öðru bréfi segir hann:
„Kveðjur til húsmóður ni nn
sr, Sotönku. — Ég hef fe.ng-
ði öll óréfin þín. Þakka þér
fyrir þau. Ég hef ekki svar-
að bréfunum bínum. vegna
þess, að ég befi verið öna-
um kafinn. Hvernig verð þú
timanuin'í livernig ge .gur
enskan'! r.ið? Táður þér ve.?
Mér líður vel — og ég er
kátur og glaður, eins og allt
af. Þó sakna ég þín en við
því er ekkert að gera, ég
verð að sætta mig við þetta.
Hér kemur stór kross
nanda þér — þinn hlýðni
einkaritari, Pabbi — Slalín.“
Sem kunnugt er á Svet-
lana Stalína tvö börn heima
í Rússlandi. NTB fréttastof-
an segir í dag eftir syni
hennar, Josef, sem ar 21 árs
að aldri, að hann hafi talað
við móður sína í síma í gær-
kveldi— er hún var i Ziirich
— og hafi það verið hið
fyrsta, sem þau systkinin
heyrðu frá henni, frá því hún
fór að heiman fyrir u.þ.b. 4
mánuðum.
Frú Andrea Oddsteinsdóttir sýn ir kjól frá Charleston-tímabil-
inu á skemmtun Systrafélags Ke flavíkur í fyrra.
Susan Jónasar cpsiar
sýningu i Bogasal
SYSTRAFÉLAG Keflavíkur-
kirkju gengst fyrir skemmtun
i félagsheimilinu Stapa, sunnu-
dagir.n 23. apríl n.k. Siðdegis-
skemmtunin hefst kl. 3. Ýmis-
legt verður til skemmtunar t.d.
tízkusýning undir stjórn Andreu
Oddsteinsdóttur, Ríó-tríóið syng
ur og leikur. Þá sýna nemendur
úr dansskóla Hermanns Ragnars
og systurnar Þórdís og Hanna
skemmta með söng.
Um kvöldið verður skemmtun
in endurtekin og hefst þá kl. 9.
Skemmtiatriðin verða þau sömu
og um daginn að slepptri dans-
sýningu, en dansarar úr Þjóð-
dansafélagi Reykjavíkur
skemmta. Þá verður skyndihapp
drætti. Undirleik annast Magn-
ús Pétursson og Páll Bjarnason.
Kynnir verður Haukur Ingason.
Allur ágóði af skemmtuninni
rennur til Keflavíkurkirkju..
1 DAG, laugardag, opnar mál-
verkasýningu í Bogasalnum ung
'ensk listakona, og nefnir hún
Sýninguna: Myndir úr Reykjavík
bg eru það orð að sönnu, þvi að á
sýningunni eru myndir af fjöl-
mörgum kunnum og ókunnum
stöðum úr Reykjavík.
Listakonan heitir Susan Jón-
asar, og er gift íslenzkum verzl-
unarmanni, Sigurgeir Jónasar,
og eiga þau einn þriggja ára
dreng.
Við komum á sýninguna í gær,
þar sem verið var að koma fyrir
38 myndum, 17 olíumyndum, 17
Vatnslitamyndum og 4 teikning-
um á veggjum Bogasalarins.
Susan Hodge Jónasar stundaðl
nám í 4 ár við St. Martins School
öf Art í London og eitt á í Leeds,
og þau hjónin hafa búið hér-
lendis í 4 ár, en kynntust þegar
frúin var hér í sumarfríi.
Myndirnar eru af stöðum I
Reykjavík, sem allir Reykvik-
ingar kannast við, og er ekki að
éfa, að margan fýsi að skoða sýn-
ingu þessa en allar myndirnar
eru til sölu.
Sýningin er opnuð kl. 4 á laug-
ardag, en verður svo framvegia
öpin fram til hins 30. april frá
kl. 2—10.
Þrír bátar tekn-
ir í landhelgi
ÞYRLA Landhelgisgæzlunnar
tók sl. miðvikudag tvo báta að
meintum ólöglegum veiðum út
af Eyrarbakka. Bátar þessir
voru Hafrún NK180 og Rán
SU-58. Þá tók varðskip Þorlák
AR-3 að meintum ólöglegum
veiðum út af Þorlákshöfn, og hef
ur þessi bátur verið tekinn fjór-
um sinnum í þessum mánuði.
Mál bátanna þriggja verður
sennilega tekið fyrir í heima-
I höfnum þeirra.